Morgunblaðið - 23.06.1990, Síða 11

Morgunblaðið - 23.06.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990 11 Nína Margrét Grímsdóttir og Sigríður Jónsdóttir. Ljóðatónleikar í Hafiiarborg í Hafiiarfirði TONLIST Jón Þórarinsson Sigríður Jónsdóttir mezzósópran- söngkona og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari eru ungar konur sem eiga að baki mikinn námsferil, hvor á sínu sviði. Sigríður stundaði söngnám hjá ■Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur í Söngskólanum í Reykjavík sam- hliða menntaskólanámi, en hélt til Bandaríkjanna 1985 og hefur verið í framhaldsnámi við Illinois-háskóla og í New York. Hún hefur komið fram við ýmis tækifæri, en þetta voru aðrir einsöngstónleikar hennar hér á landi. Nína Margrét sótti fyrst Tón- menntaskólann í Reykjavík og síðar Tónlistarskólann samhliða mennta- skóla, og var áðalkennari hennar Halldór Haraldsson. Hún lauk ein- leikaraprófí 1985 og var síðan við framhaldsnám í Lundúnum þar til síðastliðið haust. Hún hefur komið fram á mörgum tónleikum innan lands og utan. Þær réðust ekki á garðinn þar sem hann er Jægstur þessar ungu listakonur. Á efnisskránni voru sönglög eftir Schumann, Schubert, Debussy, Mahler og Hugo Wolf, þar á meðal sumar dýrustu perlurnar — og vandmeðfömustu — sem þessir snillingar létu eftir sig. Þeim voru undantekningarlaust gerð góð skil og sum lögin nutu sín með miklum ágætum. Meðferðin einkenndist að kunnáttu og næmum skilningi. Rödd Sigríðar er blæfögur mezzósópranrödd sem þegar hefur náð verulegum þroska, einkum á efri hluta tónsviðsins. Á mið- og lágsviði fær röddin meiri hljómfyll- ■ MIÐSUMARHUGLEIÐSLA verður í Gerðubergi sunnudaginn 24. júní. Þar verður haldin hug- leiðsla í tilefni Jónsmessu. Leifiir Leopoldsson „vökumiðill" leiðir hugleiðsluna ásamt aðstoðarfólki og heldur stuttan fýrirlestur. Húsið verður opnað stundvíslega kl. 20.30. /OÍIS Fataskápar góðir ódýrir físlenskir | ■ Axis Húsgögn hf., Smiöjuvegi 9, sími 43500. ingu þegar tímar líða, og þá verður Sigríður Jónsdóttir stórglæsileg söngkona. Píanóhlutverkið í flestum þessum lögum er samleiks- en ekki undir- leikshlutverk og reynir oft mjög á tækni, skilning og samstillingu við söngvarann. Nína Margrét er mjög fær píanóleikari og leysti allar tækniþrautir fyrirhafnarlítið, en mér fannst hún tæpast fara nógu mjúkum höndum um hljóðfærið þegar hlutur þess er í raun aðeins bakgrunnur sönglagsins. Þannig fannst mér t.d. „rokkhljóðið" í lagi Schuberts um „Grétu við rokkinn" í háværasta lagi. En oftast var „samspil" þessara snjöllu lista- kvenna með miklum ágætum og tónleikarnir að öllu hinir ánægjuleg- ustu. Gunnarssalur Myndlist Eiríkur Þorláksson Það hefur líklega ekki komið fyrir áður að tveir sýningarsalir fyrir myndlist hafí verið opnaðir á íslandi í sama mánuðinum. List- húsið á Vesturgötu 17 var opnað f byrjun júní, og nú hefur verið opnaður lítill sýningarsalur í Þemunesi 4 í Garðabæ, sem hlot- ið hefur nafnið Gunnarssalur. Salurinn er í einbýlishúsi á Amamesi, og stendur fallega við Kópavoginn. Hann er í útbygg- ingu sem stendur á stólpum, og er hlýlegur innkomu. Salurinn er rekinn af Gunnari Gunnarssyni sálfræðingi, og hefur verið nefnd- ur Gunnarssalur til minningar um Gunnar Sigurðsson, sem var þekktur listunnandi á árum áður og hafði m.a. fyrstur manna rekið gallerí í Ásmundarsal við Freyju- götu, þar sem enn eru haldnar sýningar. Hugmyndin er að Gunnarssalur verði ekki eingöngu notaður undir sýningar, heldur geti þar einnig verið vinnustofa fyrir listamenn, og loks er mögulegt að nota hann undir námskeið, hópmeðferðir og fleira. Hversu lífvænlegt getur verið fyrir sýningarstað fyrir myndlist í íbúðarhverfí langt utan alfaraleiðar, verður tíminn hins vegar að leiða í ljós. Fyrsta sýningin í þessum nýja. sal er sýning á málverkum, teikn- ingum og vatnslitamyndum eftir Gunnar I. Guðjónsson. Þama er rúmlega þijátíu verkum komið fyrir þétt saman, svo að lítið rými er fyrir hveija mynd. Skemmti- lega mishá upphenging verkanna bjargar því. Myndirnar em frá ýmsum tímum, allt frá 1973 til 1990, og hafa verið gerðar á Spáni, í Svíþjóð og hér á landi. Ýmis stílbrigði sjást í verkunum, en sameiginlegt einkenni er þó ákveðið litaval og viss kraftur í framsetningu, sem stundum jaðr- ar við ofhlæði. Verkin „Seglin, Espana“ I og II eru sterk í einfald- leik sínum, og andstaðan gæti verið í „Valahnjúkar" sem er ríku- leg og björt í litavali sínu. Nefna mætti fleiri þokkaleg og góð verk á sýningunni, en mynd- hugsun listamannsins virðist njóta sín best í einföldum verkum, þannig vinnur lítið verk, „Eilífðar útreiðartúr", mjög á við nánari skoðun. — Það er viss galli að sýningin stendur aðeins í viku (lýkur 24. júní) og því eins líklegt að fólk verði varla búið að upp- götva staðinn þegar allt er búið; hún mætti standa ögn lengur. Kúbisminn í liststofu Bókasafns Kópavogs hefur þennan mánuð staðið sýn- ing á 14 olíumyndum efír Mattheu Jónsdóttur. Matthea hefur áður haldið 13 einkasýníngar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýning- unni lýkur 25. júní. Sameiginlegt einkenni flestra myndanna eru kúbísk form og daufír litir. Formin eru síðan end- urtekin milli mynda, og önnur lit- brigði sett í þau. Þó að verkin séu öll unnin síðustu ár, verður fyrsta hugsun skoðandans ósjálfrátt að þetta hafí allt borið fyrir augu hans áður. Við snögga upprifjun má segja, að verkin í heild minni mjög svo á það sem félagamir Pablo Picasso og George Braque voru að bauka milli 1907 og 1910. Kúbisminn olli byltingu í allri formhugsun á sviði myndlistar í heiminum. Ákveðin höft hurfu, og rannsóknir þeirra og fleiri fylg- ismanna urðu til að opna víddir í málverkinu, sem ekki höfðu staðið til boða áður. Þó er hér ekki að finna þá rann- sókn og dýpt, sem upphaflegu kúbistamir settu í verk sín, heldur virðist meira lagt í yfírborðs- fágunina; hrein teikning, endur- tekning forma og daufblandaðir litir draga úr verkunum allan kraft. Myndir eins og „Náttskugg- ar“, „Skýjaborg" og jafnvel „Skútur" hefðu þó sómt sér allvel sem hluti af þeirri þróun kúbis- mans sem átti sér stað í myndlist- inni í Evrópu á öðrum áratug ald- arinnar. Þau hefðu örugglega ver- ið andblær nýrra tíma í myndlist hér uppi á Islandi á þriðja eða fjórða áratugnum. En eftir síðari heimsstyijöldina var kúbisrhinn búinn að sinna sínu hlutverki, og í dag er sá stíll aðeins daufur endurómur þess sem löngu er lið- ið og því utan við alla þróun í myndlist nútímans. NOVELLA SÓLSTÓLLIIUIM Verð aðeins kr. 1 Novella sólstóllinn er úr níðsterku plastefni, staflast vel og hentar mjög vel hér á landi. Novella sólstóllinn er einstaklega stöðugur og er áreiðanlega með þeim sterkustu á markaðnum. NCVA Einkaumboðá íslandi. Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70 - þar sem sumaríð er.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.