Morgunblaðið - 27.06.1990, Page 25

Morgunblaðið - 27.06.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JUNI 1990 25* Sjö ljósmæður útskrifast Sjö ljósmæður útskrifuðust frá Ljósmæðraskóla Islands laugar- daginn 26. maí. Þær eru í aftari röð frá vinstri: Hrafiihildur L. Ævarsdóttir, Jóhanna Arnadóttir, Sigurbjörg Söebech, Asa Halldórsdóttir, Sigfríður Inga Karlsdóttir, Margrét I. Hallgríms- son og Sigurlinn Sváfnisdóttir. I fremri röð frá vinstri eru Guð- rún G. Eggertsdóttir, aðstoðaryfírljósmóðir, Gunnlaugur Snæ- dal próféssor, skólastjóri, Kristín I. Tómasdóttir, yfirljósmóðir, Jón Þ. Hallgrímsson dósent, yfirlæknir, og Eva S. Einarsdóttir, kennslustjóri. Tillögur Byggðanefiidar: Sveitarfélögin stofhi atvinnuþróunarfélög MEÐAL tillagna byggðarnefndar sem ríkisstjórnin setti á fót í vetur til að athuga með nýjar áherslur og langtímastefiiu í byggðamálum er að stofnuð verði atvinnuþróunarfélög á vegum sveitarfélaganna eða samtaka þeirra og þau efld sem fyrir eru, starfsemi Byggðastofn- unar verði breytt þannig að hún geti sinnt atvinnuþróunarstarfi í mun ríkara mæli en nú er og að stofnunin komi á fót samstarfi við rannsóknarstofhanir atvinnuveganna, Iðntæknistofnun Islands og Háskóla íslands um miðlun tæknilegra framfara til atvinnuþróunar. í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra stjórnmálaflokka á Alþingi, en formaður hennar er Jón Helgason, alþingismaður. Nefndin telur að iykiiatriði til þess að stöðva fólks- flutninga frá landsbyggðinni og jafna byggðaþróun sé að takist að efla atvinnulíf og fjölbreytni þess þar. Sú stefna sem nefndin mótaði Bryggjuhátíð á Reyðarfirði ÁRLEG Bryggjuhátíð verður á Reyðarfirði laugardaginn 30. júní. Hátíðin hefst kl. 14 og stend- ur fram eftir nóttu. Bryggjuhátíðin fer öll fram á hafnarsvæðinu í þetta sinn og þar með taldir hljómleikarnir um kvöld- ið. í fyrra fór öll kvölddagskráin fram í Félagslundi en þá var upp- selt. Núna fer allt fram í 700 fer- metra skemmu og afmörkuðu úti- svæði sem KHB á Reyðarfirði hefur lánað, því ekki veitir af þar sem landsfrægar hljómsveitir munu skemmta. Það eru fjögur félög sem standa að þessari hátíð. Þau eru Umf. Valur, Kvenfélagið, Lionsklúbbur- inn og JC. Einnig sjá önnur félög um smærri þætti. Foreldrafélag grunnskólans sér um tívolí og björg- unarsveitin um öryggisgæslu. Hátíðin verður sett kl. 14 með vmsum skemmtiatriðum, s.s. sjó- ferð, danssýningu og trúbadora- keppni. Hljómsveitirnar Trassarnir óg Rokkbandið leika og Bubbi Morthens kemur fram. Kl. 18.00 verður útigrill og fjöldasöngur. Hápunktur hátíðarinnar verða hljómleikar um kvöldið þar sem Trassarnir, Rokkbandið og Bubbi Morthens leika. Aðgangur inn á hátíðarsvæðið um daginn verður ókeypis en selt verður inn á tónleikana um kvöldið. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 26. júní. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 97,00 67,00 88,74 5,514 489.329 Smáþorskur 65,00 65,00 65,00 0,736 47.831 Ýsa 140,00 80,00 124,78 1,335 166.523 Karfi 32,00 32,00 32,00 2,919 93.408 Ufsi 33,00 33,00 33,00 0,691 22.813 Smáufsi 20,00 20,00 20,00 0,020 390 Steinbítur 70,00 70,00 70,00 0,680 47.575 Langa 44,00 44,00 44,00 0,367 16.148 Lúða 300,00 100,00 133,73 0,739 98.825 Koli 45,00 10,00 42,28 0,226 9.535 Keila 42,00 42,00 42,00 1,072 45.020 Gellur 285,00 285,00 285,00 0,055 15.675 Samtals 73,37 14,352 1.053.072 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur(st) 104,00 78,00 91,83 11,683 1.072.820 Þorskur(smár) 76,00 76,00 76,00 0,111 8.436 Ýsa (sl.) 142,00 65,00 108,32 2,732 295.927 Karfi 38,00 20,00 30,27 40,992 1.240.626 Ufsi 42,00 36,00 41,37 4,299 177.839 Steinbítur 73,00 73,00 73,00 0,692 50.516 Langa 45,00 32,00 39,55 0,205 8.107 Lúða 280,00 225,00 258,89 0,167 43.235 Skarkoli 49,00 25,00 25,88 2,220 57.444 Keila 29,00 29,00 29,00 0,156 4.524 Tindabikkja 5,00 5,00 5,00 0,043 215 Undirmál 76,00 15,00 63,29 1,104 69.874 Skötuselur 350,00 350,00 350,00 0,065 22.750 Grásleppa 30,00 30,00 30,00 0,050 1.800 Samtals 47,33 64,529 3.054.113 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 115,00 78,00 87,22 15,598 1.360.470 Ýsa 98,00 71,00 86,93 37,975 3.301.350 Karfi 35,00 32,00 33,62 5,366 180.412 Ufsi 38,00 30,00 36,62 4,518 165.440 Steinbítur 49,00 49,00 49,00 0,587 28.763 Langa 273,00 45,00 82,41 1,664 137.124 Lúða 265,00 165,00 225,13 1,078 242.635 Skarkoli 56,00 56,00 56,00 0,300 50.400 Sólkoli 70,00 70,00 70,00 0,054 3.780 Keila 25,00 25,00 25,00 1,000 25.300 Skata 132,00 55,00 127,45 0,372 47.4,10 Skötuselur 400,00 400,00 400,00 0,213 85.200 Koli' 56,00 56,00 56,00 0,311 17.416 Blandað 30,00 30,00 30,00 0,100 3.000 Undirmál 39,00 19,00 31,09 0,506 15.734 Langlura 20,00 20,00 20,00 0,450 9.000 Öfugkjafta 25,00 25,00 25,00 1,220 30.500 Samtals 79,31 71,912 5.703.694 ■ HINN árlegi hreinsunardag- ur Sumarbústaðafélagsins við Meðalfellsvatn verður haldinn laugardaginn 30. júní nk. Að vanda eru félagar og þeir er málið varðar beðnir að hreinsa í kringum sig við fjörur og í hlíðum jafnt sem á lóðum félaga eftir veturinn. Stjórn Sumar- bústaðafélagsins mun svo sjá um að koma því rusli sem lagt verður við veginn á brennuna. Kveikt verð- ur í brennunni, sem staðsett verður austan megin við vatnið, um kl. 20 og munu pylsur og gos verða fram- reitt í tjaldi Sumarbústaðafélagsins. Hreinsunardeginum lýkur svo með dansleik fyrir alla fjölskylduna í vikunni og mun dúettinn „SIN“ leika eitthvað fram yfir miðnætti. ■ FJÖLBRA UTASKÓLI Vest- urlands á Akranesi býður ferða- mönnum upp á gistingu í heimavist skólans í sumar.í Gistiheimilinu Ósk eru 32 tveggja manna her- bergi með baði, ísskáp og eldunar- aðstöðu. Boðið verður bæði upp á uppábúin rúm og svefnpokapláss í rúmi. Tekið er við fyrirspurnum og pöntunum í Gistiheimilinu Ósk. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA GÁMASÖLUR í Bretlandi 26. júní. Þorskur 162,45 117,69 Ýsa 177,37 140,90 VESTUR-ÞÝSKALAND 26. júní. Þorskur 127,68 106,99 Ýsa '214,71 106,99 Ufsi 124,83 92,73 Karfi 144,80 71,33 í þessiim málum er að byggðastefna sem byggi einvörðungu á landbún- aði og sjávarútvegi á landsbyggð- inni sé ekki árangursrík. Samhliða vaxandi fjölbreytni og betri nýtingu á möguleikum í hinum hefðbundnu atvinnugreinum verði að styðja sér- staklega við iðnað og þjónustu. Þá segir að ríkisvaldið geti haft bein áhrif á atvinnu og byggðaþró- un með staðarvali stórfyrirtækja, tilhögun opinberrar þjónustu og ekki síst með stjórn landbúnaðar og sjávarútvegs. í því sambandi skipti miklu máli að að almenn éfna- hagsstjórn tryggi jafnvægi í efna- hagslífinu og gengisskráningu sem miðist við viðunandi rekstraraf- komu framleiðsluatvinnugreinanna, að ríkisstjórn og Alþingi gæti þess við ákvarðanir um uppbyggingu atvinnureksturs og í stefnumótun á öðrum sviðum að þær stuðli að hagkvæmri byggðaþróun og að ríkisvaldið jafni kostnað við opin- bera þjónustu um land allt á þeim sviðum þar sem það hefur tök á og aðstæður leyfa bæði fyrir at- vinnurekstur og einstaklinga. Síðan segir: „Atvinnuþróun á hveijum stað hlýtur fyrst og fremst að byggjast á vilja, þekkingu, dugn- aði og framtaki þeirra sem þar vilja hasla sér völl. Hins vegar þarf við stofnun atvinnurekstrar að tryggja í ríkum mæli þekkingu og fjármagn sem mörgum verður ofviða nema sköpuð séu hagstæð skilyrði til þess. Þess vegna er mikilvægt að mynda samtök sem geta veit slíka aðstoð og hvatt til athafna.“ Einnig segir: „Það er ekki ætlun nefndarinnar að ríkisvaldið taki aA sér aukna ábyrgð á atvinnuþróun í landinu heldur er atvinnuþróunarfé- lögum ætlað að sinna undirbúningi að stofnun fyrirtækja sem verða síðan á ábyrgð þeirra sem rekstur- inn annast þannig að ríkisvaldið styðji heimaaðila en stjórni þeim ekki.“ Siglufjörður: Gróðursetn- ingarátak gekk vel Siglufirði. Gróðursettar hafa verið 11.500 trjáplöntur í hlíð vest- an við Siglufjarðarbæ í tengslum við landgræðslu- skógaverkefnið, Átak 1990. Gróðursetningin stóð ýfir í rúma viku og tóku milli 40 og 70 manns þátt í henni. Verkið gekk vel og fór fram í góðu veðri og tókst að ljúka því sl. föstudag áður en veðrið versn- aði en það hefur verið kalt og leiðinlegt allra síðustu daga. - Matthías Leiðrétting í frásögn af afmælishófi Sam- bands ungra sjálfstæðismanna, sem birtist í blaðinu í gær, var rangt farið með nafn eins af stofnendum SUS, Stefáns Jónssonar, og hann nefndur Sigurður. Blaðið biður Stefán og aðra lesendur velvirðing- ar á mistökunum. Leiðrétting í frétt í Morgunblaðinu í gær um opnun fjallvega var rangt farið með heiti. Tröllatunguheiði var nefnd Fljótatunguheiði og í stað Þverár- ijalls á Skaga var rætt um Kverk- fjall, sem ekki er til á Skaga. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. ÚR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 22.-24. júní Lögreglan hafði afskipti af 84 ölvunartilvikum um helgina, auk annarra mála þar sem ölv- aðir einstaklingar komu við sögu. Alls gistu 56 fanga- geymslur lögreglunnar, 22 að- fararnótt laugardags, 23 að- fararnótt sunnudag og 11 að- fararnótt mánudags. 9 þeirra óskuðu sjálfir gistingar þar sem þeir áttu hvergi annars staðar höfði sínu að halla. 5 umferðarslys urðu um helg- ina. Ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild úr bifreið, sem lenti f óhappi við Nesjavalla- afleggjara á föstudagsmorgun. Ökumaður slasaðist í bílveltu á Kringlumýrarbraut og Miklu- braut á föstudag. Maður datt af reiðhjóli aðfaranótt laugar- dags. Farþegi meiddist í árekstri tveggja bifreiða á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaða- vegar á laugardagsmorgun og um kvöldið slasaðist fernt í árekstri tveggja bifreiða á gatnamótum Hæðargarðs og Grensásvegar. Lögreglan áðstoðaði 32 við að komast inn í læst ökutæki sín. Fuli ástæða er fyrir fólk að læsa ökutækjum sínum, en ekki má gleyma að taka áður lykilinn úr kveikjulásnum. Þá voru 10 aðstoðaðir við að komast inn í læstar íbúðir og 12 aðrir voru aðstoðaðir við ýinislegt annað. Tilkynnt var um 8 innbrot og 8 þjófnaði. Brotist var inn í skóla, verksmiðjuhúsnæði, veit- ingastað og íbúðarhús. Lykli að bifreið var stolið, reiðhjólum, tjaldi, jakka með ávísunum og húslykli og útvarpstæki. Tveir menn voru handteknir á hlaup- um eftir að hafa reynt að stela tjaldi við BSÍ. Maður var hand- tekinn eftir innbrot í veitinga- hús. 3 voru staðnir að búðar- hnupli. Þess ber að geta að í mörgum verslunum eru viðvör- unarkerfi, auk þess sem starfs- fólk er mjög vakandi fyrir hugs- anlegu hnupli. 67 ökumenn voru kærðir fyr- ir of hraðan akstur. 11 eru grun- aðir um að hafa verið undir áhrifum áfengis við akstur, en ekki er vitað til þess að ölvaður ökumaður hafi lent í óhappi um helgina. Þá voru margir staðnir að því að aka á móti rauðu ljósi. 2 voru teknir réttindalausir við akstur. Tilkynnt var um 11 skemmd- arverk, 5 rúðubrot og 4 líkams- meiðingar. Skemmdarverkin voru framin á bifreiðum, um- ferðarskilti, blómum á Austur- velli og tijágróðri. Skemmdar- vargarnir voru í sumum tilvikum fullorðið fólk undir áhrifum áfengis. Rúður voru aðallega brotnar í húsum nálægt rnið- bænum. Fjórir voru handteknir eftir að veist hafði verið að manni í húsi við Laugaveg. Tveir menn voru handteknir eftir að hafa stolið greiðslukorti og reynt notkun þess. Þvotti var stolið af snúru við íbúðarhús. Sá, sem það gerði var handtekinn skömmu síðar íklæddum þvottinum, rökum gallabuxum og skyrtu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.