Morgunblaðið - 23.06.1990, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990
Húsið verður sýnt fullbúið með innrétt-
ingum og húsgögnum. Eigum fyrirliggj-
andi nokkur hús, samsett og ósamsett
á sérstöku tilboðsverði sem gildirtil 5
júlí 1990.
Söluaðilar:
Lundi hf., BYNOR
Byggörðum 7, Seltj. Akureyri.
Sími 612400. Sími 96-96-26449.
Opið um helgina frá
kl. 14.00-17.00 og næstu helgar
Mánabergið frá Olafs-
jBrði á úthafskarfa
MÁNABERG ÓF frá Ólafsfirði
er nú á úthafskarfaveiðum á
svæðinu um 400 mílur út af
Reykjanesi.
Asgeir Ásgeirsson hjá Sæbergi,
sem gerir Mánabergið út, sagði
-^að reitingsveiði hefði verið undan-
farið og eitt skipanna, Bessi frá
Súðavík, hefði fengið 25 tonna hol
eftir sex tima tog.
Ásgeir sagði karfann mun betri
nú en hann var í fyrra, en Mána-
bergið stundaði þá einnig úthafs-
karfaveiðar. „Þetta- slapp fyrir
horn hjá okkur síðast, en við erum
aðallega að þessum veiðum nú til
að nýta stoppdagana og veiðar-
færin, nú svo viljum við komast
hjá því að skipið sólbrenni hér við
bryggjuna," sagði Ásgeir.
Sláttur í Eyjafirði;
Bændur bíða betra veðurs
FRAMKVÆMDIR við fyrsta áfanga Giljahverfís ganga vel, þar er
nú unnið að gatnagerð og nokkrir verktakar eru byijaðir að
skipta um jarðveg lóðum sínum. Bygging húsanna i hverfinu hefst
væntanlega innan skamms, en einnig er reiknað með að einn bygg-
ingareitur í öðrum áfanga hverfisins verði byggingahæfúr bráð-
lega.
Deiliskipulag annars áfanga
Giljahverfis hefur einnig verið
samþykkt í skipulags- og bygg-
inganefnd sem og í bæjarstjóm,
en ákveðið var að hraða fram-
kvæmdum við hann sem kostur
væri, svo framboð lóða væri ævin-
lega nægilegt.
í Giljahverfi öllu er reiknað með
að verði á bilinu 650-700 íbúðir.
Hverfið afmarkast af Hlíðarbraut
í austri, Borgarbraut í norðri og
brekkubrún í um 100 metra hæð
í vestri, en suðurmörk hverfísins
liggja að opnu svæði norðan iðnað-
arhverfis við Rangárvelli.
Annar áfangi Giljahverfis er
sunnan Merkigils og nær hann um
330 metra meðfram Hlíðarbraut
og um 400 metra upp með Merkig-
il, en svæðið er um 8,5 hektarar
að stærð. í þessum áfanga er gert
ráð fyrir einbýlis- og raðhúsum.
Einbýlishúsalóðir eru 20 og eru
þær í austur og suðuijöðrum svæð-
isins. Raðhúsin eru spyrt saman í
þyrpingar á svipaðan hátt og í
fyrsta áfanga hverfisins og eru
slíkir raðhúsareitir 5 talsins. Á
hveijum raðhúsareit er gert ráð
fyrir 15-21 íbúð og verður endan-
legt skipulag þeirra í höndum lóð-
arhafa sjálfra.
Fjöldi íbúða á svæðinu getur
þannig orðið á bilinu 95-125. Ef
miðað er við 3 íbúa á hverja íbúð,
sem er nálægt núverandi ástandi
verður íbúafjöldi svæðisins
285-375 manns.
Skipulagssvæðið skiptist í tvo
hluta og skilur opið svæði á milli.
Inn í hvorn hluta svæðisins liggur
húsagata suður úr Merkigili og
endar hvor um sig með torgi með
hringakstri. Gert er ráð fyrir að
leiksvæði fyrir börn verði inni á
hveijum raðhúsareit, en auk þess
verður stærra leiksvæði með bolta-
velli sunnan við byggðina.
Göngustígur liggur um opna svæð-
ið í miðju og tengir hann göngu-
leið meðfram Hlíðarbraut göngu-
leiðum í miðhluta Giljahverfis.
Reiknað er með að framkvæmd-
ir heíjist við byggingar í hverfinu-
að ári.
SYNHVG
á sumaihúsum
Fjórar nýútkomnar
sírIamJ
ALLT STAKAR SOGUR
Áskriftarsími 96-24966
ásútgáfan
Glerárgötu 28 - 600 Akureyri - Sími 24966
á Seltjamamesi v/Bygggarða
VÍÐA er komið gott gras í Eyja-
firði framanverðum, en hey-
skapur er þó ekki almennt byij-
Sjallinn opn-
'ar grillbar
Grillbar verður opnaður í Sjallan-
um í dag, laugardag, kl. 20 þar
sem boðið verður upp á ekta
„Bar-B-Q“-steikur ásamt ýmsu
öðru ljúfmeti.
Gunnar Páll matreiðslumeistari
grillar þar af miklum móð þar til
dansleikur hefst kl. 22. Á dansleikj-
um um helgina leikur hljómsveitin
Karma fyrir dansi og er það í fyrsta
sinn sem hljómsveitin leikur á Ákur-
^"eyri.
aður. Margir bændur eru í start-
holunum, en rigning í gær og
fyrradag liafa sett strik í reikn-
inginn.
Guðmundur Steindórsson ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar sagði að í innsveitum
Eyjafjarðar væri komið gott og
mikið gras og bændur væru tilbún-
ir til að hefja slátt, en þar sem
rignt hefði tvo síðastliðna daga
og veðurspá væri ekki góð ætluðu
menn að bíða átekta.
Guðmundur sagði það misjafnt
hversu góð spretta væri í hérað-
inu, en bændur norðan Akureyrar,
bæði vestan og austanmegin fjarð-
ar, myndu að líkindum ekki hefja
slátt strax. Framan Akureyrar og
í Hörgárdal væri sprettan betri.
Verkmenntaskðlinn
á Akureyri
Islenskukennarí
óskast ífullt starf
að Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Umsóknir skulirsendar í pósthólf 284,
602 Akureyri eigi síðar en 15. júlí nk.
Nánari upplýsingar veita
Kristín S. Árnadóttir, deildarstjóri,
sími 96-22519 og undirritaður,
símar 96-26811 og 96-21511.
Skólameistari.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Annar áfangi Giljahverfis, en þar verða 20 einbýlishúsalóðir og 5 raðhúsareitir með 15-21 íbúð. Fjöldi
íbúða á svæðinu verður á bilinu 95-125 og íbúafjöldinn 285-375 manns.
Annar áfangi Giljahverfís:
Gert ráð fyrir 95-125 íbúð-
um og tæplega 400 íbúum