Morgunblaðið - 30.08.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. AGUST 1990
3
Enn reynt að semja um Hvítárnetin:
Netabændum boðnar rúmar 8
milljónir fyrir að veiða ekki lax
Veiðiréttareigendur og leigj-
endur stangaveiðiréttinda í berg-
vatnsám Borgaríjarðar hafa enn
gert netaveiðibændum tilboð í
laxinn óveiddan og náist sam-
komulag verður engin laxveiði í
net í Hvítá í Borgarfirði á næstu
sumrum. Samningsaðilar, sem
Morgunblaðið hafði tal af, vörð-
ust allra frétta og sögðu málið
Lítið selt
af loðnu-
afurðum
LITIÐ hefur verið selt fyrirfram
af loðnuafurðum í sumar en búið
er að selja allt mjöl og lýsi, sem
framleitt var á síðustu loðnu-
vertíð. Verð á loðnulýsi komst
fyrir skömmu upp í 300 Banda-
ríkjadali fyrir tonnið og nokkur
hunduð tonn voru seld fyrir það
verð, að sögn Jóns Olafssonar
framkvæmdastjóra Félags
íslenskra fískmjölsframleiðenda.
Jón Ólafsson segir að verð á
loðnulýsi hafi lækkað aftur niður í
rúmlega 290 Bandaríkjadali fyrir
tonnið. Greiddir eru um 8 dalir fyr-
ir prótíneininguna af loðnumjöli en
mjölverðið fer heldur hækkandi.
Hvorki íslensk né erlend skip
hafa leitað að loðnu í íslensku lög-
sögunni undanfarnar vikur, að sögn
Landhelgisgæslunnar.
Álagning skatta 1990:
Kærufrestur
rann út í gær
KÆRUFRESTUR vegna álagn-
ingar skatta á þessu ári rann út
í gær. Ingvar Rögnvaldsson
skrifstofustjóri á Skattstofu
Reykjavíkur sagði í samtali í
gær, að ekki lægi enn ljóst fyrir
hve margar kærur hafí borist,
þar sem enn sé einhver hluti
þeirra ókominn úr pósti.
Tekið verður við kærum sem
póstlagðar voru í gær og bera
póststimpil þess dags. Áfram verður
þó tekið við beiðnum um lækkun
gjalda vegna erfiðra Ijárhagsað-
stæðna, en Ingvar segir að æskilegt
sé að þær berist sem fyrst.
í fyrra bárust skattstjóranum í
Reykjavík alls 5.150 kærur vegna
álagningar 1989, að meðtöldum
beiðnum um lækkun vegna erfiðra
aðstæðna.
Aukin tíðni
ferða SYR
VETRARÁÆTLUN SVR tekur
gildi mánudaginn 3. september.
Þá eykst tíðni ferða á 9 leiðum.
Vagnar á leiðum 2-7 og 10-12
aka á 15 mínútna fresti klukkan
7-19, mánudaga til föstudaga.
Akstur á kvöldin og um helgar á
áðurtöldum leiðum er óbreyttur.
Vagnar á leiðum 8-9 og 13-14
aka á 30 mínútna fresti alla daga,
einnig á kvöldin.
Helgina 1. og 2. september verð-
ur skipt um leiðaspjöld á viðkomu-
stöðum SVR.
viðkvæmt og tvísýnt að vanda,
en tvívegis áður hafa samningar
um þetta farið út um þúfur, m.a.
vegna þess að netabændur hafa
ekki verið einhuga um að ganga
að tilboðunum. Veiðiréttareig-
endur vilja hins vegar semja við
alla netaveiðimenn eða engan.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er tilboðið nú upp á
547,50 krónur á kílóið af laxi og
miðað sé við um 5.000 laxa með-
alveiði tíu síðustu árin. Miðað við
3 kg meðalþyngd laxins á þessu
tímabili má ráða að um rúmar 8
milljónir sé að ræða og mun sá
kostnaður dreifast á seld veiði-
leyfi næsta sumar.
Netabændur hafa nú tilboðið til
athugunar og munu funda um það
á næstu dögum. Að vanda eru
margir samningsfúsir, en óvfst
hvort allir séu til að þessu sinni.
Undir lok síðasta vetrar fóru fram
könnunai-viðræður í Borgarfirðin-
um og töldu viðmælendur Morgun-
blaðsins þá að samningar gætu tek-
ist. Málið strandaði þá hins vegar
á því að of seint var af stað farið
og nokkrir leigutakar bergvatnanna
gátu ekki hækkað verð veiðileyfa,
þar sem þau voru flest seld og
greidd er málið komst á skrið. Fyrst
var málinu hreyft árið 1988 af
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Þá
strandaði á afstöðu netabænda í
Ferjukoti þar sem netaveiðihefðin
er rík og aldagömul. Síðan hefur
SVFR samið um upptöku nokkurra
lagna upp á sitt eindæmi vegna
leigu sinnar á Norðurá og Gljúfurá
í Borgarfirði.
Fiskifræðingar hafa almennt tal-
ið að laxagöngur í bergvatnsárnar
muni stóraukast við upptöku net-
Laxveiði í net í Hvítá.
anna, en hins vegar beri að feta
sig varlega áfram, því ekki sé ljóst
hvernig vistkerfi ánna taki við fyrir-
sjáanlegri aukningu á fullorðnum
laxi á hrygningarstöðvar að hausti.
EVRÓPUKEPPNILANDSLIÐA
Á LAUGARDALSVELLINUM
5. SEPTEMBER KL. 18.30
Forsala aðgöngumiða hefst í dag, fimmtudag, og verður ÍKRINGLUNNI daglega, frá kl. 12 -18
og í AUSTURSTRÆTI dagana 3., 4. og 5. september.
Ég ætla ekki að missa af þessum leik!
Edda Andrésdóttlr Guðmundur J. Guðmundsson Steingrímur Hermannsson