Morgunblaðið - 23.06.1990, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 23. JUNI 1990
KNATTSPYRNA / HEiMSMEISTARAKEPPNfN A ITALIU
.Stjömumar
útkeyrðar?
Lykilleikmenn valda vonbrigð-
um meðframmistöðu sinni
ÞÆR knattspyrnustjörnur sem
fyrirfram var búist við að skinu
hvað skærast á HM á Ítalíu
hafa margar hverjar valdið
miklum vonbrigðum með
frammistöðu sinni. Má þar
nefna Hollendinginn Marco
van Basten, knattspyrnumann
Evrópu undanfarin tvö ár, en
hann átti varla skot á mark
andstæðinganna íþremur
leikjum riðlakeppninnar. Þá
hefur átrúnaðargoðið Diego
Maradona, fyrirliði heims-
meistara Argentínu, ekki sýnt
sínar bestu hliðar hingað til og
virðast þessar stjörnur mæta
til leiks á Ítalíu án þess að vera
í þvíformi sem þarf til þess
„að slá ígegn.
Julio Grondona, formaður arg-
entíska knattspyrnusambands-
ins og varaformaður FIFA, segir
ástæðuna vera þá að þessir leik-
menn séu hreinlega örþreyttir eftir
langt og erfitt keppnistímabil með
félagsliðunum. Þeir fái ekki nógan
tíma með landsliðum sínum og séu
auk þess líkamlega útkeyrðir þegar
þeir loksins losna frá félagsliðunum.
Aðalstjórn alþjóða knattspymu-
^sambandsins hefur fundað um mál-
ið og að sögn Grondona er Iíklegt
að fyrir næstu heimsmeistara-
keppni verði Iögum FIFA breytt til
þess að auka rétt landsliðanna.
Hugmyndin er að koma inn ákvæði
þess efnis að þegar leikmenn leika
með félagsliðum utan heimalands
sins sé viðkomandi félagi skylt að
láta þá lausa 60 dögum fyrir loka-
keppni heimsmeistaramótsins.
Þetta ákvæði á að koma í veg fyrir
að bestu leikmennirnir mæti í loka-
slaginn andlega og Iíkamlega út-
keyrðir og án samæfingar með sam-
herjum sínum í'landsliðunum.
„Það hefur komið í Ijós hér á
Ítalíu að lykilleikmenn margra liða
eru útkeyrðir og ekki líklegir til
stórræða. Stjörnur eins og Mara-
dona og van Basten hafa aðeins
verið stuttan tíma með landsliðum
sínum fyrir keppnina og eru þreytt-
ir eftir langt og strangt keppn-
istímabil á Italíu. Landsliðsþjálfar-
amir fá þessa leikmenn síðan
skömmu fyrir keppni og þeir eru
•ekki í neinu formi til þess að gera
stóra hluti,“ sagði Grondona. „Mál-
in horfa öðruvísi við þegar leikmenn
leika í eigin heimalandi. Þar á við-
komandi knattspymusamband auð-
veldara með að fylgjast með og
stjóma málunum." Grondona sagði
að argentíski sóknarmaðurinn Can-
iggia, sem leikur með ítalska liðinu
Atalanta, hefði átt í meiðslum tvo
síðustu mánuði ítölsku deildar-
keppninnar og leikið undir áhrifum
verkjalyfja. „Við vissum þetta ekki
fyrr en rétt fyrir keppnina og auð-
vitað kemur þetta niður á líkamlegu
ástandi hans nú,“ sagði Grondona.
Argentíski formaðurinn sagði að
þetta kæmi sérstaklega illa niður á
liðum frá Suður-Ameríku þarsem
bestu leikmennimir þaðan væru
iðulega keyptir til ríkra félagsliða
í Evrópu. Carlos Bilardo, þjálfari
Argentínumanna, kvartar sáran
undan því hve nauman undirbún-
ingstíma hann fékk með landsliðs-
mönnum sínum. Fæstir þeirra leika
með argentískum liðum því þeir
hafa verið vinsælir hjá toppliðum í
Evrópu frá því að Argentínumenn
unnu heimsmeistaratitilinn fyrir
fjórum árum.
Marco van Basten,
knattspyrnumaður Evr-
ópu síðustu tvö árin, átti
varla skot á mark and-
stæðinganna í þremur
leikjum riðlakeppninnar á
HM. Þá hefur átrúnaðar-
goðið Diego Maradona,
fyrirliði heimsmeistara
Argentínu, ekki sýnt
sínar bestu hliðar hingað
til í keppninni. -
Litlar væntingar í Hollandi
Hollendingar eru ánægðir með
úrslitin í leiknum gegn írum
á HM í fyrrakvöld. „Við komumst
áfram í aðra urnferð, og það var
■■■■ málið, en það var
Kjartan L. skammarlegt að
Pálsson sjá hvernig liðin
léku í lokin,“ sagði
gamla kempan
Bosemann, sem ekki komst í 22
manna hópinn á Ítalíu vegna
meiðsla. „Þetta er heimsmeistara-
keppni og þar verða menn að sýna
og gera sitt besta,“ sagði Bose-
mann.
Flestir Hollendingar taka trú-
lega undir þessi orð með landsliðs-
skrifarfrá
Hollandi
manninum fræga. Þeir skammast
sín hálfpartinn fyrir leikinn, eðá
öllu heldur leikleysuna í lokin, en
eru ánægðir með úrslitin.
Það var ekki nein sérstök gleði-
hátíð eftir leikinn. Menn bara
brostu og klöppuðu pent, ekki
nein hróp eða köll né dansað á
götum úti. „Við komumst áfram
á þremur stigurn," sagði einn
ánægður Hollendingur eftir leik-
inn. „Við komumst líka áfram
með þrjú stig í heímsmeistara-
keppninni 1978 og víð lékum úr-
slitaleikinn þar,“ sagði hann og
brosti. Fæstir Hollendingar eiga
samt von á því að sagan frá 1978
endurtaki sig, liðið er ekki nægi-
lega gott núna til þess að leika
þann leik aftur...en hver veit!
Sýnt var í beinni útsendingu í
sjónvarpinu þegar dregið var um
það hvort Holland yrði í öðru eða
þriðja sæti í riðlinum. Þeir fengu
þriðja sætið og leika því gegn
Þjóðveijum í 16 liða úrslitum.
Fyrir HM sögðust Hollendingar
heldur vilja fá þá sem mótheija í
sjálfum úrslitaleiknum. „Þeir
verða að standa sig og spila vel
— mjög vel til að komast áfram
gegn Þýskalandi," sögðu hol-
lensku blöðin í gær. Flest blöðin
reikna með því að Holland stein-
liggi í leiknum. „Þjóðveijarnir eru
með betra lið í keppninni,“ segja
blöðin.
Liðin voru í sama riðli í undan-
keppninni fyrir HM. Þar lauk báð-
um leikjunum með jafntefli. Holl-
and sló Þýskaland út í síðustu
Evrópukeppni. „Við höfum tak á
þeim. Þeir eru alltaf hræddir við
okkur og við niðurlægjum þá enn
einu sinni á sunnudaginn," sagði
einn bjartsýnn Hollendingur í gær
við íslendingana í sumarhúsunum
í Kempervennen. „En eins og liðið
okkar leikur núna, þá gæti það
ekki einu sinni unnið ísland,"
sagði hann og brosti.
KUBBUR
ER TAKMARKIÐ
HUGSAÐU
KUBBAÐU
ALVÖRU LEIKFANG
FYRIR PÁ SEM GETA HUGSAÐ
6 LITIR = 6 STYRKLEIKAR
Michel Platini
keypti Zavarov
Fórtil Tórínó sem umboðsmaður Nancy
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Alexander Zavarov, sem leikið
hefur með Juventus undanfarin tvö
ár, undirritaði óvænt samning við
franska liðið Nancy.
niuiiiiiiiittiuiituiiutii'' |
Michel Platini, landsliðþjálfari
Frakka kom til Tórínó á
þriðjudag, en hann bjó um árabil í
borginni meðan hann lék með Ju-
■■■■■■■ ventus. Hann notaði
Frá tækifærið og hitti
Brynju Gianni Agnelli for-
stjóra Fiat og eig-
anda Juventus en
þeir eru miklir mátar. Um kvöldið
fylgdist hann með leik Skotlands
og Brasilíu.
Aðalerindi Platinis til Tórínó var
rnjög Ieynilegt og kom ekki í ljós
fyrr en á miðvikudag þegar sovéski
landsliðsmaðurinn Aléxander Za-
Tómer
á Ítalíu
varov undirritaði óvænt samning
við franska liðið Nancy. Platini var
á staðnum sem sérstakur umboðs-
maður Nancy, og gekk frá kaupun-
um á Zavarov. Að undanförnu hafa
ítölsk blöð talið fullvíst að Zavarov
gengi til liðs við ítalska liðið Parma
sem á næsta leikári verður í 1. deild.
Landi Zavarovs og félagi í Ju-
ventus, Sergey Aleíníkov, sem Ju-
ventus hefur á sölulista, hefur hins
vegar ekki enn fundið félag sem
vill kaupa hann. Hann fór til Tórínó
um leið og ljóst var að Sovétríkin
kæmust ekki áfram í 16 liða úrslit.
Tómer
á Italíu
■ BRESKU knattspyrnubullurn-
ar sem gistu fangageymslur á ít-
alíu áður en þær voru sendar til
Englands sögðu við blaðamenn að
jggtmggM ítölsku fangelsin
Frá væru eins og fimm
Brynju stjörnu hótel. „Við
fengum nautakjöt
og kjúklinga að
borða, og appelsín að drekka. Við
máttum reykja eins og við vildum
og horfðum á leikina í sjónvarp-
inu,“ sögðu þær og voru hinar án-
ægðustu með dvölina á Ítalíu.
■ Á HVERJUM degi eru greinar
í ítölskum dagblöðum um enskar
íþróttabullur sem reknar hafa verið
úr landi. Bullurnar fá síðan viðeig-
andi stimpil í vegabréfið sitt þannig
að næst þegar þeir vilja koma til
Italíu komast þeir ekki lengra en
í vegabréfsskoðun á flugvöllunum.
■ CALOS Alberto, brasilíski
þjálfari landsliðsins frá Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, hefur nú
endurnýjað samninginn um þjálfun
liðsins. Carlos Alberto hafði gert
þriggja mánaða samning fyrir HM,
en sá samningur féll úr gildi eftir
leikinn við Júgóslavíu á þriðjudag-
inn. Alberto fær 360 þúsund doll-
ara fyrir snúð sinn næsta árið.
■ / KÓRENSKA landsliðinu er
sóknarmaður sem er blindur á öðru
auga. Lee Tae-Ho lenti í því í deild-
arkeppni fyrir fjórum mánuðum að
sparkað var í auga hans. Sjóntaug-
in skemmdist og hefur hann verið
blindur á auganu síðan. Honum
hefur þó tekist að leika ótrúlega
vel, en var á varamannabekk lands-
liðsins alla leikina í riðlakeppninni.
Það mun vera einsdæmi að svo
sjóndapur maður sé valinn í 22
manna landsliðshóp.