Morgunblaðið - 27.06.1990, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 27.06.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JUNI 1990 29 Hótelstj óraskipti í Stykkishólmi Stykkishólmi. HÓTELSTJÓRASKIPTI urðu á Hótel Stykkishólmi nú í júní. Sigurður Skúli Bárðarson, sem hér hefír haft forstöðu hótelsins í 9 ár, hefir ráðið sig að Hótel Holti í Reykjavík sem aðstoðar- hótelsfjóri, og við er tekinn Gunnar Kristjánsson. Gunnar Kristjánsson hefir stundað nám í Miami á Flórída í Bandaríkjunum og hefir þaðan mastersgráðu í hótelrekstri. í við- tali sem fréttaritari átti við hinn nýja hótelstjóra sagðist hann vera bjartsýnn á að taka að sér þetta verkefni, það væri líka vel undir- búið og gatan rudd. „Við erum að bæta þremur her- bergjum við til gistingar, því það er nærri allt upppantað í sumar. Andrúmsloftið hér er gott og þá ekki síður starfsfólkið. Stykkis- hólmur er svo sannarlega ferða- mannabær. Ég er ekki ókunnur Ilólminum og hef komið hingað mörg sumur,“ sagði Gunnar hótel- stjóri. - Árni Morgunblaðið/Ámi Helgason Gunnar Kristjánsson, nýráðinn hótelstjóri í Stykkishólmi. ■ ÁRSFUNDUR Fulltrúaráðs' Bréfaskólans var haldinn 13. júní sl. að Hallveigarstöðuni við Tún- götu. Bréfaskólinn varð sjálfseign- arstofnun í janúar á þessu ári og er eini skólinn á landinu sem ein- göngu hefur fjarkennslu á sinni könnu. Skólinn hefur verið starf- ræktur óslitið síðan 1940. í haust á hann því 50 ára afmæli. Stærstu íjöldasamtökin í landinu reka áfram Bréfaskólann.Þau eru Alþýðu- samband íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Far- manna- og fiskimannasamband Islands, Kvenfélagasamband Is- lands, Samband íslenskra sam- vinnufélaga, Stéttarsamband bænda og Ungmennasamband íslands. Á fundinum greindi skóla- stjóri Bréfaskólans, Guðrún Frið- geirsdóttir, frá skólastarfi liðins árs og formaður skólastjórnar, Ingibjörg E. Guðmundsdóttir, skýrði reikninga og sagði frá störf- um stjórnarinnar. Innritaðir nem- endur Bréfaskólans voru 924 síðastliðið ár en 885 árið 1988.^ Samstarf við aðra fræðsluaðila efld- ist mikið á liðnu ári. Þeir helstu eru nú Bankamannaskólinn, Ferða- þjónusta bænda, Iðntæknistofn- un íslands, Námsllokkar Reykjavíkur, bókafúlltrúi ríkis- ins, menntamálaráðuneyti og Blindrabókasafnið og í undirbún- ingi er samstarf við bændaskólana. Fimm ný bréfanámskeið hófu göngu sína á árinu. Ásókn í ýmiss konar starfsmenntun fer nú vax- andi, t.d. í bókavarðanám, siglinga- fræði, landbúnaðarhagfræði, bók- færslu, vaxta- og verðbréfareiknin^i o.fl. Tilkynning um útboð markaðsverðbréfa. ^ *á Hlutabréf í Olíuverzlun íslands hf. Heildarnafnverð 50 milljónir króna. Sölugengi 27.06.’90; 1,70 Stærðir hluta að lágmarki kr. 30.000,- að nafnverði. ítarleg útboðslýsing liggurframmi hjá Landsbréfum hf., útibúum Landsbanka íslands og Samvinnubanka íslands. Nánari upplýsingar veita Landsbréf hf. OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HF Héöinsgata 10,105 Reykjavlk sími 91-68 98 00 BB m LANDSBRÉF Suðurlandsbraut 24, Rvk. sími (91) 60 60 80 Löggilt verðbréfafyrirtæki.- Aðili aö Veröbréfaþingi íslands ( ( ( l ( ( ( ( ( ( <— SX/Lr- KRAFT VERKFÆRI ^ - ÞESSI STERKU HLEÐSLUVÉLAR SKRÚFJÁRN Gerð 2210H 3,6 volta mótor hraði 180 sn./mín. báöar snúningsáttir þyngd 500 grömm IÐNAÐARBORVÉL Gerð 2735H - 12voltamótor - 10mmpatróna - 2ja gíra drif - 5 þrepa átakskúpiing - stiglaus hraðarofi fra 0-500/1650 sn./mín. - báöar snúningsáttir - hleðslutími rafhlöðu 1 klst. EIGUM ÁVALLT FJÖLBREYTT ÚRVAL SKIL RAFMAGNS- HANDVERKFÆRA OG FYLGIHLUTA JAFNT TIL IÐNAÐAR- SEM HEIMILISNOTA ÞAÐ BORGAR SIG AÐ N0TA ÞAÐ BESTA Þekking Reynsla Þjónusta FALKINN I ( I ( .( I I II I I SUÐURLANDSBRAUT 8 SiMI 84670 KENNSLA Vélritunarkennsla Vélritunarskólinn, s. 28040. TILKYNNINGAR Aðalfundur handknatt- leiksdeildar KR verður haldinn í félagsheimilinu fimmtudaginn 5. júlí 1990 kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. F ÉLAGSÚF Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur í kvöld kl. 20.30: „Lifandi steinar í lifandi bygg- ingu". Rœðumaður: Hafliöi Krist- insson. Allir hjartanlega velkomnir. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. 'X&t' SAMBAND ÍSLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Samkoma verður t kristniboðs- salnum, Háaleitisbraut 58, í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður: Þórarinn Björnsson. Allir velkomnir. 0 ÚTIVIST GRÓFINNI1 • REYKJAVÍK * SÍMIAÍMSVARI14606 Kvöldganga 27/8. Gjárétt-Búrfellsgjá. Brott- för kl. 20 frá BSÍ-bensínsölu. VerÖ kr. 800. Þórsmerkurgangan Kvöldferð 28/6. Gengið frá Fjalli um Hellisbrú, elstu vegagerð á Suðurlandi frá 1840. Ferjað yfir Ölfusá é hinum forna ferjustað, Laugdaelaferju. Kallað verður á ferju fré Kallþúfu og Þórarinn Sigurjónsson „ferjubóndi" Laugadælum kemur yfir á ferju- báti. Slysavarnadeildin Tryggvi Gunnarsson annast ferjunina. Þetta verða fyrstu meiriháttar mannflutningar síðan ferjustað- urinn var lagður af 1891 með tilkomu Ölfusárbrúar. Að lokinni ferjun, gengið niður að Ölfusár- brú. Rútan fylgir hópnum. Leið- sögum. Guðmundur Krístinsson. Brottför kl. 20 frá BSÍ-bensín- sölu, kl. 21 frá Fossnesti, Sel- fossi. Verð kr. 1000. Sjáumst. Útivist. 0 ÚTIVIST GRÓFINNI1 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606 Um næstu helgi 29/6-1/7 Skagafjörður - Drangey Gengið í land í Drangey. Stór- brotin náttúra og mikið fuglalíf. Fimmvörðuháls - Básar Ægifögur gönguleið upp með Skógaá yfir Fimmvörðuháls og niður á Goðaland. Góö gisting í Útivistarskálunum í Básum. Pantið tímanlega. Básar - Goðaland Sælureitur í óbyggðum. Ferð um hverja helgi. Fáein sæti laus 29/6. Pantið tímanlega. Sumarleyfisdvöl í Básum Sérstakt afsléttargjald á gistingu ef dvalið er milli ferða. I Útivistarferð eru allirvelkomnir! Sjáumst. Útivist. 0 ÚTIVIST GRÓFINN11 • RFYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVAItl 14606 Sumarleyfisferðir Ferðist um ísland í sumarleyfinu í góðum félagsskap. Hornstrandir eru engu líkar! 4.-13-/6: Hornvík: Tjaldbæki- stöð. Gönguferðir um stórbrotið landsvæði m.a. á Hornbjarg, í Látravík og Rekavík. Fararstj. Gísli Hjartarson. 4.-13./6: Aðalvík - Hornvík: Bakpokaferð. Tilvalin ferð til þess að kynnast Hornströndum vel. Gengið um svæði sem róm- uð eru fyrir náttúrufegurð og mikilfengleika. Undirbúnings- fundur á skrifstofu Útivistar, Grófinni 1, þriðjud. 26/6 kl. 18. Mikilvægt að allir þátttakendur mæti. Fararstj. Sigurður Sigurð- arson. Tværgóðar bakpokaferðir 6.-10./6: Kalmanstunga - Hveravellir: Ný gönguleið um mikilfenglegt svæði. Dagur á Hveravöllum í lok ferðar. Far- arstj. Reynir Sigurðsson. 8.-12./6: Landmannalaugar - Þórsmörk: Hinn vinsæli Laugavegur óbyggðanna, sem allir geta gengið. Svefnpokagisting. Dag- ur í Básum í lok ferðar. Fararstj. Haukur P. Finnsson. Hjólreiðaferðir Ódýr og hollur ferðamáti. 7-11/6 Hlöðuvellir-Haukadalur. Göngutjöld. Fararstjóri Egill Pét- ursson. Pantið tfmanlega i sumarleyfis- ferðir. Miðar óskast sóttir viku fyrir brottför. Sjáumst. Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Helgarferðir 29. -1. júlí: 1. Þórsmörk - gist f Skag- fjörðsskála/Langadal. Léttar gönguferðir um Mörkina. i Skagfjörðsskála eru öll nauð- synleg þægindi. Ódýr sumarleyf- isdvöl. 2. Breiðafjarðareyjar. (Brottför kl. 19.00). Gist í Stykkishólmi (svefnpoka- pláss). Siglt um Suðureyjar á laugardag (bergmyndanir og fuglabjörg skoðuð). Gengið á land i Öxney. Gengiö um Purkey og dvalið fram eftir degi. A sunnudag verður siglt til Flateyjar. 3. Hítardalur - Tröllakirkja - Gullborgarhetlar. Gist í tjöldum i Hitardal. Sérstök náttúrufegurð og áhugavert umhverfi í Hitardal. Brottför i ferðir 1 og 3 er kl. 20.00 frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar og upp- lýsingar á skrifstofunni, Öldu- götu 3. Ferðafélag Islands. FERÐAFÉLAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Ferðir Ferðafélagsins Miðvikudagur 27. júni: Kl. 8.00 Þórsmörk - dagsferð. Sumarleyfi i Þórsmörk hjá Ferða- félagi islands er ódýrt og eftir- minnilegt. Aðstaðan í Skag- fjörðsskála með þvi besta sem gerist. Kynnið ykkur hagstætt r verð á dvöl i Þórsmörk. Ki. 20.00 Búrfellsgjá. Gengið eftir sérstæðri hraunröð að Búr- fellsgignum. Létt gönguferð í fallegu umhverfi. Verð kr. 600,-. Ath. Laugardaginn 30. júni kl. 8.00 gönguferð á HEKLU. Farmiðar i dagsferðir seldir við bíi á Umferðarmiöstöðinni, aust- anmegin. • Ferðafélag íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.