Morgunblaðið - 27.06.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990
17
1
i
Morgunblaðið/Þorkell
Steingrímur Hermannsson sýnir Elísabetu II. útsýnið af brún Almannagjár. Filippus prins stendur
álengdar. i
Þakkarávarp Elísabetar drottning-
ar til forsætisráðherra:
„Gestrisnin og hjarta-
hlýtt viðmótið er yðar“
Herra forsætisráðherra. Það
snart mig djúpt þegar þér buðuð
mig og Filippus prins velkomin
til landsins og ég flyt yður
þakkir okkar fyrir þann
ánægjulega tíma, sem vér höf-
um átt saman á þessum stór-
fenglega stað, sem Þingvellir
eru.
Höfuðsmiður þessa yndis-
reits er náttúran sjálf en gest-
risnin og hjartahlýtt viðmótið
er yðar og samstarfsmanna
yðar. Vér Bretar eru jafnan
stoltir af hinum fornu þing-
stofnunum okkar en vér megum
játa, að yðar eru jafnvel eldri.
Fyrir meira en þúsund árum,
árið 930, kom hér saman fyrsta
þingið, hér stendur vagga
íslenskrar kristni og hér lýstu
íslendingar yfir sjálfstæði árið
1944.
Mér er það sjálfri sérstakt
ánægjuefni að vera hér stödd.
Langalangafi minn, Kristján
konungur IX., kom hér árið
1874 tU að fagna þúsund ára
afmæli íslandsbyggðar og kom
þá færandi hendi, hafði með sér
stjórnarskrána, sem ruddi
brautina fyrir fullveldi og síðar
sjálfstæði Islendinga.
Herra forsætisráðherra. Á
þessum sögufræga stað lyfti ég
glasi og drekk minni forseta
Islands og íslensku þjóðarinnar.
Við Nesjavallavirkjun
Gestalisti í
hádegisverði
forsætis-
ráðherra
GESTALISTI í hádegisverðarboði
forsætísráðherra og frú Eddu Guð-
mundsdóttur á Þingvöllum 26. júní,
til heiðurs hennar hátign Elísabetu
II Bretadrottningu og hans konung-
legu tign Filipp prins, hertoga af
Edinborg:
Húsbóndi og húsfreyja, forseti íslands
frú Vigdís Finnbogadóttir, utanríkisráð-
herra Jón Baldvin Hannibalsson og frú
Bryndís Schram, fjármálaráðherra Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti Sameinaðs
Alþingis Guðrún Helgadóttir, forseti
Hæstaréttar Guðmundur Jónsson og frú
Fríða Halldórsdóttir, séra Heimir Steins-
son og frú Dóra Þórhallsdóttir, sýslumað-
ur Ámessýslu Andrés Valdimarsson og
frú Katrín Karlsdóttir, fommaður Þing-
vallanefndar Ólafur G. Einarsson alþm.
og frú Ragna Bjamadóttir, sendiherra
íslands í Bretlandi Helgi Ágústsson og
frú Hervör Jónasdóttir, fylgdarmaður
hertogans af Edinborg Magnús Magnús-
son.
Drottning og hertogi, William Wal-
degrave varautanríkisráðherra, Richard
Best sendiherra og frú Best, greifaynjan
af Airlie, lafði Susan Hussey, sir William
Heseltine drottningarritari, sir Robert
Fellows vararitari, Robin Janvrin blaða-
fulltrúi, Norman Blacklock líflæknir,
David Walker hermálafulltrúi, Brian
McGrath ritari hertogans, Dominic Asqu-
ith ritari varautanríkisráðherrans, James
Beaton lífvörður drottningar, Richard
Griffín lífvörður hertogans.
Guðmundur Benediktsson ráðuneytis-
stjóri og frú Kristín Claessen, KometTUs
Sigmundsson forsetaritari, Hörður H.
Bjarnason siðameistari utanríkisráðu-
neytisins, Sigríður Gunnarsdóttir að-
stoðamaður siðameistara.
Einar Falur
Gunnar Dungal sýnir Bretadrottningu hesta í Dal í Mosfellssveit. Drottningin spurði inargs, enda kunn
fyrir áhuga á hestum.
kirkju eftir gönguferð niður Al-
mannagjá og stuttan akstur að
kirkjunni. Þar stiklaði sr. Heimir
Steinsson á því helsta í sögu Þing-
valla. Hann sagði líka frá gamalli
altaristöflu sem varðveitt er í
kirkjunni. Drottningin virtist
kannast við frásögn af því þegar
Magnús Magnússon fann töfluna
á Isle of Wright fyrir þrettán
árum. Þangað var hún gefin rúm-
um 70 árum fyrr, en Ófeigur Jóns-
son bóndi á Heiðarbæ málaði alt-
aristöfluna árið 1836.
Meðan á hádegisverðarboði fyr-
ir gestina stóð, bauð forsætisráð-
herra ijölmiðlafólki og öryggis-
vörðum í lautarferð eða „picnic“.
Um tugur breskra blaðamanna,
ljósmyndara og sjónvarpsmanna
eltu drottningu sína hingað til
lands. Nokkrir úr hópnum hugðust
halda áfram til Kanada til þess
að fylgjast með drottningunni þar.
Höfðu þeir á orði að spennandi
væri að heyra hvað drottning segði
um pólitískt ástand þar í landi.
Fiskmáltíð á Þingvöllum
Úr kirkjunni var gengið yfir í
bústað forsætisráðherra til hádeg-
isverðar. Steingrímur Hermann-
son og Edda Guðmundsdóttir kona
hans buðu hátt í 40 gestum til
málsverðarins í heiðursskyni við
drottninguna og hertogann.
Steingrímur bauð heiðursgestina
velkomna og drottning þakkaði
boðið í stuttri ræðu, sem birt er
hér í blaðinu. Pétur Jónasson lék
á gítar fyrir gesti forsætisráð-
herra.
Boðið var upp á létta fiskmáltíð
á Þingvöllum. Fyrst var borið fram
laxafiðrildi með smjörsósu og því
næst lúðukinnar með humarsósu.
í eftirrétt fengu gestirnir kramar-
hús með blábeijum. Við þennan
viðurgjörning dvaldist þeim um
hálfri stundu lengur en gert var
ráð fyrir, en haldið var áleiðis til
Reykjavíkur undir klukkan þijú.
Trjám var plantað á heimleið-
inni þar sem heitir Vinaskógur og
í bænum biðu drottningar og föru-
neytis hennar fleiri verkefni, mót-
tökur og veislur. Bresku gestirnir
halda af landi brott í dag.