Morgunblaðið - 15.07.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ
C 29 -
Gerum svæð-
ið að ofur-
lítilli perlu
- borginni
okkar til sóma
Til Velvakanda.
Það hefur borist mér og fleirum
til eyrna að hólminn í tjörn inni
fyrir neðan Hjallasel í Seljahverfi
eigi að verða leikvangur fyrir börnin.
Það yrðu mikil vonbrigði fyrir okkur
sem búin erum að bíða eftir að gera
pollinn að bæjarprýði enda hafa
börnin nóg annað landiými sunnan
við tjörnina. Stór svæði þar sem eng-
inn amast við þeim, þar er óbrotið
land, móar, mýrar og lítil lækjarsp-
ræna, fyrir utan svo alla leikvellina.
Hólminn gæti orðið varpstaður
fugla enda hafa sést á tjörninni
bæði anda- og svanahjón, eins og
þau væru að athuga aðstæðurnar.
Börn og fullorðnir ættu að stuðla að
því að þetta gæti orðið lítil paradís,
svona í líkingu við fuglapollinn á
Akureyri.
Berum virðingu fyrir náttúrunnar
ríki og aukum aðstoð okkar til vernd-
,ar og varðveislu. Burt með þessa
steinhnullunga sem eiga að mynda
brú út í tjörnina. Gefið henni frið
fyrir óþarfa ágangi til þess að fugl-
arnir Iaðist að hólmanum. Þetta
gæti orðið perla í landslaginu en til
þess þarf nærgætni, samtök og góð-
an vilja ungra sem aldraðra. Svo
kemur kórónan, ilmandi tijágróður
iðandi af fuglalífi.
Börn eru gott fólk ef vel er að •
þeim farið. Þau geta sannarlega
unnið mikið og gott verk ekki síður
en þeir eldri þegar viljinn og kærleik-
urinn haldast í hendur. Gefið hólman-
um frið og sjáum hvað tíminn ber í
skauti sínu. Þessar umbætur mega
ekki fara í verra en ekkert. Til þess
fer of mikill tími og fé. Gerum svæð-
ið að ofurlítilli perlu, borginni okkar
til sóma.
íbúi í Seljahverfi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sfelpurnar sem vilja
syngja í hljómsveit
geta ekki sungið en
þær sem geta sungið
vilja ekki syngja í
hljómsveit
ert á móti stelpum," segir Gunnar,
„það er bara þannig að stelpurnar
sem vilja syngja í hljómsveit geta
ekki sungið en þær sem geta sung-
ið vilja ekki syngja í hljómsveit.“
Strákarnir_ eru allir að læra á
hljóðfæri í FÍH. Ottó er að læra á
gítar, Agúst á trommur, Gunnar á
gítar og Agnar á hljómborð. Hann
segist vera búinn að læra á hljóð-
færi í 7 ár. „Ég náði varla niður á
petalana þegar ég byijaði að læra
á orgel,“ segir hann. „Svo lærði ég
á píanó og núna á hljómborð."
Allir fjórir eru strákarnir sam-
mála um að hljómsveitin sé áhuga-
mál númer eitt. „Þetta er ofur ein-
falt,“ segir Gunnar. „Hljómsveitin
er númer eitt, önnur áhugamál eru
númer tvö og skólinn er númer þijú
eða fjögur." Þrátt fyrir það virðist
skólalærdómurinn ekki vera mikið
vandamál. „Þetta hefst allt,“ segir
Ágúst, sem er í MS, stillilega og í
ljós kemur að hann er á förum til
Englands þar sem hann ætlar að
nema við menntaskóla og tónlistar-
háskóla í framtíðinni. í sumar vinn-
ur Ágúst í byggingarvinnu. Ottó
vinnur á bensínstöðeða sem slöngu-
temjari, eins og hann orðar það
sjálfur, og Agnar vinnur við fram-
kvæmdir í Fischersundinu. Seinna
í sumar fer hann að vinna hjá Magn-
úsi Kjartanssyni við setja nótnabók
með lögum eftir Sigfús Halldórsson.
Gunnar gerir að laxi fyrir fyrirtæki
sem heitir íslensk matvæli.
Strákarnir eru allir harðákveðnir
í að starfa að einhveiju leyti að
tónlist í framtíðinni. „Það er að vísu
hæpið að maður geti lifað á tónlist-
inni einni,“ segir Ágúst, „það gera
ekki nema þeir allra bestu en auð-
vitað vill maður vinna við það sem
maður hefur gaman að,“ bætir hann
við og hinir taka undir.
Agnar Magnús-
son, Ágúst
Sveinsson,
Gunnar Möller
og Ottó Guðna-
son, ekki berir
að ofan.
íslenskir launamenn - gleðjist yfir
lækkuðum rekstrarkostnaði bifreiða
Til Velvakanda.
Frétt á baksíðu Morgunblaðsins
laugardaginn 30. júní gladdi
mig mjög. „Bensínverð lækkað“ var
fyrirsögnin. Hjartað tók kipp og
vinnulúið andlitið hefur eflaust
ljómað af fölskvalausri gleði. Ég las
áfram, „bensín lækkar úr 52,10 kr.
lítrinn í 52 kr.“
Ég vil þakka olíufélögunum og
ríkinu sérstaklega fyrir þessa verð-
lækkun á bensíni. Og ég vil þakka
fyrir öruggt og áberandi fréttaflæði
í tilefni af þessari lækkun. Það er
auðvitað mikilvægt að íslendingar
séu vel upplýstir um batnandi
'lífskjör á Fróni. Ég trúi ekki öðru
en að íslenskir launamenn gleðjist
yfir lækkuðum rekstrarkostnaði bif-
reiða. Það geri ég að minnsta kosti.
Ég fylli bílinn á viku fresti og hann
tekur 40 lítra í senn. Þessi lækkun
þýðir því 208 kr. á ársgrundvelli.
Ég get því leyft mér að fara í bíó
einhvern þriðjudaginn á sértilboði.
Einsamall.
Lokað
vegna sumarleyfa
Lokað verður vegna sumarleyfa starfsfólks frá
16. júlí. Opnum aftur mánudaginn 30. júlí.
ÁgústÁrmann hf.,
Sundaborg 24.
104 Reykjavík.
Frá feröa-
nefnd Fáks
Fundur um fyrirhugaða ferð ó Löngufjörur verð.ur í
félagsheimilinu þriðjudaginn 17. júlí kl. 21.00.
Væntanlegir þótttakendur verða að mæta ó fundinn
og staðfesta þátttöku með innborgun á ferðina.
Ferðanefnd.
Skíðaskálinn - Hveradölum
Haukur Morthens
og félagar
skemmta
sunnudagskvöld
MUNIÐ OKKAR ROMAÐA HLAÐBORÐ
Um 300 Taylor-vélar á
íslandi framleiða
mjóikurís.
Getaframleitt
jógúrt.
Eiríkur Ketilsson
Heildverslun, Vatnsstíg 3.
Símar: 23472, 25234, 19155.
0CCO -skór
n ý lc o m n i r
Teg. 1014
Litur: Svart leður
Stærðir: 40-47
Verð kr. 5.550,-
Úrvalsskór í miklu úrvali
Laugavegi 41, s. 13570.
Skóverslun Þórðar,
Kirkjustræti 8,
sími 14181.
Helgi Þór Ingason