Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JUNl 1990 33 Kveðjuorð: Helga Vilhjálmsdótt- ir, lyfjaíræðingur Það er með sorg í hjarta, sem við kveðjum Helgu Vilhjálmsdóttur. Það var siðsumars 1971 sem við fluttum í Lágholtið og þá voru Helga, Reyn- ir og Kristín nýflutt heim frá Dan- mörku. Við höfðum alltaf talið það mikið lán að þau keyptu húsið við hlið okkar. Hér höfðum við búið hlið við hlið í tæp 19 ár og þau reynst bestu nágrannar sem hægt er að hugsa sér. Fyrstu árin meðan börn okkar voru lítil var samgangur meiri en hin síðari ár, og áttu synir okkar aðgang að heimili þeirra á sérstakan hátt. Það var sama hvort Stína var heima eða ekki, þeir gátu unað þar löngum stundum hjá Helgu sem sýndi þeim ómetanlegan skilning og umgekkst þá eins og persónur sem mark var á takandi. Það er mikils virði fyrir börn. Þau höfðu búið í mörg ár í hinni gróðursælu Danmörku og tóku nú til við að rækta garðinn sinn. Þá var gott að njóta þekkingar Helgu og fórum við m.a. saman að kaupa fyrstu plönturnar í garðana. En við búum á íslandi og hér blása vindar sem gera fólki erfitt fyrir við garð- ræktina. En samt uxu runnar, tré, limgerði og alparósirnar hennar Helgu og allt í einu sást ekki auð- veldlega milli húsa. Börnin stækkuðu eins og gróður- inn, en alltaf var öryggið að vita af þessum góðu nágrönnum við hliðina. Þau hafa alltaf tekið þátt í og fylgst með hvernig börnum okkar gengur í námi og starfi og sýnt því áhuga þegar íjölskyldan stækkaði. Þegar veikindi gerðu okkui' lífið leitt fyrir nokkrum árum kom Helga og veitti hjálp sem var ómetanleg og stundum segjum við að húsbónd- inn hér eigi henni líf sitt að launa. Þess vegna var það sárt að geta ekki endurgreitt þá skuld þegar hún fór að beijast við sinn sjúkdóm. Þar vorum við aðeins áhorfendut' sem Minning: Stefán Kr. Snæ- laugsson, Akureyri Fæddur 27. júní 1916 Dáinn 19. inaí 1990 Góður vinur minn, Stefán Snæ- laugsson, er farinn í sína hinstu för. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri þann 19. maí sl., þrotinn af kröftum eftir langvar- andi veikindi. Með Stefáni er genginn einn sá besti drengur sem ég hef kynnst. Það er stundum sagt að allir séu góðir þegar þeir hafa kvatt þennan heim, en um Stefán Snælaugsson verður aldrei annað sagt, en að hann hafi verið góður maður'allt sitt líf. Hann var sérstakt prúð- menni, hæglátur, hógvær og stillt- ur. Alltaf svo einlægur og glaðleg- ur, aiidlit hans geislaði ævinlega af alúð og hjartahlýju og hann bar með sér innri ró og góðvild. Mót- læti og erfiðum veikindum sínum tók hann með æðruleysi og stillingu og hann heyrðist ekki kvarta, þó augsýnilega væri hann þjáður. Það var alltaf einhver annar sem hafði meiri þörf fyrir meðaumkun og aðhlynningu en hann. Stefán starfaði að málum Góð- templarareglunnar og var æðsti- templar í stúkunni Akurliljunni á Akureyri. Einkunnarorð reglunnar „í trú, von og kærleika“, gátu allt eins verið hans eigin. Ég starfaði í mörg ár með Stefáni í Reglu Must- erisriddara og þar kynntist ég hon- um vel. Hann var okkur yngri bræðrunum fyrirmynd hvað varðar trúmennsku, heiðarleika og mann- kærleika. Það er gott dæmi um áhrif sterks persónuleika hans, að sonur hans og tveir tengdasynir gengu í Regluna og störfuðú þar við hlið hans í þeim góða anda sem honum var svo eðlislægur. Stefán var kvæntur Ólafíu Hall- dórsdóttur, mikilli ágætis konu, sem alla tíð stóð við hlið hans eins og klettur og bar með honum byrðarn- ar fram til hinstu stundar. Hún er ekki fyrirferðarmikil kona hún Ólafía, en prúðmennska hennar og manngildi vekur athygli hvar sem er. Hún ól manni sínum 7 börn, sem öll eru komin vel til manns og þau bera þess glögglega merki að vera alin upp í ástríki og kærleika og bera þau foreldrum sínum gott vitni. Þau hjónin gengu hljóðlátum skrefum eftir ævistígum sínum og bárust ekki á, en þau vöktu at- hygli hvar sem þau voru, einmitt fyrir þær sakir. Stefán stundaði sjóinn mestan hluta starfsævi sinnar, en síðustu árin var hann húsvörður í Hús- mæðraskólanum á Akureyri, eða þar til aldur og heilsuleysi stöðvuðu hann. Það var stór hópur ættingja og vina þeirra hjóna, sem kvaddi Stef- án Snælaugsson í Akureyrarkirkju mánudaginn 28. maí sl. og mátti af því sjá, að það voru fleiri en ég sem þótti vænt um þennan góða dreng og mátu hann að verðleikum. Megi minning hans lifa og vera t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, bróður okkar, mágs og frænda, KOLBEINS JÓHANNSSONAR, Hamarsholti. Halldóra Sturlaugsdóttir, Guðbjörg Kolbeinsdóttir, systkini og aðrir vandamenn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, VÍBEKKU JÓNSDÓTTUR, Meðalholti 15. Hrafnhildur Valdimarsdóttir, Jón Ragnarsson, Víbekka Arnardóttir, Árni Arnarson, Valdimar Jónsson, Örn Arnarson, Júlianna Jónsdóttir, Valdis Arnardóttir. dáðumst að dugnaði og'baráttuvilja hennar. Þó margir sigrist á þessum sjúkdómi varð hann henni ofurefli. Nú kveðjum við og þökkum sam- fylgdina og sendum foreldrum henn- ar, Reyni og Kristínu, og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Þau munu halda uppi merki Helgu og hún mun lifa í hugum þeirra og okkar allra sem þekktum hana. Ánna Jóna og Guðmundur okkur hinum áminning um, að það er hið innra gildi sem gefur ham- ingjuna. Arni Valur Hann afi, Stefán Kr. Snælaugs- son, var leystur frá þrautum þann 19. maí sl. Eftir að vera búinn að heimsækja hann nær daglega síðan í janúar og fylgjast þannig með hvernig heilsan versnaði stöðugt, má segja að þetta hafi verið góð lausn fyrir hann afa minn. En sökn- uðurinn er sár hjá okkur sem eftir erum. Ég er viss um að hans létta lund hefur hjálpað honum mikið í gegnum öll hans veikindi. Afi fæddist á Árskógsströnd 27. júní 1916. Um 12 ára aldur fór hann að Hrafnsstöðum í Svarfað- ardal í vinnumennsku, síðar fluttist hann þangað alveg og var dvölin þar lionum ætíð afar kær. Ungur byijaði hann \á sjónum og var þar eins lengi og heilsan leyfði og jafn- ,vel lengur, því það reyndist honurn erfitt að sætta sig við það hlut- skipti að þurfa að hætta á sjónum. Ymis vinna var reynd í landi en síðast starfaði hann sem húsvörður á hússtjórnarsviði Verkmenntaskól- ans á Akureyri. Eiginkona afa, Guðrún Ólafía Halldórsdóttir, er frá Súðavík. Þau eignuðust 7 börn sem öll eru gift eða i sambúð, barnabörnin eru 28 og eitt barnabarn. Það verður tómlegt næsta vetur að geta ekki skroppið í kvöldspjall til afa. Hann var víðlesinn og óspar á að miðla öðrum af þekkingu sinni. Um leið og ég þakka afa mínum allt það sem hann var mér, færi ég starfsfólki lyfjadeildar FSA bestu þakkir frá mínu fólki, fyrir góða aðhlynningu við afa og gott viðmót við okkur ættingjana. Amma. Ég bið góðan Guð að vera með þér. Stefán Morgunblaðið/Björn Björnsson Þrír úr undirbúningsnefhdinni, f.v.: Páll Dagbjartsson, Gísli Sverr- ir Halldórsson og Sveinn Guðmundsson. Landsmót hestamanna á Vind- heimamelum: U ndirbúnmgnr að komast á lokastig Sauðárkróki. MJÖG styttist nú í það að jóreykir sjáist stíga til hiniins víða um Skagafjörð, þegar mótsgestir fara að flykkjast til Lands- móts hestamanna á Vindheimamelum, sem haldið verður dagana 3. til 8. júlí. Allur undirbúningur fyrir þetta stærsta og uinfangs- inesta landsinót sem haldið hefur verið til þessa, er að koinast á lokastig, enda liefur mikill fjöldi fólks lagt liönd að því undan- farnar vikur að ganga þannig frá málum að allur aðbúnaður mótsgesta, hvort sem um menn eða hesta er að ræða, verði sem bestur. Páll Dagbjartsson skólastjóri er í framkvæmdastjórn lands- mótsins. Hann sagði að mjög mikil vinna væri nú að baki við það að gera mótssvæðið að Vind- heimamelum eins giæsilegt og kostur væri, og koma þar upp allri aðstöðu sem þyrfti til þess að taka á móti þeim mikla fjölda fólks sem gert er ráð fyrir að sæki landsmótið. Allar áætlanir gera ráð fyrir að mótsgestir verði 10-12 þúsund og þá er einnig gert ráð fyrir allt að 4 þúsund hestum, bæði keppnis- og sýning- arhestum auk ferðahesta móts- gesta sem mjög margir koma ríðandi, jafnvel um langan veg. Páll sagði að aðkoma á „Mel- ana“ hefði gjörbreyst við það að nú hefði verið byggð brú yfir Svartá hjá Saurbæ, og mundi þessi nýja leið létta mjög á um- ferð að og frá mótsstað. Þá hafa verið í gangi miklar byggingaframkvæmdir á Vind- heimamelum í vor og í sumar, og má þar nefna helst að byggt hefur verið nýtt stóðhestahús norðan keppnissvæðisins þar sem nú er hægt að hýsa um 50 stóð- hesta. Þá er í húsinu sérstök sjúkraaðstaða, ef hestur veikist, og einnig er aðstaða fyrir vakt- mann við hesthúsið. Þá hefur veitingasalur verið stækkaður verulega þannig að nú geta um 450 manns matast þar í einu, en auk þessa verða á svæðinu tjöld og smáhýsi þar sem seldur verð- ur hinn sígildi útihátíðamatur, pylsur og gos. Sérstakt hús hefur einnig ver- ið reist á mótssvæðinu þar sem er mjög góð snyrtiaðstaða og þar er einnig gert ráð fyrir góðu að- gengi fyrir fatlaða, en einnig em smærri hús með 4 til 6 snyrting- um a öllum tjaldsvæðunum. Páll sagði að nokkur vand- kvæði hefðu verið með að fá nægilega gott neysluvatn á svæðið, en þau mál hefðu nú verið leyst með því að leggja nokkurra kílómetra langa vatns- leiðslu að svæðinu, ofan af „Efri- byggð“, vestan megin í firðinum, og væri nú nægilegt ferskt og gott neysluvatn í hveijum krana. Þá hefur undirbúningsnefndin látið hanna og smíða sérstaka dómturna sem staðsettir eru austan hinnar 800 metra löngu hlaupabrautar, en á svæðinu á milli turnanna er gert ráð fyrir að halda kvöldvöku á laugar- dagskvöldið. Þar verður kvöld- vökustjóri Sigurður Hallmarsson, en fyöldi þekktra skemmtikrafta mun koma þar fram og skemmta gestum. Má þar nefna sérstaklega Sveinbjörn Beinteinsson allsheij- argoða og Flosa Ólafsson leikara og hestamann en einnig mun karlakórinn Heimir taka lagið. Margt fleira sagði Páll að yrði til skemmtunar, sem ekki væri veit að tíunda að svo stöddu, en engum ætti að leiðast á þessarr kvöldvöku og svo mætti ekki gleyma því að danspallur yrði norðan veitingasalar þar sem menn gætu fengið sér snúning í sumarnóttinni ef þá langaði til. Sérstakt fréttabréf verður gef- ið út alla mótsdagana og útvarps- stöð verður starfrækt og hefur sérstök áhersla verið lögð á að hljóðkerfi sé sem best og full- komnast þannig að allt sem fram fer berist til áhorfenda hvar sem er á svæðinu. Sagði Páll að til þess að sjá um þennan þátt hefði verið fenginn Pétur Kristjánsson, sem oft hefði glímt við stói-verk- efni á borð við þetta og tekist vel.. Segja má að- Grettistaki hafi verið lyft á Vindheimamelum í því að gera mótssvæðið eins glæsilegt og kostur er. Meðal þess sem gert hefur verið er gróð- ursetning um 3000 lerki- og. birkiplantna sem Skógræktarfé- lag Islands gaf á niótssvæðið. Var plöntum þessum valinn stað- ur á 50 metra breiðu afgirtu belti meðfram og norðaustan hlaupabrautar. Að vísu mun þessi skógur ekki veita landsmótsgest- um í ár skjól fyrir norðangol- unni, en Páll Dagbjartsson sagðF að lokum að ekkert af því sem gert er á Vindheimamelum, frem- ur en skógræktin, miðaðist við það að tjaldað væri tii einnar nætur, enda væri þetta hvorki síðasti né næstsíðasti mannfagn- aðurinn sem haldinn yrði í Skaga- firði. - BB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.