Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990
Heim úr sex vikna
íjtillaferð á Grænlandi
SEX menn á aldrinum 19-24 ára lentu á Reykjavíkurflugvelli í gær
eftir sex vikna ævintýraferð um grænlensku Stauningsalpana. Menn-
irnir, sem allir eru í Islenska alpaklúbbnum, höfðu aðalbækistöðvar
á skriðjökli í um 40 km fjarlægð
skíðum á alpana.
„Ferðin var mun erfiðari en við
gerðum ráð fyrir í fyrstu, aðallega
vegna mikilla birgða sem við höfð-
um meðferðis. Við hrepptum engin
óveður en það rigndi hressilega á
köflum," sagði Sigursteinn Baldurs-
son, einn leiðangursmanna.
„Þetta gekk mjög vel enda mikið
búið að hafa fyrir þessu,“ sagði
Haraldur Öm Ólafsson. „Undirbún-
ingur stóð yfir í hálft ár. Við þurft-
um að sækja um leyfi hjá dönskum
og grænlenskum yfirvöldum og það
gekk fremur illa að fá það. Við
fengum aðstoð íslenska utanríkis-
ráðuneytisins til að afla tiiskilinna
leyfa. Einnig fór langur tími í kaupa
réttan útbúnað sem að mestu leyti
var fenginn erlendis frá og skipu-
lagning ferðarinnar verður að vera
mjög góð því engu er hægt að
bjarga eftir að lagt er af stað í slíka
frá Meistaravík og gengu þaðan á
för,“ sagði Haraldur Örn.
Haraldur sagði að það sem hefði
einna helst komið þeim á óvart í
ferðinni var hversu mikið snjóa
hefði tekið upp og aðstæður á fjöll-
um og jöklum því erfiðari en ella.
„Þarna höfðu verið miklar leysingar
en þær voru að mestu yfirstaðnar
þegar við komum á svæðið,“ sagði
Haraldur.
íslensku fjallamennimar höfðu
aðalbúðir nærri búðum bresku fjall-
göngumannanna.
„Það kom mér einnig á óvart hve
mikið er hægt að læra af slíkum
ferðum og ég held að það leiki eng-
inn vafi á því að við gerum eitthvað
slíkt aftur. Það er margt sem er
heillandi við svona ferðir, maður
öðlast vissa lífsreynslu og upplifun-
in er stórkostleg," sagði Haraldur
Örn.
Frá vinstri: Haraldur Örn Ólafsson, Guðmundur Eyjólfsson, Stefán Smárason, Ingimar Stefánsson,
Haraldur Þorri Grétarsson og Sigursteinn Baldursson.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 30. ÁGÚST
YFIRLIT { GÆR: Um 400 km suður af Ingólfshöfða er 985 mb.
leegð sem mun fara að grynnast og þokast í átt til Skotlands, en
hægfara hæðarhryggur á Grænlandshafi og 998 mb. lægð við Hvarf.
SPÁ: Norðan- og norðaustankaldi um vestanvert landiö, en hæg
suðaustanátt austan til á landinu. Dálítlar skúrir á vestanverðu
norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum, annars að mestu þurrt.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAGí Hæg norðan- og norðvestanátt um aust-
anvert landið en hægviðri annars staðar. Víðast skýjað en úrkomu-
iaust. Hiti 6-12 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnanátt, víðast goia eða kaidi. Lítils-
háttar súid eða rigning sunnan- og vestaníands en þurrt og bjart
í öðrum iandshlutum. Hiti 10-15 stig.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
A. Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
== Þoka
= Þokumóða
’ 5 ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
h«i veður
Akureyri 9 rigning
11 rigning________
20 hálfskýjað
19 skýjað
24 téttskýjað
11 rigning
6 skýjað
20 skýjað
Stokkhólmur 23 mistur
Þórshofn 12 Þoka
Bérgen
Heisinki
Narssarssuaq
Nuuk
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Beriln
Chlcago
Feneyjar
Franldurt
LasPalmas
London
Lúxemborg
Madríd
Mallorca
Montreal
NewVork
Orlando
Parts
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
27 helðskírt
27 mistur
27 sltýjað
26 léttskýjað
19 léttskýjað
30 léttskýjað
28 heiðskírt
15 rigningés.klst.
26 heiðskirt
27 skýjað
30 sk]gað
18 heiðsklrt
26 léttskýjað
30 sknað
28 mlstur
29 léttskýjað
19 skýjað
23 skýjað
25 heiðskfrt
31 skýjað
28 iéttskýjað
29 léttskýjað
vantar
13
Fjórir beijast um for-
ystuna í Kuhmo-ralli
Hálf mínúta milli þriggja efstu
ÁSGEIR Sigurðsson og Bragi
Guðmundsson á Metro 6R4
höfðu nauma forystu í Kuhmo-
rallkeppni Hjólbarðahallarinnar
sem hófst síðdegis í gær.
Skammt undan voru feðgarnir
Rúnar Jónsson og Jón Ragnars-
son á Ford Escort RS og
Steingrímur Ingason og Guð-
mundur Jónsson á Nissan. Mun-
aði aðeins rúmri hálfri minútu
á fyrstu þremur bílunum, eftir
fyrri leiðarhluta af tveimur í
gærkvöldi.
Kumho-rallið er fjögurra daga
langt, 1.280 km og liggur í dag
um Kaldadal, Tröllháls og nokkrar
stuttar leiðir. Miðstöð keppninnar
er í Hjólbarðahöllinni og þangað
koma bílarnir í viðgerðarhlé kl.
22.30 í kvöld. Kuhmo-rallkeppnin
stendur fram á laugardag.
Staðan í gærkvöldi eftir fyrsta
leiðarhluta: 1. Ásgeir/Bragi, Metro
6R4, 34,56 mínútur, 2. Rúnar/Jón,
Ford Escort, 35,15, 3. Steingrím-
ur/Sæmundur, Nissan 35,29, 4.
Ólafur/Halldór, Talbot, 35,59, 5.
Birgir/Gunnar, Toyota Corolla,
37,41.
Morgunblaðið/Björn Blöndai
Jon Voight heilsar Árna Samúelssyni við komuna til Keflavíkur í
gær. Hér ætlar kappinn að dvelja í tvo daga.
Jon Voight, leikarinn heimsfrægi, á íslandi;
Loftið hér er bæði
tært og hressandi
Keflavík.
„ÉG HEF beðið eftir þessari
stundu lengi, loftið hér er bæði
tært og hressandi,*1 sagði Jon
Voight, kvikmyndaleikarinn
heimsfrægi, við komuna til
Keflavíkur í gær.
Hingað er kappinn kominn til að
kynna nýjustu kvikmynd sína Et-
emity sem verður sýnd í Bíóhöllinni
innan tíðar. Með Voight í förinni
er Steven Paul leikstjóri myndarinn-
ar ásamt foreldrum sínum sem eru
framleiðendur myndarinnar. Árni
Samúelsson framkvæmdastjóri Bíó-
hallarinnar hefur undirbúið komu
Voight hingað til lands og sagði
Árni sem er vel kunnugur leikaran-
um að Voight hefði þegar við töku
myndarinnar haft orð á að koma
hingað til að kynna myndina. Með-
al þekktra mynda Voights má nefna
Midnight Cowboy, Runaway Train,
Deliverence, Odessa File og Coming
Home.
- BB