Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.06.1990, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990 KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD 7. umferð hefst í kvöld: „Leikum alltaf til sigurs“ segirSigurlás Þorleifsson, þjálfari nýliða IBV. Ekkert jafntefli í 24 leikjum ÍBV EYJAMENN hafa komið skemmti- lega á óvart á íslandsmótinu og eru aðeins með stigi minna en efsta lið- ið fyrir sjöundu umferð, sem hefst íkvöld meðfjórum leikjum. „Við leikum alltaf til sigurs," sagði Sig- urlás Þorleifsson, þjálfári IBV, að- spurður um viðureign KA og ÍBV á Akureyri íkvöld. Morgunblaðið/Rúnar Þór Fyrstu feðgarnir til að leika saman í 1. deildinni, Sigurður Lárusson og Lárus Orri Sigurðsson. Þeir mæta á kunnuglegar slóðir í kvöld með Þórsliðinu, en það mætir þá ÍA á Akranesi. Sigurlás tók við stjórn liðsins fyrir síðasta keppnistímabil. Síðan hefur ÍBV ieikið 24 leiki í 1. og 2. deild, unnið 18 og tapað sex. „Það gekk vel hjá okkur í fyrra og við erum í sæmilega góðri stöðu í deildinni nú. Því förum við afslapp- aðir í leikinn gegn KA og ég er sæmilega bjartsýnn. Hins vegar er ávallt erfitt að leika fyrir norðan. Auk þess virðast íslandsmeistar- arnir vera að finna sig, en við spil- um ekki upp á eitt stig heldur leggj- *kum öll undir; það er annaðhvort eða hjá okkur, en það kemur niður á liðinu að fara úr biíðunni héðan í kuldann fyrir norðan.“ Einar og Hrafnhildur sigruðu tvöfalt Svokallað FILA-tennismót fór nýlega fram á Víkingsvöllun- um í Fossvogsdal. Keppt var í sex flokkum og var í fyrsta sinn á ís- landi keppt í öldungaflokki þar sem keppendur eru eldri en 35 ára. Styrktaraðili mótsins var sportvöru- verslunin Bikarinn, en tennisdeild Fjölnis sá um framkvæmdina. Orslit í einstokum flokkum urðu sem hér segir. Einliðaleikur karla: 1. Einar Sigurgeirsson, 2. Christian Staub, 3. Atli Þorbjörnsson, 3. Óiafur Sveinsson. Einliðaleikur kvenna: 1. Hrafnhildur Hannesdóttir, 2. Dröfn Guð- mundsdóttir, 3. Oddný Guðmundsdóttii’, 3. Steinunn Bjömsdóttir. Einliðaleikur öidunga: Stefán Bjömsson, 2. Christian Ralph, 3. Guðjón Kristleifsson, 3. Einar Óskarsson. Heimasigrar Eyjamenn hafa lagt bæði Þór og ÍA á heimavelli, en liðin mætast á Skipaskaga og hallast Sigurlás að heimasigri. „Bæði lið eru skipuð ungum leikmönnum, en miðað við leikina gegn okkur eru Skagamenn sterkari og þeir hafa líka heimavöll- inn. Þeir léku ágætlega gegn okk- ur, en eru ekki eins sterkir og und- anfarin ár. Þórsarar hafa Luka Kostic, sem er þeim ómetanlegur, en liðið er að öðru leyti ekki traust- vekjandi.“ Víkingur fær Stjörnuna í heim- sókn á föstudag og taldi Sigurlás Verðlaunahafar á mótinu. Tvíliöaleikur karla: 1. Einar Sigurgeirsson, Ólafur Sveinsson, 2. Atli Þorbjömsson, Einar Ásgeii-sson, 3. Chiist- ian Staub, Stefán Bjömsson, 3. Kjartan Óskarsson, Alexander Þórisson. Einliðaleikur stúlkna: að heimamenn sigruðu. „Stjarnan er með mjög gott lið, sem á eftir að spjara sig í deildinni, en Víking- ur hefur tekið undirbúningstímabil- ið fastari tökum en áður, komið sterkari til leiks en margir áttu von á og ættu þess vegna að hafa það.“ Jafntefli Þjálfarinn, sem jafnframt leikur með ÍBV, fagnaði sigri gegn KR, en varð að sætta sig við tap gegn Val Liðin leika að Hlíðarenda í kvöld. „Þarna mætast tvö ámóta lið og það er ómögulegt að spá um úrslit. Það er gífurlegur styrkur fyrir KR að hafa fengið Atla Eð- 1. Hrafnhildur Hannesdóttir, 2. Anna Pála Stefánsdóttir, 3.Heiða Gunnarsdóttir, 3.Guð- rún G. Stefánsdóttir. Einliðaleikur pilta: 1. Fjölnir Pálsson, 2. Bjarni Benjamínsson, 3. Teitur Marchall, 3. Kristinn Ferdinandsson. valdsson og endurkoma Rúnars Kristinssonar eflir liðið, en vörn Valsmanna er sterk og markvarslan örugg, þannig að ég spái marka- lausu jafntefli án ábyrgðar.“ Útisigur FH fær Fram í heimsókn. „Þetta verður mjög erfiður leikur. FH- ingar hafa ekki staðið undir vænt- ingum og mér sýnist að þeir eigi erfitt tímabil framundan. Framarar mistu dampinn í síðasta leik, en ég hef samt þá trú að þeir sigri,“ sagði Sigurlás. Allir leikir sjöundu umferðar heljast klukkan 20. HLAUP Sjöunda Reykjavík- urmaraþon 19.ágúst Sjöunda alþjóðlega Reykjavíkurmaraþonhlaupið verður haldið 19. ágúst nk. Keppnisvegalengdir eru þær sömu og áður, þ.e. skemmti- skokk 7 km, hálft maraþon 21 km og maraþon 42 km. Skráning fer fram hjá ferða- skrifstofunni Úrval-Útsýn, Póst- hússtræti 13, 101 Reykjavík og Álfabakka 16, 109 Reykjavík, hjá Frjálsíþróttasambandi ís- lands í Laugardal og verslunum Sportvals Hlemmi og Kringl- unni. Upplýsingar í símum 603060 Urval-Útsýn og 685525 Fijálsíþróttasamband Islands. Islandsmotið Hdrpudeild Stórleikur 7. umterðar VALUR - KR KL 20.00 í KVÖLD 3. DEILD ÞROTTARVOLLUR ÞRÓTTUR - REYNIR REYKJAVÍK ÁRSKÓGSSTR Í KVÖLD KL. 20.00. Tekst Þrótti að halda sigurgöngunni áfram? Komið og sjáið spennandi leik. Þróttur FRJALSAR Breytingar Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á landsliði íslands sem mætir Skotum og írum í lands- keppni í fijálsum íþróttum. Keppnin er liður í Íþróttahátíð ÍSÍ og fer fram í Mosfellsbæ á sunnudag og mánudag. Erlingur Jóhannsson gefur ekki kost á sér og í stað hans keppir Egill Eiðsson í 400 metra hlaupi og Finnbogi Gylfason í 800 metra hlaupi. Þá kemur Auðunn Guðjóns- son í stað Egils Eiðssonar í 400 metra grindahlaupi. Vésteinn Haf- steinsson tognaði á Grand Prix móti í Svíþjóð 20. júní og verður því ekki með, en í hans stað keppir Helgi Þ. Helgason í kringlukasti. Unnar Garðarsson keppir í spjót- kasti í stað Sigurðar Einarssonar sem er meiddur. Birgitta Guðjóns- dóttir keppir í kúluvarpi kvenna í stað Guðojargar Viðarsdóttur og í 110 metra grindahlaupi karla kem- ur Jón A. Magnússon í stað Hjartar Gíslasonar. Hópur f rá UMFÍ til Danmerkur Ungmennafélag íslands sendir 28 manna hóp til þátttöku í Landsmótinu DDGU í Horsens á Jótlandi, sem fram fer um næstu helgi. Á mótinu verða um 30 þús- und keppendur víðsvegar að úr Danmörku, auk gesta frá 25 þjóð- um. Eftirtaldir fijálsíþróttamenn á aldrinum 16 til 22 ára fara utan í dag: Jóhann Hróbjartsson (USVS), Heiða Bjara- dóttir (UMSK), Lísbet Alexandersdóttir (UÍA), Helga Þ. Guðmundsdóttir (UNÞ), Elln Högnadóttir (UÍA), Guðbjörg Viðars- dóttir (HSK), Þuríður Þorsteinsdóttir (UMSS), Jóna Ágústsdóttir (UMFK), Hörð- ur Gunnarsson (HSH), Stengrímur Jóhann- esson (Óðni), ísleifur Karlsson (UMSK), Orri Pétursson (UMSK), Hjörleifur Sigur- þórsson (HSH), Kristinn Þór Bjarnason (HSS), Bjarki Viðarsson (HSK), Jón Þ. Heiðarsson (USAH), Birgir Bragason (UMFK), Ilelgi Sigurðsson (UMSS), Friðrik Steinsson (UMSS) og Kolbrún Rut Stephens (UDN). Fararstjórar eru: Dóra Gunnarsdóttir, Sigurbjörn Gunnarsson, Pálmi Gíslason, Stella Guðmundsdóttir og þjálfari hópsins, Ólafur Unnsteinsson. ÚRSUT Búnaðarbankamót Fyrir nokkru hélt golfklúbburinn Mostri á Stykkishólmi svokallað Búnaðarbanka- mót. Mótið var opið og voru þátttakendur 28 frá fjórum golfklúbbum. Urslitin urðu eftirfarandi. Án forgjafar: Gestur Már Sigurðsson, Mostra...........76 Sigurður Már Gestssom, GB...............78 Magnús Guðlaugsso’n, Jökli..............82 Með forgjöf: Hilmar Sveinsson, Mostra................68 Gestur Már Sigurðsson, Mostra...........69 Magnús Guðlaugsson, Jökli...............69 Philips sérum iýsinguna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.