Morgunblaðið - 23.06.1990, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990
Bandaiískir sagníræðing-
ar deila um kalda stríðið
Washington. Frá fvari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
NOKKRIR af kunnustu sagnfræðingnm Bandaríkjanna hittust á
dögunum til að minnast vel þekkts félaga síns, sem andaðist í'
mars sl. 69 ára að aldri. Hann hét William Appleman Williams
og var umdeildur ekki síst vegna skoðana sinna á Sovétríkjunum
og utanríkisstefiiu Bandaríkjanna.
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, ræðir við Ronald
Reagan, fyrrum forseta Bandaríkjanna. Margir telja að staðfesta
þeirra gagnvart Sovétstjórninni hafi knúið ráðamenn í Kreml til
tilslakana á vettvangi utanrikismála og þar með flýtt fyrir enda-
lokum kalda stríðsins.
Williams varð ekki síst kunnur
fyrir að vera harður í dómum
sínum um utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna og einkum þann þátt
hennar að einangra Sovétríkin.
Hann var ávallt eindreginn and-
stæðingur þeirra sem vildu sovét-
fyrirkomulagið feigt. Þegar hans
var minnst var rætt um margt,
sem ekki hefur verið á hvers
manns vörum undanfarin ár.
Starfsbræður Williams höfðu ekki
heldur skipt um skoðun á kalda
stríðinu, upptökum þess og áhrif-
um.
Flestir töldu að byltingamar í
Austur-Evrópu hefðu ekki á nokk-
um hátt réttlætt þá utanríkis-
stefnu Bandaríkjastjómarinnar að
einangra Sovétríkin.
„Ég er ekki þeirrar skoðunar
að Bandaríkin hafi unnið kalda
stríðið," sagði Marilyn Young,
söguprófessor við New York-
háskólann. „Égtel að Sovétstjórn-
in hafi lagt niður vopnin, og það
er allt annað mál.“
Hljóðið breyttist þó í fundar-
mönnum er Christopher Lasch,
sem hefur þótt æði fijálslyndur
vinstrisinni, bað um orðið til að
mótmæla þeim sem höfðu varið
málstað Sovétríkjanna.
„Við ættum,“ sagði Lasch, „að
fara að dæmi okkar látna félaga
og líta á staðreyndirnar án þess
að blanda þær villum sem stafa-
af óskhyggju einni.
Við eigum að viðurkenna þá
staðreynd að Vesturveldin unnu
kalda stríðið — jafnvel þótt það
stangist á við stjómmálaskoðanir
okkar,“ sagði Lasch prófessor.
Hann minnti á langan lista af því
sem Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor-
seti hefði gert vel. Nefndi hann
þá afvopnunarmál, þróunina í
A-Evrópu og stjómmálalegar
breytingar innan Sovétríkjanna.
„Ef þetta er ekki sigur Vestur-
landa," sagði Lasch prófessor, „þá
er tómt mál og tilgangslaust að
ræða málið frekar."
Lasch ávítaði bandaríska
vinstrisinna, sem dýrka Gorbatsj-
ov og líta á hann sem „spánýtt
efni í dýrling, sósíalíska hetju og
fyrirmynd fyrir alla sósíalista um
heim allan.“
Lasch sagði Gorbatsjov hug-
djarfan í samanburði við margt
smámennið á Vesturlöndum.
Framtaksseminni og dirfskunni
hefði hins vegar verið þrengt upp
á hann og hann hefði ekki gert
annað en að bregðast vel við
vandamálunum, sem nú steðjuðu
að Sovétríkjunum bæði innan
lands og utan.
Lasch sneri sér næst að því sem
hefur reynst hvað erfiðast fyrir
vinstri menn að kyngja: „Við verð-
um að leggja fyrir okkur þá spum-
ingu, hvort hann standi ekki í
raun og veru yfir moldum sovéska
heimsveldisins og um leið yfir
hruni sósíalismans í heiminum."
Lasch viðurkenndi „að Sovét-
heimsveldið hefði að mörgu leyti
verið andstæða sósíalismans".
Hann bætti þó við: „Sú von og
trú sem var leiðarljós sósíalista í
gegnum árin var að Vesturveldin
myndu smám saman snúast til
sósíalisma um leið og Sovétríkin
og Austur-Evrópa hölluðust að
lýðræðissósíalisma með mannúð-
arsvip. Hvorki í vestri né austri
eru menn á þeirri leið. Það sem
við sjáum í austri er ekki mannúð-
arsvipur á sósíalismanum heldur
hrun hans.
Við þurfum hvorki gleðilæti né
að hampa fijálsri verslun til að
sjá að fjöldinn í Rússlandi og
Austur-Evrópu hefur misst trúna
á sósíalismann."
Ræða Lasch rótaði duglega upp
í hugum þeirra 75 sagnfræðinga
sem sátu minningarathöfnina og
það stóð ekki á því að menn færu
að malda í móinn.
Walter Lefeber sagnfræðipróf-
essor við Cornell-háskóla, einn af
kunnustu nemendum Williams
Applemans Williams, sem hefur
ritað bækur þar sem hann for-
dæmir utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna, sagði í ræðu sinni, að
það væri ekki til umræðu hvort
Bandaríkjamenn hefðu unnið
kalda stríðið eða ekki, heldur hitt
að Bandaríkjamenn hefðu orðið
of seinir til að sjá fyrir breyting-
amar og hasla sér völl sem hefði
veitt þeim betri aðstöðu til áhrifa
bæði í stjórnmálum og efnahags-
lega.
Lloyd Gardener, sagnfræði-
prófessor við Rutgers-háskólann,
sagði að hmn kommúnismans í
Austur-Evrópu gæti hæglega
rænt íhaldsmenn sterkasta vopni
þeirra: einræði kommúnismans
hefði verið stöðug viðvörun til
þjóðanna í vestri um að falla ekki
í það forað.
William Appleman Williams
fordæmdi harðlega í bók sinni The
Tragedy of Amerícan Diplomacy,
er kom fyrst út 1959, þá stefnu
Bandaríkjanna að nota hervald til
áhrifa erlendis. Hann varð og
einna fyrstur til að ræða um
„bandaríska yfirráðastefnu“. Sú
orðnotkun féíl vel í kramið hjá
vinstrisinnum. Þeir notuðu þessa
skilgreiningu oft um utanríkis-
stefnu bandarískra ríkisstjórna
eftir síðari heimsstyijöldina.
ísland eina landið sem
aðeins er byggt hvítum
Fyrrum Ku Klux Klan-leiðtogi:
DAVID Duke var eitt sinn þekktur fyrir það eitt, að sögn Knight
.Ridc/er-fréttastofunnar bandarísku, að vera yfirmaður reglu banda-
risku kynþáttahataranna Ku Klux Klan, aðdáandi nasista og óvinur
gyðinga. A síðastliðnu ári hlaut hann sæti í fúlltrúadeild þings Louis-
iana-rikis fyrir flokk repúblikana og hyggst nú keppa um sæti í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings við demókratann J. Bennett Johnston er
haldið hefúr sætinu í átján ár. Ekki er talið líklegt að Duke sigri í
haust en heimildarmenn álita að hann hafi fyrst og fremst í huga að
nýta kosningabaráttuna til að koma á laggimar traustum hópi stuðn-
ingsmanna er smám saman verði samtök á landsvísu. Þótt Duke harð-
neiti að honum sé í nöp við aðra kynþætti en hvíta benda ýmis um-
mæli hans til annars.
„Það er aðeins eftir eitt land sem
enn er eingöngu byggt hvítum 0_0„ _________________------------
mönnum, það er ísland. Og ísland Þýskalandi. Starfsmenn við háskól-
er ekki nóg,“ sagði Duke í viðtali ann hafa skýrt frá því að Duke hafi
við stúdent frá Tulane-háskólanum selt nasistarit á skrifstofu sinni í
sl. haust. Hann lýsti einnig þeirri Metairie, útborg New Orleans.
skoðun sinni að Bandaríkin hefðu Duke er 39 ára gamall, ljóshærð-
Frá mótmælafundi Ku KIux Klan.
Reuter
Skæruliðasveitir Tam-
íla myrða 62 þorpsbúa
Færeyjar:
Leyst út með
reykingabúnaði
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
FÆREYINGAR hafa tekið Margr-
éti Danadrottningu og Hinrik
prins fagnandi en opinber heim-
sókn þeirra hjóna hófst fyrr í vik-
unni.
Lögþing Færeyja færði þeim hjón-
um forláta reykborð úr steini að
gjöf og segir Ritzau fréttastofan _að
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís-
lands, hafi verið gefið sams konar
borð er hún sótti Færeyinga heim
og að leiðtogar risaveldanna, þeir
Reagan og Gorbatsjov, hafi notað
það borð er þeir komu saman til
fundar í Reykjavík árið 1986.
Á fímmtudagskvöld sóttu þau
hjónin íbúa Fuglafjarðar heim og
gáfu þeir drottningu vandaða vindl-
ingaöskju, borðkveikjara og ösku-
bakka. Margrét drottning er sem
kunnugt er annálaður reykingamað-
ur og hefur mátt sitja undir gagn-
rýni sökum þessa. Þykir sýnt að
gjafír Færeyinga verði síst til að slá
á reykfíkn hennar.
ekki átt að taka þátt í styijöldinni
gegn nasistastjóm Adolfs Hitlers í
Þýskalandi. Starfsmenn við háskól-
ann hafa skýrt frá því að Duke hafí
selt nasistarit á skrifstofu sinni í
Metairie, útborg New Orleans.
Duke er 39 ára gamall, ljóshærð-
ur, hávaxinn og vörpulegur maður
sem geislar af orku. Hann leggur
mesta áherslu á baráttu gegn ýms-
um þáttum velferðarkerfisins og
segir skattgreiðendur ekki eiga að
greiða útgjöld fflhraustra einstakl-
inga er misnoti sér kerfíð. Þeir eigi
ekki heldur að halda uppi óskilgetn-
um bömum mæðra er þiggja fá-
tækrahjálp. Hvítir ættu ekki að
verða af störfum, styrkjum og skóla-
setu vegna tillits sem tekið er sér-
Ónafngreindir franskir og
vestur-þýskir embættismenn sögðu
þá Mitterrand og Kohl hafa komið
saman til að undirbúa leiðtogafund
Evrópubandalagsins (EB), sem
fram fer á írlandi í næstu viku og
fund leiðtoga sjö helstu iðnríkja
staklega til blökkumanna eða ann-
arra minnihlutahópa. Slíkar aðgerðir
segir hann að séu „kynþáttamismun-
un“ gagnvart hvítum. Hann berst
einnig gegn ýmsum aðferðum sem
yfírvöld nota til að stuðla að því að
hæfílegur fjöldi einstaklinga sé af
hvetjum kynþætti í sérhveijum
skóla.
Duke hefur hleypt af stokkunum
þjóðarsamtökum er beijast fyrir
hagsmunum hvítra, NAAWP, og
hreykir sér af því að 25.000 manns
fái sent rit samtakanna.
Batticaloa á Sri Lanka. Reuter.
Tígrarnir, skæruliðasveitir
tamíla á Sri Lanka, myrtu 62 isl-
amska íbúa bæjarins Nintavur í
norðurhluta landsins i gær og
sökuðu þá um að vera uppljóstr-
heims. Sögðu þeir hinir sömu að
þeir Kohl og Mitterrand teldu brýnt
að skipulögð yrði stórfelld efna-
hagsaðstoð við Sovétríkin og
stefndu þeir að því að sannfæra
aðra vestræna ráðamenn um ágæti
slíkra aðgerða.
ara og vinna fyrir stjórnvöld. Er
þetta haft eftir heimildarmönn-
um í leyniþjónustu Sri Lanka.
Fregnir herma að skæruliðamir
hafi talið bæjarbúa hafa veitt
Fyrr í vikunni boðaði Mitterrand
að hann myndi leggja ríka áherslu
á efnahagssstuðning vestrænna
ríkja við Sovétmenn á leiðtogafund-
um Evrópubandalagsins og sjö
helstu iðnríkja heims. Sendiherra
Sovétríkjanna hjá Evrópubandalag-
inu sagði í Brussel í gær að Sovét-
stjórnin kærði sig ekki um beina
efnahagsaðstoð heldur vildu ráða-
menn auknar fjárfestingar vest-
rænna ríkja í Sovétríkjunum.
stjórnvöldum upplýsingar fyrr í vik-
unni. Að sögn notuðu skæruliðamir
hnífa og önnur eggvopn af því þeir
vildu ekki vekja athygli hermanna
sem höfðust við í nágrenninu með
skothvellum.
Tamílar vilja aðskilnað frá sinha-
lesum á Sri Lanka og hafa blóðug-
ir bardagar staðið milli þjóðanna
svo árum skiptir. Friðarviðræður
sem staðið hafa í 14 mánuði fóru
út um þúfur fyrir skemmstu.
Tígrarnir, en svo nefnast skærulið-
ar Tamíla, réðust á öryggissveitir
stjómvalda í norðausturhluta lands-
ins þann 11. júní. Tígrarnir hand-
tóku þá 800 lögreglumenn og náðu
miklu af vopnum á sitt vald. Orygg-
issveitirnar gerðu gagnárás og náðu
nokkm landsvæði til baka.
Talið er að 67 hermenn og 135
skæruliðar hafi fallið undanfarið í
þessum átökum og 155 lögreglu-
menn verið líflátnir og við þá tölu
bætast fórnarlömb fjöldamorðanna
í gær.
Kohl og Mitterrand koma sainaii í V-Þýskalandi:
Ræða aðstoð við Sovétríkin
Assmannshausen í Vestur-Þýskalandi. Reuter.
FRANCOIS Mitterrand Frakklandsforseti og Helmut Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands, komu saman til íúndar í gær í bænum Assmanns-
hausen í Vestur-Þýskalandí og var efnahagsaðstoð Vesturlanda við
Sovétríkin helsta umræduefnið.