Morgunblaðið - 23.06.1990, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990
' SÍMI 18936
LAUGAVEGI 94
Sally Dollv Shirley Daryl Olympia Julia
FIELD BlfflDN MacLAINE HANNAH DUKAKIS IIOBFIHS
★ ★★ SV. MBL. — ★ ★ ★ SV.MBL.
STJÖRNULIÐ f EXNNI SXUEMMTILEGUSTU GAMAN-
MYND ALLRA TÍMA UM SEX SÉRSTAKAR. KONUR.
Sýnd kl. 2.45,4.50,6.55, 9 og 11.10.
FANTASIA sími 679192
• VAGNADANS LEIKHÚS FRÚ EMILÍU
SKEIFUNNI 3C, KL. 21.00:
HÖFUNDAR: LEIKHÓPURINN OG LEIKSTJ. KÁRI HALLDÓR.
í kvöld kl. 21.00.
Miðapantanir í síma 679192.
■ ÁHUGI á neytenda-
starfí hefur aukist mjög á
síðustu árum. Greinilegt er
að neytendur eru miklu
gagmýnni nú en áður og
telja mjög mikilvægt að
Neytendasamtökin séu
öflug samtök. Þannig hefur
félagsmönnum fjölgað á
undanfömum árum úr u.þ.b.
5.000 í 17.000. Aukinn neyt-
endaáhugi hefur m.a. leitt til
stofnunar fleiri neytendafé-
laga á landsbyggðinni. í
síðustu viku voru stofnuð
neytendafélög í Grindavík
og Stykkishólmi, og neyt-
Sidafélagið í Neskaupstað
var endurvakið. Formaður
Neytendafélags Grundar-
fjarðar er Matthildur Guð-
mundsdóttir, í Stykkis-
hólmi, Hrafiihildur Hall-
varðsdóttir og á Norðfirði
Elma Guðmundsdóttir. Nú
eru starfandi neytendafélög
á höfuðborgarsvæðinu, í
Borgarfirði, Grundarfírði,
Stykkishólmi, Dalasýslu,
Isafirði, Skagafirði, Akur-
eyri, Húsavík, Fyótsdals-
héraði, Norðfirði,
A-Skaftafellssýslu, Suðurl-
andi, Vestmannaeyjum og
Suðurnesjum. Mánudaginn
25. júní er fyrirhugað er
stofna nýtt neytendafélag
undir Jökli fyrir íbúa Hell-
issands og Ólafsvíkur.
Fundurinn hefst kl. 20.30 í
Mettubúð, Ólafsvík. Sama
kvöld verður aðalfundur
Neytendafélags Akraness
haldinn á Kirlyubraut 40
kl. 21.00 en starfsemi félags-
ins hefur legið niðri að mestu
leyti síðustu ár.
(Úr fréttatilkynningu)
■ JÓN Ingi Sigurmunds-
son sýnir málverk í Eden í
Hveragerði. A sýningunni,
sem er sölusýning eru 50
olíu-, pastel- og vatnslita-
myndir. Sýningunni lýkur
mánudaginn 25. júní.
SIÐANEFND LÖGREGLUNNAR
MBL.
„MEISTARALEGUR TRYLLIR" + * ★ 1/2 GE. DV.
Sýnd kl. 5, 7, 9.05 og 11.15. — Bönnuð innan 16 ára.
SIMI 2 21 40
UMSAGNIR FJÖLMIÐLA:
„BRJESKUR HÚMOR EINS OG HANN GERIST BESTUR"
- Arnaldur Indriðason Mbl.
„FRÁBÆR SKEMMTUN " Barry Norman - BBC TV Film
„ILLKVTTTNISLEGA FYNDIN"
Ian Christie - Daily Express
„BRJÁLÆÐISLEG A FYNDIN"
Tony Slattery - Saturday Night At The Movies
„ÓTRÚLEGA FYNDIN"
Harriet Harmon MP - Sunday Sunday.
Aðalhiutverk: Griff Rhys Jones og Mel Smith.
Leikstjóri: Michael Tuchner.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. — Bönnuð innan 12 ára.
FLAKKA
SHIRLEY
VALENTINE
t + + AI.MBL.
Sýndkl. 5.
Síðustu sýningar!
PARADÍSAR-
BÍÓIÐ
★ ★★ SV.MBL.
Sýndkl.9.
VINSTRi
FÓTURINN
★ ★★★ HK.DV.
Sýnd kl. 7.10 og 11.10.
Síðustu sýningar!
HRAFNINN FLÝGUR - WHEN THE RAVEN FLIES
„With english subtitle". — Sýnd kl. 5.
LÍLIML
SÍMI 11384 - SNORRABRAUT 37
FRUMSÝNIR ÚRVALSMYNDINA:
UPPGJÖRIÐ
|N rOUNTRY
HÚN ER KOMIN HÉR ÚRVALSMYNDLN „IN
COUNTRY" ÞAR SEM HINN GEYSIVINSÆLI
BRUCE WILLIS FER Á KOSTUM EINS OG VENJU-
LEGA, EN ALLIR MUNA EFTIR HONUM í „DIE
HARD". ÞAÐ ER HINN SNJALLI LEIKSTJÓRI,
NORMAN JEWISON, SEM LEIKSTÝRIR PESSARI
FRÁBÆRIJ MYND.
»ESSA MYND SKALT ÞÚ SJÁ!
Aðalhlutverk: Bruce Willis, Emily Lloyd, Joan Allen,
Kevin Anderson. — Leikstj.: Norman Jewison.
★ ★★ ■* SVMBL.-★★★* SVMBL.
Sýnd kl.4.50,7,9 og 11.10.
STÓRKOSTLEG STULKA
★ ★★ SV. Mbl. — ★ ★ ★ SV.Mbl.
Sýnd kl. 4.50,6.55,9 og 11.10.
KYÍMLIF, LYGIOG MYNDBÖND
★ ★★ SV. Mbl. — ★ ★ ★ GE.DV.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. — Bönnuð innan 14 ára.
Bjargvættimir í grasinu
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Seinheppnir bjargvætt-
ir(„Rude Awakening").
Sýnd í Regnboganum.
Leiksljóri: Aaron Russo.
Aðalhlutverk: Cheech
Marin, Eric Röberts, Julie
Hagerty og Robert
Carradine.
Eric Roberts og Cheech
Marin leika tvo hippa í gam-
anmyndinni Seinheppnir
bjargvættir sem flýja verða
lögregluna árið 1969 en eft-
ir að hafa lifað í einangrun
í litlu S-Ameríkuríki í 20 ár
og reykt sitt gras snúa þeir
aftur til Bandaríkjanna og
komast að því að ýmislegt
hefur breyst-til hins verra,
m.a. er landið greinilega
reiðubúið í annað Víetnam-
ævintýri í S-Ameríku, sem
hippamir reyndar koma af
stað fyrir misskiining.
Of langt mál yrði að skýra
það allt hér en hugmyndin
að baki Seinheppinna bjarg-
vætta er ekkert galin fyrir
gamanmynd sem sýna vill
hvað orðið hefur um gömlu
hippana og þeirra háleitu
hugsjónir og hvernig allt
snýst um efnisleg gæði nú-
orðið en enginn skiptir sér
af eyðileggingu jarðarinnar.
Hér er að vísu fjarska lítii
alvara á ferðinni enda Che-
ech Marin með í ferð útúr-
dópaður sem fyrr í samræð-
um við talandi fiska í of-
skynjunum sínum og fleira.
Miðað við undirtektimar
sem hann fékk í salnum virð-
ist hann halda vinsældum
sínum í gegnum þykkt og
þunnt þótt áhorfendahópur-
inn hafí breyst með árunum
frá því hann fyrst kom fram.
Hann getur enda verið
óborganlegur á dópþvælingi
sínum hvenær sem er.
Annars er leikarahópur
myndarinnar ansi ósam-
stæður og kemur úr ýmsum
áttum. Eric Roberts (sem
fellur ört í skuggann af litlu
systur sinni, Júlíu) er
síðhærði hugsjónamaðurinn
sem snýr aftur og sér að
allir hafa fyrir löngu misst
áhugann á gömlu baráttu-
málunum og eru steinsof-
andi fyrir hinum nýju eins
og mengun vatnanna og ósó-
neyðileggingunni. Julia Ha-
gerty er gamall hippavipur
sem varð eftir og rekur nú
margmilljóna snyrtivörufyr-
irtæki og þarf á virkilega
góðum sálfræðingum að
halda. Cliff De Young lög-
reglumaður og glettilega
skringilegur fulltrúi gamla
tímans og Robert Carradine
leikur annan hiuuavin sem
selur brúnku á sólbaðsstof-
um en það verður til þess
að Marin spyr langt innan
úr vímulandinu: Hvernig
færðu þá sólina til að skína
aðeins á þá sem borga?
Ef boðskapurinn er ein-
hver í myndinni þá er hann
sá að næg verkefni eru fyrr
gamla hippa og hveija sem
er að taka til hendinni til
bjargar jarðarkringlunni.
Myndin á til að leiðast útí
svolítið barnalega tilfinn-
ingasemi en Cheech Marin
er alltaf til staðar að bjarga
málunum áður en þau verða
of þunglyndisleg og það er
einlægur, þekkilega sakleys-
islegur svipur yfir myndinni
allri.
Dúkkan sem hvarf
Raunir Wilts (,,Wilt“).
Sýnd í Háskólabíói. Leik-
stjóri: Michael Tuchner.
Aðalhlutverk: Griff Rhys
Jones og Mel Smith.
Við þekkjum þá varla
nema af afspurn en þeir eru
talsvert vinsælir á heima-
slóðum í Bretlandi sem
brandarakalladúett, heita
Mel Smith og Griff Rhys
Jones og nú er tækifæri að
kynnast þeim í bresku gam-
anmyndinni Raunir Wilts,
skemmtilegri, gamaldags,
glæpakómedíu um það sem
lítur út fyrir að vera óhugn-
anlegt morð.
Þeir eru ljómandi góðir
húmoristar Smith og Jones
og skipta með sér verkum
eftir velþekktum og viðeig-
andi leiðum; Smith er sá
feiti og forheimski sem pírir
litlu augun í skvapkenndu
andlitinu í kolrangar áttir
en Jones er sá mjói og ofur-
eðlilegi sem sífellt getur ver-
ið með áhyggjusvip yfir
fúrðurn þessa heims. Hann
leikur Henry Wilt, bókmenn-
takennara, sem á skiljanlega
í miklum erfiðleikum með
að kenna leðurklæddum fót-
boltabullum fagurbók-
menntirnar sem þó er ekkert
á móts við það þegar hann
er handtekinn fyrir morðið
á konu sinni, sem hann skildi
ósáttur við í samkvæmi og
hefur ekki séð síðan. Smith
er lögreglumaðurinn Flint
sem hefur rannsóknina með
höndum og tekst að klúðra
henni frábærlega með Clo-
useauískri seinheppni og
heimsku. Þótt mikilvægar
sannanir dyttu oná hnöttótt-
an haus hans tæki hann
ekki eftir þeim.
Reyndar er fórnarlambið
ekkert annað en uppblásin
dúkka sem fæst í hvaða
hjálpartækjabúð kynlífsins
sem er en Smith er svo yfir-
kominn af grunsemdum í
garð Jones að það skiptir
hann engu máli, sérstaklega
þar sem eiginkona og tveir
vinir úr samkvæminu virðast
horfin. Smith fær bestu
setningarnar þar sem hann
böðlast áfram í rannsókn-
inni, ekkert sérlega frumlegt
en kímið í góðum höndum
grínaranna. Þegar hann
kemur í stórllýsið þar sem
samkvæmið var haldið og
allt er eins og eftir loftárás
skipar Flint íbygginn á svip:
Leitið að merkjum um átök.
Þannig eru flestir brand-
aramir með hefðbundnu
sniði og það er alltaf gaman
að myndinni og stjörnum
hennar tveimur, aukaper-
sónunum og skondinni at-
burðarásinni.