Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 26

Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990 Bjarni Jónsson íHaga - Minning Fæddur 14. maí 1906 Dáinn 25. apríl 1990 Hann faðir okkar, Bjarni Jónsson bóndi í Haga, er dáinn. Sú saga sem hann lifði er orðin eitt með okkur sem stöndum eftir. Kveðskapur og rímnasöngur þeg- ar góðan gest bar að garði. Vinnu- lúnu fingurnir sem ég fyrst sá leika á orgel. Sögur um ferðir milli staða áður en vegir voru þar. Vinnan við að breyta lélegri bújörð í ræktað land og arðvænlegt. Hann gat sagt frá eigin reynslu með drungablandinni alvöru sögur sem stundum fengu á sig ævintýra- blæ í eyrum manns, a.m.k. okkar eftirstríðsbarnanna. Sumt er minning, annað verks- ummerki og svo er þessi alveg nýja þögn. Sjálfur var hann tilbúinn til hvfldar, hafði lokið sínu ævistarfi og var sáttur. Það var honum aldr- ei að skapi að gefast upp og sjúk- dómum eílinnar barðist hann gegn meðan kraftarnir entust. Hann var fæddur að Haga í Austur-Húnavatnssýslu og átti þar heima alla sína tíð, tók síðar við búi foreldra sinna. Þeirra saga lifði ætíð með honum. Þau höfðu kynnst á Þingeyri og byijað sinn búskap þar sama árið, 1895, á hluta af jörðinni. Hvort um sig komu þau úr stórum systkinahóp og höfðu bæði orðið fyrir foreldramissi í bernsku. Móðir hans var Sigurlaug Bjarnadóttir Benediktssonar bónda á Skúfi í Norðurárdal og faðir hans var Jón Jónasson Jónassonar bónda í 'Hlíð í Vatnsnesi. Á Þingeyrum fæddist elsti sonurinn Lárus, sem síðar varð mörgum kunnur læknir, en hann starfaði seinast á Skaga- strönd. Um fjögurra ára bil bjó fjöl- skyldan á Tindum og þar fæddust tvær dætur, Sigurbjörg sem síðar bjó í Gautsdal og Ragnhildur, sem lést fyrir aldur fram. Árið 1900 festu Jón og Sigurlaug kaup á jörð- inni Haga og þar fæddist yngsti sonurinn, Bjarni. Hann lýsti Jóni föður sínum sem afar smávöxnum manni, og kenndi þar um mikilli vinnu á uppvaxtarár- unum, skorti á fæði og klæðum, sem var ekkert einsdæmi í þá daga, t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR, Hraunbæ 132, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 1. maí. Emil Björnsson, Birgir Ö. Björnsson, Harpa Norðdahl, Katrín Björnsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Björn Þór Björnsson, Einar Björnsson og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR HJARTARSON, Blesugróf 20, Reykjavík, andaðist 29. april. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigríður María Pétursdóttir, Sigurður Friðriksson, Kristján Karl Pétursson, Svanhildur Guðmundsdóttir og barnabörn. t Ástkaer eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, BJÖRG SIGRÍÐUR HERMANNSDÓTTIR, Melgerði 13, Reykjavík, andaðist 30. apríl. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 8. maí kl. 13.30. Gunnar Gislason, Hermann Gunnarsson, Sigrún Gunnarsdóttir Nielsen, Jeppe Nielsen, Ragnar Gunnarsson, Ásgerður Karlsdóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Sigurjón Björn Guðmundsson og barnabörn. Faðir okkar og tengdafaðir, INGVAR KJARTANSSON forstjóri, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 8. maí kl. 13.30. Sigríður Ingvarsdóttir, Guðmundur S. Jónsson, Margrét Ingvarsdóttir, Ingólfur Árnason, Matthildur Ingvarsdóttir. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞORVALDÍNAR KRISTÍNU JÓNSDÓTTUR, Droplaugarstöðum, áður til heimilis á Klöpp við Suðurgötu, fer fram frá nýju kapellunni, Fossvogi mánudaginn 7. maí kl. 16.30. Fjóla Steingrímsd. Edvard Kristensen, Þorsteinn Steingrímsson, Helga Jóhannsdóttir, Aðalheiður Sigurdís Steingrfmsd. Hildimundur Sæmundson, Þóra Þorbjarnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. síst þegar munaðarlaus börn áttu í hlut. Reynsla þessa harðgerða hvat- skeytta manns, sem tókst að byggja upp eigið bú og auk þess kosta börn sín meira og minna til fram- haldsnáms, litaði lífsviðhorf föður míns á margan hátt. Ég held mér sé óhætt að fullyrða að hann hafi dáð Jón föður sinn, sem hann alltaf minntist með trega. Þá nefndi hann það sem einn uppáhaldsatburðinn í lífi sínu, þegar faðir hans tók hann á kné sér í baðstofunni gömlu, með lestrarfélagsbók í hendi og byijaði lestrarkennsluna. Þeim degi gat hann lýst fram á sín síðustu ár og veðurlýsing fylgdi. Hvernig birti til milli élja. Á þessum fyrri áratugum 20 ald- arinnar var farskólakennsla í sveit- um og þá oft komist af með nokk- urra vikna kennslu á ári, en skildu- náminu lauk með barnaskólaprófi eða öðru nafni fullnaðarprófi. Faðir minn og systkini hans nutu farskól- ans og um tíma var sá skóli til húsa í áður nefndri baðstofu. Systurnar Sigurbjörg og Ragnhildur fóru síðan í Kvennaskólann á Blönduósi, sem þá var framhaldsskóli, og luku þaðan gagnfræðaprófi eftir tveggja vetra nám. Lárus gekk T Mennta- skólann á Akureyri, svo það hafa komið tímabil þegar aðeins yngsta barnið, Bjarni, var eftir í föðurhús- um og gat létt undir við bústörfin. En hann sótti tíma í reikningi eftir fullnaðarpróf og einnig í ensku og Útför systur okkar, LILJU JÓNSDÓTTUR, Hjúkrunarheimilinu Grund, fer fram frá Landakotskirkju þriðjudaginn 8. maí kl. 10.30. Systkini hinnar látnu. Útför eiginmanns míns, JÓNS GUÐBJARTAR GÍSLASONAR, Álftamýri 32, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 7. maí kl. 15.00. Arndís Hannesdóttir. Móðir okkar, FREYJA PÉTURSDÓTTIR, áður til heimilis á Hofsvallagötu 15, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 7. maf kl. 1 3.30. Ásbjörg Þorkelsdóttir, Pétur Þorkelsson, Gísli Þorkelsson, Ágústa Þorkelsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAVÍA ÞÓRUNN THEÓDÓRSDÓTTIR, Stórholti 41, Reykjavík, verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 8. maí kl. 15.00. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Börn, tengdabörn, barnabörn og barna barnabörn. t Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTMUNDUR ÁRNASON frá Hnaukum, Álftafirði eystri, Skjólbraut 7a, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 7. maí kl. 13.30. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Vegna jarðarfarar INGVARS KJARTANSSONAR forstjóra verður verslun okkar lokuð frá kl. 12.00 þriðjudaginn 8. maí. Vald. Poulsen hf. dönsku, og var þá Jón Magnússon frá Sveinsstöðum, sem síðar var fréttastjóri við Ríkisútvarpið, náms- félagi hans. Kennari þeirra var séra Þorsteinn G. Gíslason í Steinnesi og það hefur fylgt sögunni að hann hafi verðlaunað áhuga þeirra náms- félaganna með kennslu þeim að kostnaðarlausu. Jón afi keypti sér lausamennsku- bréf þeg'ar hann var um tvítugt. Sonur hans, Bjarni faðir minn, fór utan þegar hann var um tvítugt. Hans „unglingauppreisn" hefur líklega komið skýrast fram þegar hann seldi þær kindur sem hann hafði eignast og sitt fyrsta orgel, kvaddi og fór til Kaupmannahafnar árið 1926. Þá var Lárus bróðir hans við nám í læknisfræði þar ytra. Eftir æfingar á hjólhesti á blind- götu bak við járnbrautarstöðina og önnur stórborgarævintýri, lá leiðin til Suður-Sjálands á landbúnaðar- skóla. Þann skóla kvað hann hafa breytt viðhorfum sínum til landbún- aðar á þann hátt að hann gat ekki hugsað sér sína framtíð öðruvísi en sem bóndi á íslandi og helst heima í Haga. Að námi loknu hafnaði hann því ágætu boði um vinnu við mjólkuriðnað þar ytra og sneri heim eftir rúmlega eins og hálfs árs dvöl við nám og störf. Hann bjó í Haga alltaf upp frá því. Fyrst við hlið foreldra sinna, og tók síðan alfarið við búinu eftir lát föður síns, 1933. Hann kvæntist Elínborgu Björns- dóttur, en þau slitu samvistir eftir nokkurra ára búskap og einkadótt- irin Lára Ragnhildur ólst upp hjá móður sinni, sem nú er látin. Árið 1943 kvæntist hann móður okkar sex alsystkinanna, Jófríði Kristjánsdóttur frá Tröð í Onundar- firði. Sem krakki þóttist ég góð aö eiga pabba sem kunni bæði tvöfald- an og einfaldan marsúkka og gat sýnt okkur til hvers skautar voru notaðir: Að bruna yfir hálan ís í tunglsljósi. • Dágóðum tíma varði hann til fé- lagsmála, sat m.a. hina ýmsu full- trúafundi í félagsmálum bænda fyr- ir sína sveit. Hann tók þátt í stofn- un nautgriparæktarfélags sveitar- innar og var eftirlitsmaður á vegum þess í mörg ár. Lengi sat hann í sveitarstjórn og var oddviti í átta ár. Þá var hann einn af stofnendum kirkjukórsins og söng með þeim kór í hálfa öld. En það sem öllu framar fyllti líf hans og mótaði hug hans var sú hringrás lífsins, sem bændum er gefið að haga störfum sínum eftir. Hann stundaði bú sitt til 81 árs aldurs, eða svo lengi sem heilsa hans leyfði. Það var honum gleði- efni að sjá búskap Ragnars bróðurs og ijölskyldu hans dafna á þeirri jörð sem hann sjálfur tók við ungur og byggði ævistarf sitt á. Eftir að heilsa hans brast, var það móðir okkar sem annaðist hann heima í Haga eins lengi og henni var unnt, en síðustu misserin lá hann rúmfastur á Héraðshælinu á Blönduósi. Jafnvel þegar dauðann ber að garði, með ljúfustu hugsanlegu lausn frá þjáningum meina í hárri elli, ber hann í sér leyndardóm, sem enginn lifandi skilur til fulls. Elsku mamma, þín er þrautin stór, sem nú kveður lífsförunaut gegnum 46 ár. Þú átt samúð mína og þökk fyrir alla þína hlýju og allt þitt þol. Systkinum mínurn, Björgu, Jóni, Ragnari, Sigurlaugu, Lárusi og Láru Ragnhildi votta ég samúð mína, svo og Ijölskyldum þein-a. Og fyrir hönd okkar allra, sérstakar þakkir til starfsfólks Hér- aðshælisins á Blönduósi. Kristín Bjarnadóttir Blömastofa Friöjinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið ðll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.