Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990 Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins: Fulltrúar hrefnuveiði- manna og fiskimanna í íslensku nefiidinni í íslensku sendinefhdinni á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins verða fulltrúar hrefnuveiði- manna og fiskimanna. A fundin- sem hefst í byrjun næstu viku, verður aðallega Ijallað um hrefnustofna, en vísindanefnd ráðsins hefúr lokið heildarúttekt á ástandi hrefnustofhanna. í íslensku sendinefndinni verða Halldór Ásgrímsson, Árni Kolbeins- son ráðuneytisstjóri, Kjartan Júlíus- son deildarstjóri, Guðmundur Eiríksson sendiherra, Jóhann Sigur- jónsson sjávarlíffræðingur, Kristján Loftsson forstjóri, Eyþór Einarsson formaður Náttúruvemdarráðs, Konráð Eggertsson formaður Fé- lags . hrefnuveiðimanna og Óskar Vigfússon formaður Sjómannasam- bands íslands. Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðs- ins hefst í hollenska bænum Nord- wijk mánudaginn 2. júlí, en þessa viku eru að störfum ýmsar undir- nefndir við undirbúning fundarins. Eldur í skúr- byggingu við Casablanca SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kvatt að veitingastaðnum Casa- blanca við Skúlagötu klukkan 18 í gær vegna elds í skúrbyggingu þar sem neyðarútgangur veit- ingastaðarins er. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og var slökkvistarfi lokið á hálfri klukkustund. Skúrinn var trégrind klædd bárujámi og ekki um mikið tjón að ræða. Skagaströnd: Fjallarefur og búrlæða unnin á greni Skagaströnd. SVEINN Ingi Grímsson refa- skytta kom nýlega af greni með tvö fullorðin dýr og fimm yrðlinga. Tvo af yrð- lingunum hafði hann lifandi heim með sér þar sem þeir voru nokkuð sérstakir. Sveinn Ingi, sem sér um eyð- ingu refa á Skaganum, hefur drepið rúmlega 300 dýr og hef- ur því séð marga tófuna. Nú í fyrsta sinn náði hann tófu sem er úr refabúi. Fullorðna læðan sem hann skaut á þessu greni er greinilega úr búri þar sem hún er hvít og ljósgrá á litinn og auk þess með blesu á andlit- inu. Refurinn er aftur á móti íslenskur, mórauður og hvítur. Yrðlingamir á greninu vom fimm, þrír mórauðir en tveir vom eins og læðan, gráir og hvítir. Sveinn Ingi sagðist hafa tek- ið þessa tvo lifandi ef vera kynni að veiðistjóri hefði áhuga á að skoða þá nánar. Sagði Sveinn Ingi að þetta væri fyrsta dæmið sem hann vissi um þar sem um greinilega blöndun búrdýrs og fjallarefs væri að ræða úti á greni. Telur hann ástæðu til að hafa áhyggjur af íslenska fjallarefnum ef til of mikillar blöndunar kemur við dýr úr búmm þar sem hætta sé á að fjallarefurinn tapi þá einkennum sínum. - Ó.B. Morgunblaðið/Óiafur Bemódusson Sveinn Ingi Grímsson refa- skytta með annan yrðlinginn, sem hann náði lifandi á gren- inu. Bruninn á ísafirði: Unglingspilt- ar voru að fikta með eld ísafirði. LJÓST er að tveir unglingspiltar voru að fikta með eld í veiðar- færageymslunni sem brann á Isafirði í fyrrakvöld. Talið er að frekar hafi verið um óhapp að ræða en ásetning. Skemmdir hafa ekki verið að fullu metnar en ljóst er að bíll og vélbúnaður í húsinu eyðilagðist og nemur tjónið nokkmm milljónum króna. Veiðarfæri sem voru í húsinu sluppu þó að mestu. Úlfar Morgunblaðið/Sverrir Dylan sestur inn í bílinn, sem flutti hann til Reykjavíkur. Lífverðir hans gerðu allt sem þeir gátu til að skýla honum fyrir myndavélum. Bilun í Flugleiðaþotu: Dylan tafðist um tólf tíma Miðar seldir á lækkuðu verði í dag BILUN varð í annarri Boeing 757 flugvél Flugleiða á Kennedy- flugvelli í New York í fyrrinótt og hlaust af því tólf tíma töf, en vélin átti að lenda I Keflavík klukkan sjö í gærmorgun að íslensk- um tíma. Meðal farþega, sem flestir gistu um nætursakir á hóteli í New York, var Bob Dylan tónlistarmaður og fylgdarlið hans, en Dylan heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld. Loks þegar Dylan kom til lands- Reykjavík, og virtist hann fylgjast ins varð töf á að hann kæmist út úr flugstöðinni, þar sem hann lenti í einhverju þófi við tollverði. Þegar út kom þóttist hann ekkert eiga vantalað við blaðamenn og fylgdarlið hans skýldi honum fyr- ir ljósmyndurum eftir bestu getu með uppspenntum regnhlífum og yfirhöfnum. Ekið var með Dylan í rútu rakleiðis til Hótel Esju í af áhuga með landslaginu á Reykjanesskaga út um bílgluggann á leiðinni. Að sögn Einars Sigurðssonar, blaðafulltrúa Flugleiða, varð bilun í loftinntaki fyrir hæðar- og hraðamæla Flugleiðavélarinnar og var ákveðið að skipta um inn- takið á Kennedy-flugvelli. Það varð hins vegar ekki ijóst fyrr en þeirri viðgerð var lokið að bilunin var í tækjum við loftinntakið og af þeim sökum varð töfln svo löng sem raun bar vitni. Stjórn Listahátíðar hefur ákveðið að lækka verð á aðgöngu- miðum_að tónleikum Dylans úr 4.500 krónum í 3.000 kr. í 400 sæti efst í salnum. Að sögn Egils Helgasonar, blaðafulltrúa Lista- hátíðar, ríður Bubbi Morthens á vaðið í kvöld og flytur nokkur lög áður en Dylan og hljómsveit kem- ur fram. Tónlist Dylans verður bæði rafmögnuð og órafmögnuð. Egiil sagði að áheyrendur mættu búast við að heyra mörg af göml- um lögum Bob Dylans. Umhverfisráðstefiia í Lundúnum: Ný gögn staðfesta eyðingu ósonlagsins á norðurhjara NÝ GÖGN hafa komið fram á umhverfisráðstefiiu til varnar ósonlaginu sem stendur yfir í Lundúnum þessa dagana og stað- festa þau þynningu ósonlagsins yfir norðurskautinu, en um nokk- urn tíma hefur verið vitað um gat í ósonlaginu yfir suðurheim- skautinu. „Það hefur komið fram að það er miklu alvarlegra ástand á norðurhjara en verið hefúr," sagði Gunnar G. Schram, fúlltrúi fslands á ráðsteftiunni í samtali við Morgunblaðið í gær. Þetta er annar fundurinn sam- kvæmt Montreal-samningnum svo- kallaða, en aðildarríki samningsins hafa komið sér saman um aðgerðir til að stöðva eyðingu ósonlagsins. Sérfræðingar og embættismenn hafa fundað undanfarna viku, en ráðherrar munu funda næstu þtjá daga og búist er við að tillaga verði lögð fram um stofnun nokkurra hundruða milljóna dala sjóðs til að aðstoða ríki við að banna notkun úðabrúsa með gasi sem binst efnum ósonlagsins auðveldlega. Gunnar sagði að umhverfisráð- herra Breta hefði flutt ræðu á ráð- stefnunni og vitnað í skýrslur frá 1989, þar sem kæmi fram að óson- lagið væri verulega farið að þynn- ast yfír norðurskautinu. Nýjustu rannsóknir styðji þessa niðurstöðu enn frekari rökum. Samkvæmt skýrslu sem unnin er af breska umhverfisráðuneytinu og bresku veðurfræðistofnuninni kæmi fram minnkun ósonlagsins um 3% af líkön sem miðað var við. Önnur skýrsla segir að ósoniagið yfir norð- urskauti hafí minnkað um 17%. Leiðrétting á skyldusparnaði: 3.300 manns eiga ósótt- ar 13 millj. RÚMLEGA 3.300 manns eiga ósóttar 13 milljónir til Húsnæðis- stofriunar vegna leiðréttinga á verðbótum skyldusparnaðar á árabilinu 1957-1980. Að meðal- tali eiga þessir aðilar tæpar 4 þúsund krónur inni, en upphæð- irnar eru í mörgum tilfellum tals- vert lægri og einnig hærri. Leiðréttingarnar varða hvernig reikna skuli verðbætur á verðbæt- ur, Öll upphæðin nam 180 miiljón- um og það voru um 30 þúsund aðilar sem áttu innistæður hjá stofnuninni eða að meðaltali sex þúsund krónuj' hver. Þeir sem áttu iögheimili á íslandi fengu sendar sínai' ávísanir í desember. Ávísanir þeirra sem éru búsettir erlendis eða hafa látist á tímabilinu eru hins vegar hjá Húsnæðisstofnun og hvetur hún aðstandendur og um- boðsmenn þess fólks að kanna hvort leiðréttingar eru þar. heildarmagni miðað við janúar 1989. Ennfremur kemur fram að allt að 50 sinnum meira magn af klórsamböndum fannst í andrúms- lofti yfír norðurskautinu en gert hafði verið ráð fyrir miðað við þau Ljosmynd/Jón Svavarsson Frá slysstaðnum á Reykjanesbraut. Bifreið mannsins, sem slasaðist, er gjörónýt. í lífshættu eftir árekstur MAÐUR á fertugsaldri slasaðist lífshættulega í mjög hörðum árekstri á mótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar um hádeg- isbil í gær. Beita þurfti klippum til að ná manninum úr flaki bif- reiðar sinnar. Slysið vildi þannig til að maður- inn, sem slasaðist, ók Daihatsu-bif- reið suður Reykjanesbraut en tók svo u-beygju á gatnamótunum við Bústaðaveg. Þar er u-beygja bönn- uð. Maðurinn ók í veg fyrir Mazda- bifreið, sem ók norður Reykjanes- braut á grænu ljósi. Árekstur bílanna varð mjög harð- ur og þurfti slökkviliðið að beita klippum til þess að ná hinum slas- aða úr Daihatsu-bifreiðinni. Maðurinn var enn í lífshættu í gærkvöldi. Ökumaður Mazda-bif- reiðarinnar slapp lítið sem ekkert slasaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.