Morgunblaðið - 06.05.1990, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAI 1990
Hervædingin
FRÁ REYKJA VÍK TIL
REYÐARFJARÐAR
Vamarleysi Austur- ogNorðurlands oUi Bretum áhyggyum
eftir Pél Lúðvík Einorsson
BRETARNIR VORU KOMNIR og- vera þeirra var til
írambúðar. En þeim voru ljós þau sannindi, að oft
er erfíðara að halda fengnum hlut en afla og að tök
heimsveldisins á landinu væru ekki traust. Næstu daga og
vikur var herlið sent til fleiri staða umhverfís landið.
UM 2.000 LANDGÖNGULIÐAR
höfðu tekið þátt í að hernema
landið. — En Bretaveldi hafði ærna
þörf fyrir þessar úrvalssveitir sínar,
annarsstaðar en á Islandi. Hinn 17.
maí voru flestir landgönguliðanna
leystir af, þann dag kom nýr lið-
styrkur um 4.000 manna sem sam-
anstóð m.a. af 147 fótgönguliðs-
stórdeildinni (brigade) og hlutum
Wellington-herdeildarinnar (regi-
ment) og herdeildar frá Jórvíkur-
skýri vestanverðu (West-Yorks).
Herfróðum mönnum þótti nokkuð á
skorta á vopnaútbúnaðinn; fallbyss-
ur, flugvélar og síðast en ekki síst
loftvamarbyssur.
Hernámslið hans hátignar fékk
nýjan yfirmann, George Lammie
stórdeildarforingja (brigadier). í riti
Donalds F. Bittners The Lion and
the White Falcon má lesa að verk-
efnið hafi verið hið sama og áður,
hindra Þjóðveija í að taka
Reykjavík og byggja flug- og flota-
stöðvar um eynna.
Bittner segir einnig, að upphaf-
lega hafi Lammie áformað að veija
Reykjavík en hafa auga á lands-
byggðinni með eftirlitsflugi. Ef á
reyndi var ráðgert að eyðileggja eða
spjlla fyrir óvininum þeirri aðstöðu
á íslandi, sem honum gæti gagnast
til ófriðar. En Bretum þótti sam-
visku sinnar vegna erfitt að koma
íslendingum á vonarvöl með því að
beita aðferðum „sviðinnar jarðar",
t.d. eyðileggja brýr og hafnir, og
Ljósmynd/lmperial War Museum
Bretar hugsuðu ekki smátt á Seltjarnarnesi. Að sögn Björns Tryggvasonar Seðlabankastjóra voru
þessi vígtæki að stríði loknu, notuð í uppfyllingu innan við Grandagarðinn, nokkru norðar en þar
sem Kaffivagninn nú stendur.
Wt3mœ