Morgunblaðið - 15.07.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JULI
7
ánægjuleg því það er gott að vera
upptekinn af öðru en sjálfum sér.
Hjálparstarfið er mjög gefandi.
Þarna eru allt aðrar aðstæður en
hér, þægindin færri og minni, en
mikið meiri lífsfylling og gleði í
starfi á margan hátt heldur en að
vera í þessum ys og þys sem hér
er,“ sagði Jónas.
„Starfíð leggst vel í mig. Mörg
verkefni eru í gangi og margar
beiðnir bíða úrlausnar. Meðan hjálp-
arstofnunin er algjörlega háð vel-
vilja almennings þá ráðast verkefn-
in -af því hversu vel og mikið fólk
vill leggja okkur lið. Við erum til
að mynda með sérverkefni í gangi
í Indlandi. Þar erum við að byggja
dagheimili fyrir fjölfötluð börn.
Unnið er að því að reisa sjúkraskýli
í samstarfi við Kristniboðssam-
bandið og lútersku kirkjuna í
Eþíópíu fyrir þjóðflokk sem hefur
ekki haft neina heilbrigðisþjónustu
fram að þessu. Nýlega höfum við
hafið starf í Kenýa sem felst í því
að hjálpa fátæku fólki að koma
undir sig fótunum og sjá fjölskyldu
sinni farborða. í Lesotho vinnum
við í samstarfi við kirkjuna þar að
forvarnarstarfi vegna áfengis- og
fíkniefnaneyslu. Þetta eru þau verk-
efni sem við tökum beinan þátt í.
Auk þess styrkjum við tvo
Afríkubúa til náms hér á landi.
Annar er í námi í menntaskóla og
hinn er væntanlegur frá Kenýa til
náms í Iðnskólanum,“ sagði Jónas.
Hann sagði að næstum daglega
bærust beiðnir til hjálparstofnunar-
innar um þátttöku í ýmsum verk-
efnum, bæði frá samstarfskirkjum
og Lúterska heimssambandinu.
Sagði hann að næsta haust, þegar
ný stjórn hefði sett sig inn í starf-
semi stofnunarinnar, yrði tekin
ákvörðun um áframhaldandi stuðn-
ing við þessi verkefni. Hjálparstofn-
un kirkjunnar starfar ekki einungis
á erlendri grund og sagði Jónas að
bæði Sólheimar og Sjálfsbjörg
hefðu notið stuðnings hennar.
»
»
»
I
I
I-
Kvikmyndasjóður íslands:
Sótt um styrk
vegna norræns
samstarfs
Kvikmyndastofnanir Norður-
landa.hafa ákveðið að fjármagna
sameiginlega fimm kvikmyndir,
eina Irá hveiju landi, og tryggja
sýningu myndanna í öllum löndun-
um. Mun Kvikmyndasjóður ís-
lands taka þátt í þessu verkefni,
fáist til þess fjárveiting. Danir,
Svíár og Norðmenn hafa þegar
valið verkefni en Finnar og íslend-
ingar munu tilnefna verkefni
síðar. Gert er ráð fyrir að heildar-
kostnaður verði um 800 milljónir
króna.
*
Ifrétt frá Kvikmyndasjóði segir að
þetta sé í fyrsta sinn sem svo
mörg lönd taki sameiginlega þátt í
að fjármagna kvikmyndaverkefni
hvers annars. Verkefnið sé sögulegur
atburður og það hafi vakið athygli
utan Norðurlandanna, enda sé hér á
ferðinni óvenjulegt framtak, sem um
leið sé mjög í takt við tíma aukinnar
samvinnu í Evrópu. Verkefnin verði
kynnt sameiginlega á stærstu kvik-
myndahátíðum og þannig fái íslenska
verkefnið mikla kynningu.
Gert er ráð yrir því að halda opna
samkeppni um þátttöku I verkefninu.
Fljótlega verður auglýst eftir um-
sóknum og þijú verkefni valin af
sérstakri dómnefnd til að fá hand-
rits- og undirbúningsstyrki. Fram-
leiðslustyrkur verður væntanlega
veittur í árslok til íslenska samstarfs-
verkefnisins.
Dómnefndin verður skipuð þremur
mönnum úr eftirtöldum félögum;
Félagi kvikmyndagerðarmanna,
Sambandi íslenskra kvikmyndafram-
leiðenda og Sambandi íslenskra kvik-
myndaleikstjóra.
í fréttinni segir að það sýni stöðu
kvikmyndasjóðs í dag að þetta eina
verkefni myndi tæma sjóðinn á næsta
ári. Þess vegna hafi Kvikmyndasjóð-
ur íslands sótt um sérstaka aukafjár-
veitingu til verkefnisins.
Sláðu til!
Öryggisbók - örugg leið
til ávinnings
Öryggisbókin er einkar efiirsóknarverð bók
fyrir þó sem vilja og geta bundið sþarifé sitt í
12 mónuði með því öryggi sem góðri ávöxtun
fylgir. Því hærri sem heildarinnstæðan er, því
hærri eru vextirnir. Samanburður við verð-
tryggð kjör og vexti er gerður tvisvar á ári, 30.
júní og 31. desember og sá kostur valinn sem
öryggisbókareigendum er hagstæðari hverju
sinni.
Sþarisjóðirnir hafa ávallt að leiðarljósi að hags-
munir viðskiþtavinanna og sþarisjóðanna fari
saman. Öryggisbókin er ávöxtur þessarar stefnu.
n
SPARISJÓÐIRNIR
fyrir þig og þína