Morgunblaðið - 15.07.1990, Page 23

Morgunblaðið - 15.07.1990, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMINGAR SUNNUDAGUR 15. JULI C 23 Ivar Henrý Einars son — Minning Fæddur 25. febrúar 1937 Dáinn 13. júní 1990 Mér varð hverft við er hringt var til mín til Bandaríkjanna og mér tjáð að elskulegur móðurbróðir minn,_ívar, hefði látist um morgun- inn. Ég vildi ekki trúa þessu, því það var svo stutt síðan við höfðum talað saman í síma og hann verið svo hress. ívar hafði ekki verið við góða heilsu síðan hann veiktist alvarlega og lamaðist fyrir átta árum, en náði sér svo að hann komst á fætur aftur, samt háði þetta honum alltaf. ívar fæddist á Siglufirði og ólst þar upp hjá foreldrum sínum Borg- hild Einarsson, fædd Hernes, norskri að ætt, og föður sínum, Kristmundi Einarssyni. Ég ólst upp hjá ömmu og afa, svo ég hafði þekkt hann frá því ég man fyrst eftir mér og alltaf var hann mér jafn kær. Hann var alltaf svo kátur og léttur í lund og átti auðvelt með að koma öðrum í gott skap þegar svo bar undir. ívar var mjög tryggur og var það einn af mörgum eðliskostum hans, barngóður var hann og nutu ekki síst börnin mín þess, en þeim þótti afar vænt um hann og sakna hans nú mikið. Foreldrum sínum reyndist hann ætíð ljúfur og góður sonur, þá var hann eins gagnvart systkinum sínum sem þótti mjög vænt um hann. I heimabæ sínum, Siglufirði, vann Ivar margvísleg störf, þar á meðal hjá Síldarverksmiðjum ríkis- ins og Hraðfrystihúsi SR og alls staðar var hann jafnvel liðinn, bæði af samstarfsmönnum og yfirmönn- um sínum og veit ég að margir eiga góðar minningar um hann frá þeim árum. Til Reykjavíkur flutti ívar árið 1964 með ömmu ásamt þeim systk- inum sem ógift voru, en þá var hún orðin ekkja. Héldu þau heimili með henni þar til hún lézt fyrir fáum árum. Ivar var yngstur systkina sinna sem upp komust, en eftirlifandi eru Alfreð Harris, Pollý Anna, Karl, Svanhvít og Einar Ernst. Ég, Juan og börnin, sendum þeim og öðrum vandamönnum innilegustu samúð- arkveðjur okkar. Ég þakka kærum frænda mínum allt hið góða sem hann ávallt sýndi mér og einnig fjölskyldu minni sem kveður hann með söknuði. Guð blessi minningu míns kæra frænda. Alfhildur Kristín Elskulegur móðurbróðir okkar, Ivar Henry, hefur verið kallaður burt svo snögglega. Við skiljum ekki hvers vegna hann þurfti að yfirgefa okkur, ekki eldri en hann var, en vegir Guðs eru órannsakan- legir. Það er svo stutt síðan við sáum hann og töluðum saman og þá var hann svo hress. Við hefðum ekki trúað þvi að hann hyrfi frá okkur svo skyndilega og varð það mikið áfall. Viljum við minnast hans hér fáeinum orðum. ívar ólst upp á Siglufirði, hjá ömmu okkar og afa, Borghild Hern- es Einarsson og Kristmundi Einars- syni, bryta. Hann var yngstur systkina sinna af sjö, sem upp kom- ust, en tvö létust í frumþernsku. Ivar flutti með ömmu og systkinum sínum hingað til Reykjavíkur er við systurnar vorum mjög ungar, svo við höfum þekkt hann alla okkar ævi. Ivar var mikið góðmenni og vildi allt fyrir alla gera og nutum við systurnar þess jafnt og aðrir. Hann var aldrei' eins glaður og þegar hann gat glatt aðra og hjálpað ef eitthvað bjátaði á. Við minnumst heimsókna okkar á heimili ömmu og fjölskyldu og að þar var ívar hrókur alls fagnaðai- og vildi að öllum liði sem bezt. Þangað var alltaf gott að koma og leið okkur ætíð vel þar. Ivar hafði mikla ánægju af tón- list, var það sama hvort það voru óperur eða annað og átt.i hann tölu- vert af plötum, allt frá poppi upp í óperusöng og naut þess að hlusta á þær í næði. Börnin okkar hafa mikið spurt um Lilla frænda, eins og við kölluð- um hann alltaf, og finnst skrýtið að sjá hann ekki framar, þar sem hann er farinn til að búa hjá Guði. Hann var alltaf einkar góður við börnin og þökkum við honum það. Það er skrýtið að koma á heimili hans og hann er þar ekki lengur. Þar er stórt skarð höggvið sem verður ekki fyllt. Við vitum að hann hefur verið kallaður á æðra tilveru- stig til nýrra verkefna þar. Við viljum þakka Lilla okkar samfylgdina í þessu lífi og alla þá gleði og kærleik sem hann veitti okkur systrunum og börnum okkar. Hann var okkur öllum mjög kær og minninguna um hann geymum við ætíð í hjörtum okkar. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við okkar ástkæra frænda og vottum öllum hans nánustu inni- legustu samúð okkar. Guð blessi þau og styrki í sorg þeirra. 0, lát mig feginn fagna því: Þeir fá, sem ég hef misst, nú horfin séð öll harmaský í himna sælli vist, og dýrðarljóma uppheims í hjá englasveit þar gist, sem andans framför æ er ný um eilífð fyrir Krist. (Guðmundur Einarsson) Elfa Björk Ásmundsdóttir, Ásdís Ásmundsdóttir og börn. FEGRIÐ GARÐINN OG BÆTIÐ MEÐ SANDI,GRJÓn OG ÁBORDI SANDUR SIGURSTEINAR VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR Þú færð sand og allskonar grjót hjá okkur. Viðmokum þessumefnuma bílaeða í kerrur og afgreiðum líka í smærri einingum, traustum plastpokum sem þú setur í skottið á bílnum þínum. Afgreiöslan við Elliðaár er opin: mánud.-föstud: 7.30-18.00 !augard:7.30-17.00 Ath. lokc caö í hádeginu Nú bjóðum við enn betur: Lífrænan og ólíf- rænanáburð, hænsnaskít, skeljakalk og garðavikur. Öll þessi úrvals efni eru sekkjuð í trausta plastpoka og tilbúin til afgreiðslu. BJÖRGUN HF. SÆVARHÖFÐA 13 SÍMI:68 18 33 Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er. (V. Briem) r L í 1 ERTUAÐ FARAST UR HITA? Við höfum lausnina Z-sólarfilma SÓLARFILMAN er rúllutjald, sem gefur möguleika. SÓLARFILMAN er hönnuð til að spara orku á fleiri en einn veg og þar með peninga. - Hún dregur úr þörf á loftræstingu á heitasta tíma ársins og lækkar þannig kostnað. - Hún endurvarpar hita innanhúss um vetrar tíman og dregur þannig úr hitunarkostnaði. SÓLARFILMAN er polyesterþynna, blönduð al umium, sem gefur þá eiginleika að: - Minnka sólargeislun um 96% og draga úr sólarhita um 73%. - Byrgir ekki útsýn og hleypir venjulegri dags- birtu í gegn. SÓLARFILMAN er framleidd eftir máli. <5*083070,82340.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.