Morgunblaðið - 19.08.1990, Síða 32
32 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. AGUST 1990
BAKÞANKAR
Græna hliðin
upp!
*
Eg sat á flugstöðinni á Orly-
ílugvelli á leiðinni heim og
virti fyrir mér samferðafólkið.
Flestir farþeganna voru Frakkar
sem höfðu valið að eyða sumar-
friinu á þessari
eyju norður i ís-
hafi. Mér var vel
heitt þar sem ég
sat íklædd góðri
buxnadragt og
mpó yfirhöín eða
„frakka “ á hand-
leggnum svona
til öryggis. Ég
brosti í laumi að
eftir Helgu
Thorberg
ungu pari sem sat á móti mér.
Þau voru klædd í stutterma boli
og stuttbuxur með svogott sem
engum skálmum og um mittið
höfðu þau innanklæðatöskur
fyrir verðmætin. Ég hugsaði með
mér: „Ja, hvað þeim á eftir að
verða kalt, greyjunum, það hefur
gleymst að fræða þau um hita-
stigið á íslandi." Þetta unga par
var greinilega barnlaust, því þeg-
ar ein víkingafjölskylda bættist i
hópinn, hnippti unga konan í
manninn og horfði með aðdáun
á litlagullfallega ljóshærða vikin-
gatelpu sem kjagaði frjálslega
um.
Flugferðin gekk tíðindalaust
fyrir sig, nema hvað flugfreyurn-
ar fóru óvenju margar ferðir með
brauðbakkana. Stuttu fyrir lend-
ingu gáfu sig á tal við mig þrír
ungir Frakkar sem sátu fyrir
framan mig. Þeir voru með kort
af Reykjavík og vildu vita hvern-
ig þeir kæmust að gististað
sínum. Ég sagði þeim að þeir
þyrftu að taka leigubíl, strætó
væri hættur að ganga. En þeir
voru ekki með íslenska peninga.
Ég taldi vist að banki væri opinn
í fríhöfninni enda þótt komið
væri fram yfir miðnætti. Þeir
hlytu að hafa opið til skipta
ávísunum fyrir landann sem not-
ar ekki greiðslukort en vill versla
í fríhöfninni. Bankinn reyndist
lokaður svo ég mátti versla fyrir
fránkana mína. Ég sagði drengj-
unum að það hlyti að vera hægt
að skipta peningum á Hótel Loft-
leiðum þegar þangað væri komið.
Ég svipaðist um eftir unga fá-
klædda parinu áður en ég braust
út úr flugstöðvarbyggingunni
með áhlaupi, búin að reyra að
mér frakkann upp í háls. Ég sá
þau hvergi og hefði sjálfsagt ekki
þekkt þau, þar sem þau hafa
örugglega verið búin að klæða sig
í allt upp úr bakpokunum. Úti
var 10 gráðu hiti og ekki bara
niðadimm nóft, heldur slagveð-
ur, rok og rigning.
Hvað ætli fólkinu finnist eigin-
lega við þessa fyrstu sýn af ferða-
mannalandinu íslandi? Ætli
þetta sé sama myndin og er fram-
an á franska ferðamannbækl-
ingnum? Gamli fararstjórinn
gaus upp í mér og mér fannst að
ég yrði að snúa „grænu hliðinni
UPP“ °g reyna að milda aðkom-
una., Eg sem íslendingur bar
ábyrgð bæði á veðrinu og opnun-
artíma banka í þessu landi.
Mér fannst það nógu mikið
áfall fyrir þetta ferðafólk að koma
í þetta veður og myrkur að það
þyrfti ekki að standa peninga-
og vegalaust um miðja nótt á
hjara veraldar.
Ég var sótt út á ílugvöll og
hljóp því inn í rútuna til að segja
skjólstæðingum minum að ég
mundi bíða þeirra á Hótel Loft-
leiðum og skipta fyrir þá peníng-
um ef með þyrfti. Á Hótel Loft-
leiðum reyndist hvergi hægt að
skipta peningum. Hvar er ferða-
mannaþjónustan hér á landi?
Áætlunarflug er seint á kvöldin
en ekki er hugsað um að sinna
þörfum ferðafóíks. Ekki geta t.d.
Frakkar fengið íslenska peninga
í frönskum bönkum áður en þeir
koma til landsins. Græna hliðin
var að verða mosavaxin þegar ég
fór að hugleiða hvort ég ætti að
selílytja þá þrjá á áfangastað í
bílnum. En viti menn. Myrkrið
lýstist upp. Það reyndist ekkert
mál að finna leigubílstjóra sem
tók franska peninga. Þegar ég
horfði á eftir ungu mönnunum
upp í bílinn sá ég ekki betur en
að græna mottan væri orðin
hvanngræn og leigubílstjórinn
rósin í ferðamannagatið.
■er
■er
■
Suðurhlíðarskóli, Suðurhlíð 36, Reykjavík
EINKASKOLI FYRIR BORN
Á GRUNNSKÓLAALDRI
II*
■
BH
Suðurhlíðarskóli býóur upp ó:
- einsetinn skóla
- samfelldan skóladag
- aðstoð við heimanám
- gæslu fyrir yngri börn
Suðurhlíðarskóli er almennur grunnskóli
þar sem lögð er áhersla á einstaklinginn og árangur
í námi í kristilegu umhverfi.
Skólinn er starfræktur af S.d. aðventistum.
Getum bætt við nokkrum nemendum í 1,- 5. bekk.
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar
ísíma 91-679260
OFNASMIÐIA
SUÐURNESIAHF
Bjarni M. Bjarnason
Bergstaðastræti 31 A - Kennitala: 080761-4009
Símí 26993 - Bílasími 985-28454
HÓTEL
KEFLAVÍK
-BQÐEIND SF.-
Tryggingafelag bindindismanna
HÚSA
SMIDJAIM
Super Formula 101
KYOLIC
AGED GARLIC EXTRACT POWDER
GARLIC PLUS®
Kristinn Sveinsson
byggingameistari
Hólastekk 5 — Símar 686431 — 74378
Kennitala 171024-2509 - Vsk.nr. 12523
Iswnbf
SUNANGRUNARG^R
VOLTI
HF.
r
NETAGERD
JÓNS HOLBERGSSONAR
Hjallahrauni 11, Hafnarfirói, simi 54949
BREIÐFJÖRÐS
BUKKSMIÐJAHF
SICTÚNI 7-121 REVKJAVÍKO 29022-29025
B.M.VALIA'