Morgunblaðið - 23.06.1990, Page 40

Morgunblaðið - 23.06.1990, Page 40
VZterkurog kJ hagkvæmur auglýsíngamiðill! LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Viðræður ráðherra ^og BHMR ámánudag RÁÐHERRAR úr ríkisstjórninni og fulltrúar BHMR hittast á mánudaginn til að ræða fram- kvæmd á endurskoðun iauna- kerfís BHMR. Ríkisstjórnin hef- ur áður ákveðið að fresta gildis- töku nýs launakerfis. Steingrímur J. Sigfússon, sam- göngu- og landbúnaðarráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann og fleiri ráðherrar hefðu verið þess mjög hvetjandi á ríkis- ... stiórnarfundi á fimmtudag að efnt "yrði til viðræðna við BHMR til að leysa deilu þess við ríkisstjórnina. Sumir hefðu viljað viðræður þá strax, en ákveðið hefði verið að bíða heimkomu Ólafs Ragnars Grímssonar, fjármálat'áðherra. Páll Halldórsson, formaður BHMR, sagði að í samninganefnd bandalagsins hefði verið ákveðið að tilmæli til félagsmanna um að fresta starfí sínu í nefndum og ráð- um ríkisins, ættu að gilda frá 1. iúlí, ef þá hefði ekki fengizt lausn launamálunum. Einstökum félög- um yrði falið að útfæra þau til- mæli nánar. Páll sagði að háskóla- menn sætu í mörgum nefndum og starfshópum á vegum ríkisins. Wincie Jóhannsdóttir, formaður Hins íslenzka kennarafélags, sem er stærsta aðildarfélag BHMR, sagði að kennarar sætu til dæmis í öllum skólanefndum og í ýmsum starfshópum á vegum menntamála- ráðuneytisins, sem vinna til að mynda að nýjum verkefnum í menntakerfinu. _____ Á slysadeild -eftir bílveltu ÖKUMAÐUR sendiferðabíls var fluttur á slysadeild eftir að bíll hans valt á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í gær. Þá voru ökumaður og farþegi bfls fluttir á slysadeild eftir umferð- aróhapp á Nesjavallavegi við Graf- arholt. Nokkrir árekstrar urðu í Reykjavík í gær, þrátt fyrir gott skyggni og aðstæður. Eignatjón varð en ekki slys á fólki umfram það sem að ofan er getið. ÉáStí!!0 v' " Selfossi. Farsæll sigldi undir Ölfusárbrú Morgunblaðið/RAX. Farsæll frá Vík í Mýrdal sigldi og öslaði upp fyrir Ölfusárbrú síðdegis í gær. Þessi ferð var farin í tilefni þess að vatnadrekinn er til sýnis á atvinnusýningunni Bergsveini á Selfossi, sem opnar í dag. Það er einstæður atburður að skip fari undir Ölfusárbrú og segja má að þeir sem trúðu frásögninni af Vanadísinni á sínum tíma hafi fengið uppreisn æru. Fjöldi fólks fylgdist með og mörgum virtist þetta glæfraför, en um borð var aldrei nein hætta á ferð. gjg. j5ns> Verð sjávarafurða um 11% hærra en að meðaltali 1989 Kílóið af ferskum físk er tugum króna dýrara í ár en á sama tíma í fyrra VERÐ á sjávarafúrðum í heild er nú 11% hærra í erlendri mynt en það var að meðaltali á síðasta ári sem þýðir að öðru jöfnu að viðskipta- kjörin nú eru 3-4% betri. Þessi viðskipÞtkjarabati hefúr komið mun fyrr fram en ráð var fyrir gert við gerð kjarasamninganna í febrúar, en í forsendum þeirra var gert ráð fyrir að viðskiptakjörin hcfðu batnað um 3% í desember. Verð á öllum sjávarafurðum hefúr hækkað, nema á rækju, mjöli og lýsi og virðast fremur standa líkur til þess að það eigi eftir að hækka frekar. Engin teikn eru um að fiskverð fari lækkandi á næstunni, að sögn Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóð- hagsstofnunar. Hann sagði láta nærri að verð á sjávarafurðum væri orðið jafnhátt og það varð hæst á árinu 1987. Það væri hins vegar ólíku saman að jafna því þá hefði hækkun fiskverðsins farið saman við 5-6% aflaaukningu milli ára, en á þessu ári væri um 5-6% aflasamdrátt að ræða frá árinu 1989. Viðskiptakjara- batinn gæti orðið meiri þegar litið væri til alls ársins, ef þetta verð á sjávarafurðum héldi. Verðið væri sveiflukennt, en engin merki væru um að toppnum hefði verið náð og sömuleiðis hefði olíuverð lækkað á síðustu vikum sem stuðlaði enn frek- ar að bættum viðskiptakjörum. Verð á sjávarafurðum frá Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna hækkaði síðast á Bandaríkjamarkaði um 3-10% 7. júní. Þá hefur verð á sjó- Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum: Skólanefíidin tók 300 þúsund króna bankalán til að greiða rekstrarkostnað Framhaldsskólinn og Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum hafa átt í erfiðleikum með að standa skil á rekstrargjöldum það sem af er ársins vegna naumra íjárveitinga. Að sögn Friðriks Ásmundsson- ar skólastjóra Stýrimannaskólans gripu skólanefndarmenn Stýri- mannaskólans til þess ráðs að fá 300 þúsund króna lán hjá íslands- banka I maímánuði í eigin naini til að unnt væri að grynnka á uppsöfnuðum reikningastafla. Friðrik segir það viðurkennt af hálfu hins opinbera að mistök hafi orðið við fjárlagagerð. Um áramót færðist reksturinn alfarið á hendur ríkisins í kjölfar laga um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga en áður hafði bæjarsjóður staðið undir helmingi rekstrarkostnaðar. Friðrik Ás- mundsson segist hafa fengið þá skýringu á lágri fjárveitingu til skólans að gleymst hafi að reikna með því að framlag bæjarsjóðs félli á ríkissjóð. Hermann Jóhannesson deildarstjóri í menntamá'aráðu- neytinu segir rétt að mistök hafi orðið við ákvörðun fjárframlaga til skólanna í Vestmannaeyjum en það megi fyrst og fremst rekja til of lágra áætlana forsvarsmanna skólanna. Hann segir það mjög ein- faldaða mynd af flóknu máli að tala um að gleymst hafi að gera ráð fyrir því að framlög bæjarins ætti frá áramótum að greiða úr ríkissjóði. Ólafur Hreinn Sigutjónsson skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum segir að skólinn hafi fram að þessu getað greitt sína reikninga en eigi að takast að halda uppi eðlilegum rekstri seinnihluta ársins þurfi viðbótar- fjárframlag að koma til. Hann seg- ir skólann njóta mikillar velvildar bæjaryfirvalda sem vegna ástands- ins umlíði það að skuldir við bæinn safnist upp. Hann segist telja ljóst að þessa stöðu megi rekja til byij- unarörðugleika á flutningi rekstr- arins frá sveitarfélagi til ríkis og télur að hluta skýringarinnar hljóti' að verða að rekja til andvaraleysis skólastjórnenda sjálfra gagnvart því. Hann kveðst hafa fengið vil- yrði úr fjármála- og menntamála- ráðuneyti um viðbótarfjármagn og lausn málsins. Hermann Jóhannesson sagði að unnið væri að málinu og kvaðst ekki telja að nokkur röskun ætti eftir að hljótast af skólastarfi af þessum sökum. Aðspurður sagði Hermann að á landsvísu væri ástandið í Eyjum hlutfallslega slæmt en ekki einsdæmi. Bæði Friðrik Ásmundsson og Ólafur H. Siguijónsson kváðust hafa heyrt af svipuðum erfiðleikum í ýmsum öðrum skólum á landsbyggðinni. frystum fiski hækkað um 20% frá áramótum og fiskblokk í Evrópu er komin yfir tvo dollara. Þessar hækk- anir á Evrópumarkaði urðu miklu örar og fyrr en reiknað hafði verið með. Gylfi Þór Magnússon, fram- kvæmdastjóri sölumála hjá Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna, sagði að þessar verðhækkanir stöfuðu af skorti á fiski erlendis og innanlands. Fiskblokk hefði hækkað mjög mikið í Bretlandi framan af árinu og kom- ið fyrr fram þar en í Bandaríkjunum. Þessar skyndilegu hækkanir sköpuðu óróleika á mörkuðum og hætta væri á að verðið yrði of hátt fyrir neytend- ur og þeir leiti annarra og ódýrari matvæla. Gylfi sagði að þessar hækkanir endurspegluðu ekki bætta stöðu frystingarinnar, því hráefnis- verð hefði hækkað mikið og minna magn af fiski færi í gegnum húsin, sem leiddi til lakari nýtingar á fram- leiðslutækjum og hærri kostnaðar. Verð á ferskum fiski hefur hækk- að mjög mikið það sem af er þessu ári á mörkuðum hér og í Bretlandi. Þannig er verðið fyrir ísfisk í Bret,- landi 37% hærra að meðaltali fyrstu fimm mánuði þessa árs, borið saman við saman við árið í fyrra og þorskur hefur hækkað meira. Verð á innlend- um fiskmörkuðum hefur líka stór- hækkað. Þannig var það 43,23 krón- ur að meðaltali fyrir allar fisktegund- ir á fiskmarkaðinum í Hafnarfirði fyrstu fimm mánuði síðasta árs, en var fyrstu fimm mánuðina í ár 66,59 kr. sem er 54% hærra. Verðið fyrir þorsk á Faxamarkaði var 43,89 krón- ur að meðaltali sama tímabil í fyrra, en hefur á þessu ári verið 71,80 að meðaltali.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.