Morgunblaðið - 19.08.1990, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1990
C 23
Indíana Gísla-
dóttir - Minning
Fædd 6. desember 1904
Dáin 14. ágúst 1990
Hún amma mín er dáin. 85 voru
árin hennar orðin en samt kom
dauðinn snöggt og óvænt og hrifs-
aði hana! frá okkur á þessu hlýja
og sólríka sumri. Hún hafði ekki
kennt neins veikleika fyrir hjarta
en fékk nú stórt áfall sem reið henni
að fullu. Kannski var það best svona
— fljótt og án langvarandi þjáninga
— en ég átti svo margt órætt við
hana og við ölt. Eg veit að hún
átti eftir að segja mér frá ferðinni
sinni til Danmerkur tit Þórunnar
dóttur sinnar og Gylfa manns henn-
ar en þá ferð fór hún aðeins fáum
vikum fyrir andlátið. Hún amma
mín elskaði nefnilega sólina, ylinn
og gróskuna auk þess sem hún vissi
fátt skemmtilegra en að bregða sér
í ferðalag. Það hlýjar okkur einnig
um hjartarætur sem eftir sitjum að
vita að eitt af því síðasta sem hún
gerði var að fara með Önnu Gunnu
dóttur sinni og hennar manni í
bílferð að Gullfossi sem sýndi sig í
fegursta skarti þann dag. Þessar
fallegu minningar voru henni áreið-
anlega huggun á hennar örlaga-
stund.
Hún amma mín óttaðist ekki
dauðann. Mér er ekki grunlaust um
að þessi ár eftir að Jónas afi dó
hafi hún stundum óskað sér til hans
— þó að afstaða hennar til lífsins
hafí verið jákvæð og gefandi. Afi
minn og amma höfðu deilt kjörum
í meira en hálfa öld þegar hann
féll frá og taugin milli þeirra því
römm. Þeirra heimur, þar sem þau
hófu búskap norður í Skagafirði
snemma á þessari öld — hún korn-
ung, hann ögn eldri — hefur alltaf
verið nokkurs konar sögusvið í
mínum huga. Sögurnar sem hún
amma mín hefur verið að segja mér
frá bamæsku og fram á þennan
dag vora nefnilega flestar úr hinu
raunveralega lífi og virtist sá sjóður
nær óþijótandi.
Eftir að amma og afí bragðu
búi, fluttu þau til Akureyrar og
síðan á efri áram til Reykjavíkur
til að vera nær bömunum sínum.
Úr Lækjargötu 13 í Gilinu á Akur-
eyri á ég mína fyrstu bamsminn-
ingu um Indu ömmu. Ekki held ég
að það hafi alltaf verið þrautalaust
að tjónka við mig þá en það sem
eftir situr í mínu hugskoti era heið-
ir dagar og hlý hönd sem leiddi litla
stúlku upp bratta brekku.
Seinna þegar Inda amma og Jón-
as afí fluttu í Brekkugötuna og lífíð
snerist um bækur og frímerki voru
börnin þeirra uppkomin og hópur
bamabamanna fór ört vaxandi. Oft
var þá fjölmennt á heimilinu og
Inda amma títt kölluð til að fóstra
okkur krakkana um lengri eða
skemmri tíma. Hún hafði eitthvert
sérstakt lag á að gefa okkur öllum
HÝft SÍMANÚMER
AUGLV S\NG ADÖID_
69KIH
fttwgitstl’Iii&ifr
af sjálfri sér — þannig að enginn
var afskiptur.
Á Dragaveginum í Reykjavík
bjuggu svo Inda amma og Jónas
afi eftir að hann lét bókaverslunina
í hendur Stefáns sonar síns. Og þar
steig Benni sonur minn fyrstu
skrefin studdur af langafa og
langömmu. Fyrir syni mína Benna
og Kjartan lifir minnining um heim-
sóknir Indu ömmu til Egilsstaða þar
sem við áttum saman góðar stundir
um jól, páska og sumur.
Hún amma mín eyddi ævikvöld-
inu á Dalbrautinni — í lítilli íbúð
fullri af minningum. Það er enginn
tilviljun að veggirnir eru þaktir ljós-
myndum af ættingjum og vinum
lífs og liðnum. Fólkið hennar var
hennar líf og yndi. Börnum sinum
kom hún til manns og — það sem
var hennar stolt og lífsfylling — til
þeirrar menntunar sem henni sjálfri
hafði ekki staðið til boða.
Elsku ömmu minni og fóstru
þakka ég fyrir þolinmæðina og þá
lífsvisku sem hún miðlaði mér.
Einnig þakka ég henni fyrir að
hjálpa mér til að verða manneskja.
Elna Katrín Jónsdóttir
Bókhald s-
nám
Tölvuskóli Reykjavíkur býður
nú uppá bóknaldsnám fyrir
fólk sem vill ná tökum á
bókhaldi fyrirtaekja.
Markmið námsins er að þátt-
takendur verði fullfærir um
að starfa sjálfstætt við bók-
haldið og annast það allt árið.
Þciin scm ckki hafa kynnst hókhaldi
gcfst kostur á sérstöku grurmnimskciði.
Kennsla fer fram i eftírtöldum stöðmm
Reykjavik, Aknnesi, Selfossi og Vestmannaeyjm
Á nám^keiAími verfluf
dtlrl&r&ndi kennt:
ÍTARLEG VERKEFNI
LAUNABÓKHALD
VmÐISAUKASKATTUR
OG AÐRIR SKATTAR
BÓKUN VERDBRÉFA-
VJÐSKIPTA
LOG OG REGLUGERÐIR
RAUNHÆF BOKAHALDS-
VERKEFNI, FYLGISKJOL
OG AFSTEMMINGAR
TÖLVUBÓKHALD: FJÁR-
HAGS- Op VIÐSKIPTA-
MANNABOKHALD
Námskeiðifi er 72 klst
Hringdu og fáftu nánari upplýsing&r.
Töluusköli Revkiavíkur
____lö Borgartóni 28. S:687590
L^| TÖLVUFRÆÐSLA
LEGSTEINAR
GRANÍT - MARMARI
Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður,
pósthólf 93, símar 54034 og 652707.
HUGVITIÐ VERÐUR
í ASKANA LÁTIÐ
Hér ó landi sem annars staðar er ein mikilvægasta uppspretto nýskðpunor það hugvit
sem fyrir er í landinu, bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum.
Velgengni okkar í framtíðinni ræðst af því hversu vel okkur tekst að nýta þennan auð, því
öll nýsköpun í atvinnulífi þjóðarinnar byggist á hugviti.
íslenskt efnahagslíf þarf á því að halda að fyrirtækin í landinu þróist og dafni.
Islenskir hugvitsmenn opna þessa leið fyrir nýsköpun í atvinnulífi þjóðarinnar.
Eflum íslenskt hugvit; Félag íslenskra hugvitsmanna hefur bundist samningum við
Atvinnumiðlun námsmanna um gagnkvæmt fjáröflunarátak, þar sem háskóla-
stúdentar afla sér og Félagi íslenskra hugvitsmanna tekna með söfnun auglýsinga og
sölustarfi í fjáröflunarátakinu „Hresstaskan 1990".
Tilgangur með fjáröfluninni er meðal annars sá
að tæknivæða Félag íslenskra hugvitsmanna
einkum með tölvubúnaði (CAD/CAM SYSTEM) til úrvinnslu hugmynda og gerð
frumeintaka.
Hugvit (Félog íslenskra hugvitsmanna) vinnur meðal annars að því að efla nýsköpun
í íslensku atvinnulífi, greiða götu hugvitsmanna og gera góðar hugmyndir að
veruleika. Fetum nýja braut til framtíðar — eflum íslenskt hugvit og tækniþekkingu.
ÍSLENSK FRAMTÍÐ Á HUGVITI BYGGÐ
IFELAG ÍSLENSKRA
IHUGV/TSMANNA