Morgunblaðið - 19.08.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 199D
C 17
Mér hlýnaði alltaf svo einkennilega
fyrir bijóstinu þegar hann kallaði
mig nafna. Ég vissi að það var eitt-
hvað merkilegt. Það var strengur
sem lá frá honum til mín og að
hann yrði þar að eilífu. Myndi aldr-
ei rofna. Ég hafði verið skírður á
fimmtugsafmælinu hans og bar
nafn hans og ömmu. Og ennþá
löngu eftir að ég komst á fullorðins-
ár fann ég þessa kennd í bijóstinu
og vona að ég verði aldrei svo gam-
all að ég glati henni. Og þannig
gæti ég haldið endalaust áfram,
tekið brot og brot úr minningabank-
anum og raðað þeim saman og
fengið fram lifandi mynd í hug-
skoti mínu. En ég læt hér staðar
numið, vegna þess að margar þess-
ar minningar eru bara fyrir mig og
afa. Og sumar, helst þær ljúfustu,
vekja söknuð eftir einhveiju sem
aldrei getur orðið aftur og við verð-
um ósanngjöm og ásökum almættið
og spuijum: Hvers vegna hann? Við
skyldum frekar þakka Guði að gam-
all, þreyttur maður fékk hvíldina
og fékk að halda sinni mannlegu
reisn til hins síðasta. Ég bið algóð-
an Guð að blessa og varðveita
ömmu mína um ókomna tíð.
Ég bið hinn sama Guð að blessa
og varðveita börn þeirra^og ijöl-
skyldur. Ég bið að hann megi sér-
staklega í náð sinni líta til með
Benedikt, Lellu, Heiðu og börnum
þeirra, en þau mega nú í annað
sinn á fáum dögum fylgja ástvini
til grafar.
Áfa mínum blessuðum þakka ég
samfylgdina og ég er sannfærður
um að hann hefur nú dregið bát
sinn í naust á strönd bernskunnar
og hjúfrar sig í móðurfaðmi og
hlustar á hjartslátt hins eilífa lífs
tjá sér ást og umhyggju og finnur
sér blíðlega strokið um kinn og
hvarma.
. Guð blessi afa minn Sigurð G.
Jóhannsson.
Sigurður Rúnar Magnússon
FASTEIGN
Á SPÁNI
Verðfráísl.kr.
1.600.000,-
Aðeins 30% útborgun.
Einstök afborgunarkjör.
Ódýrar ferðir fyrir húseigendur.
Kynningarfundir
á Laugavegi 18 alla virka
daga. Einnig á sunnudögum
frá kl. 15.00-18.00.
Sími 91-617045.
Komið í kaffisopa
og kynnið ykkur málin.
G. Óskarsson & Co.
ORLOFSHUS SF.
sauta
Kveðjuorð:
Guðmundur
J. Magnússon
Þegar mér barst fregnin um lát
mágs míns, Guðmundar J. Magnús-
sonar, vöknaði mér um augu. Fjöl-
margar minningar að heiman úr
sveitinni okkar komu upp í hugann.
Þar kynntumst við. Frá þessum
árum eru endurminningarnar ljúfar.
Þær tengjast margskonar samkom-
um og gleðistundum, sveitaböllum,
veiðiferðum, hestamótum, o.fl., að
ógleymdum stundum með þeim Dóru
systur minr.i og Guðmundi _er þau
voru að draga sig saman. Ég man
hve mér þótti það sárt er þau fluttu
burt til Reykjavíkur. Mundi, eins og
hann var kallaður svona dags dag-
lega, hafði m.a. gaman að því að
blanda geði við annað fólk. Ekki
þótti honum verra að fá sér þá í
glas við slíkt tækifæri. Hann átti
létt með að umgangast annað fólk.
Mér og fjölskyldu minni var hann
ætíð góður og skilningsríkur. Þannig
gæti ég haldið áfram að telja upp
það sem prýddi mág minn, sem var
sannkallaður mannkostamaður.
Við, ég og fjölskylda mín hér vest-
ur í Bandaríkjunum, kveðjum Guð-
mund og sendum ástvinum heima
innilegar samúðarkveðjur og biðjum
Guð að gefa þeim styrk og að blessa
minningu mágs míns.
Anna Erla Ross
VIÐ BJOÐUM AÐRA
VIKUFERÐ TIL ÍTALÍU
Á ÓTRÚLEGU VERÐI
17.-24. september
Vikuferðin til Ítalíu sem við buðum í síðustu
viku seldist eins og heitar lummur enda um
verulega spennandi ferð að ræða á hreint
ótrúlegu verði.
Nú ætlum við að gefa fleirum kost á að láta
Ítalíudrauma sína rætast og efnum til annarrar
ferðar til Riccione á strönd Adríahafsins.
Þar færðu hina fullkomnu blöndu af þægilegri
sólarlandaferð, ógleymanlegum skoðunar-
ferðum til San Marino, Feneyja og Flórens,
góðum verslunarferðum og svo auðvitað
almennu nautnalífi á ítölskum veitingastöðum.
Gist verður í íbúðum og á hótelum í Riccione.
Verð kP.
27.700
(6 í íbúð)
Innifalið: Flug, gisting, aksturað og frá flugvelli erlendis
og íslensk fararstjórn.
Önnur verðdæmi:
kr. 29.900 (4 í íbúð)
kr. 32.200 (2 í íbúð/hótelherbergi)
Barnaafsláttur 2-11 ára, 5000 kr.
Verð miðað við staðgreiðslu og gengi 9. ágúst '90.
Adnatic Riviera ot
Emiha - Romagna i llaíy
ABAMU
Rimini
Riccione
Cattolica
Cesenatico
Gatteo a Mare Savignano a Mare
San Mauro a Mare Bellana - Igea Manna
Misano Adnatico Cervia - Milano Marittima
Lidi di Comacchio Ravenna e te Sue Manne
LUXUSLÍF
í ÞREMUR
LÖNDUM
7.-14. september
Holland, Belgía, Þýskaland
Að venju flykkjast íslenskir ferðalangar í hina
geysivinsælu haustferð okkartil Hoogvaals
enda er ferðin spennandi og verðið
hagstætt. Þar gefst kostur á góðum kynnum af
löndunum þremur: rómantík í Móseldalnum,
verslunar- og vínsmökkunarferð í Þýskalandi,
ferðalagi um Ardennafjöllin til Belgíu og
letilífið verður tekið föstum tökum í Hollandi.
Gist verður í vönduðum smáhýsum á hollenska
sumarhúsasvæðinu Hoogvaals þar sem gestir
liggja í sundi eða gufu, iðka íþróttir eða hvað
annað sem þeim dettur í hug. Sannkallað
lúxuslíf í stórkostlegu umhverfi!
Verð kr,
MqqO
(6 í húsi)
Innifalið: Flug, gisting í Hoogvaals, akstur að og frá
flugvelli ytra og íslensk fararstjórn.
Önnur verðdæmi:
kr.31.635 (4 í húsi)
kr. 36.860 (2 í húsi)
Barnaafsláttur 2-11 ára, 8000 kr.
Verð miðað við staðgreiðslu og gengi 16. ágúst '90.
m
mm
Samvinnuferöir - Landsýn
Reykjavik: Austurstræti 12. s. 91-691010, Innanlandsferðir, s. 91-691070,
póstlax 91 -27796. telex 2241, Hótel Sögu við Hagatorg, s 91 -622277, póstfax 91 -623980.
Akureyri: Skipagötu 14, s. 96-27200. Dóstfax 96-27588. telex 2195
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA