Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990 Vel tekið í tillögu um að- stoð við sovéskt efnahagslíf Krefjast tafarlausra aðgerða til bjargar regnskógunum Leiðtogafundur EB í Dyflinni: Dyflinni. Reuter. LEIÐTOGAR Evrópubandalagsins (EB) lýstu í gær yfir stuðningi við umbótasteftiu Mikhaíls Gorbatsjovs, forseta Sovétríkjanna, og ákváðu að taka til vinsamlegrar athugunar tillögu um 15 milljarða dollara aðstoð við sovéskt efinahagslíf. Þá hvatti fundurinn, sem haldinn er í Dyflinni á írlandi, til tafarlausra viðræðna við stjórnvöld í Braziliu um Amazonregnskógana og um leiðir til að bjarga þeim firá tortímingu. Reuter Giulio Andreotti, forsætisráðherra Ítalíu, Francois Mitterrand, for- seti Frakklands, Charles Haughey, forsætisráðherra írlands, og Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, hafa stillt sér upp fyrir ljósmyndarana en að baki þeim eru utanríkisráðherrar ríkjanna. Haughey veifar eins og í kveðjuskyni enda hefur hann nú látið af embætti sem forseti ráðherraráðs Evrópubandalagsins. Undir lok fundarins, sem stóð í tvo daga, samþykktu leiðtogarnir 12, að framkvæmdastjóm EB skyldi ganga frá tillögum um skammtímalán til Sovétmanna og ennfremur um langtímaaðstoð við endurskipulagningu sovésks efna- hagslífs í samvinnu við alþjóðlegar ljármálastofnanir. Lýsti fundurinn stuðningi við tilraunir Gorbatsjovs til að koma á lýðræði og markaðs- kerfi í Sovétríkjunum og sagði Jac- ques Delors, sem var endurkjörinn formaður framkvæmdastjórnar EB til 1993, að með samþykktinni hefði tónninn verið gefínn. „Hér er um að ræða málamiðlun milli ríkja eins og Vestur-Þýska- lands og Frakklands, sem vilja taf- arlausa aðstoð við Sovétmenn, og annarra, til dæmis Breta, sem vilja fara að öllu með gát,“ sagði Delors en Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, lagði til á mánudags- kvöld, að umbótastefna Gorbatsjovs yrði studd með 15 milljarða dollara fjárframlagi. í ályktun EB-fundarins um um- hverfismál er hvatt til tafarlausra viðræðna við Brazilíustjórn um framtíð Amazonregnskóganna og skorað á allt mannkyn að koma sjálfu sér og öllu lífríkinu til bjarg- ar áður en það er um seinan. Vilja leiðtogarnir, að skuldir þriðja- heimsríkja verði skornar niður gegn því, að þær standi vörð um náttúr- una, að settar verði eins konar siða- reglur fyrir iðngreinar og ríki, sem fiytja inn trjávöru, og skógavernd og skóggræðsla stóraukin. Um þróunina ' í Suður-Afríku sagði, að hún væri til vitnis um „framsýni og hugrekki" F. W. de Klerks forseta og lýst yfir, að yrði linað frekar á aðskilnaðarstefnunni, yrðu refsiaðgerðir gegn Suður- Afríku teknar til endurskoðunar. Ályktun leiðtogafundarins um ástand mála í Israel var óvenju harðorð og voru stjórnvöld þar for- dæmd fyrir mannréttindabrot á hernámssvæðunum. Var ákveðið að tvöfalda aðstoðina við Palestínu- menn og heimila PLO, Frelsissam- tökum Palestínumanna, að koma upp fastaskrifstofu hjá EB. Að lokum má nefna, að EB-ríkin eru hlynnt nýjum, evrópskum ör- yggissáttmála og vilja, að lögð verði drög að honum á fundi Ráðstefn- unnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) í París í nóvember. Þau eru einnig samþykk tillögu Vestur-Þjóðveija um sérstakar höf- uðstöðvar fyrir RÖSE en vilja ekki, að upp rísi skrifstofubákn, sem vasist í of miklu. Reuter Mandela á Bandaríkjaþingi Suður-afríski blökkumannaleiðtoginn Nelson Mandela hélt sögulega ræðu á Bandaríkjaþingi í gær og hvatti þingmenn til að styðja Afríska þjóðarráðið (ANC) og stuðla þannig að afnámi kynþáttaað- skilnaðar í Suður-Afríku. Þetta er í fyrsta sinn sem blökkumaður, sem ekki hefur verið kjörinn á þingið, ávarpar báðar deildir þess. Mandela vitnaði óspart í bandarískar hetjur eins og George Washing- ton, Abraham Lincoln, Martin Luther King og leysingjann Frederick Douglas. Góður rómur var gerður að ræðu hans og þurfti hann hvað eftir annað að gera hlé á máli sínu vegna glymjandi fagnaðarláta. f\ZANJAN V__/ #Teheran AÐSTOÐ FRÁ S-AFRÍKU OG ÍSRAEL HAFNAÐ; BANDARlKJA- MENN FÁ EKKI AÐ KOMA TIL LANDSINS , I R A N Æ V^STUR- PYSKALAND Aðstoð við Irana vegna jarðskjálftans j SOVÉTRÍKIN 1 Lyf og hjúkrunar- | tæki, 270 læknar | og hjúkrunarkonur FRAKKLAND Læknar, 205 bjorgunarmenn, 18 leitarhundar j BRETLAND 1 17 manna björg- i .unarsveit, hátækni- J 'búnaöur til leitar- J starfa Hjálpargögn JAPAN Hjálpargögn fyrir 1,5 millj- ónir dala, 22 björgunarmenn ISVISS | Sórfræðiaðstoö, \ matsmenn og 1 og björgunarsveit SYRLAND Læknar sendir. 11 tonn af tækjum KUVÆT Skurðiæknar, hjúkrunariconur PAFAGARÐUR Páfi gefur af eigin fé BANDARIKIN 1,7 milljónum dala safnaö. Stjórnvöld veita / neyðaraðstoö / SAUDI-ARABÍA Ýmis hjálpargögn EGYPTALAND L ■ Hjúkrunarbúnaö' ur, matvæli, tjöld ■ ogteppi SPÁNN 300.000 dalir frá hiálparstofnunum Hjúkrunaraöstoö fra rlkinu JÓRDANÍA Lyt og hjúkrunar búnaður NORÐUR-KÓREA AÖstoðfyrir milljón dafa, hjúkrunarsveit ÍRAK Hussein forseti býöur aöstoð Slóvenía: Drög að sjálfstæðri sljórnarskrá samþykkt Belgrad. The Daily Telegraph. FORSETARÁÐ júgóslavneska lýðveldisins Slóveníu hefúr samþykkt drög að nýrri stjórnarskrá þar sem kveðið er á um sjálfstæði ríkis- ins og fullveldi þess á vettvangi utanríkis-, öryggis- og varnarmála. Milan Kucan, forseti Slóveníu, sagði á mánudag að stjórnarskráin nýja kvæði á um fullveldi ríkisins en ekki hlutdeild þess í júgóslavn- eska ríkjasambandinu. Slóvenar hafa ákaft hvatt til þess að dregið verði stórlega úr völdum alríkis- stjórnarinnar í Belgrad og þóttu þess orð forsetans gefa til kynna að Slóvenar hygðust segja sig úr ríkjasambandinu ef ekki yrði geng- ið að þessari kröfu þeirra. Raunar birtu yfirvöld í Slóveníu sérstaka yfirlýsingu er stjórnarskráin nýja hafði verið samþykkt þess efnis að hér eftir yrðu samskiptin við hin lýðveldin fimm grundvölluð á þeirri forsendu að þau væru sjálfstæð ríki. Júgóslavneska fréttastofan Tanj- ug kvað Milan Kucan hafa sagt á fundi forsetaráðsins að Slóvenía ætti í engu að skera sig frá öðrum sjálfstæðum og fullvaida ríkjum og myndu landsmenn því koma sér upp eigin herafla og móta sjálfstæða stefnu á vettvangi utanríkismála. Fylgdi fréttinni að stjórnarskrár- drögin yrði lögð fyrir slóvenska þingið í næsta mánuði. Almenna mótið í Vatnaskógi TA ' ' / 1 • / 7/ W Zy.jum - l.juli Samkomur alla dagana. Barnasamkomur samtímis og barnapössunfyriryngstu börnin Útileikir fyrir alla fjölskylduna á laugardaginn Gistingu verður hægt að fá í svefnskálum. Næg tjaldstæði. LisHlug verdur sýnt ó laugardaginn kl. 14.00 OSIA-OG SMJÖRSALAN SE Matur seldur í matskája. Einnig verður sjoppa á staðnum. Bílferðfrá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 18.30 á föstudag og til baka sunnudag. ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR! Samband íslenskra kristniboðsfélaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.