Morgunblaðið - 15.07.1990, Blaðsíða 2
IUH3
8 _______________________________ijúi. ai MaoAQ'j/.K-JS ai(iAjaK')Oiio>
2 FRÉTTIR/IIMNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ
Markaður íyrir sel-
skinn er að lifna við
BÚVÖRUDEILD SÍS mun að líkindum takast að selja þriggja ára
gömul selskinn, sem ógerningur hefur reynst að koma í verð til þessa.
Nýlega samdi búvörudeildin við Dani um sölu á kópaskinnum. Verð
skinnanna er þó mjög lágt. Frá þessu er greint í fréttabréfi sem Búnað-
arsamband íslands sendir selabændum.
Ifréttabréfinu segir að grænlensk
selskinn seljist í vaxandi mæli í
Danmörku. Markaðurinn sé tekinn
að glæðast þótt verð sé enn í lág-
marki. Skinnin eru notuð í pelsa, föt
og ýmsa muni. Heita má að undan-
farin ár hafi ríkt ördeyða á markaði
fyrir selskinn og er ein orsök þess
markviss barátta umhverfisverndar-
samtaka gegn selveiðum.
Vestmannaeyjar:
Guðjón Hjörleifsson
líklega bæjarstjóri
„MÁLIÐ er ekki frágengið en ég get staðfest það að líklegt er að
Guðjón Hjörleifsson verði næsti bæjarstjóri," segir Sveinn Valgeirs-
son, fimmti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum,
um mögulega ráðningu Guðjóns, sem er aðstoðarsparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Vestmannaeyja.
Sveinn sagði að leitað hefði verið
til Guðjóns og viðbrögð hans
verið jákvæð. Ráðniiigin yrði því
að öllum líkindum í höfn í næstu
viku.
í samtali við Morgunblaðið stað-
festi Guðjón að leitað hefði verið
til sín en vildi að öðru leyti ekkert
tjá sig um málið.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Stal bíl ogneitaði að stöðva
15 ÁRA piltur stal bíl í Mosfellsbæ um klukkan 6 í gærmorgun og ók
áleiðis til Reykjavíkur. Lögreglumenn mættu piltinum við Lágafell þar
sem hann ók skrykkjótt á miklum hraða. Hann sinnti ekki stöðvunar-
merkjum heldur jók enn hraðann. Lögreglan veitti bílnum eftirför og
setti upp tálma við Höfðabakka. Þar beygði pilturinn norður Höfða-
bakka. Þar ákvað lögreglan að stöðva aksturinn með því að aka í hlið
bifreiðarinnar. Það tókst án þess að meiðsli hlytust af en bíllinn skemmd-
ist nokkuð. Pilturinn var handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann
virtist mjög ölvaður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungir skóburstarar í Kolaportinu
íslendingar hafa stundum feng-
ið orð fyrir að ganga á illa burst-
uðum skóm. Tvær framtakssamar
ungar stúlkur, þær Sólveig
Regína Biard og Arnheiður
Bjarnadóttir, hafa nú skorið upp
herör gegn þessum ósið og bjóða
upp á skóburstunarþjónustu í
Kolaportinu á laugardögum, en
ekki hefur verið völ á slíku í höfuð-
borginni um langt árabil. Að sögn
stelpnanna notfæra margir sér
þessa þjónustu, sem kostar aðeins
50 krónur. Á laugardaginn fyrir
rúmri viku höfðu þær 1.200 krón-
ur upp úr deginum, en peningana
leggjaþærfyrir. „Súperþjónusta,"
sagði viðskiptavinurinn, sem beið
þess að geta speglað sig í skónum
sínum.
Ríkisútvarpið býður 70% afslátt af auglýsingum:
Samkeppnin við RUV
verður sífellt ójafiiari
- segir Páll Þorsteinsson útvarpsstjóri Bylgjunnar
„ÉG HEF aldrei áður rekið mig
á svona mikinn afslátt á auglýs-
ingabirtingum. Þetta er ýkt
dæmi um hversu ójafn leikurinn
er milli einkastöðvanna og
Rikisútvarpsins. Einkafyrirtæki
hefur engin ráð til að mæta
slíkri samkeppni, en Ríkisút-
varpið getur auðveldlega skák-
að í skjóli afnotagjaldanna,"
segir Páll Þorsteinsson útvarps-
stjóri Bylgjunnar. Ríkisútvarpið
bauð fyrr í þessum mánuði fyrir-
tækjum auglýsingar með 70%
afslætti.
Verslunarmannahelgi með
gömlu og nýju sniði framundan
VERSLUNARMENN og aðrir íslendingar hafa nú um nálægt níu
áratuga skeið gert sér glaðan dag fyrstu helgina í ágúst. Skipu-
lagðar útihátíðir fóru að njóta vaxandi vinsælda í byrjun sjöunda
áratugarins og eru ótaldir þeir staðir sem orðið hafa vettvangur
slíkra samkoma. Eftir hefðinni er þar fjölskrúðugt, og höfúgt
mannlíf. En ef marka má fregnir af þeirri verslunarmannahelgi
sem í hönd fer dagana 4.-6. ágúst er þessi rammíslenski siður nú
á nokkru undanhaldi.
Raunar láta ótaldir ferðalangar
í skemmtanaleit sér nægja
að slá upp tjöldum á fjölfömum
ferðamannastöðum þessa helgi.
Nægir þar að nefna Þórsmörk,
Laugarvatn, Húsafell, Þingvelli
og Landmannalaugar. Hér er fátt
eitt talið því framar öllu er versl-
unarmanna-
helgin hátíð
víðförulla
ferðamanna,
sem gerast
aldrei fleiri á
þjóðvegum
landsins.
Marga fýsir þó í skipulagða
skemmtun og hana verður að
finna í þremur fjórðungum að
þessu sinni eftir því sem næst
verður komist. Tvær af rótgrón-
ustu útihátíðunum keppa að að
þessu sinni um hylli landsmanna:
Bindindismótið í Galtalækjarskógi
er haldið í þrítugasta sinn og Þjóð-
hátíð Vestmannaeyja fer fram í
Hetjólfsdal að fomum sið.
Gestir á þessum stöðum fylla
gjaman tíu þúsund samanlagt og
oft ríflega það; mótshaldarar búa
að mikilli reynslu og ófáir
skemmtifíklar hafa ekki látið sig
vanta árum saman. Þessar sam-
komur höfða einnig til ákveðinna
markhópa, eins og auglýsinga-
menn orða það,
bindindismótið
til fjölskyldu-
fólks og þjóð-
hátíðin til
þeirra sem eru
Eyjamenn í
anda.
í Galtalækjarskógi verður boðið
upp á dansleiki fyrir böm jafnt
sem fullorðna, leiksýningar og
grínleikara. Hljómsveitirnar Grei-
farnir, Busarnir, Raddbandið og
Elsku Unnur hafa boðað komu
sína, að ógleymdum Ingimari
Eydal og hljómsveit hans. Eftir-
hermur stíga á pall, Halli og Laddi
taka syrpur og revíuleikhús verð-
ur á staðnum.
íþróttafélagið Þór hefur veg og
vanda af Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum. Hljómsveitin Stjórnin leiðir
dansinn, en meðal annarra tónlist-
armanna skemmta Bubbi Mort-
hens, Bjartmar Guðlaugsson,
Mömmustrákar, Stertimenn,
Gömlu brýnin og Bongó Karls
Örvarssonar.
Þjóðhátíðamefnd Þórs lofar
hefðbundinni hátíð með bjargsigi,
brennu, varðeldi og flugeldasýn-
ingu að ógleymdu þjóðhátíðarlagi
ársins sem Olafur M. Aðalsteins-
son og Guðjón Weige hafa samið.
Stuðmenn hafa veg og vanda
af stórtónleikum í Húnaveri þessa
verslunarmannahelgi í annað
sinn. Jakob Frímann Magnússon
leggur áherslu á það að hér sé
ekki um hefðbundna útihátíð að
ræða, heldur hljómsveitamót í
anda Hróarskelduhátíðarinnar í
Danmörku. „Við ætlum að gera
þetta að glæsilegustu rokktónleik-
um ársins,“ segir Jakob og bætir
við að í framtíðinni sé ætlunin að
halda hátíðina tvisvar á sumri.
Margar af vinsælustu hljóm-
sveitum landsins mæta til leiks í
Húnaveri. Einar fjörutíu og þrjár
höfðu verið skráðar og listinn á
jafnvel eftir að lengjast að sögn
Jakobs. Auk Stuðmanna má nefna
Sykurmolana, Risaeðluna, Mez-
zoforte, ‘ Síðan skein sól, Sálina
hans Jóns míns, Ný danska, Boot-
legs, Todmobile, Sue Ellen, Exit,
Grafík og Blauta dropa. Að auki
munu um 30 minna þekktar sveit-
ir koma fram og keppa um útnefn-
inguna „Bjartasta vonin“. Þeim
titli fylgja nokkrar vegtyllur að
sögn Jakobs, þar á meðal aðstoð
Stuðmanna við næstu spor á
framabrautinni.
Að síðustu víkur sögunni austur
í Atlavík, sem áður var einn helsti
mótstaður um verslunarmanna-
helgina. Dansleikir í skóginum
heyra nú sögunni til, en skemmt-
unin hefur verið flutt í Hótel Vala-
skjálf á Egilsstöðum. Þar verður
dansað föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld við undirleik
Rokkabillybands Reykjavíkur og
hljómsveitarinnar Ýmsir flytjend-
ur. Búist er við um þúsund gestum
í Atlavík þessa helgi, en hálft átt-
unda hundrað sótti dansleikina í
Valaskjálf í fyrra.
Verðbólga í aðgangseyri þess-
ara skemmtana milli ára er að
þessu sinni lítil, ef nokkur. Gestir
á Þjóðhátíð þurl’a að reiða af hendi
6.000 krónur, í Húnaveri verður
krafist 5.000 króna og aðgangs-
eyrir í Galtalækjarskógi verður
4.000 krónur ef að líkum lætur.
Miðar á dansleikina á Egilsstöðum
verða seldir stakir og er verð ekki
ákveðið.
BflKSVIÐ
eftir Benedikt Stefánsson
Helgi Helgason auglýsinga-
stjóri RÚV segir að tilboðið
hafi aðeins staðið dagana 3.-10.
júlí. Ætlunin hafi verið að auka
auglýsingar í Morgunsyrpu Rásar
tvö, frá klukkan níu til ellefu.
Fyrirtækjum var gert að kaupa
30 birtingar hið minnsta. Að Helga
sögn er slíkur afsláttur ekki leng-
ur í boði og verður ekki á næst-
unni.
Hlustendakannanir hafa sýnt
að Bylgjan nýtur hvað mestra vin-
sælda frá klukkan níu á morgnana
til hádegis, og síðdegis frá klukkan
eitt til fjögur. Páll segir að Ríkisút-
varpið auki sifellt markaðssókn.
Kveðst hann hafa fyrir því heimild-
ir að einnig hafi verið boðinn af-
sláttur á auglýsingum síðdegis á
Rás tvö. Þá hafi auglýsendum í
sjónvarpi gjarnan verið veitt þau
fríðindi að auglýsa ókeypis í út-
varpi.
„Hér væri um eðlilega við-
skiptahætti að ræða ef ekki væri
um ríkisfyrirtæki að ræða. Það
skiptir að sjálfsögðu sköpum að
Ríkisútvarpið býr eitt að afnota-
gjöldunum," segir Páll. Hann
bendir á að RÚV hafi ekki stund-
að sölu á auglýsingum með þess-
um hætti áður en einkastöðvarnar
tóku til starfa. Nú sæki það hart
fram á öllum sviðum. Með undir-
boðum geti það hæglega gengið
af keppinautum sínum dauðum.
„Ríkisútvarpið sníður sína dag-
skrá að þörfum auglýsenda og
getur því ekki sinnt því hlutverki
sínu sem skyldi að styðja menning-
arlíf í landinu. Við teljum að Ríkis-
útvarpið eigi að njóta öruggs
tekjustofns en ekki að keppa á
auglýsingamarkaði,“ segir Páll
Þorsteinsson.