Morgunblaðið - 06.05.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.05.1990, Blaðsíða 48
MORGUNBLADIÐ, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: 11 AFNARSTIIÆTI 85 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Svínarækt: Svínakjöts- .framleiðsla minnkarum 10%áárinu ERFIÐLEIKAR í svínarækt hafa leitt til þess að veruleg fækkun hefur orðið í lífdýrastofiii, en þrjú stór svínabú hafa hætt rekstri síðastliðinn vetur. Að sögn Vals Þorvaldssonar hjá Svínaræktarfé- lagi Islands hefiir þetta væntan- lega í for með sér um 10% minni svínakjötsframleiðslu á þessu ári en í fyrra. Valur sagði að verð á svínakjöti hefði nánast staðið í stað í krónutölu á þriðja ár, og frá 1984 hefði verð á svínalæri aðeins hækkað um 153% á meðan lambalæri hefði hækkað um 327%. „Við höfum ekki getað náð upp verðinu, en það þýðir að fóðurkostnaðurinn er orðinn of Jiátt hlutfall af innkomunni, og þéir *em hafa lakastan árangur fara hreinlega á hausinn. Það hefur verið taprekstur í svínaræktinni undanfar- in ár, en nú eru að skapast skilyrði til þess að svínabændur nái kostnað- arverði í fyrsta sinn í tvö ár, en það þýðir að einhver verðhækkun er fyr- irsjáanleg á næstunni." Óskoðaðir smábátar \ farbann FJÖLDI smábáta hefúr verið skoðaður um allt land á vegum Siglingamálastoftiunar eftir að ákveðið var að herða aðgerðir vegna þeirra báta sem ekki hafa haffærisskírteini í lagi. Ákveðið hefur verið að setja þá báta sem ekki sinna kalli um skoðun í far- bann og þurfa eigendur þeirra að greiða ákveðinn kostnað til að því verði aflétt. Páll Guðmundsson deildarstjóri sagði að um 6-700 bátar hafi verið skoðaðir á þessu ári af þeim -^*nátt á annað þúsund bátum sem skráðir eru. Milli 20 og 30 þeirra báta sem skoðaðir hafa höfðu ekki skírteini sín í lagi. Þegar er búið að setja um helming þeirra í far- bann en eigendur nokkurra þeirra hafa gert þær úrbætur sem krafist var og er búið að létta farbanninu af þeim aftur. Skipaskoðunarmenn hafa farið á hafnirnar og skoðað báta sem hafa landað þar og einnig á fiskmörkuð- unum. Nú eru allir minni bátar skráðir inn í tölvu hjá Siglingamála- ^stofnun og þar kemur fram hvort þeir hafa verið skoðaðir eða ekki. Páll sagði að tryggingafélögin neituðu nú orðið að tryggja smábáta nema haffærisskírteinið sé í lagi. Komið hafa upp mál þar sem tjón hafi ekki verið bætt vegna þessa. Hann sagði það brýnt að fjölskyldur þeirra sem á bátunum eru krefjist þess að þeir rói ekki nema bátamir hafi verið skoðaðir og hafi sína pappíra í lagi. Sperrurnar reistar Morgunblaðið/Einar Falur Hvítá: Samkomulag náðist ekki um að hætta netaveiðum NETAVEIÐIN í Hvítá í Borgar- firði, hefst venju samkvæmt 20. mai næst komandi, þar sem út- séð er um að samkomulag náist um annað. í vetur hafa verið umræður og fúndahöld um, hvort netin yrðu keypt upp og var talið, að málið kæmist í höfii fyrir veiðitímann. Veiðifé- lag Grímsár frestaði til dæmis útgáfú verðskrár vegna þessa. Mál þetta fór fyrst af stað fyr- ir þremur áram, þegar Stangaveiðifélag Reykjavíkur reyndi að mynda breiðfylkingu með leigutökum og bergvatnsbænd- um til að bjóða í laxinn óveiddan. Netabændum var gert tilboð og vildi breiðfylkingin kaupa upp öll net eða engin. Sam- komulag tókst ekki, þar sem bændur í Feiýukoti voru því and- snúnir. Stangaveiðifélag Reykjavíkur kom hvergi nærri þeim umræðum, sem nú urðu, en þær snérust um lagnir við sunnanverða Hvítá. Þverárbændur riðu á vaðið og Grímsárbændur fylgdu, en eigend- ur Reykjadalsár og Flóku biðu átekta. Framkvæmdanefnd var skipuð til að þoka málinu áfram, en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins strandaði málið nú á því, að leigu- takar veiðinnar í Þverá og Kjarrá gátu ekki tekið á sig hækkun veiði- leyfa, þar sem við þá var rætt of seint. Erlend flugfélög vilja skipta við Flugleiðir á afgreiðslunúmerum: Yaxandi eftirspum hækkar markaðsverð Boeing-þotna Flug'leiðir heíja flug til Baltimore-Washington-flugYallar einir norrænna flugfélaga MARKAÐSVERÐ á nýjum Boeing-þotum af gerðinni 737 og 757 er nú nokkru hærra en kaupverð þeirra frá verksmiðjunum, vegna mik- illar eftirspurnar. Erlend flugfélög hafa óskað eftir að fá þoturnar, sem Flugleiðir fá afhentar á næsta ári. I stað þeirra fengju Flugleiðir vélar, sem þessi flugfélög hafa pantað en fá ekki afhentar fyrr en eftir nokkur ár. Flugleiðir hafa ekki hug á að taka þessum tilboðum, heldur taka aðra vélina strax í notkun í eigin þágu. Ovíst er hvernig hinni verður ráðstafað. Á mánudag hef/a Flugleiðir flug á leiðinni Stokkhólmur-Keflavík-Baltimore og verður þar með eina norræna flug- félagið sem flýgur til Washington-svæðisins. Flugleiðir hafa nú fengið afhentar þijár Boeing 737- þotur og tvær Bo- eing 757. Þegar flugfélagið ákváð að endurnýja millilandaflota sinn og panta nýjar vélar af þessum gerðum var eftirspurn eftir þeim lítil. „Við staðfestum pantanir á þessum vélum árið 1987 og fljótlega fór að bera á aukinni eftirspurn. Ástæðan voru auknar áhýggjur flugfélaga vegna óhappa á eldri vélum og mikil aukn- ing í farþegaflugi," sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, í sam- tali við Morgunblaðið. „Frá því að við pöntuðum þessar fimm vélar liðu tvö til þijú ár þar til þær voru afhent- ar frá verksmiðjunum. Þau flugfé- lög, sem panta slíkar vélar nú, þurfa að bíða afhendingar í sex til sjö ár. Þess vegna er markaðsverð vélanna töluvert hærra en það verð sem Flugleiðir greiddu fyrir þær.“ Á næsta ári fá Flugleiðir afhentar tvær síðustu vélarnar, aðra af 737- gerð og hina af 757-gerð. „Erlend flugfélög hafa óskað eftir því að skipta við okkur á afgreiðslunúmer- um. Þá fengju þau vélarnar okkar á næsta ári, en við fengjum síðar þær vélar sem þau eiga í pöntun," sagði Sigurðúr. „Við höfum hins vegar ákveðið að taka aðra vélina í notkun sjálfir, en ekki er ákveðið hvernig hin verður nýtt.“ Sigurður Helgason sagðist vera bjartsýnn á að nýja flugleiðin, til Baltimore-Washington-flugvallar- ins, myndi auka fjölda farþega með félaginu. „Flugleiðir verða eina norr- æna flugfélagið, sem flýgur til Balti- more og þar með Washington-svæð- isins,“ sagði hann. „Þess vegna er vonast til að farþegar frá öðrum Norðurlöndum sæki til okkar og auk þess tengjum við þetta flug flugi frá Lúxemborg til Keflavíkur. Þá höfum við gert samning við USAir, sem sér farþegum okkar til Baltimore fyrir tengiflugi innan Bandaríkjanna til 70 áfangastaða strax eftir komu okkar véla.“ Þær fimm Boeing-vélar, sem Flugleiðir hafa þegar fengið afhent- ar, kosta 188 milljónir Bandaríkja- dala, eða um 11,3 milljarða króna. Inni í þeirri upphæð eru varahlutir í vélarnar, sem kosta um 300 milljón- ir króna. Tvær DC-8-vélar, sem Flugleiðir hafa átt undanfarin ár, verða afhent- ar nýjum eigendum á næstu dögum. Vélar sömu gerðar hafa verið í notk- un Flugleiða í 20 ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.