Morgunblaðið - 23.06.1990, Side 16

Morgunblaðið - 23.06.1990, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990 Prestastefiian 1990 í Reykjavík: Rætt um uppbygg- ingu prestsins Kökurnar seldust upp á augabragði á basamum í leikskólanum í Grundarfirði. Kaupum kastala fyrir peninginn Grundarfirði. UM 100 tertur, kökur og brauð af öllum gerðum og stærðum, voru til sölu á kökubasar sem foreldrafélag barnanna á leikskólan- um í Grandarfirði stóð fyrir laugardaginn 16. júní. Basarinn hófst kl. tvö og seld- basamum, ásamt fé sem áður ust allar kökumar á fyrsta hefur safnast eða fengist gefins, klukkutímanum. Ágóðanum af á að verja til að kaupa kastala, en kastaíi er útileiktæki með ótal möguleika sem alla krakka dreymir um. Á leikskólanum í Grundarfirði em um 50 krakkar og komast færri að en vilja. - Ragnheiður UPPBYGGING prestsins er meginefiii Prestastefiiunnar 1990, sem haldin verður í Reykjavík 26.-28. júní. Á síðustu prestastefinu var fiallað um safnaðaruppbyggingu og í framhaldi af því er nú hugað að prestinum, mótun hans í lífí og starfi og þeim margvíslegu þáttum er snerta þjónustuna. Séra Karl Sigurbjömsson í Hallgrímskirkju fjallar um efnið uppbygging, bæn og Biblía; séra Hreinn Hákonarson í Söðulholts- prestakalli fjallar um efnið guð- fræði, nám og iðkun; séra Tómas Sveinsson í Háteigskirkju fjallar um efnið vígsla, von og veruleiki; séra Jón Dalbú Hróbjartsson í Laugar- neskirkju fjallar um efnið starfið, kjör og köllun og Herbjört Péturs- dóttir, prestsfrú á Melstað í Mið- firði, fjallar um efnið heimilið, skyldur og skjól. Erindin verða flutt í Dómkirkjunni á miðvikudag og fimmtudag og er öllum velkominn aðgangur. Prestastefnan verður sett með athöfn í Dómkirkjunni á þriðjudag kl. 14. Þar flytur biskupinn, herra Ólafur Skúlason, yfirlitsræðu sína og kirkjumálaráðherra, Óli Þ. Guð- bjartsson, ávarpar prestastefnuna. Þá flytja ávörp Helgi Hjálmsson, formaður leikmannaráðs, og ný- kjörinn stjómarformaður Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, Margrét Heinreksdóttir. Prestastefnan hefst með messu í Dómkirkjunni á þriðjudag kl. 10.30. Séra Dalla Þórðardóttir á Miklabæ í Skagafirði predikar og Dómkirkjuprestarnir séra Hjalti Guðmundsson og séra Jakob Ágúst Hjálmarsson þjóna fýrir altari ásamt biskupi. Allir eru velkomnir til messunnar. (Frétt frá Biskupsstofu.) Álit útvarpsstjóra og formanns útvarpsráðs: Brýnt að löggjafínn setji skýr ákvæði um útvarpsráð INGA Jóna Þórðardóttir, formaður útvarpsráðs, og Markús Öra Antonsson, útvarpssljóri, telja að brýnt sé að löggjafínn setji skýr ákvæði um það hver hafi úrskurðarrétt í deilumálum vegna frétta- flutnings fréttastofú Ríkisútvarpsins. Álitsgerð tveggja lögfræðinga á vegum Lagastofiiunar og álit lögfræðings Ríkisútvarpsins stangast á um þetta, en þær hafa verið gerðar vegna deilna fréttastolú og útvarpsráðs vegna fréttar um VT-teiknistofiiuna á Akranesi. Álitsgerðirnar frá Lagastofnun varpsráði í fréttum ef viðkomandi og Baldri Guðlaugssyni, hæstarétt- arlögmanni og lögfræðingi RÚV, vom lagðar fram á útvarpsráðs- fundi í gærmorgun. í áliti Laga- stofnunar, en frá því var greint í Morgunblaðinu í gær, kemur fram að útvarpsráð hefði ekki vald til að úrskurða eftir á að frétt, sem frétta- maður hefði samið og lesin hefði verið í Ríkisútvarpinu, væri ómerk. Baldur kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu í áliti sínu, sem dagsett er sjötta þessa manaðar, að út- varpsráði sé samkvæmt útvarpslög- um ætlað að úrskurða um það, hvort gætt hafi verið fyllstu óhlutdrægni í fréttum eðí. annarri dagskrá Ríkisútvarpsins. Baldur styðst með- al annars við það að útvarpslögin byggi á að útvarpsstöðvar fylgi til- teknum grundvallarreglum og að þeir sem telji á sér brotið eigi þess kost að fá úrlausn mála sinna. Að því leyti er varði aðrar útvarps- stöðvar sé tekið fram að leggja megi mál fyrir útvarpsréttamefnd. Baldur telur að sambærilegur úr- skurðaraðili í RÚV sé útvarpsráð. Baldur telur einnig að ljóst sé að útvarpsráð hafí vald til að lýsa yfirlýsingu fréttastofunnar, um að hún standi við frétt sína þrátt fyrir úrskurð útvarpsráðs, ef ráðið telur að með yfirlýsingunni sé dregið úr gildi við komandi úrskurðar. Baldur telur helzta álitamálið varðandi úr- skurðar útvarpsráðs hvert sé boð- vald þess yfír viðkomandi frétta- stofu að því er varðar birtingu til- tekins úrskurðar, leiðréttingar eða athugasemda vegna fréttar. Hann telur þar vega þyngst að útvarpsráð hafí ekki lögum samkvæmt beint stjómunar- eða boðvald yfir ein- stökum deildum eða starfsmönnum Ríkisútvarpsins, hvorki útvarps- stjóra né öðrum. „Það sé því út- varpsstjóri einn sem geti fyrirskipað birtingu úrskurðar, tiltekinna leið- réttinga eða athugasemda frá út- fréttastjóri neitar að vereða við til- mælum útvarpsráðs þar að lútandi. Og það sé sjálfstæð ákvörðun út- varpsstjóra hvort hann fýrirskipar slíka birtingu og þá í hvaða formi,“ segir í áliti Baldurs. Réttur einstaklinga betur tryggður hjá einkastöðvunum? Inga Jóna Þórðardóttir segist að ýmsu leyti ósammáía áliti lögfræð- inga Lagastofnunar. „Mér finnst sérkennileg sú túlkun að útvarpsráð hafí ekki úrskurðarvald. Það er að vísu rétt að orðið úrskurðarvald kemur ekki fyrir í þeim greinum útvarpslaga, sem fjalla um út- varpsráð. Það er hins vegar tekið fram að útvarpsráð skuli hafa með gæzlu 15. greinarinnar að gera, það er að segja tryggja það að lýðræðis- legar grandvallarreglur séu í heiðri hafðar, gætt sé fyllstu óhlutdrægni og svo framvegis," sagði Inga Jóna í samtali við Morgunblaðið. Hún tekur undir með Baldri Guð- laugssyni um að útvarpsráð eigi að vera hliðstæður úrskurðaraðili og útvarpsréttarnefnd er gagnvart einkastöðvunum. „Það hefur alltaf verið lagður sá skilningur í útvarps- kafla laganna að útvarpsráð færi með þetta úrskurðarvald. Til viðbót- ar má benda á að í framvarpi til útvarpslaga, sem lagt var fram á Alþingi í vetur, þar sem gert er ráð fyrir að breyta veralega hlutverki útvarpsráðs, er ákveðið sérstaklega að úrskurðarvaldið skuli fela þrem- ur mönnum skipuðum af mennta- málaráðherra og tilnefndum af Hæstarétti. Þetta vald yrði þá ekki lengur innan stofnunarinnar heldur utan. Með hliðsjón af þessu finnst mér mjög sérkennilegt að hægt sé að túlka núgildandi lög þannig að réttur einstaklinga sé betur tryggð- ur þegar einkastöðvamar eiga í hlut heldur en þegar Ríkisútvarpið á í hlut. Ég tel nefnilega að kjarn- inn sé fólginn í því hvemig þessi réttur er tryggður, ef einhver telur á sig hallað," sagði Inga Jóna. Inga Jóna sagði að ekki væri hægt að búa við að hægt væri að túlka jafnmikilvægt atriði og það, hver gætti réttar einstaklinga, á mismunandi veg. „Þarna stangast gjörsamlega á álit nokkurra virtra lögfræðinga. Niðurstaðan hlýtur að vera sú að löggjafinn verður að gæta þess við endurskoðun útvarps- laganna að hlutirnir séu orðaðir með skýram og óyggjandi hætti,“ sagði Inga Jóna. Hún sagðist telja að framvarpið, sem nú lægi frammi, tryggði þetta. Þar væri gert ráð fýrir sama úrskurðaraðila fyrir eþikastöðvarnar og Ríkisútvarpið. Sljórnendur geta ekki búið við vafa um valdsvið Markús Örn Antonsson, útvarps- stjóri, sagði í samtali við Morgun- blaðið að sýnilegt væri miðað við þær ólíku niðurstöður, sem virtir lögfræðingar kæmust að í málinu, að erfitt væri fýrir stjómendur Ríkisútvarpsins að búa við að minnsti vafi léki á um valdsvið eða úrskurðarvald útvarpsstjóra, út- varpsráðs eða deildarstjóra ? stofn- uninni. Það væri jafnframt mjög til baga fyrir hinn almenna borgara, sem þyrfti að leita eftir úrlausn sinna mála í stofnuninni. „Ég tel að fyrst og fremst hljóti þessar álitsgerðir að verða þarft framlag til umræðu um málefni Ríkisútvarpsins og útvarpsmál í landinu þegar útvarpslög verða tek- in til endurskoðunar, eins og staðið hefur til að Alþingi gerði," sagði Markús. Hann sagði að afdráttar- lausar og skýrar línur yrðu að vera um það hvar endanlegt úrskurðar- vald ætti að liggja; hvort það ætti að vera hjá útvarpsráði, sem starf- aði í nálægð við stofnunina sjálfa, eða hvort fela ætti úrskurðarvaldið nýjum aðila utan stofnunarinnar. „Ég hef ekki gert upp hug minn til þess endanlega, þótt mér finnist í sjálfu sér að þetta fyrirkomulag sem hér hefur ríkt; með útvarpsráð sem sé hluti af stjómkerfi Ríkisút- varpsins, sé að mörgu leyti æskilegt og að ekki sé óeðlilegt að þangað sé hægt að leita með slíka úr- skurði. En það má ekki orka tvímælis hvort lög heimili það eða ekki hvort slíkir falli í útvarpsráð- inu,“ sagði Markús Örn. Hann sagði að í álitsgerð lög- fræðinga Lagastofnunar kæmi fram að útvarpsstjóri gæti gefið fréttastjóram fyrirmæli um að birta leiðréttingar við fréttir ef utanað- komandi aðilar teldu á sér brotið í fréttaumfjöllun. Þetta kæmi fram hjá Baldri Guðlaugssyni líka, og þetta atriði virtist hafa skýrzt. Þetta væri hins vegar andstætt sjónarmiðum fréttamanna, sem teldu að það væri hluti af ritstjóm- arlegu sjálfstæði fréttastofanna að ákveða hvort leiðréttingar væru teknar gildar og birtar. Mjög mikill verðmunur á bílasprautun FYRIRTÆKI sem sprauta bíla taka mjög mismikið fyrir þjón- ustuna. Könnun sem Verðlags- stofiiun gerði um miðjan mánuð- inn sýnir að 94% munur er á hæsta og lægsta verði fyrir al- sprautun, en mesti verðmunur fyrir sprautun á einstökum bílhlutum er hvorki meiri né minni en 174%. Verðkönnunin náði til 25 fyrir- tækja á höfuðborgarsvæðinu og 11 fyrirtækja á landsbyggðinni. Mesti verðmunur á alsprautun reyndist um 85 þúsund krónur, fyrir spraut- un á japönskum smábíl með svo- nefndum tveggja þátta lit. Lægsta verð fyrir þetta, 90.500 krónur, var gefíð upp hjá verkstæði í Reykjavík en í Kópavogi var verkið sagt kosta 176.000 krónur. Fyrir sprautun á einstökum bílhlutum, munaði mestu í verði fyrir sprautun vélarhlífar á japönsk- um smábíl. Verkstæði á Egilsstöð- um gaf upp lægsta verð fyrir þetta, 7200 krónur, en mest vildi verk- stæði á Akureyri fá fyrir samskonar vinnu, 19.700 krónur. Verðmunur- inn er 12.500 krónur eða 174%. Á höfuðborgarsvæðinu munaði 60-150% á hæsta og lægsta verði fyrir sprautun stakra bílhluta. Morgunblaðið/Þorkell Alfred Teufel með glas af nýja bjórnum, Helga magra. Víking-Brugg h/f: Ný bjórtegund á markaðinn Víking-Brugg h/f hefúr sett á markaðinn nýja tegund af áfeng- um bjór. Bjórin ber heitið Helgi magri og er 4% að styrkleika. í frétt frá framleiðanda kemur fram að í bjómum eru helmingi færri hitaeininingar en í venjuleg- um bjór. Til þess að ná því fram hefur verið beitt sérstökum aðferð- um við bruggun oggeijun bjórsins. Bruggmeistari Víking-Brugg er Alfred Teufel og hefur hann þróað þessa tegund. Teufel er Þjóðveiji og hefur starfað hjá Víking-Brugg h/f í eitt ár. Helgi magri mun fást í öllum áfengisútsölum ÁTVR eftir 20. júní.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.