Morgunblaðið - 23.06.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990
29
Kveðjuorð:
Helga Tómasdóttír
Fædd 24. september 1908
Dáin 15. júní 1990
„Það syrtir að er sumir kveðja.“
Þannig er mér innanbijósts er ég
kveð Helgu Tómasdóttur hinstu
kveðju.
Fyrir 28 árum kynntist ég henni
fyrst í orlofi kvenna á Laugar-
vatni. Ég minnist þess er við fáein-
ar konur stóðum saman og sungum
á kvöldvöku. Þá var tekið blíðlega
undir handlegg minn. Þar var Helga
komin. Tær og falleg sópranrödd
hennar heillaði mig.
Eftir þessi kynni okkar bauð hún
mér að sitja í bænahring á heimili
sínu, þar sem markmiðið var að
biðja fyrir sjúkum. Það voru marg-
ar konurnar sem sóttu þessar
stundir og við fengum að njóta fyr-
irbæna hennar og söngraddarinnar
fögru í 17 ár á heimili hennar. Við
komum hlaðnar áhyggjum á fundi
hennar og fórum frá henni léttar í
lund.
Hugur minn er fullur þakklætis
fyrir frábærar móttökur og gest-
risni Helgu og eiginiúanns hennar,
Árna Hanssonar. Ég þakka henni
einnig tryggð hennar og vináttu við
okkur hjónin. Helga lagði sál sína
í allt sem hún tók sér fyrir hendur
hvort sem um var að ræða bæna-
starfið, að prýða heimili sitt eða
rækta fallega garðinn. Enda voru
þau hjónin samhent í öllu.
Síðustu árin átti Helga við mikla
vanheilsu að stríða og dvöldu hjón-
in á Hrafnistu, hún á sjúkradeild
dvalarheimilisins. Helga naut mikils
ástríkis og umhyggju frá manni
sínum og dætrum til hinstu stundar.
Við hjónin sendum Árna, dætrum
þeirra og öðrum vandamönnum,
samúðarkveðjur vegna fráfalls
Helgu og biðjum Guð að vera með
þeim.
María Rósinkarsdóttir
Kveðjuorð:
Elín Ólafsdóttir
Fædd 21. apríl 1927
Dáin 23. maí 1990
Huguripn hvarflar til haustsins
1945, er við nítján yngismeyjar hitt-
umst í Ósk á ísafirði, gamla hús-
mæðraskólanum á sjávarkambin-
um. Nú átti að búa sig undir hlut-
verk lífsins.
Síðan eru nokkrar horfnar yfir
móðuna miklu, fyrir aldur fram..
Það er Iögmál að fæðast, en erf-
itt að sætta sig við þegar allt er á
enda runnið og hún Ella frá Vest-
mannaeyjum, Elín Ólafsdóttir, horf-
in yfir móðuna mildu.
Minningarar flæða og heilt ævi-
skeið, sem við höfum átt með henni,
fer um huga okkar.
Við erum oft í huganum í Ósk á
ísafirði, og hvílíkur tími! Lífið allt
framundan óskrifað blað, bjartar
vonir, óskir og áætlanir.
Við höfum haldið hópinn, þótt
sumar hafi búið erlendis eða úti á
landi. Þar kemur hinn sígildi og
yndislegi „saumaklúbbur“, sem hef-
ur verið fastur punktur og upplýs-
ingastöð okkar skólasystra, æ síðan
haustdaginn á ísafirði.
Og nú er hún Ella frá Eyjum
horfin allt of fljótt. Hinn mikli
sláttumaður fer um akur.
Við reynum að horfa á björtu
hliðarnar. En það er trega blandið
og við sitjum hnípnar, en vitum að
nú líður henni vel óg að hún mun
vera áfram og alltaf partur af til-
veru okkar.
Við höfum átt saman heilt ævi-
skeið, og eftir því sem árin verða
fleiri því dýrmætari er hverri okkar
vinátta annarrar.
Guðbjarti, börnum þeirra, barna-
börnum, móður og öllum aðstand-
endum biðjum við guðs blessunar
alla tíð.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta. (23. sálmur Davíðs,
1. vers.)
Hapn gætir að eilífu okkar kæra
systur.
Skólasystur
Kveðjuorð:
Bryndís ÓlöfL.
Björgvinsdóttir
Við viljum minnast vinkonu okk-
ar og frænku, Bryndísar Ólafar
Lilju, sem lést 27. maí síðastliðinn.
Þann dag dimmdi í hugum okkar
allra er höfðum beðið og vonað, að
Bryndís ynni sigur í erfíðri baráttu
sem hún háði af öllum mætti í rúm-
lega tvo mánuði.
Það er sárt að kveðja kæra vin-
konu sem var eins lífsglöð og ljúf
og Bryndís var. Og það er erfitt
að skilja hvers vegna við verðum
að kveðja svo fljótt og sjá á bak
öllu því sem við ætluðum að gera
saman. Bryndís var félagslynd og
glaðvær og hvers manns hugljúfi.
Hún átti auðvelt með að eignast
vini og ekki var annað hægt en
heillast af þessari brosmildu og
skemmtilegu stelpu sem alltaf sá
björtu hliðarnar á tilverunni.
Bryndís flutti ung ásamt for-
eldrum sínum og bróður til Svíþjóð-
ar en þrátt fyrir langa dvöl í öðru
landi vora tengsl hennar við ísland
mjög sterk og það vora margar
gleðistundirnar sem við Bryndís
áttum saman hér á íslandi. Það
leið oft langt á milli samfunda en
það var líkt og sá tími styrkti að-
eins vináttu okkar. Við hlökkuðum
ætíð jafnmikið til að hittast og
ræða um allt það nýja sem hafði
gerst í lífi okkar.
Bryndís hafði áhuga á öllu mögu-
legu og var alltaf óhrædd að reyna
eitthvað nýtt. Hún átti mjög auð-
velt með að læra og var í hópi
fremstu nemenda í vélaverkfræði
við Chalmers-háskólann í Gauta-
borg. En hugurinn stefndi líka í
aðrar áttir. Hún hafði mjög gaman
af tónlist og lærði að syngja og
spila á hljóðfæri. Hún reyndi fyrir
sér við sýningarstörf og ferðaðist
víða. Það er örlítil huggun að vita
að þrátt fyrir stuttan tíma hér á
jörð hafi hún upplifað meira en
margur á langri ævi.
Þar sem Bryndís bjó erlendis
urðu samverastundir okkar færri
en við hefðum óskað eftir. En því
dýrmætari er tími okkar saman og
hlýjar minningar um yndislega vin-
konu og frænku munu lifa með
okkur um ókomin ár. Og við trúum
því að við eigum eftir að hittast
aftur þegar okkar tími er liðinn hér
á jörð.
Þegar þú ert sorgmæddur.-skoðaðu þá aftur
huga þinn og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.
(Spámaðurinn.)
Elsku Hilda, Björgvin og Kolli,
megi góður kraftur gefa ykkur
styrk í ykkar miklu sorg.
Bryndísi kveðjum við með sárum
trega. Fari okkar elskulega vinkona
í friði og hafi þökk fyrir allt og
allt. Blessuð sé minning hennar.
Sigríður og Guðbjörg
t
Elskuleg eiginkona og móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN E. ÓLAFSDÓTTIR,
Vallarbraut 3,
Akranesi,
sem lést 18. júní, verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánudag-
inn 25. júní kl. 14.00.
Þeir, sem vitdu minnast hennar, er bent á sjúkrahús Akraness.
Fyrir hönd aðstandenda,
Theódór Einarsson.
■ MARGARET Cormack flytur
fyrirlestur í safiiaðarheimili kaþ-
ólska safnaðarins á Hávallagötu
16, mánudaginn 25. júní nk. Fyr-
irlestur sinn nefnir hún „Um trú
og dýrkun dýrlinga á Islandi á
miðöldum“. Margaret Cormack
lagði stund á málvísindi og germ-
önsk tungumál við Harvard-
háskólann í Bandaríkjunum og
tók BA-próf þaðan. Þá stundaði
hún nám í miðaldafræðum við
Yale-háskólann og tók doktors-
gráðu þaðan. Doktorsritgerð sína
nefndi hún „Dýrlingar á Islandi,
heimildir um dýrkun þeirra til
1400“. Svonefndir „Bollandistar“
munu gefa ritgerðina út, en þeir
eru nefnd hálærðra jesúíta, sem sér
um útgáfu Acta Sanctorum (Ævi-
sögur dýrlinga) og fleiri vísindarita.
Eftir doktorsvörnina lagði Margar-
et Cormack stund á framhaldsnám
við St. Andrews-háskólann í
Skotlandi og síðar eitt ár við Há-
skóla íslands. Fyrirlestur Margar-
etar Cormack hefst kl. 20.30 á
mánudagskvöld og verður fluttur á
íslensku. Aðgangur er öllum heimill.
(Fréttatilkynning frá
Félagi kaþólskra leikmanna)
■ CORNELIO Sommaruga, for-
seti alþjóðaráðs Rauða krossins,
er væntanlegur hingað til lands í
byijun júlí í boði ríkisstjórnar ís-
lands. Sommaruga flytur fyrirlest-
ur þriðjudaginn 3. júlí kl. 17.00 í
st.ofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku og nefnist
„Humanity in the midst of war: The
Intemational Committee of the Red
Cross today“.
■ SAMSÝNINGU 8 listamanna í
Listhúsi, Vesturgötu 17, lýkur á
morgun, sunnudag. Listamennirnir
sem verk eiga á sýningunni eru
Bragi Ásgeirsson, Einar G. Bald-
vinsson, Hafsteinn Austmann,
Jóhannes Jóhannesson, Jóhannes
Geir Jónsson, Kjartan Guðjóns-
son, Kristján Davíðsson og Valtýr
Pétursson. Sýningin er sölusýning
og er opin kl. 14-18.
■ AÐALFUNDUR Félags
íslenskra myndlistarmanna sem
haldinn var 30. apríl sb samþykkti
eftirfarandi ályktun: „FÍM lýsir full-
um stuðningi við áform um stofnun
Listaháskóla íslands. Jafnframt lýs-
ir FÍM yfir fullum stuðningi við þá
hugmynd að ríkið kaupi nýbygg-
ingu Sláturfélags Suðurlands í
Laugarnesi til afnota fyrir list-
menntastofnu n. “
■ AXEL Guðmundsson heldur
námskeið fyrir ofætur sem hann
kallar „Grönn allt lífið“ víða um
land. Næstu námskeið verða á
Sauðárkróki 30. júní og 1. júlí og
á Akureyri 7. og 8. júlí. Kynningar-
fyrirlestur verður á Sauðárkróki
þriðjudaginn 26. júní kl. 21.00 á
Hótel Mælifelli og kynningarfyrir-
lestur verður á Akureyri 3. júlf kl.
21.00 á Hótel KEA. Skráning á
námskeiðin fer fram á fyrirlestrun-
um. Axel beitir aðferðum sem eru
sambærilegar við þær aðferðir sem
SÁÁ beitir við meðferð alkóhólista
og einnig byggir hann á eigin
reynslu.
Egill Ólafsson Stuðmaður tilbú-
inn í slaginn.
■ STUÐMENN eru nýlega lagðir
af stað í hljómleikaferð um landið
og leika á þrennum miðnæturtón-
leikum og einum síðdegistónleikum
um þessa helgi. í gærkvöldi lék
hljómsveitin á Akranesi, síðdegis í
dag, laugardag, leikur hún á
Varmalandi í Borgarfirði, í kvöld
leikur hún í Njálsbúð og annað
kvöld, sunnudagskvöld, leikur hún
á Selfossi. Stuðmenn eru um þess-
ar mundir að senda frá sér nýja
12 laga plötu sem ber nafnið „Hve
glöð er vor æska“ en platan kemur
formlega út um næstu helgi. í
næstu viku skemmta Stuðmenn í
Reykjavík og í Vestmannaeyjum.
H GUÐBJÖRG Hjartardóttir
opnar málverkasýningu í FÍM-saln-
um, Garðastræti 6, í dag kl. 16.00.
Guðbjörg sýnir olíumálverk unnin
á síðustu tveimur árum. _Sýningin
stendur til 10. júlí og er FÍM-salur-
inn opinn kl. 14.00-18.00 dag
hvern.
■ LEIKFÉLAGIÐ Auðhumla
frumsýnir leikritið Drottningin
varð ástfangin af bjána í leikstjórn
Guðjóns Sigvaldasonar, laugar-
daginn 23. júní kl. 24.00, á Jóns-
messunótt. Leikritið verður sýnt á
Klambratúni við Kjarvalsstaði á
horni Lönguhlíðar og Flókagötur
og verður aðgangur ókeypis. Þetta
er fyrsta leiksýning félagsins þar
sem unnið er með texta og er verk-
ið byggt á Draumi á Jónsmessu-
nótt eftir William Shakespeare.
Áhorfendasvæðið er náttúrulegur
grasbali en áhorfendur geta að
sjálfsögðu komið með eigin stóla
eða mottur. Leikritið tekur um
klukkutíma í flutningi og verður
aðeins þessi eina sýning.
■ AÐALFUNDUR Mltrúaráðs
Sjómannadagsins í Reykjavík og
Hafnarfírði var haldinn dagana 10.
og 17. maí. í reikningum samtak-
anna kemur í ljós að eignir nema
alls 1.045.355.701 krónum, es
skuldir 62.129.131 krónum. Bæði
Hrafnistuheimilin voru rekin með
halla á sl. ári. Hjá Hrafnistu í
Reykjavík varð rekstrartap án fjár-
magnskostnaðar 25.993.808 krón-
ur eða 7,1% af tekjum en í Hafnar-
firði 11.027.492 krónur eða 3,7%
af tekjum. Að þessu sinni átti for-
maður samtakanna, Pétur Sig-
uirðsson, að ganga úr stjórn en var
einróma endurkjörinn til næstu
þriggja ára. Hann hefur nú verið
formaður samtakanna í 28 ár.
t
Eiginkona mín,
ÞORGERÐUR JÓNA ÁRN ADÓTTIR,
Hlöðutúni,
lést í Landspítalanum aðfaranótt fimmtudagsins 21. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmundur G. Brynjólfsson.
t
Elskuleg frænka og vinkona okkar,
ÓLAFÍA S. (LÓA) JÓNASSON,
Winnipeg, Canada,
er látin.
Anna Jónsdóttir,
Erlendur Ólafsson.