Morgunblaðið - 23.06.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JUNI 1990
7
Norrænt þing hann-
yrða- og smíðakenn-
ara á Laugarvatni
Handavinnukennarafélag íslands og Nordisk sl0jd-/textillærer-
forbund (NST) halda þing á Laugarvatni dagana 24.-29. júní.
Útihátíð Toyota eig-
enda í Borgarfirði
EIGENDUM Toyota-bifreiða er boðið til útihátíðar að Varmalandi
í Borgarfirði í dag, laugardag. Um 14.000 slíkar bifreiðir eru á
landinu og búast starfsmenn umboðsins, P. Samúelsson og co., við
þúsundum gesta á hátíðina. Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra ávarpar samkomuna, boðið verður upp á skemmtiatriði og
til grillveislu.
NST hefur starfað frá árinu
1970 en þá voru eingöngu hann-
yrðakennarar í samtökunum. Nú
hafa smíðakennarar frá Noregi,
Danmörku og Svíþjóð bæst í hóp-
inn.
Þing af þessu tagi eru haldin á
þriggja ára fresti til skiptis á Norð-
urlöndunum. Þetta er í annað sinn
sem íslendingar sjá um þing af
þessu tagi. Fyrra skiptið var árið
1976.
Dagskrá þingsins er mjög ijöl-
breytt. Þar verða haldnir fyrir-
lestrar og námskeið og farið í
námsferðir. Sýning á hannyrðum
grunnskólanema verður sett upp
í tengslum við þingið.
Þema þingsins er „Maðurinn og
umhverfíð“ og er það vel við hæfi
við upphaf Norræns umhverfisárs.
Karl gerður af grunnskólanema
úr efiium úr íslenskri náttúru.
Hátíðin er haldin. í tilefni þess
að aldarfjórðungur er liðinn síðan
innflutningur á Toyotá-bifreiðum
hófst. Dagurinn verður helgaður
gróðri og landgræðslu.
Fyrirhugað er að gróðursetja eina
tijáplöntu fyrir hverja bifreið þess-
arar tegundar á landinu. Tijárækt-
in hefst formlega að Varmalandi,
en síðar verður plantað í gróður-
reiti í öðrum landshlutum.
Hátíðin hefst klukkan 15 með
ávaipi forsætisráðherra, en lýkur
klukkan 18. Meðal skemmtiatriða
er hljóðfæraleikur Stuðmanna,
eftirhermur Jóhannesar Kristjáns-
sonar, söngur og gamanmál Stein-
dórs Hjörleifssonar, Valdimars
Örnólfssonar og Flosa Ólafssonar.
Sýnt verður listflug og Jón Páll
Sigmarsson kemur fram.
Af hverju völdu Einar
og Alda Daihatsu APPLAUSE?
Þegar Einar og Alda ákváðu að kaupa
nýjan bíl fyrir sig og fjölskylduna var mark-
miðið að fínna bíl sem væri stílhreinn í útliti.
notadriúgur, á góðu verði og ódýr í rekstri.
Úrvalið af nýjum bílum er mikið en þeim
fannst þó aðeins einn bíll sameina þessa
kosti. Bíllinn er Daihatsu APPLAUSE.
Innanrými og ótrúlega stór farangursgevmsla
gera APPLAUSE að einstökum fjölskyldubíl.
Hönnun Daihatsu APPLAUSE er líka nýst-
árleg og sameinar stílhreint útlit fernra dyra
fólksbíls og notagUdi hinna vinsælu fimm
dyra bíla. (Siá opnun á skotti/skutá mvnd).
Einar og Alda sáu einnig að Daihatsu
APPLAUSE er tæknilega vel búinn og fannst
hann einkar lipur og þægilegur í akstri. Af
búnaði í APPLAUSE má nefna framhióladrif.
siálfskiptingu, vökvastvri. samlæsingu á
hurðum. siálfstæða fíöðrun á hveriu hióli og
öfíuga 16 ventla vél. 91 hestafía vél.
Fyrir Einar og Öldu er Daihatsu APPLAUSE
sá fullkomni fjölskyldubíll sem þau leit-
uðu að - á mjög hagstæðu verði, eða frá
kr. 884.000 stgr. á götuna.
Ef þín fjölskylda er í bílahugleiðingum þá
ættuð þið ekki að sleppa því að skoða og
reynsluaka Daihatsu APPLAUSE.
Verið velkomin.
Brimborg hf.
Faxafeni 8 • S: 68 58 70