Morgunblaðið - 06.05.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAl 1990
41
9. þing Landssambands iðnverkafólks:
Kaupmáttur aukist til muna
í næstu kjarasamningum
KJARASAMNINGARNIR sem gerðir voru í febrúar eru mikilvæg
tilraun til að skapa nýjan grundvöll fyrir nauðsynlegan stöðugleika
í eíhahagsmálum og traustu atvinnuástandi, segir meðal annars í
ályktun 9. þings Landssambands iðnverkafólks um kjaramál, sem
haldið var fyrir skömmu.
í ályktuninni segir enn fremur
að til þess að tilraunin beri árangur
þurfi ríkisvaldið, bankar og aðrir
aðilar samningsins að standa við
þau fytrirheit sem þeir gáfu við
gerð hans. Nauðsynlegt sé að nafn-
vextir haldi áfram að lækka og
raunvextir einnig. Lýst er vonbrigð-
um með verðhækkanir síðustu mán-
aða og því beint til fólks að halda
vöku sinni varðandi hækkanir. Þá
er gerð krafa til þess að í næstu
kjarasamningum aukist kaupmátt-
ur til muna. Síðustu samningar
hafi ekki verið takmark í sjálfu sér
heldur undirbúningur að sókn til
bættra kjara. Einungis samtaka og
sterk verkalýðshreyfing sé fær um
að ná þeim markmiðum.
Þingið ályktaði einnig um að
heildarúttekt verði gerð á aðbún-
aði, hollustuháttum og öryggi
starfsmanna í verksmiðjuiðnaði og
er tilmælum þess efnis beint til
Vinnueftirlits ríkisins. Heilbrigði
starfsmanna verði kannað með hlið-
sjón af störfum viðkomandi. Reynt
verði að finna skýringu á tíðum
vinnuslysum í verksmiðjuiðnaði,
auk þess sem gerð verði sérstök
könnun á hávaðamengun og slitsk-
öðum.
í ályktun um atvinnumál segir
að íslenskt atvinnulíf standi nú á
tímamótum. Þróun undanfarinna
missera hafi öðru fremur einkennst
af litlum hagvexti og samdrætti á
flestum sviðum efnahagslífsins.
Framleiðsluiðnaður hafi ekki farið
varhluta af þessari þróun og í fyrsta
skipti í. langan tíma virðist hætta á
viðvarandi atvinnuleysi. Gera verði
kröfu til þess að full og varanleg
atvinna ekki síst fyrir þá sem búi
við skerta starfsorku verði grund-
völiur efnahagslegrar endurreisnar.
Því sé nauðsynlegt að skjóta fleiri
traustum stoðum undir íslenkst at-
vinnulíf. Með hagræðingu, bættri
stjórnun, tækniþróun, stóraukinni
áherslu á gæði og starfsmenntun
hafi íslenskur iðnaður alla mögu-
leika á að keppa við það sem best
gerist annars staðar. Varast beri
ofuráherslu á stóriðju sem allra
mejna bóta.
í ályktun um málefni Evrópu
segir meðal annars að þingið telji
samvinnu með öðrum EFTA ríkjum
vera réttan vettvang til að fylgjast
með og hafa áhrif á það sem er
að gerast' í Evrópu. Stuðningi er
lýst við aðild íslands að væntanleg-
um samningaviðræðum um Evr-
ópskt efnahagssvæði. Síðar kunni
jafnframt að vera nauðsynlegt að
að taka upp tvíhliða viðræður við
Evrópubandalagið um helstu hags-
munamál okkar. „Þá leggur þingið
áherslu á fyrirvara stjórnvalda
gagnvart EFTA og EB um frjálsa
vinnuaflsflutninga og möguleika
útlendinga til nýtingar náttúruauð-
linda hér á landi, enda ráða þeir
úrslitum um niðurstöðu samning-
ana. Iðnverkafólk leggur áherslu á
útfærslu félagsmála innan hins
væntanlega evrópska efnahags-
■ NYR vettvangur lýsir yfír
sluðningi við meginhugmyndir í
frumvarpi menntamálaráðherra um
leikskóla og telur að málaflokkurinn
eigi heima í menntamálaráðuneyt-
inu eins og verið hefur frá setningu
laga um byggingu og rekstur dag-
heimila 1973. Starfsemi leik-
skóla/dagheimila er fyrst og fremst
uppeldis- og menningarstarfsemi
og ber því að heyra undir mennta-
málaráðuneytið. Auk þess skal þess
ætíð gætt að samskipti ríkis og
sveitarfélaga séu sem einföldust og
í því skyni eðlilegt að forðast að
dreifa einstökum málaflokkum á
fleiri ráðuneyti en nauðsyn bertil.
(Fréttatilkynning)
svæðis og krefst að þess verði gætt,
að með þáttöku íslendinga í náinni
efnahagslegri samvinnu við aðrar
þjóðir Evrópu verði ekki að neinu
leyti grafið undan áunnum réttind-
um launafólks hér á landi.“ .
45 fulltrúar frá 11 aðildarfélög-
um víða um land sóttu þingið, en
þingforseti var Kristín Hjálmars-
dóttir, Akureyri. Hún var einnig
kjörinn varaformaður, en Guð-
mundur Þ. Jónsson, Reykjavík, var
endurkjörinn formaður. Aðrir í
stjórn eru Hildur Kjartansdóttir,
Raykjavík, ritari, Unnar Þór Birgis-
son, Selfossi, gjaldkeri, meðstjórn-
endur Guðmundína Samúelsdóttir,
Akranesi, Sigurgeir Stefánsson,
Húsavík, Ragna Guðvarðardóttir,
Kópavogi, og varamenn Armann
Helgason, Akureyri, Ragnar Hall-
dórsson, Eyrarbakka, og Hannes
Ólafsson, Mosfellsbæ.
Starfsmenn Bifreiðaskoðunar, Skúli Guðmundsson og Gunnar Adolfs-
son við vegaeftirlitsbilreiðirnar.
■ BIFREIÐASKOÐUN íslands
fékk fyrir skömmu nýja bifreið til
vegaeftirlitsstarfa. Bifreiðin er
sendibifreið af gerðinni Ford Ec-
onoline 150 og er hún önnur bif-
reið vegaeftirlits Bifreiðaskoðunar.
Hlutverk vegaeftirlitsins er að fylgj-
ast með ástandi öryggisbúnaðar
ökutækja úti í umferðinni. Með
þessari nýju vegaeftirlitsbifreið
verður Bifreiðaskoðun kleift að hafa
eina bifreið að starfí á vegum úti
og aðra á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu.
Flug og bíll til
Lúxemborgar og
sumarhús í Biersdorf
eða Daun Eifel
i Þýskalandi er
toppurinn á tilverunni
Æ fleiri kjósa sér þann ferðamáta sem er kenndur við flug, bíl og sumarhús. Ferðalangarnir
eiga sér athvarf í notalegu húsi í fallegu umhverfi en geta jafnframt ferðast um borgir
og sveitir Evrópu og ráðið ferðinni sjálfir.
A
flokkur
Ford Fiesta eöa
sambærilegur bill
C
flokkur
Ford Sierra eða
sambærilegurbill
Fyrir fjögurra manna fjölskyldu, tvo fullorðna og tvö börn á aldrinum 2ja -11 ára,
kostar flug til Lúxemborgar, bíll í A-flokki og glæsilegt
sumarhús í Biersdorf eða Daun Eifel í júní frá
kr. 145.400 samtals fyrir alla fjölskylduna í tvær
vikur eða kr. 36.350 á mann og samtals
kr. 177.700 í þrjár vikur eða 44.425 á mann.
Ef valinn er bíll í C-flokki kostar fyrir þessa sömu
fjölskyldu frá kr. 155.000 samtals í tvær vikur í júní
eða kr. 38.750 á mann og samtals frá kr. 191.700
í þrjár vikur eða kr. 47.925 á mann.
Úrval-Útsýn býður einnig mikið úrval af sumarhúsum og íbúðum
í Walchsee í Austurríki, Frakklandi, Ítalíu og Titisee í Þýskalandi.
Flug og bíll Lúxemborg * 2 vikur 3 vikur
A-flokkur kr. 31.800 35.100
C-flokkur kr. 34.200 38.600
Barnaafsláttur kr. 11.000
* miöaö viö fjóra i bil
FfRDASKRIFSTOfAN
FARKORT
saga
Suðurgötu 7, sími 62 40 40
URVAL-UTSYN
Álfabakka 16, sfmi 60 30 60
og Pósthússtræti 13, sfmi 2 69 00