Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 28

Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990 Bjarni Gíslason kennari - Minning Þorgerður Boga- dóttir — Kveðjuorð Lát frænda míns, Bjarna Gísla- sonar kennara, kom nokkuð óvænt. Hann hafði að vísu haft orð á því að hann hefði fundið til veilu fyrir hjarta en ekki gert mikið úr því eða séð ástæðu til að leita læknis, enda verið heilsuhraustur mestalla ævi. Bjarni fæddist 26. febrúar 1916 í Skarði í Siglufirði, sonur hjónanna Önnu Þorláksdóttur og Gísla Bjamasonar trésmiðs, er þar bjuggu. Bjarni var yngstur fjögurra systkina, en þau voru: Ólöf, f. 1901 (látin), var gift Kristjáni Sigurðs- syni trésmið og verkstjóra, Siglu- fírði. Finnur, f. 1903 (látinn), vél- stjóri, lengst af búsettur í Keflavík, kvæntur Heigu Björnsdóttur frá Siglufirði (látin fyrir allmörgum árum). Sigríður, f. 1905, er nú ein á lífi þeirra systkina. Hún var gift Jóhanni Gunnlaugssyni trésmið og búsett á Siglufirði. Jóhann iést um aldur fram árið 1944. Bjarni ólst upp hjá foreldrum sínum í Skarðdal og síðan í kaup- staðnum eftir að afi byggir við Túngötuna og fjöiskyldan flytur þangað 1928. Snemma bar á góðum námshæfileikum hjá Bjarna og heimdraganum hleypti hann 18 ára gamall og hélt til náms í Samvinnu- skólanum í Reykjavík. Arin 1934-36 er hann við nám í þeim skóla og lauk þaðan verslunarprófi. Árið eftir fer hann á Jakobsbergs- lýðháskólann í Svíþjóð og vinnur síðan sumarið eftir við verslunar- störf í Svíþjóð. Þá kemur hann heim til Siglufjarðar og starfar sem gjaldkeri við bæjarfógetaembættið frá hausti 1937-41. Vann næsta ár við gjaidkerastörf hjá Land- símanum í Reykjavík en hélt svo til verslunarnáms í London 1942-43 og stundaði auk þess enskunám. Árin 1943-47 starfar hann í London við bókhaldsstörf hjá The British Council og síðan sem verslunarer- indreki í London fyrir G. Helgason og Melsteð. Dvaldi á heimaslóðum 1948-49 og var þá skrifstofustjóri hjá Þormóði Eyjólfssyni hf., Siglu- firði. Fór aftur tii Englands haustið 1949 til náms sem var undirbúning- ur að háskólanámi þar sem hann lagði stund á tungumál (enska, latína, þýska og spænska). Vinnur við skrifstofustörf samhliða námi 1952-56. Lauk BA-prófí frá Lund- únaháskóla í latínu, þýsku og nor- rænu. Árið 1957 flyst hann til ís- lands og sest að í Reykjavík þar sem hann hefur störf við skóla gagnfræðastigsins og kennir þá einkum ensku. Kennslan verður uþp frá því hans aðalstarf allt til þess að hann hættir störfum fyrir aldurs- sakir 1986. Á þessum árum starf- aði hann fyrst við Miðbæjarskólann og síðan Austurbæjarskólann. Þá kenndi hann talsvert í Námsflokk- unum og nokkra vetur við Kennara- skólann. Hann varð löggiltur dóm- túlkur og skjalaþýðandi í ensku 1959 og fékkst um tíma talsvert við þýðingar, einkum skjalaþýðing- ar. Á Lundúnaárum sínum kynnist hann konu sinni, Audrey (fædd Buckie), en þau voru gefín saman í Reykjavík af dr. Bjarna Jónssyni í október 1947. Þau eignuðust tvo syni, Edvarð f. 1960 og Gísla Anton f. 1965. Árið 1976 kemur til skiln- aðar og Audrey flytur til Englands tveimur árum síðar ásamt sonum þeirra. Þrátt fyrir þetta voru áfram nokkur tengsl og samband allgott. Bræðurnir komu í heimsóknir, eink- um Gísli, og Bjarni fór nokkrum sinnum utan. Bjami lést á heimili sínu, Auðarstræti 13, þann 27. jan- úar sl. Mikil kynni hafði ég ekki af frænda mínum fyrr en nokkru eftir að hann flytur alfarinn heim til ís- lands eftir alllanga dvöl við nám og störf í Englandi. Veturinn ’64—’65 dvelur undirritaður við kennaranám í Reykjavík og þann vetur kem ég oft á heimili þeirra Audrey og Bjarna og nýt þar mikill- ar gestrisni og velvildar. Húsfreyjan alltaf hlý og glaðleg og frændi minn lipur og hjálpsamur en ég sótti til hans með ýmislegt í sambandi við mitt nám og hafði af því mikið gagn og styrk að ræða við hann. Eftir þann vetur kom ég alltaf við hjá þeim þegar leiðin lá tii Reykjavíkur. í starfi sínu var frændi minn mjög samviskusamur og nákvæmur og vandaði öll sín verk, hver sem þau voru. Kannski fannst manni á stundum of miklum tíma varið í þessi störf og hygg ég að íj'ölskyld- an hafí, því miður, goldið þess hve tímafrek störf hans urðu. Utför Bjarna var gerð frá Siglu- Ijarðarkirkju miðvikudaginn 7. febrúar. í okkar síðasta samtali lýsti hann áhuga sínum á að koma norður á sínar æskuslóðir — það auðnaðist honum að vísu en með öðrum hætti en vænst var. Fjölskylda hans kom öll frá Eng- landi og fylgdi honum síðasta spöl- inn. Þeim flyt ég innilegar samúðar- kveðjur um leið og ég þakka frænda mínum samfylgdina. • Blessuð sé minning hans. Anton V. Jóhannsson Fædd 22. október 1896 Dáin 9. apríl 1990 Amma mín, Þorgerður Bogadótt- ir, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli 9. apríl sl. Hún var fædd á Uppsölum í Seyðisfírði vestra 22. október 1896, foreldrar hennar voru þau Rósa Aradóttir og Bogi Bene- diktsson. Börn Rósu og Boga voi-u 8 en 3 létust í æsku, af systkinunum sem eftir lifðu var Þorgerður elst svo Sigríður, sem bjó í Bolungarvík og er nýlátin, þá Jóhann Ari og Bjarni. Þorgerður var aðeins 11 ára þeg- ar faðir hennar drukknaði ásamt fleirum á heimleið úr sjóróðri, var hann þá aðeins 42 ára gamall. Upp frá þessu tvístraðist fjölskyldan og Rósa fluttist til Bolungarvíkur og giftist seinna Þorbirni Eggertssyni og eignaðist Þorgerður þá 2 hálf- systkini, Guðbjörgu og Eggert. 10. apríl 1918 giftist hún afa mínum, Guðmundi Péturssyni kaupmanni frá Hafnardal, en hann var þá nýkominn frá námi við Versl- unarskóla íslands. Þau hófu búskap í Bolungarvík en fluttu fljótlega til ísafjarðar þar sem hann gerðist bæjar- og hafnargjaldkeri og starf- aði við það þar til hann hóf verslun- arrekstur sem hann stundaði um áratuga skeið. Eftir 1946 fluttu amma og afí til Reykjavíkur þar sem afí stundaði versiunarstörf, en hann andaðist árið 1975. I Reykjavík áttu þau heimili á Brávallagötu 16 og þar bjó amma eftir lát afa þar til hún flutti á hjúkr- unarheimilið Skjól fyrir rúmu ári. Þar naut hún alveg sérstakrar umönnunar og hlýju, aðstandendur vilja færa hjúkrunarfólki og lækn- um innilegustu þakkir og kveðjur, einnig sendum við Þórdísi Eyjólfs- dóttur, sem amma var samvistum við á Skjóli, hjartanlegustu þakkir fyrir vináttu hennar og tryggð, einnig séra Ólöfu presti á Skjóli fyrir alla hennar aðstoð og góðvild. Brávallagata .16 var okkur barnabörnunum sem annað heimili, þangað lá leið okkar oft, og heim- sóknir þangað urðu nauðsynlegur þáttur í lífí okkar. Amma var vön að segja okkur frá þeim tíma sem hún og afí þjuggu í stóra húsinu við sjóinn á Isafirði, sem sjálfsagt hefur á stundum minnt hana á föð- urmissinn en föður sinn syrgði hún mikið og sagði okkur oft frá er hún með systkinum sínum var í foreldra- húsum á Uppsölum við Isafjarðar- djúp, gleðina og samheldnina sem þar ríkti. Það var þessi tími í lífi hennar sem varð okkar veganesti, því að í ömmu var bjartsýni og gleði, trú á lífíð og tilveruna sem við fengum svo ríkulega að njóta. Við barnabörnin þökkum ömmu það sem hún var okkur og geymum minninguna um hana í hjörtum okkar. Bogi Magnússon Freyja Péturs- dóttir - Minning Fædd 12. júní 1907 Dáin 28. apríl 1990 Laugardaginn 28. apríl sl. lést á Grund í Reykjavík amma okkar, J. Freyja Pétursdóttir. Andlát hennar kom ekki á óvart því síðustu árin hafa verið henni erfíð. Amma var borin og barnfæddur Reykvíkingur, dóttir hjónanna Péturs G. Guð- mundssonar bókbindara og Ágúst- ínu Þorvaldsdóttur. Hún giftist í október 1929 Þorkeli Gíslasyni verkamanni. Börn þeirra eru: Ás- björg, gift Birni Sigurðssyni, Pétur kvæntur Jónínu Ágústsdóttur, Gísli, kvæntur Jennýju M. Eiríksdóttur, en hún lést 5. mars sl., og Ágústa, gift Þórði Pálssyni. Afí og amma bjuggu nær alla tíð á Hofsvallagötu 15. Þar skapaði amma sér og fjölskyldu sinni fallegt heimili þó oft væri plássið lítið því börnin voru fjögur og íbúðin lítil. Amma vann lítið utan heimilis enda var hún af þeirri kynslóð sem leit á það sem starf konunnar að sinna búi og börnum. Amma var Reykvíkingur og vildi hvergi annars staðar vera. En sveit- in hafði lokkað til sín elstu dóttur- ina og því lá leið afa og ömmu austur á land, bæði til að heim- sækja hana og fjölskyldu hennar og yngstu börnin sín tvö sem voru þar í sveit. Það var því svo að afi og amma dvöldu á heimili foreldra okkar á hverju sumri í u.þ.b. 20 ár. Alltdf komu þau með eitthvað handa barnabörnunum, og á fyrstu árum þessara ferðalaga kom amma líka með ýmisiegt sem ekki fékkst í Kaupfélaginu eins og ávexti og grænmeti. i Okkur systrum voru þessar heim- sóknir afa og ömmu í sveitina kær- ar. Reyndar vorum við oft undrandi á klæðaburði ömmu, konumar í nágrenninu gengu nefnilega ekki fínum kápum og með hatt. Það var ekki fyrr en síðar að við skildum að amma var mikil smekkmann- eskja í klæðaburði. Afi lést 10. apríl 1979 og hafði amma annast hann síðustu árin. Amma bjó ein þar tii haustið 1986 er hún flutti á Elliheimilið Grund. Síðustu árin sem hún bjó á Hofs- vallagötunni naut hún aðstoðar Gísla sonar síns og konu hans, Jenn- ýjar. Við systurnar viljum þakka ömmu fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning hennar. Jóhanna Freyja-, Magga og Amalía. ____________Brids_______________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Reykjavíkur Vetrarstarfseminni lauk sl. miðviku- dag er spilaðar voru síðustu umferðirn- ar í Aðaitvímenningnum. Örn Arnþórs- son og Guðlaugur R. Jóhannsson stóðu uppi sem sigurvegarar eftir góðan endasprett, en Björn Eysteinsson, Guð- mundur Hermannsson og Helgi Jó- hannsson höfðu leitt mótið fram að síðustu umferðum. Röð efstu para var þessi: Örn Amþórsson - Guðlaugur R. Jóhannsson 465 Björn Eysteinss. - Guðmundur Sv. Hermannss.351 Karl Sigurhjartarson - Sævar Þorbjörnsson 339 Valur Sigurðsson - Sigurður Vilhjálmsson 281 Gylfi Baldursson - Sigurður B. Þorsteinsson 226 V algarð Blöndal - Haukur Ingason 200 Jón Baldursson - Aðalsteinn Jörgensen 184 Ómar Jónsson - Guðni Sigurbjarnason 158 Eiríkur Hjaltason - Páll Hjaltason 158 Ásgeir Ásbjömsson - Hrólfur Hjaltason 138 Hæstu skorin á síðasta kvöldi fengu: ÓlafurLámsson-HermannLámsson 154 Gylfi Baldursson - Sigurður B. Þorstcinsson 14 7 Örn Amjwrsson - Guðlaugur R. Jóhannsson 118 Eirikur Hjaltason — Páll Hjaltason 104 ValgarðBlöndal-Haukurlngason 103 RúnarMagnússon-RagnarMagnússon 86 Stjóm BR þakkar öllum sem spiluðu í vetur þátttökuna. Aðalfundur félags- ins verður auglýstur stðar. Bridsfélag Kópavogs A-riðill: Eftir 6 umferðir í Butler-tvímenningi eru þessi pör efst: Helgi Viborg-OddurJakobsson 84 RagnarBjömsson-ÁrmannJ. Lárusson 75 Ragnar Jónsson - Sigurður ívarsson 67 B-riðill: Bemódus Kristinsson - Murad Serdar 80 Sigríður Möller — Sigurður Sigurjónsson 72 Erla Sigurjónsdóttir - Trausti Finnbogason 71 Síðasta spilakvöld á þessum vetri verður nk. fímmtudag og aðalfundur félagsins verður í Þinghól föstudaginn 18. maí kl. 20. Verðlaunaafhending fer fram þá fyrir keppni frá áramótum. Bridsdeild Skagfirðinga Murat Serdar og Þröstur Ingimars- son tóku konfektið með sér heim sl. þriðjudag hjá Skagfirðingum. Spilað var í einum riðli (tvær áttir) með Mitch- ell-fyrirkomulagi. Efstu pör urðu: NS: MuratSerdar-Þrösturlngimarsson 279 JömndurÞórðarson-HjálmarPálsson 262 GuðjónJónsson-RúnarLárusson 240 AV: Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 249 Eyjólfur Sigurðsson - Ólafur Lámsson 238 Þorleifur Þórarinsson - Friðjón Margeirsson 238 Konfektkvöldunum lýkur næsta þriðjudag, því annan þriðjudag, 15. maí mun Hjónaklúbburinn í Reykjavík koma í heimsókn til Skagfírðinga. Spilað verður í Drangey við hjóna- fólkið, á 8 borðum. Bridsfélag HafnarQarðar Mánudaginn 30. apríl voru spilaðar síðustu sjö umferðirnar í Stefáns-Baró- metemum og varð lokastaðan eftirfar- andi: Hjördís Eyþórsdóttir—Vaiur Sigurðsson 286 RagnarMapússon-RúnarMagnússon 268 Jón Baldursson - Aðalsteinn Jörgensen 254 Magnús Sverrisson - Guðlaugur Sveinsson 182 Magnús Ólafsson - Páll Valdimarsson 172 Hrólfur Hjaltason - Sverrir Ármannsson 156 Gunnlaugur Óskarss. - Sigurður Steingrimss. 155 Þess ber að geta að Anton R. Gunn- arsson spilaði á móti Hjördísi fyrstu tvö kvöldin og á því sinn hlut í þessum sigri. Þetta var seinasta spilakvöld vetr- arins og nú er einungis aðalfundur fé- lagsins eftir af þessu starfsári. Hann verður haldinn föstudaginn 18. maí og þar sem staðsetning er ókunn enn, em félagar BH beðnir um að fylgjast með brids-dálkum blaðsins til að fá nánar fregnir af fundinum. Kvennalandslið Kvennalandslið sem keppir á NM á Færeyjum í júlí í sumar hefur verið valið. Liðið skipa: Anna Þóra Jónsdótt- ir, Hjördís Eyþórsdóttir, Esther Jakobs- dóttir og Valgerður Kristjónsdóttir. Fyrirliði er Sigmundur Stefánsson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORVALDUR REYIMIR GUNNARSSON frá Þorfinnsstöðum, Önundarfirði, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 8. maí kl. 15.00 Þeim sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands eða Slysavarnafélag íslands. Sólveig Gisladóttir, Þröstur Þorvaldsson, Björk Kristinsdóttir, Ösp Þorvaldsdóttir, Einar Brandsson, Björg Þorvaldsdóttir, Magnús Brandsson, Þorfinnur Þorvaldsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.