Morgunblaðið - 06.05.1990, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 06.05.1990, Qupperneq 27
27 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990 Þorvaldína K. Jóns- dóttír - Minning Fædd 9. september 1898 Dáin 30. apríl 1990 Á morgun, mánudaginn 7. maí, verður tengdamóður mín, Þor- valdína Kristín Jónsdóttir á Klöpp, kvödd hinstu kveðju frá Nýju Kap- ellunni í Fossvogi. Hún fæddist 9. september 1898 á Staðarhöfða í Innri-Akraneshreppi og ólst upp við sjávarsíðuna. Henni þótti vænt um sveitina sína og Langisandur var hennar uppáhaldsstaður. Kristín var trúuð kona, hreinlynd og vildi öllum gott gera og nutum við tengdabörnin þess og börnin okkar í ríkum mæli. Kristín reyndist mér sem besta móðir þau 35 ár, sem við áttum samleið. Þáttaskil urðu í lífí Kristín- ar þegar hún þann 23. desember 1920 giftist Steingrími Pálssyni vélstjóra frá Bakkakoti á Rangár- völlum. Þau lifðu í farsælu hjóna- bandi í 67 ár, en Steingrímur lést þann 27. janúar 1987, tæpra 90 ára. Tengdaforeldrar mínir bjuggu nær allan sinn búskap í Reykjavík, þegar Steingrímur var til sjós kom það vel í Ijós hversu sterk kona Kristín var þar sem heimilishald og barnauppeldi hvíldi mest á henni. Um 1950 kemur Steingrímur al- kominn í land og þá geta þau farið að sinna sínu áhugamáli að ferðast um landið sitt í öllum fríum. Það var sérlega ánægjulegt að ferðast með Kristínu, hún þekkti jurtirnar sem vaxa villtar í náttúrunni og kenndi okkur að ganga vel um landið og hlustá á kyrrðina, og hlusta á fuglasöng. Síðustu ferðina fórum við með þeim hjónum 1981. Kristín og Steingrímur eignuðust fjögur börn; Fjólu, gift Edvard Kristensen, Jón Vai, lést 1983, eft- irlifandi kona hans er Þóra Þor- bjarnardóttir, Þorstein, kvæntur Helgu Jóhannsdóttur, og Aðalheiði Sigurdís, gift undirrituðum, barna- börn og barnabarnabörn eru 35, eitt er látið og þtjú búa ásamt sínum ijölskyldum erlendis. Ég minnist þess hve Kristín og Steingrímur reyndust mér, börnunum og ekki síst henni Aðalheiði minni vel og veittu okkar mikinn styrk er ég veiktist 1978, þau kenndu okkur að þeir sem vona á drottinn fá nýj- an kraft. Ég er þakklátur fyrir að hafa eignast Kristínu fyrir tengda- móður, hún var mér, konu minni og börnum okkar mjög mikils virði. Guð blessi minningu hennar. Hildimundur Sæmundsson Okkur systurnar langar að kveðja hana ömmu okkar, sem lést á Droplaugarstöðum við Snorra- braut 1, þann 30. apríl sl. Hún var fædd á Staðarhöfða, Innri-Akraneshreppi. Þau voru 14 systkinin, 6 komust til fullorðins- ára. Ég, nafna hennar og elsta bamabarn hennar og afa, fæddist á heimili þeirra á Fossvogsbletti 6, þar sem þau áttu heima í mörg ár. Það átti hún sín bestu ár, því þar var nóg landrými þar sem við krakkarnir gátum leikið okkur. Svanur frændi, sonur hennar, kom heim með hund eða hunda, því þeir voru fleiri. Einn þeirra passaði Fer inn á lang flest heimili landsins! mig þegar ég var lítil. Hún var dýravinur eins og hann. Lengst af bjuggu amma og afi á Klöpp við Suðurgötu. Þar vora frekar stórar klappir sem amma sagði að huldu- fólk og álfar ættu heima í og við máttum ekki leika okkur með há- vaða eða látum. Hún var trúuð kona og bænheit, enda kunni hún mikið af sálmum, ljóðum og vísum. Hún las mikið þangað til sjónin fór að gefa sig. Ég og systir mín voram mikið á heimili ömmu og afa, því móðir okkar þurfti oft að fara á spítala. Á hverju kvöldi fór amma með bænirnar með okkur og bless- aði. Amma var glaðsinna kona og léttstíg enda frekar jákvæð til lífsins. Það var oft fjörugt á Klöpp- inni þegar barnabörnin komu í heimsókn, enda gott að koma til ömmu og afa. Amma var mikil handavinnukona. Hún saumaði, prjónaði og heklaði, og ófáar lopa- peysumar eru til eftir hana. Við þurftum bara að hringja eða hún hringdi til að vita hvort okkur vant- aði sokka eða vettlinga, þá var það tilbúið eftir 2 daga. Svona var amma, aldrei mátti borga henni fyrir. Svo maður tali nú ekki um alla munina sem hún gerði úr kuð- ungum og skeljum. Það eru margir sem eiga slíka muni eftir hana. Amma var mikil blómakona og átti mikið af fallegum blómum enda talaði hún við blómin sín. Stofu- glugginn á Klöppini var þakinn blómstrandi blómum, enda fór hún mjúkum höndum um blómin og kom þar kannski best fram hversu blíðlynd og tilfinningarík hún var. Hún og afi ferðuðust mikið um landið sitt ásamt foreldrum okkar og öðrum fjölskyldumeðlimum. Ilún og afi höfðu gaman af söng og var sungið mikið í ferðalögum og naut hún sín að vera úti í náttúrunni. Við viljum með þessum orðum þakka ömmu fyrir góðar stundir sem við áttum með henni. Amma giftist afa, Steingrími Pálssyni vél- stjóra, þann 23. desember 1920. Þau eignuðust 4 börn. Elst er móð- ir okkar, Fjóla, gift Edvald Krist- ensen og eiga þau fjögur börn. Næstur var Jón Valur, nú látinn. Eftirlifandi eiginkona hans er Þóra Þorbjarnardóttir, og eiga þau þijár dætur. Síðan er Þorsteinn Svanur, kvæntur Helgu Jóhannsdóttur og eiga þau 6 börn. Yngst er Aðalheið- ur, gift Hildimundi Sæmundssyni, og eiga þau fjögur börn. Við viljum að lokum þakka fyrir að hafa haft ömmu svo Iengi hjá okkur, en hún var orðin léleg til heilsunnar síðustu árin. Við viljum senda okkar innileg- ustu samúðarkveðjur, börnum hennar og öðrum ættingjum. Ó ljúfi faðir, lít til mín að ég megi, þótt ég deyi koma heim til þeirra og þín. (Dav. sl. 39) Kristín, Steinunn og fjölskyldur. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, LÁRU GUÐMUIMDSDÓTTUR, Tjarnargötu 18, Reykjavík, áður Haðarstíg 4, Reykjavík. Hreiðar Guðjónsson, Róbert Árni Hreiðarsson, Áslaug M.G. Blöndal, Árni Hreiðar Róbertsson, Róbert Árni Róbertsson, Tómas Kristófer Róbertss., Ríkharður Róbertsson. t Þökkum innilega öllum, sem sendu okkur kveðju eða vottuðu okkur samúð sína vegna andláts og útfarar föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, ÁRNA JÓNS SIGURÐSSONAR fyrrverandi kaupmanns, Langholtsvegi 174, Guðrún Árnadóttir, Gissur Sigurðsson, Þorgeir Árnason, Hraf nhildur Óskarsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Sigurður Árnason, Guðrún Fanney Guðmundsd., barnabörn og barnabarnabörn. t Þakka auðsýnda samúð við andlát og útför föðursystur minnar, RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR, fyrrverandi sölustjóra, Fálkagötu 24, Reykjavík. Fyrir hönd ættingja, RagnheiðurS. ísaksdóttir. LEGSTEIINIAR GRANIT - MARMARI Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður, pósthólf 93, símar 54034 og 652707. Jón G. Gíslason - Minningarorð Fæddur 25. ágúst 1910 Dáinn 30. apríl 1990 Mig langar í fáum orðum til að minnast Jóns Guðbjarts Gíslasonar, eða Jóns hennar Áddýjar, eins og ég þekkti hann alla mína ævi. Jón fæddist á Króki í Selárdal 25. ágúst 1910 og var því að verða áttræður þegar hann lést í Land- spítalanum 30., apríl sl. Foreldrar Jóns voru hjónin Gísli Árnason, bóndi, og Ragnhildur Jensdóttir. Jón var yngstur í röð 13 systkina. Af systkinum hans eru systurnar Katrín og Ragnhildur enn á lífi. Jón ólst upp í Arnarfirðinum og man ég hann oft minnast góðra stunda frá þeim árum. Jón starfaði sem farkennari í Arnarfirði til árs- ins 1946 er hann fluttist til Reykjavíkur og hóf störf hjá Skatt- stofu Reykjavíkur þar sem hann starfaði, síðast sem afgreiðslustjóri þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Árið 1947 kvæntist Jón móður- systur minni, Arndísi Hannesdótt-' ur, dóttur Hannesar Stephensens Bjarnasonar, kaupmanns á Bíldu- dal, og konu hans, Sigríðar Páls- dóttur. Hún var honum dyggur förunautur alla tíð og dvaldi við hlið hans alveg til hins síðasta. Addý og Jón hófu búskap sinn í Reykjavík, fyrst á Ránargötunni en síðan á Snorrabraut 34 þar sem þau bjuggu í mörg ár. Á þeim árum var jafnan mjög gestkvæmt hjá þeim og margt var skyldfólkið að vestan sem gisti hjá þeim þegar það kom suður. Jón var ætíð Arnfirðingur. Hann var lengi í stjórn Arnfirðingafélags- ins og á árlegu Sólarkaffi lét hann sig ekki vanta. Margar ferðirnar fóru þau Addý vestur á sumrin. Ég man sérstaklega eftir fyrstu ferð minni vestur 1962 þegar ég var sjö ára gamall. Þá fór ég í fylgd þeirra með Esjunni til Bíldudals. Þegar ég lít til baka rifjast upp margar góðar minningar. Ég minn- ist ferðanna vestur og þeirrar þolin- mæði, sem Jón sýndi ávallt því aidr- ei man ég eftir því að hann reiddist mér, þótt strákur væri stundum ærslafullur. Ótal voru einnig ferð- irnar sem farnar voru á Bláskjá um nágrenni Reykjavíkur í sunnudags- bíltúrunum. Jóni og Addý varð ekki barna auðið en margir fengu hins vegar að njóta umhyggju þeirra, ekki minnst ég. Blessuð sé minning Jóns ^ Gíslasonar og megi Guð styrkja Addý frænku í sorg hennar. Hannes Már Sigurðsson LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 k=. A 1 VL j£~3Llhliða útfararþjónusta Útfararbiónustan M • Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími 679110 • Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsíngar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASONHF STESNSMIÐJA SKEMMUVEGI 48'SÍMI 76677 UTFARARÞJONUSTA OG LÍKKISTUSMÍÐI I 9(9 AR LÍKKISTUVINNUSTOFA EYVINDAR Arnasonar LAUFÁSVEGI 52, RVK.«g^Í SÍMAR: 13485, 39723 (A KVÖlS(N)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.