Morgunblaðið - 15.07.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR
SUNNUDAGUR 15. JULI
MALLORKA
FERÐIR
17.t24. Mlí
á mann
Hjón með 2 börn 2ja—11 ára.
Heildarverð 118.000
á mann
Hjón með 2 börn 2ja—11 ára.
Heildarverð 139.600
á mann
Hjón með 2 börn 2ja—11 ára.
Heildarverð 158.800
Vikulegt
dagflug
FERÐASKRIFSTOFAN
dTi(MTH(
HALLVEICARSTÍG 1, SÍMI 28388 OG 28580
■; '■FARKCiRT Fir
Svava Sigurgeirs
dóttir, Akureyri
Hún Svava mín Sigurgeirsdóttir
er látin. Það þurfti ekki að koma
neinum kunnungum á óvart, svo
mikla vanheilsu var hún búin að
líða í mörg ár.
Samt er eins og dauðinn komi
okkur alltaf á óvart, eins og við
hrökkvum við og förum að hugsa.
Oft er þá eins og votti fyrir sam-
viskubiti og við spyrjum okkur sjálf:
„Gat ég ekki gert meira fyrir hinn
látna, haft meira samband?" En þá
er það orðið of seint og söknuðurinn
situr eftir.
Ég kynntist Svövu fyrir rúmum
30 árum, við áttum þá heima í
Hafnarfirði og vorum báðar í
Kvæðamannafélagi Hafnarfjarðar.
Svava var þar ákaflega áhugasöm
og mjög virkur félagi. Ég minnist
þess, að oft gaf hún verðlaunagripi
til að keppa um í vísnakeppni fé-
lagsins, slíkt hafði mjög hvetjandi
áhrif á félagið og einnig gaf hún
því oft gjafir þar fyrir utan. Já, hún
Svava var ákaflega gjafmild og vildi
alltaf vera veitandi fremur en þiggj-
andi, slíkt var eðli hennar, og það
má segja að það hafi hún verið fram
til síðustu stundar.
Svava var mikil hannyrðakona
og bera því ljósast vitni útsaumaðar
myndir og stóll er hún gaf til ör-
yrkjabandalagsins í Hátúni, en hún
bjó þar um nokkurra ára skeið.
Lífið fór ekki léttum höndum um
Svövu, hvorki heilsufarslega né til-
fínningalega.
Ung að árum fékk hún berkla
og þótt þeir læknuðust má segja
að hún hafi búið að því alla tíma,
hver veikindin ráku önnur, en alltaf
stóð Svava upp aftur og rétti við,
alltaf sigraði hennar glaðværa lund
alla erfiðleika.
Svava flutti til Norðui'lands fyrir
rúmum áratug, þaðan var hún ætt-
uð. Ég rek hér hvorki ættir Svövu
né æviatriði, það munu aðrir kunn-
ugri gera.
Svava bjó fyrst á Húsavík og
síðustu árin á Akureyri, hún annað-
ist blindan mann og reyndist honum
mjög vel og þau hvort öðru og hans
er missirinn mestur.
Svava var hrein og bein og var
ekki að skafá utan af hlutunum,
ef því var að skipta. Maður vissi
alltaf hvar maður hafði hana, inni
fyrir sló gott hjarta, sem mátti ekk-
ert aumt sjá, nema koma til hjálp-
ai', _ef hún gat.
Ég vil að leiðarlokum þakka
Svövu fyrir allt gott og óska henni
góðrar heimferðar. Guð geymi
hana.
' Eiríki og systkinum hennar votta
ég samúð mína.
Ragna S. Gunnarsdóttir
VilhjálmurH. A.
Schröder- Kveðjuorð
Vilhjálmur Hans Alfreð Schröder
vinur minn er farinn úr þessum
heimi og í annan betri eins og hann
á skilið sá góði drengur. Þessum
fágæta elskulega manni kynntist
ég í Sjálfstæðishúsinu er hann var
þar yfirframreiðslumaður 16. júní
1946 er ég byrjaði þar. Vilhjálmur
er besti maður sem ég hef kynnst
á allri minni ævi og hef ég þó
kynnst mörgum um ævina. Þessi
prúði, duglegi og umgengnisgóði
drengur var virtur af öllum sem
honum kynntust. Hann bar ekki ill-
an hug til neins og eins er víst að
enginn hefur heldur borið illan hug
til hans, því það var bara ekki
hægt. Alla tíð hefur Vilhjálmur
verið öðrum til fyrirmyndar, góður
heimilisfaðir börnum sínum og eig-
inkonu. Traustur, atorkusamur og
alltaf til að taka að sér öll þau störf
hvort sem var á heiinilinu eða í
vinnu eða þar sem þörf var fyrir
hann. Hann hafði alveg dásamlegt
skap, skapgóður og grínisti ef hann
vildi við það hafa. Rósemi hans og
öryggi fór vart nokkurn tíma úr
skorðum. Villi var alltaf síungur,
glaður og reifur. Ég þekkti móður
Villa vel og kom oft til hennar á
Skólavörðustíg er hún átti heima
þar. Hún var mér alltaf góð í alla
staði. Vilhjálmi þótti vænt um móð-
ur sína eins og alla aðra. Það geta
þeir borið um sem unnið hafa með
honum að hann bar ekki kala til
neins. Eg votta öllum börnum hans
og afabörnum og öðru tengdafólki
innilega samúð vegna fráfalls hins
mæta manns, Vilhjálms.
Ég kveð Vilhjálm með þessum
orðum: „Nú leggst þú til hvíldar
þarft þú ekki að hræðast og hvílist
þá mun svefninn verða vær.“
Með virðingu kveð ég vin minn
uns við hittumst aftur.
Jón Mariasson
NYTT
ARGERÐ’90
VIDEO
VHR 5100
• "Instant start” myndsvörun á skjá á einni sekúndu
33.900 stgr.
• Fullkomin fjölrása fjarstýring með upptökuminnum
• Bandateljari sem sýnir klukkustundir, mínútur og
sekúndur
• Skyndiupptaka ”Quick start recording”
• Haðvirk myndleitun í báðar áttir
• Eins árs upptökuminni með 8 skráningum
• Truflunarlaus kyrrmynd/ramma fyrir ramma
• Endurtekning á atriði ”Lesson repeat” allt að 5
sinnum
JAPÖNSK
GÆÐI
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780