Morgunblaðið - 27.06.1990, Qupperneq 26
*26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JUNI 1990
Gjöf til Kjarnalundar
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur á Akureyri hefur gefið Náttúrulækningafélagi Akureyrar 350 þúsund krón-
ur að gjöf og var hún afhent fyrir skömmu. Féð á að nota til að koma upp hreinlætisaðstöðu í kjallara
Kjamalundar í Kjarnaskógi og er stefnt að því að heija framkvæmdir í sumar. Aðstaðan mun nýtast gest-
um sem koma í skóginn sér til skemmtunar. „Þetta er kærkomin gjöf til að koma lífi í húsið,“ sagði
Áslaug Kristjánsdóttir, formaður Náttúrulækningafélagsins, en hún tók við gjöfinni úr hendi Kristins Jóns-
sonar formanns Kaldbaks. Með þeim á myndinni eru nokkrir félagar úr Kaldbak og Náttúrulækningafélaginu.
Kuldalegt á Norðurlandi:
Nýfallinn snjór í flöllum
ÞAÐ HEFUR ekki viðrað vel á ferðamenn á Norðurlandi síðustu
daga og í gærmorgun þegar tjaldbúar skriðu úr svefiipokum sínum
mætti þeim óvanaleg sjón; nýfallinn snjór í fjöllum. Smá fól var á
tjaldstæðinu í Ásbyrgi í gærmorgun, en þar voru nokkur tjöld,
ferðahópur fiá Guðmundi Jónassyni hætti við að reisa tjöld og
gisti inni þess í stað. í Vesturdal er enn lokað, en þar var jörð alhvít
í gærmorgun. Snjór var yfir öllu í Mývatnssveit í gærmorgun, en
hann tók fljótt upp.
Á tjaldstæðinu á Akureyri vom
um 75 manns í fyrrinótt, að lang-
stærstum hluta útlendingar sem
ferðuðust saman í hóp. Bergljót
Þrastardóttir tjaldvörður sagði að
'Tólkið hefði verið vel búið, en hiti
var við frostmark. „Við gáfum
fólkinu heitt kaffi hér inni hjá
okkur áður en það fór að sofa,“
sagði Bergljót.
Kristján Þórhallsson fréttaritari
Morgunblaðsins í Mývatnssveit
sagði dæmi þess að áður hefði
gert hret í júní og jafnvel í júlí.
Hann sagði að grátt hefði verið
niður að Mývatni í gærmorgun,
en byijað hefði að snjóa í fyrra-
kvöld. Snjóinn hefði fljótt tekið
upp, en enn væri þó snjór í Kröflu
og í suðurfjöllunum. Fimm stiga
hiti var í Mývatnssveit í gærdag.
Mjólkurbíllinn frá Húsavík kom
um klukkutíma síðar en venja er
til í Mývatnssveitina í gær, en þar
sem nokkur hálka var á Kísilvegin-
Guðmundur Armann
sýnir 1 Svíþjóð
^GUÐMUNDI Ármann myndlist-
armanni hefúr verið boðið að
halda grafíksýningu í saíninu
Tidaholms rnuseum í bænum
Tidaholm í Svíþjóð.
Tidaholm er lítill bær í Vestur-
Gautlöndum, nálægt einu af
stærstu vötnum í Svíþjóð, Vátten.
Tidaholm er meðal annars vagga
sænska bílaiðnaðarins og þar var
ein fyrsta og stærsta eldspýtna-
verksmiðja veraldar. Þá sögu
geymir og segir Tidaholmssmuse-
~um, jafnframt því sem þar eru list-
sýningar fastur liður í starfsem-
inni.
Sýning Guðmundar Ármanns
verður opnuð 7. júlí næstkomandi
og á henni verða 25 dúkristur,
flestar unnar á árunum 1989 og
-1990. Sýningunni lýkur 2. septem-
ber næstkomandi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Guðmundur Ármann myndlistar-
maður við vinnu slna.
um lentu nokkrir bílar í vandræð-
um og tafðist hann af þeim sökum.
Kristín Svavarsdóttir landvörð-
ur í Ásbyrgi sagði að smáföl hefði
verið á ytra tjaldstæðinu í gær-
morgun og hefði hana tekið upp
um hádegisbil. Um 15 tjöld voru
á svæðinu, en hópur fólks á vegum
Guðmundar Jónassonar sem ætl-
aði að gista á tjaldstæðinu fékk
inni í Lundi. Eitt tjald var á tjald-
stæðinu inni í byrginu sjálfu, þar
voru á ferð íslendingar sem tóku
sig upp snemma í gærmorgun.
„Fólkinu var kalt, en það kvartaði
ekki. Menn voru bara nokkuð
borubrattir," sagði Kristín. Slydda
var í Ásbyrgi um hádegi og kalt,
en að sögn Kristínar var að birta
til.
Enn er lokað í Vesturdal, en
þar var snjór yfir öllu í gærmorg-
un.
Sýningá
heimilisiðnaði
Nú stendur yfir sýning á nor-
rænum heimilisiðnaði á Amts-
bókasafninu á Akureyri. Sýning-
unni er skipt upp í einingar þar
sem sýndir eru munir frá hverju
landi fyrir sig, en margs konar
munir eru á sýningunni, vefnað-
ur og smámunir af ýmsu tagi.
Um er að ræða farandsýningu,
frá Noregi fór sýningin til Fær-
eyja og þaðan til Islands, en
sýning þessi hefur lengi staðið
yfir á Þjóðminjasafninu. Sýning-
in stendur yfir á Amtsbókasafn-
inu fram í júlí og fer héðan til
Egilsstaða, en opnunartími er
sá sami og safnsins, frá kl. 13-19
virka daga. Á myndinni eru
Svíar að virða fyrir sér heimilis-
iðnað nágranna sinna í Noregi.
Aðalfiindur MENOR
haldinn á Kópaskeri
AÐALFUNDUR Menningarsam-
taka Norðlendinga, MENOR,
verður haldinn á Kópaskeri á
sunnudaginn kemur, 1. júlí, og
hefst kl. 13.00.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg
aðalfundarstörf og önnur mál. Ráð-
stefna verður haldin um menningar-
mál og listir í Norður-Þingeyjar-
sýslu kl. 17.30 á sunnudaginn.
Framsögumenn verða fulltrúi frá
Héraðsnefnd Norður-Þingeyjar-
sýslu, Sigurbjörg Jónsdóttir sveitar-
stjóri á Raufarhöfn, Pétur Þor-
steinsson skólastjóri Grunnskólans
á Kópaskeri, sem mun fjalla um
notkun tölvu í menningarsamskipt-
um og Haukur Ágústsson formaður
MENOR. Að loknum framsöguer-
i'ndum verða almennar umræður.
Menningarsamtök Norðlendinga
voru stofnuð árið 1982 og hafa þau
að markmiði að efla og styðja
menningar- og listastarf í Norð-
lendingafjórðungi. Markmiði sínu
hyggjast þau ná með því að afla
upplýsinga og dreifa þeim, veita
fyrirgreiðslu, auka kynni á meðal
áhuga- og atvinnumanna í listum
og menningu innan Ijórðungsins,
kynna lista- og menningarstarfsemi
á Norðurlandi og efla umfjöllun um
hana í ijölmiðlum, leitast við að
bæta aðstöðu til starfa að menningu
og listum og standa fyrir sérhæfð-
um verkefnum.
Sannkallaður
happadráttur
- segir Jón Magriússon um veiði-
ferð í Húseyjarkvísl
JÓN Magnússon, starfsmaður
Tölvutækis-Bókvals á Akur-
eyri, fór ekki erindisleysu í
Skagafjörðinn um helgina, en
hann veiddi stærsta laxinn sem
veiðst hefur í Húseyjarkvísl í
sumar, 19 punda hæng.
Tildrög þess að Jón var staddur
í Húseyjarkvísl voru þau að í vet-
ur var honum boðið á árshátíð
veiðifélagsins Straumar á Akur-
eyri, þar sem efnt var til happ-
drættis. Jón var svo stálheppinn
að vinna tvo af þremur vinningum
sem í boði voru, en vinningarnir
voru veiðiferðir.
Jón var að taka út fyrri vinning-
inn, einn dag í Húseyjarkvísl í
Skagafirði, þegar sá stóri beit á.
Laxinn var 19 punda hængur og
veiddist í Laxhyl. Sá stóri ætlaði
ekki að gefa sig fyrr en í fulia
hnefana og tók Jón hálftíma stöð-
uga baráttu að landa fiskinum,
en hann tók spún, 15 gramma
svartan Salar.
Húseyjarkvísl var opnuð um
miðjan maí og hefur verið reyt-
ingsveiði frá þeim tíma, allt að
fimm laxar á dag. Lax Jóns er
sá stærsti sem veiðst hefur í Hús-
eyjarkvísl á þessu sumri og reynd-
ar stærri en sá sem stærstur
veiddist á síðasta sumri, en sá var
18 pund.
„Þetta var sannkallaður happa-
dráttur og nú bíða menn spenntir
eftir að ég taki út seinni vinning-
inn, en það er einn dagur í Laxá
í Aðaldal," sagði Jón.
Jón Magnússon með 19 punda
hæng úr Húseyjarkvísl, en Jón
vann einn dag í ánni í happ-
drætti á árshátíð veiðifélagsins
Strauma í vetur.
Morgunblaðið/Rúnar Þðr