Morgunblaðið - 23.06.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990
Ársreikningur borgarsjóðs:
Y eltufl ármunir tv öfalt
hærri en skammtímaskuldir
ÁRSREIKNINGUR borgarsjóðs
Reykjavíkur og stofiiana hans
fyrir árið 1989 var lagður fram
í borgarsljórn á iimmtudag. Þar
kemur meðal annars fram, að
tekjur borgarinnar fóru á árinu
11,3% fram úr ijárhagsáætlun en
rekstrargjöld 9% fram úr áætlun.
BYGGÐASTOFNUN og Lands-
banki íslands vænta þess að við-
ræður við Seyðiirðinga um kaup
á eignum Fiskvinnslunnar-Norð-
ursíldar geti hafist í næstu viku.
Guðmundur Malmquist, forsljóri
Byggðastofiiunar, og Valur Arn-
þórsson bankastjóri Landsbanka
voru á Seyðisfirði á miðvikudag
og ræddu við heimamenn. Guð-
mundur sagðist vænta þess að
þeir ræddu málin yfir helgina.
Þá kemur fram, að skammtíma-
skuldir borgarsjóðs voru við lok
reikningsársins 2.269 milijónir
króna en veltufjármunir 4.940
milljónir, eða rúmlega tvöfalt
hærri.
Tekjur borgarinnar á síðasta ári
voru áætlaðar 8.942 milljónir
Guðmundur vildi ekki greina frá
hvert hann teldi vera mögulegt sölu-
verð eignanna og sagði að tilboð
væri ekki enn fram komið. Hins veg-
ar sagði hann liggja fyrir að Byggða-
stofnunin og Landsbanki væru jafn-
vel reiðubúnir að lána sameinuðu
félagi togaraútgerðar, bæjarsjóðs og
verkalýðsfélags andvirði eignanna
þannig að það hlutafé sem safnaðist
gæti nýst til uppbyggingar.
króna. Bókfærðar tekjur reyndust
vera 11,3% hærri, eða 9.951,3 millj-
ónir króna. í fjárhagsáætlun var
gert ráð fyrir að rekstrargjöld borg-
arinnar yrðu 6.818 milljónir króna.
Þau urðu hins vegar 7.429,8 millj-
ónir króna, eða um 9% umfram
áætlun. Áætlað var að veija 2.124
milljónum til eigabreytinga, en sú
fjárhæð varð hins vegar 2.521,6
milljónir króna.
Davíð Oddsson, borgarstjóri
kynnti reikningana í borgarstjóm á
fimmtudag og sagði þá meðal ann-
ars: „Þegar fjárhagsstaða borgar-
innar í heild er skoðuð, er óhætt
að fullyrða að hún sé mjög góð.
Veltufjármunir em rúmlega tvöfalt
hærri en skammtímalán. Aukning
lána borgarsjóðs til langs tíma hafa
aðallega verið til fasteignakaupa.
Þessi kaup em að stómm hluta
vegna skipulags- og umhverfismála
og eiga eftir að bæta að stöðu borg-
arinnar, þegar til lengri tíma er lit-
ið.“ '
Fiskvinnsla - Norðursíld:
Viðræður undirbúnar milli
heimamanna og lánastofhana
VEÐUR
VEÐU YFiRLIT i RHORFUR í 0 GÆR: Yfir Grænlandi 'AG, 2: ar 1025 mt 3. JL } hæð mí en 990 rr ib lægð
á Norðurs og lægða SPÁ: Nor sjó þokast austur. Við F rdrag skammt austur ðaustanátt verður á la æreyjar er af íslandi þ ndinu. Ský hægfe okast jað og tra 995 rr /estur. þokubak ib lægð kar eða
súld með norðurströndinni. rigr ting á Aus R tit 1 f) Ktí tfjörðu T nnrð m, en vít anlanris r 5a bjart >g aust-
an, en all að 18 sttg sunnanlan ds.
■ :: ■ ;;
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðan- 09 norðaustart-
átt og fremur svalt. Súld eða rigning um norðanvert iandið en
þurrt og víða léttskýjað syðra.
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ r r
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-j 0° Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
— Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
kl. 12:00 /j aö ísl. tíma
hiti veftur
Akureyri 7 alskýjað
Reykjavtk 12 skýjað
Bergen m& hálfskýjað
Helsinki 14 skýjað
Kaupmannahöfn 18 rlgning
Narssarssuaq vantar
Nuuk alta þokafgrennd
Ostó 20 skýjað
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 23 téttskýjað
Amsterdam 13 skúr
Barcelona MÉ Þokumóða
Berlín 20 rignlng
Chicago 18 skúr
Feneyjar 26 þokumóða
Frankfurt 20 sk«að
Qlasgow 18 úrkomaígrennd
Hamborg hálfskýjað
taaPolmas ■ 2S. téttskýjað
London 19 skýjað
LosAngeles 16 atskýjað
Lúxemborg vantar
Madrid 26 léttskýjaö
Mataga 32 heiðskírt
Mallorea léttskýjað
Montreal 18 mistur
NewYork 26 mistur
Ortendo 26 skýjað
Paris vantar
Róm 26 heiðskirt
Vín :. 24 skýjað
Washington 24 mistur
Winnipeg 13: skýjað
Eru
þeir að
fá 'ann
Dræmt í Elliðaánum Allur vindur úr Grímsá
Veiðin hefur verið heldur léleg í
Elliðaánum að undanförnu, tölu-
vert mun þó gengið af fiski, en
laxinn tekur mjög illa og dræmt.
Á miðvikudaginn veiddist til dæmis
aðeins einn lax í ánni á fjórar
stangir, eða raunar átta stangir,
því skipt er um mannskap á miðjum
degi. Álls em komnir um 45 laxar
úr ánni og er beðið átekta að sjá
hvort að stórstreymið um þessar
mundir breyti hlutunum til hins
betra.
Sá fyrsti úr Rangánum
Veiðin hófst á vatnasvæði Rang-
ánna hinn 20. júní og snemma
dags veiddist fyrsti laxinn, 10
punda fiskur, sem var dreginn við
Ægissíðufoss í Ytri-Rangá. Veiði-
menn settu í að minnsta kosti einn
til viðbótar sem reif sig af önglinum
og eitthvað sást af laxi. Nokkrir
silungar veiddust og í ánum. Rang-
ámar em yfirleitt kalt síðsumars-
veiðivatn og því telst þetta hinn
bærilegasta byijun. Á þessum slóð-
um vænta menn heimta úr miklum
gönguseiðasleppingum á síðasta
ári. Gangi allt eftir verður allt
spriklandi í smálaxi í Rangánum í
sumar, en tíminn leiðir í ljós hvað
ofan á verður.
Alls hafa nú 40 laxar verið dregn-
ir úr Grímsá, en þijú holl hafa nú
lokið þar veiðum. Fyrsta hollið
veiddi ágætlega og dró 30 laxa á
þurrt. Holl númer tvö var í dreggj-
unum og náði aðeins 7 löxum, en
er það holl sem lauk veiðum á há-
degi í gær, kom í ána var allt búið
í bili að minnsta kosti og aðeins
þrír laxar bættust í veiðibókina.
Bót í máli er að nær allur fiskurinn
er rokvænn, síðustu þrír vógu t.d.
10, 12 og 12 pund og þeir stærstu
vom 17 og 17,5 pund. Mest er
veiðin 5 Laxfossi og Þingnes-
strengjum, en einn og einn fiskur
geyspar golunni ofar í Lundar-
reykjadal. Nú er beðið eftir nýjum
göngum, því lítið er eftir af fiski
og hann tekur illa.
Haukan léleg
Veiðin hefur staðið í Haukadalsá í
nokkra daga og hefur ekki tekist
að hafa upp á umsjónarmanni ár-
innar og húshjálpin séð öll tor-
merki á því að gefa upp veiðitölur.
Eftir krókaleiðum hefur þó heyrst
að illa gangi og veiðin sé jafn vel
ekki meiri en 10-12 laxar enn sem
komið er. Er það nokkuð í blóra
við nágrannaána Laxá í Dölum sem
byijað hefur bærilega.
Morgunblaðið/gg
Myndin er frá Norðurá, Halldór Þórðarson heldur á 10 punda
laxi sem er merkilegastur fyrir þær sakir að hann var fyrsti flugu-
lax sumarsins. Rósar Eggertsson samgleðst með félaga sínum.
Hlutabréf í Olís hf.
seldust upp í gær
ÖLL hlutab'réf í Olís hf. seldust
upp hjá Landsbréfum hf. í gær
og höfðu þá hátt í tvö hundruð
manns fest kaup á bréfúm frá
því sala hófst á fimmtudag.
Hlutaflárútboðið var 50 niilljón-
ir að naftivirði og seldust bréfin
fyrir um 80 milljónir. Gengi
bréfanna hækkaði í gær úr 1,6
í 1,65 og mun hækka í 1,7 í
næstu viku vegna hinnar miklu
eftirspurnar, að sögn Davíðs
Björnssonar, forstöðumanns hjá
Landsbréfúm hf.
Davíð sagði að meðalsala hefði
verið á bilinu 450-500 þúsund sem
mikíð til hefði verið til einstakl-
inga. Enginn lífeyrissjóður hefði
t.d. fest kaup á bréfum. Hann sagði
að fólk hefði streymt að í gær til
að kaupa hlutabréf eftir að bréfin
seldust upp. Aðeins hefði verið
hægt að taka niður pantanir vegna
þeirra bréfa sem ætti eftir að selja.
Stjóm Olís mun koma saman til
fundar á mánudag til að taka
ákvörðun um hvort hafin skuli sala
á þeim 110 milljónum sem heimilt
er að selja til viðbótar.
í frétt sem birtist á baksíðu
Morgunblaðsins í gær kom fram
röng tala um áætlaðan hagnað
Olís á þessu ári. Hagnaður er
áætlaður 72 milljónir en ekki 172
milljónir eins og stóð í fréttinni.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Loðdýrarækt:
Vextir af
stofiilánum
felldir niður
STJÓRN Stofnlánadeildar land-
búnaðarins hefiir samþykkt að
fella niður vexti og fresta afborg-
unum af lánum til loðdýrabænda
frá 1. júlí 1989 til 1. júlí 1992.
Frá því í apríl hefur Framleiðni-
sjóður landbúnaðarins séð um að
greiða vexti af eldri afurðalánum
loðdýrabænda, en auk þess veitir
sjóðurinn ábyrgð á 50% af þeim af-
urðalánum sem loðdýrabændur taka
á þessu ári.