Morgunblaðið - 06.05.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ S'UNNUDAGUR'6. MAÍ 1990
eitt fyrsta verk hernámsliðsins var
að hertaka veðurstofuna en lofthiti
var þó mældur og var hann á bilinu
12-13 stig á selsíuskvarða. Athug-
anir á Reykjanesi segja að það hafi
verið alskýjað og á vestanverðu
landinu hafi verið hæg vestlæg átt
og skúrir. Pétur Ólafsson segir í
endurminningagrein sem birtist í
Lesbók Morgunblaðsins 4. febrúar
1984 að sól hafi verið yfir Lága-
felli séð frá Reykjavík þegar her-
skip sigldu inn hafnarmynnið.
Það er ekki ofsögum sagt af for-
vitni Reykvíkinga. Bærinn var
smærri í þá daga og flestir bæjarbú-
ar sem lifðu þennan dag segjast
hafa orðið var við hernámið strax
og þeir vöknuðu eða mættu her-
mönnum þegar þeir voru á leið til
vinnu. Þess má geta að símaeign
og notkun var ekki jafn almenn og
er í dag en Pétur Ólafsson segir í
Lesbókargrein sinni að sjálfvirki
síminn innan Reykjavíkursvæðisins
hafi fljótt orðið rauðglóandi.
Reykvíkingum varð ekki mikið
úr verki þennan dag. Allir sem vettl-
ingi gátu valdið fylgdust með
hernámsliðinu. Gunnar M. Magnúss
rithöfundur tekur til þess að stórir
herflutningavagnar hafi hlunkast
um göturnar og Bretar hafi ekki
virt öku- og umferðarreglur og
streist með fallbyssur á hjólum inn
Laugaveg móti bílastraumi og trufl-
að umferð langar stundir. Innlend
ökutæki voru einnig tekin í þjón-
ustu herliðsins.
Mönnum virðist hafa stafað ákaf-
lega takmörkuð ógn af þessu breska
herliði. „Við horfðum á dátana með
forundran sveitamannsins,“ sagði
einn sjónarvottur. Skólakrökkum
varð ekki heldur mikið úr námi því
Bretarnir hernámu skólahúsnæði,
.ennfremur var námsáhuginn tak-
markaður. Einn nemandi sem var
í fríi þennan dag minnist sérstak-
lega lítið lystlegs „kartöflugrauts
sem þessi grey voru fóðruð með;
annars var þetta ákaflega renglu-
legt lið“.
Kl. 11 árdegis heilsaði breski
sendiherrann upp á Hermann Jón-
asson forsætisráðherra í Stjórnar-
ráðshúsinu við Lækjartorg og gerði
honum grein fyrir hinum óvanalegu
aðgerðum heimsveldisins. Ríkis-
stjórnin mótmælti hlutleysisbrotinu.
Í útvarpinu var tilkynnt að vænta
mætti ávarps forsætisráðherra um
kvöldið.
Milli þess að menn og konur
skoðuðu dátana var skipst á skoð-
unum um hernámið. Margir voru
því fegnir að hér fóru Engilsaxar
en ekki menn þýðverskir. Þegar
mesti asinn var runninn af her-
mönnum tókust nokkur kynni og
orðaskipti. Sjónarvottar lýsa þeim
yfirleitt alúðlega. Hermenn þessir
voru frábrugðnir sumum forfeðrum
okkar norrænum og létu vel að
börnum en fleygðu ei á spjótsodda
eins og greinir frá í Landnámu.
Fullorðnum buðu þeir stundum
sígarettur — og renndu hýru auga
til kvenna. Milli nóns og miðaftans
fór bæjarlífið að færast í eðlilegra
horf. Reykvískar húsmæður tóku
starf sitt alvarlega í þá daga og
það var virðingarleysi að forsmá
borðhaldið.
Kl. 8.30 flutti forsætisráðherr-
ann ræðu. Hann gerði þjóðinni grein
fyrir atburðum dagsins og orða-
skiptum sínum við breska sendi-
herrann. Hermann Jónasson endaði
ræðu sína með hvatningu til þjóðar-
innar um að skoða hermennina sem
gesti og sýna þeim kurteisi í
hvívetna. Margir voru gestkomandi
þetta kvöldi í öðrum húsum. Menn
og konur ræddu um ræðu ráðherr-
ans og atburði dagsins og hvað
byggi í skauti válegar framtíðar.
En að lokum kvöddu gestirnir.
Margir mættu öðrum „gestum“ á
leiðinni heim en á þeim var ekkert
fararsnið. g
17í r
Til sölu eru allar eignir þrotabús
Sultu- og efnagerðar bakara S.V.F.
Óskað er eftir tilboðum í neðangreindar eignir:
A) Fasteignina Lyngháls 7, Reykjavík.
Nánar tiltekið iðnaðarhúsnæði, samtals 2.391 fm að stærð.
B) Vélasamstæðu til sultu- og grautagerðar.
C) Vélasamstæðu til smjörlíkis- og súkkulaðigerðar.
D) Skrifstofubúnað og áhöld.
Tilboðum skal skila til Lögfræðiskrifstofu Sigurmars K. Albertssonar hrl. á Klapp-
arstíg 27, Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Magnús H. Magnússon hdl., Klapparstíg 27, Reykjavík.
: • :
ALLA HELGINA
WB^^ÁdÁsÁmÁra
ír LADA bílanna
iSKSáöL
lada SPORT
f/Þessumjeppahafa
ahZ 9armi°9miklaog
goða reynslu, bæðisem 9
IVtfWskyldu-og
ferðabil og öflugum
vmnuþjark.
Núeiga bænduroq
rekstraraðilar kost á þvi
ð draga virðisaukaskatt-
mn fra bilverði.
VEITIHGflR FRfl:
sol
vinnubil, kraftnmk|nrlf
ísinn 3»
Útsala á vélsleúalatnaúi Irá Urctic Cat.
íírmúla 13 Irá kl. lú-17 laiigarúag og sunnuúag ******
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF 1
13 -193 Kertlivík -símat 31239 -991299 *+