Morgunblaðið - 19.08.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1990
C 19
FOLR
í fjölmiðlum
■ RAGNHEIÐUR DA VIÐS-
DÓTTIR og BJARNIBRYNJ-
ÓLFSSON haí'a tekið að sér rit-
stjórn tímaritsins Mannlífs til ára-
móta. Um er að ræða fjögur blöð.
Árni Þórarinsson
aðjvejiii tíiiki I ión-
af Störfum þar á " Ragnheiður
þar sern hún hygg- | * 1
tíinaritinu'Við sem |gí ,
in misseri og mun KjHEPÍí.
aðalritstjóri Fijáls Bjarni.
framtaks, Steinar J. Lúðviksson,
leysa hana af þennan tíma. Bjarni
hefur hinsvegar gegnt starfi rit-
stjórnarfulltrúa á Mannlífi til þessa.
■ HELGIPÉTURSSON, dag-
skrárgerðarmaður á Stöð 2 og fyrr-
um fréttamaður, hefur hætt störf-
um á Stöð 2.
Ráðningarsamn-
ingur hans rann
út 31. júlí sl. „Mér
leist ekki á ástand
mála innanhúss,
auk þess sem mér
fannst verkefni
sem lágu fyrir
vera heldur klén,“ Helgi.
segir Helgi um ástæður þess að
hann hætti störfum. Helgi segist
bauka við ýmislegt og líklega sinni
hann sjálfstæðum verkefnum fyrst
Regnbogabylt-
ing á bresk-
um blöðum
EFTIR morðið á breska þing-
manninum Ian Gow í sumar
birtist sama myndin af flaki
bifreiðar hans í öllum svoköll-
uðum tabloid eða íesifrétta-
blöðum. Myndin var í öllum
regnbogans litum og birtist
meðal annars í The Sun, sem
hafði ekki áður birt litmynd-
ir. Þar með gekk enn eitt
breskt blað til liðs við svokall-
aða „regnbogabyltingu“ eins
og litavæðing blaða í Bret-
landi er kölluð.
Blaðið Today varð fyrst bre-
skra blaða til að nota lit
myndir þegar það hóf göngu
sína fyrir um það bil fimm árum.
Fyrir þremur árum steig News
of the World það skref að prenta
hluta upplags síns í litum og
litaauglýsingar voru þá farnar
að birtast í virðulegum blöðum
eins og The Daily Telegraph,
The Independent og The Sunday
Times. Ritstjórar þessara blaða
voru fullir efasemda, en auglýs-
endur áhugasamir.
The Daily Mirror hóf birtingu
litmynda fyrir tveimur árum og
sala blaðsins jókst um 50.000
eintök á nokkrum vikum. Fyrir
ári kom röðin að Daily Express
og salan hefur aukist um 57.000
eintök. Daily Mail hefur ekki
enn tekið upp litmyndir og sala
blaðsins hefur dregist saman um
tæp 70.000 eintök. Enn er að-
eins hluti af upplagi The Sun
prentaður í litum, en litavæðing-
in mun ná til upplagsins alls
eftir nokkrar vikur.
Sjónvarpið helsta
sameiningaraflið
DAGBLÖÐ og sjónvarp hafa
mest áhrif á afstöðu og skoðan-
ir fólks í Bretlandi og hafa að
því leyti tekið við hlutverki fjöl-
skyldunnar, prestsins og kenn-
arans samkvæmt síðasta bindi
Árbóka breskra fjölmiðla. Það
sem sameinar Breta er það sem
þeir lesa í blöðunum og horfa
á í sjónvarpinu.
*
Ymsar athyglisverðar upplýs-
ingar koma fram í síðustu
árbókinni:
• Sjónvarpsviðtæki eru til á á
97,2% heimila í Bretlandi og tvö
tæki eru til á 46% heimila. Mynd-
bandstæki er að finna 61% heim-
ila — miðað við 3% 1980.
• Venjulegur áhorfandi góndi á
sjónvarp í þijá og hálfan tíma á
dag í fyrra.
• Konur eru mestu sjónvarps-
þrælarnir. Sjötíu af hundraði full-
orðinna áhorfenda óháðu sam-
steypunnar ITV á morgnana eru
konur og matvælaframleiðendur
eru helstu auglýsendurnir.
• í ársbyrjun 1989 var um
20,000 mótttökudiskum fyrir ger-
visjónvarp komið fyrir í Bret-
landi. í maí 1990 voru þeir orðnir
797.000.
• Augíýsingatekjur vönduðu
dagblaðanna í Bretlandi jukust
um 137% á árunum 1983-1989,
en æsifréttablaðanna um 78%.
Sala vandaðra blaða hefur aukist
um 20% síðan 1982, en sala æsi-
fréttablaða hefur dregist saman
um 5%.
• Rúmur helmingur lesenda Da-
ily Star og Today er á aldrinum
15 til 34 ára, en 46% lesenda Sun
og News ofthe Woiid. Engin blöð
hafa eins marga aldraða lesendur
(55 ára og eldri) og Daily Te-
legraph (44%) og Sunday Express
(42%).
• Út eru gefin 2.400 neytendarit
í Bretlandi, allt frá TV Times til
Trout Fisherman. Út koma 4.275
viðskipta- og sérfræðitímarit.
• Alls eru 118.229 auglýsinga-
spjöld við vegi í Bretlandi, á stræt-
isvögnum og vörubílum eða um-
hverfis járnbrautastöðvar og flug-
velli. Auglýsing á leigubifreið í
London nær til 53% allra kaup-
sýslumanna.
• Aðsókn að kvikmyndahúsum í
Bretlandi hefur aukist fimm ár í
röð, en aðeins 88 milljónir fara í
bíó nú miðað við tæpan einn og
• Indiana Jones og síðasta kross-
ferðin var vinsælasta kvikmyndin
í Bretlandi 1989.
• Bréf send í pósti eru þriðji
helsti auglýsingamátinn í Bret-
landi. Dagblöð og sjónvarp eru
mestu auglýsingamiðlarnir.
IBM RISC System/6000
Enn kemur IBM keppiiiauluni sínum í
opna skjöUlti, að þessu sinni nieð nýrri
f jölskylclu firnaötlugra lölvuniiðstöðva og
vinnustöðva, RISC Systein/6000, og nú
eru möguleikarnir nánast ótakmarkaðir.
Þessar nýju tölvur byggja á
nýrri POWER-hönnun (Perform-
ance Optimization With En-
hanced RISC), sem felur m.a. í
sér að margir örgjörvar geta
framkvæmt aðgerðir samtímis.
Þannig er hraði minnstu vélar-
innar í hópnum 27,5 MIPS (mill-
jón skipanir á sekúndu), eða
mun meiri en hjá öðrum sam-
bærilegum tölvum á markaðn-
um.
Allt sem við kemur þessum
tolvum er mjög fullkomið og
ýmist haTrnað frá grunni eða
endurhannað til að mæta af-
kastakröfum RISC System/
6000. Sem dæmi má nefna nýja
og hraðvirka IBM microchannel
braut, sem afkastar allt að 40 MB
á sekúndu með möguleikum á
tvöföldun og jafnvel fjórföldun
þess hraða, nýja diska með að-
gangstíma allt niður í 11,4 msek,
ný segulbönd sem geta afritað
allt að 2,3 GB á litlar spólur,
geisladisk sem geymir allar
handbækur með kerfinu, sam-
tals 6000MB, og þannig mætti
lengi telja.
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVÍK SiMI 697700
VIÐURKENNDUR SÖLUAÐILI:
TÖLVUMIÐLUN HF.
SKEIFUNNI 11
SÍMAR: 688517, 37222
í RISC System/6000 röðinni
eru sex nýjar vélar. Þær má nota
sem vinnustöðvar (t.d. fyrir
teiknikerfi), sem netþjóna (t.d.
sem skráamiðlara fyrir UNIX eða
DOS vélar) og sem fjölnotenda-
vélar (með tengingar fyrir fleiri
en 500 tæki).
Kerfið notar AIX 3, IBM útgáf-
una af UNIX stýrikerfinu, sem
hefur verið endurhannað til þess
að nýta sér alla kosti RISC
System/6000.
Nú er álveg sama að hverju þú
vinnur: IBM er með tölvu fyrir
Þig!