Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JUNI 1990 13 Hvatning til kvenna: Ganga - Skokk - Hlaup - Kvennahlaup eftirLovísu Einarsdóttur Innan margra íþróttagreina, sérstaklega boltagreinanna, hefur ríkt kynjamisrétti á ýmsum svið- um. Vantar töluvert á að jafnrétti ríki í störfum og leik. Þá eru til greinar sem mismuna ekki kynjum og er það vel. Mýmörg dæmi eru um að kvennalandslið sitji ekki við sama borð og karlalandslið. Stúlkurnar hafa m.a. þurft að greiða keppnisferðir og uppihald sjálfar á meðan viðkomandi sérs- ambönd hafa greitt allan kostnað karlalandsliða. Dæmi um árangur í slíkum ferðum má nefna smá- þjóðaleika á Kýpur þar sem stúlk- ur komu heim með silfurverðlaun en piltar brons, þar sönnuðu stúlk- urnar betri frammistöðu en piltar. Ein hugsun sækir fast að í þessu sambandi og þess vegna freistandi 681066 Leitið ekki langt yfir,skammt Eignir óskast Einbhús óskast - allt að 30,0 millj. Höfum fjárst. kaupanda að góðu einb- húsi. Engin sérst. ósk um staösetn. Má kosta allt að 30,0 millj. Garðabær - óskast Höfum kaupanda að einbhúsi í Garðabæ. Getur greitt allt að kr. 6,0 millj. strax. Hrauntunga - Kóp. Falleg 3ja herb. ib. á jarðh. í tvíb. Verð 5,5 millj. Hraunbær 65 fm 3ja herb. ib. á 1. hæð. Nýl. park- et. Falleg íb. Verð 4,7 millj. Stóragerði 93 fm góó 3ja herb. ib. m/íbherb. i kj. Baðherb. endum. Ákv. sala. Verð 6,0 m. Hraunbraut 80 fm góð 3ja herb. íb. í fjórbýli. Ákv. sala. Verð 5,9 millj. Fálkagata 90 fm 3ja herb. ib. a 2. hæð. Akv. sala. Verð 5,9 millj. Suðurhólar 4ra-5 herb. ib. é 3. hæð. Góðar innr. Fallegt útsýni. Góð staðsetn. Verð 7,0 m. Dalsel 106 fm mjög glæsil. 4ra-5 herb íb. m/sér- þvottah. ib. er öll i toppstandi. Skipti mögul. á stærri eign. Verð 7,5 millj. Hraunbær Mjög falleg 4ra herb. íb. é 2. hæð. Verð 6,4 millj. Þingholt - einb./tvíb. Til solu nýl. steinhús m/2 fb. 3ja og 4ra herb. TvÖf. innb. bílsk. Eignask. mögul. Verð 14,0 millj. Seljahverfi Glæsil. staðsett einbhús íjaðri byggðar m/plötu f. hesthús. Húsið erþrjár hæð- ir og gengið inn á miðhæð. Mögul. á íb. á neðstu hæð. Húsið er ekki fullb. Eignask. mögul. á minni eign i Selja- hverfi. Verð 14,5 millj. Stakkahlíð - verslhúsnæði 340 fm verslhúsn. á einni hæð. Mjög vel staðsett, Verslunarínnr. til reksturs matvöruversl. geta fylgt. Húsn. getur hentað fyrirýmsan rekstur vegna góðr- ar staðsetn. Er til afh. strax. Grensásvegur 1000 fm hæð með innkeyrsludyrum, þar af ca. 600 im súlulaus safur. Hús- næðið til afh. fljótl. Góð greiðslukjör. Húsafell FASTEIGNASALA Langhottsvegi 115 (Basiarieiiáhúsinu) Súni:6810S6 Þorlákur Elnarsson, Bergur Guðnason hdl., Þórey Aðalsteínsd., lögfræðingur. if að bera fram þessa spurningu. Þurfa stúlkur fyrst að sýna árang- ur áður en þær fá fyrirgreiðslu, á meðan drengir þurfa ekki að sanna getu sína til að fá Ijármagn? Er fyrirfram búið að ákveða að stúlk- urnar geti ekkert? Það er eðlilegt að þessar spurningar vakni þegar litið er á árangur keppnisíþrótta- kvenna. Ef grúskað er í ijárhagsá- ætlanir íþróttafélaga og sérsam- banda kemur í ljós mikill mismun- ur á þeim íjárhæðum sem ætlaðar eru til kvenna- og karlalandsliða, upphæðir til karla skipta milljón- um en konur eltast við þúsundirn- ar. Ef litið er á áratugi til baka kemur í ljós að karlar hafa byggt upp íþróttahreyfinguna og að sjálfsögðu unnið merkilegt starf. Hreyfingu sem var byggð upp af þeim er líka stjórnað af þeim á æðstu stöðum í dag. Lítum á hlut kvenna í stjórnum og ráðum: í ljós kemur að 3 konur GARfíUR S.62-1200 62-I20I Skipholti 5 2ja-3ja herb. Hraunbær. Lítii en góð 3ja herb. íb. á 1. hæð í blokk. Sér- inng. Góð sameign. Verð 5 millj. Hraunbær. Rúmg. 3ja herb. ib. á 3. hæð. Gott herb. á jarðh. fylgir. 4ra-6 herb. Stigahlíð. 3-4 herb. endaíb. á 4. hæð í blokk. Frabær staður. Laus. Verð 5,8 millj. Nökkvavogur. 5 herb. risib. i þríbhúsi á einstaklega rólegum stað. Ath. að hægt er að skipta ib. í tvær litlar íb. Sérl. hentugt fyrir t.d. skólafólk. Verð 5,5 millj. Dvergabakki. 4ra herb. íb. á 2, hæð. Stórt herb. í kj. Björt íb. í fallegri blokk. Verð 6,3 millj. Fífusel. 4ra herb. 104,9 fm endaíb. í blokk sem er nýklædd að utan. Mikið útsýni. Þvottaherb. í íb. Verð 6,5 millj. Seljahverfi. Vorum að fá i einkasölu mjög góða og fallega 5 herb. íb. á 1. hæð í blokk. Þvottaherb. og búr innaf eldh. Bilageymsla. Góðurstaður. Verð7,1 millj. Einbýli - Raðhús Garðsendi. Vorum að fá í einkasölu einbhús sem er hæð, ris og kj. 212,5 fm auk bilsk. Fal- leg lóð með stórum trjám. Mjög góð staðsetn. Mögut. að taka góða 4ra herb. ib. upp i kaupverð, æskil. t.d. í Árbæ eða Seláshverfi. Kári Fanndal Guðbrandsson, Axel Kristjánsson hrl. Sigrún Sigurpálsdóttir, lögg. fasteignasali. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásfíum Moggans! „Laugardaginn 30. júní verður haldið Kvenna- hlaup á 6 stöðum á landinu í fyrsta skipti hérlendis, Grundar- firði, Isafirði, Akureyri, Laugum í Þingeyjar- sýslu, Egilsstöðum og Garðabæ. Þetta er einn iiður í íþróttahátíð ÍSÍ. Hlaupið er einn liður í að beina sjónum manna að stöðu íþróttakvenna hérlendis.“ eru formenn innan 20 sérsam- banda ÍSÍ, tvær konur sitja í fram- kvæmdastjórn ÍSÍ frá 1986. Engu er líkara en að litið sé á það sem jafnrétti þegar ein kona fer í 5-7 manna stjórn og menn hrósa sér af því að nú sé komið jafnrétti — ein kona í stjórnina! Margar hæfar konur eru innan íþróttahreyfingar- Lovísa Einarsdóttir innar sem þarf að hvetja til ábyrgðarstarfa. Ef skoðaðar eru tölur um íþróttaiðkun kvenna í keppni kemur í ljós talan 29% á móti 71%, hinsvegar er ekki rann- sakað hlutfall kynja í almennings- íþróttum. í umræðu dagsins hefur athyglin beinst æ meir að líkams- þjálfun alménnings og hollum lífsháttum. Fróðlegt væri að sjá tölur um þann fjölda í landinu sem stundar líkamsþjálfun sér til heilsubótar og hvernig þær skipt- ast milli kynja. Laugardaginn 30. júní verður haldið Kvennahlaup á 6 stöðum á landinu í fyrsta skipti hérlendis, Grundarfirði, ísafirði, Akureyri, Laugum í Þingeyjarsýslu, Egils- stöðum og Garðabæ. Þetta er einn liður í íþróttahátíð ÍSÍ. Hlaupið er einn liður í að beina sjónum manna að stöðu íþróttakvenna hérlendis. Tímabært er að sýna samstöðu kvenna tengda útiveru og hollri hreyfíngu allra kynslóða í kven- legg. Vegalengd er 2 eða 5 km eftir getu hvers og eins. Markmið- ið er að konur eigi eftirminnilega dagstund í útiveru og hollri hreyf- ingu í fögru umhverfi. Enginn verður sigui’vegari heldur lögð áljersla á að vegalengdin sé geng- in, skokkuð eða hlaupin eftir líkamsburðum viðkomandi. Ágætu konur sem þennan pistil lesið, hressið upp vinkonur, vinnu- félaga, mömmur, frænkur og dæt- ur og bjóðið þeim með í kvenna- hlaupið. Hvetjið hvor aðra, jákvætt hug- arfar í fyrirrúmi. I kvennahlaup um land allt 30. júní. Höfundur er íþróltakennari í Garðabæ og á sæti í framkvæmdastjórn ISÍ. Heldur heíur dregið úr lax- veiðinni eftir líflega byrjun og telja menn að nú sé millibils- ástand, eðlilegt sé að það hafi hægst um stórlaxagöngurnar sem jafnan koma fyrstar og komu nú fyrr en oft áður, og tími smálaxins renni nú í hlað. Hvernig heimtur verði af þeim fiski ráði úrslitum um hvort vertíðin verði góð eða slæm. Litum á nokkrar nýjar og ný- legar fréttir. Kominn um alla Stóru Laxá Veiði hefur byijað nokkuð vel í Stóru Laxá og nokkrir laxar veiðst á öllum svæðum árinnar sem er fremur óvenjulegt svona í byijun vertíðar. Frést hafði af sex stórlöxum fyrsta morguninn á efsta svæðinu og um síðustu helgi fóru menn á miðsvæðið fyr- ir löndum Hlíðar og Hælis og drógu 7 laxa, aila 12 til 16 punda, utan einn átta punda. Laxarnir veiddust í Heljarþröm, við Sta- pann og á Iðunni og tóku spón og túbuflugur. í gærdag fengust síðan þau tíðindi, að sex laxar hefðu verið skráðir til bókar á neðstu svæðunum tveimur, þar af einn 18 punda og annar 14 punda. Það verður því að segja að byrjunin í þessari mislyndu en undurfögru laxveiðiá lofi góðu fyrir framhaldið. “Kropp“ í Kjósinni. „Þetta er óttalegt kropp, en kannski ekkert óeðlilegt, maður er bara orðinn svo góðu vanur héma við Laxá í Kjós,“ sagði Árni Baldursson einn leigutaka Laxár í Kjós í gærmorgun. Hann sagði þetta 9 til 15 laxa falla í valinn á degi hveijum, enn sem komið er, er það einkum stóri fisk- urinn, lítið sæist til smálaxa enn sem komið væri. „Ég er eiginlega hálfhneykslaður, það hefði átt að sýna sig ganga á stórstreyminu um þessar mundir, en í staðinn er þetta bara reytingur. Bót er þó ' r „ •- && Löndunarbið undir Stapanum. Sverrir er búinn að landa 13 punda hrygnu á flugu, en Jón þreytir 15 punda fisk á spón. í máli að laxinn er kominn upp um alla á, veiðimaður sem ég er að aðstoða um þessar mundir tók til dæmis tvo 13 punda fiska í Efri Gljúfrum og sonur hans missti þann þriðja og þar var vel yfir 20 punda lax,“ sagði Árni enn fremur. Um 150 laxar hafa veiðst. Ogn skárra í bæjarlæknum. Það er ívið skárri veiði í Elliða- ánum nú heldur en á sama tíma í fyrra, milli 50 og 60 laxar kom- ið á land, en sumir dagarnir til þessa hafa verið magrir. Þannig veiddist enginn lax á mánudags- morgun, en menn réttu úr kútnum með 7 laxa rispu eftir hádegið og þá veiddust þrír flugulaxar, en yfirleitt hefur verið maðkveiði það sem af er. Á mánudaginn veiddist 14 punda lax á maðk í Skáfossum og er það sá stærsti úr Elliðaánum í sumar. Reytist upp úr Rangánum „Þeir eru byrjaðir að fá ’ann, fengu strax 10 punda fisk í opnun- inni og nú frétti ég að það hafi fengist tveir 6 punda fiskar í Ægissíðufossi. Við eigum einmitt von á góðum heimtum af laxi sem hefur verið eitt ár í sjó og þetta lofar því góðu,“ sagði Lúðvík Gis- surarson í samtali við Morgun- blaðið. Enn hefur lax ekki veiðst í Eystri Rangá, en Lúðvík sagði hana ævinlega nokkrum dögum á eftir hinni enda væru fyrirstöður fleiri svo og vatnskuldi meiri. Sogið byrjaði á núlli. Veiðin hófst í Soginu 21. júní og fékkst enginn lax fyrsta daginn og var tregt í fyrstu. Frést hefur þó af einhverri veiði og lax er farinn að sjást um alla á. Þess er þvi að vænta að það rætist ef til vill úr á næstu misserum. Fimm af sjö stórlöxum af miðsvæði Stóru Laxár um síðustu belgi. Sverrir Kristinsson og Jón Árnason hampa löxunmn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.