Morgunblaðið - 23.06.1990, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JUNI 1990
32
Flugstjórarnir Ragnar Kvaran yngri og Þórður Sigur-
jónsson við komuna til Islands á nýju Cessna 180 flug-
vél Flugklúbbsins Þyts.
Morgunblaðið/Pétur P. Johnson
Margt var um manninn á flugvellinum á Tungubökkum
í Mosfellsbæ að taka á móti félögunum Þórði og Ragnari.
Ný flögurra sæta Cessna
180 bætist í flugflotann
FJÖGURRA sæta flugvél
af gerðinni Cessna 180
bættist í flugflota Islend-
inga 30. mai sl. Hún er i
eigu hóps atvinnumanna í
flugi. Hún var flutt í lest
breiðþotu heimsálfa á milli
að geta lagt upp í ferð-
ina heim til Islands og
varð íyrsta flugvélin í
millilandaflugi til að lenda
á flugvellinum í Mosfells-
bæ.
Kaupandi vélarinnar er
hópur atvinnuflugmanna
sem kallar sig Flugklúbbinn
Þyt, en í honum eru flug-
stjórar, flugmenn ogflugvél-
stjórar hjá Flugleiðum,
^uandhelgisgæslunni og
Cargolux.
í fyrstu voru félagar
klúbbsins fimmtán, en brátt
fjölgaði í hópnum og eru
félagamir nú orðnir tuttugu
og einn. Sjálfkjörinn foringi
flugklúbbsins frá upphafi
hefur verið Ottó Tynes og
honum til aðstoðar eru valin-
kunnir menn, hver á sinu
sviði, t.d. Hörður Eiríksson,
flugvélstjóri, tæknistjóri
klúbbsins.
Nýja vélin var keypt í
Seattle. Flugleiðin frá
Seattle heim til íslands er
iong og erfið. Það kom í hlut
Luxemborgardeildar klúbbs-
ins að sjá um þennan þátt
flugvélakaupanna enda hæg
heimatökin. Flugvélin nýja
var tekin í sundur í Seattle
og flutt yfír til Luxemborgar
á aðalþilfari einnar Boeing
747 breiðþotu Cargolux.
Þaðan er áuðveldara að
fljúga á smáflugvél heim til
Islands. I Luxemborg var
vélin sett saman að nýju og
undirbúin fyrir ferðina heim
til íslands.
Tveir flugstjórar frá
Cargolux vom valdir til ís-
landsfararinnar, Þórður Sig-
uijónsson, yfírflugstjóri, og
Ragnar Kvaran yngri, en
hann er einn af þjálfunar-
flugstjórum félagsins. Flug-
leið félaganna frá Luxem-
borg lá yfír Belgíu til Eng-
-lands þar sem þeir gistu
fyrstu nóttina skammt frá
Hull. Þaðan flugu þeir upp
með austurströndinni til
Dundee í Skotlandi og þaðan
til Kirkjuvogs á Orkneyjum
þar sem þeir tóku aftur
næturgistingu. Frá Kirkju-
vogi héldu þeir út yfír
Atlantshaf til Voga í Fær-
eyjum þar sem tekið var
eldsneyti fyrir lokaáfanga
ferðarinnar beint heim í
Mosfellsbæinn.
Flugklúbburinn Þytur
gekk á sl. ári til liðs við Flug-
klúbb Mosfellsbæjar og
reisti flugskýli á flugvellin-
um á Tungubökkum. Klúbb-
félagar vildu helst fá nýju
flugvélina beint heim í Mos-
fellsbæ án millilendingar í
Reykjavík. Farið var fram á
leyfi til að tollafgreiða vélina
á Tungubakkaflugvelli og
reyndist það auðsótt mál.
Því voru tollþjónar af skipa-
vakt Tollgæslunnar í
Reykjavík meðal þeirra sem
tóku á móti Þórði og Ragn-
ari flugstjórum þegar þeir
lentu nýju vélinni í Mosfells-
bæ að loknu þriggja og hálfs
tíma flugi beint frá Vogum
í Færeyjum.
Fjölmennt var á flugvell-
inum þegar þeir félagar
lentu og mátti þekkja andlit
margra góðra manna úr
fluginu, bæði fyrrverandi og
núverandi flugliða. Slegið
var upp veisluborði alveg
eins og þegar stóru þoturnar
koma til landsins og haldnar
ræður.
Metsölublað á hverjum degi!
Brautarholti 20 símar 23333 & 29098
Eitf verð - tveir staðir
Diskótek
1. hæó
Haukur
Guðmundsson
sér um að allir
skemmti sér
Rokkárin
1970- 80
2. hæð
Dansdúett Önnu
Vilhjólms
Aldrei betri!
Húsið opið frá kl. 23-03.
Þar sem fjörið er mest skemmtir fólkið sér best
Ath. miðaverð kr. 500.-
Vetrarbrautin — Norðurljósin
Veislusalir
Opið fyrir matargesti.
Minni og stœrri hópar.
Upplýsingar hjá veitingastjóra.
Símar 23333 og 29098.
BACKON
HE BLOCK
Þú þarft ekki lengra
Frábær Vogue sýning með
Corneliusi Carter o.fl.
kl. 00.30 stundvíslega.
„Óvæntar uppákomur"
Grillveisla frá kl. 23.15
Opið frá kl. 23-03.
Mætið tímanlega.
Þeir, þær, sem eiga eftir
að ná í Bud-kortin, eru
afa samband við
Guðna i kvöid.
Hin landsþekkta hljómsveit Finns Eydals
leikur í kvöld frá kl. 22.00-03.00.
Dansstuðið eríÁrtúni
OPNUNARKVÖLD - FRUMSÝNING:
GREIFARNIR
hefja hringferð sína um landið í Reykjavík
í kvöld með þrumustuði í Næturklúbbnum.
Borgartúni 32,
3. hæð,
sími 29670
syngja meö hljómsveitinni
Aögangseyrir 750 kr
Mímisbar opinnfrákl. 19.
Hildurog Stefán skemmta
1
Zjw | f * |
'•■ ijígF f *v 'Æ ^ ’j
B • % f.. J
1| lll / í
t, | ^ l, -y