Morgunblaðið - 30.08.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990
13
,+
Er dans list
eða íþrótt?
eftirBáru
Magnúsdóttur
Ætla má að dansáhugi íslend-
inga fari vaxandi um þessar mund-
ir. Skólarnir eru í óða önn að und-
irbúa vetrarstarfið sem hefst hjá
allflestum dansskólum í september!
Islandsmeistarakeppnin í vor ber
þess merki að áhugi rís hátt þar
sem um 1.000 einstaklingar mættu
til keppni og óhætt er að segja að
aldrei á 5 ára ferli keppninnar hef-
ur hún verið eins glæsileg og nú í
vor.
Það hefur valdið stjómendum
keppninnar nokkrum erfíðleikum
að vekja áhuga fjölmiðla á keppn-
inni og dansi yfírleitt, hvort sem
um er að ræða listdans eða sam-
kvæmisdans, og virðist sem þeir
fylgist ekki nógu vel með þeirri
vakningu sem orðið hefur meðal
almennings í dansi. Sé skoðaður sá
tími í ríkissjónvarpinu sem tekinn
er undir allskyns íþróttir er ekki
að fínna mikið efni um dans. Nær
allar greinar íþrótta er fjallað um
og þær kynntar sjónvarpsáhorfend-
um og eiga sumar hveijar fastan
sess í dagskránni — þó ekki dans.
Er dans list eða íþrótt? Þessi
klassíska spuming skýtur oft upp
kollinum og er síðan ýtt til hliðar
ósvarað að því er virðist. Dans
kemst því ekki að í neinum dag-
skrárlið, því hann heyrir ekki undir
neinn dagskrárgerðarmann. Þetta
ástand er bæði óþolandi og órétt-
látt. Dans er bæði list og íþrótt.
Þar að auki hefur dansinn hagnýtt
gildi, bæði listdansinn og sam-
kvæmisdansinn. I samkvæmisdans-
skóla lærir viðkomandi alla almenna
dansa, sem kemur honum að gagni
allt lífíð. í jassballett og ballett-
skóla er mikil líkamleg þjálfun sem
um leið beinir einstaklingnum inná
hollar lífsvenjur og eykur þol og
þrek viðkomandi. Af þessu má ráða
að dans í hvaða mynd sem er hefur
hagnýtt gildi og hvað börn og ungl-
inga varðar mikið uppeldislegt gildi.
Hitt er svo augljóst mál að það eru
Bára Magnúsdóttir
„Málið á ekki að snúast
um það hvort dans er
list eða íþrótt.“
miklu færri einstaklingar sem skara
framúr og gerast listdansarar í jass-
ballett eða ballett eða topp keppnis-
fólk í samkvæmisdönsum.
Málið á ekki að snúast um það
hvort dans er list eða íþrótt, heldur
þá staðreynd að fjöldin allur af
börnum, unglingum og fullorðnum
stunda dans sem tómstundagaman.
Þetta er þeirra áhugasvið. Þar á
að gera öllum jafnt undir höfði fyrst
á annað borð er verið að fjalla um
tómstundir fólks, eins og til dæmis
í sjónvarpinu, þar sem fólk fær svör-
un við áhugamáli sínu hafí það
áhuga á sundi, handbolta, skíða-
iþrótt, fímleikum, pílukasti, keilu,
kraftlyftingum, torfæruakstri og
svona mætti lengi telja, öllu öðru
en dansi!
Er ekki kominn tími til að fjöl-
miðlar taki dansinn í sátt og viður-
kenni hann sem áhugasvið fjölda
fólks á öllum aldri.
Höfundur er djassballettkennnri.
• •
POTTAPLONTU
20-50%AFSLÁTTU R
> 4*z’.Tr%
► lA4
Okkar árlega pottaplöntuútsala stendur nú yfir. Aldrei
fyrr höfum við boðið jafn góðar plöntur á jafn góðu
verði! Ótrúlegt úrval af fyrsta flokks plöntum með
20-50% afslætti!
Afsláttur á fallegum jukkum og burknum:
JUKKUR 50%
BURKNAR 50%
KAKTUSAR 30%
Opið alla daga frá kl. 9-21. Sími 689070.
Sérstök tilboð í tilefni útsölunnar:
KERAMIKPOTTAR 20-40% AFSiATTUR.
SfeRLAGAÐUR BLÓMAÁBURÐUR
- KYNNINGARVERÐ.
Dæmi um verð:
AOur Nú
Áöur
Jukkur 35 sm ,792,- 396,- Pálmar (Areka) 350,-
Jukkur 45 sm 1.192,- 596,- Pálmar (Areka) 1.029,-
Jukkur 60 sm 1.977,- 988,- Stofnaskur 625,-
,541,- 270,- Gúmmítré .770,-
Burknar, stærri 649,- 324,- Kaktusar, minni 198,-
Fíkusar ,7-92,- 475,- Kaktusar, stærri .286,-
Nú
245,-
720,-
437,-
539,-
139,-
199,-
Landsbyggðarþjónusta - sendum hvert á land sem er.
Nú er kjörið að fegra umhverfi sitt með fallegum
plöntum - og ódýrum!
W'*
Kærkomnar nýjungar - ekki síst fýrir smáfólkið.
Þykkmjólk er mildsýrð, hnausþykk,
bragðljúf, holl og næringarrík með
BIOgarde®gerlum sem öllum gera gott.
eru þegar ný aíkvæmi líta dagsins ljós
Við fögnum tveimur nýjum afkvæmum þykkmjólkurkýrinnar góðu.
Þykkmjólk með súkkulaði og appelsínum og
treflaríkri þykkmjólk með möndlunij hnetum, ananas, appelsínum,
rúsínum og marsípani.
AUK