Morgunblaðið - 30.08.1990, Síða 20

Morgunblaðið - 30.08.1990, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 SKOL.A Morgunblaðið/Sverrir Frá ritfangadeild Hagkaups í Kringlunni VORUR Penninn tekur að sér umsjón með ritfanga- deildum Hagkaups VERSLANIRNAR Penninn og Hagkaup hafa gert með sér samkomu- lag um að Penninn annist innkaup og áfyllingu fyrir ritfangadeildir Hagkaups. Þetta er gert að erlendri fyrirmynd, en þýska fyrirtækið Herlitz AG, sem Penninn hefur umboð fyrir hérlendis, annast slíka þjónustu við vöruhús í Mið-Evrópu, og reyndar segir JÓn Ásbergs- son framkvæmdastjóri Hagkaups að frumkvæðið að samningnum sé komið frá þýska fyrirtækinu. Samkomulagið nær yfír ritföng, jóla- og skólavaming. Jón sagði, að með samkomulaginu geti Hag- kaup komist hjá lagerhaldi í tengsl- um við ritfangadeildirnar, og eygði þar með tækifæri á mun meiri veltu- hraða en ella. Gunnar Dungal, framkvæmda- stjóri Pennans, sagði að nær ein- göngu væri boðið upp á vörur frá Herlitz í ritfangadeildunum. „Við ákveðum innkaup til deildanna í samstarfí við starfsfólk Hagkaups, og afhendum svo vörurnar verð- merktar," sagði Gunnar. Hann sagði, að líkt og í þeim vöruhúsum sem Herlitz AG þjónustaði erlendis yrði nær eingöngu boðið upp á vör- ur fyrirtækisins sjálfs í ritfanga- deildum Hagkaups, enda væri fram- leiðsla Herlitz á þessu sviði mjög fjölbreytt. Lánið til Sovrybflot: Sambandið aðili að samkomulaginu MORGUNBLAÐIÐ greindi frá því í frétt í gær, að SH hefði samið við Landsbanka íslands um að hann byði sovézka inn- flutningsfyrirtækinu Sovrybflot lán til þess að Sovétmenn gætu greitt skuldir sínar við íslenzka flskseljendur. í fréttinni var þess ekki getið, að þarna er um að ræða sameiginlega samninga SH og Sjávarafurðadeildar Sam- bandsins. Benedikt Sveinsson, fram- kvæmdastjóri deildarinnar, segir hana hafa átt aðild að þessu sam- komulagi og því eigi fyrirtæki innan Sambandsins sömu möguleika á greiðslum og fyrirtæki innan SH, enda sé um að ræða upphæð, sem nemi heildarskuldum sovétmanna við íslenzka framleiðendur. Svernr Þór fyrrver- andi skipstjóri látinn SVERRIR Þór, fyrrum skipstjóri og deildarsljóri sjótrygginga- deildar Samvinnutrygginga, lést aðfararnótt 28. ágúst, 75 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eigin- konu, Ebbu Björnæs Þór, þrjú börn þeirra hjóna og einn kjör- son. Sverrir Þór var fæddur 16. októ- ber 1914' á Akureyri. Hann tók farmannapróf frá Stýrimannaskóla íslands 1935 og lauk prófi í ýmsum greinum trygginga í Trygginga- skólanum í Reykjavík 1964-1966. Hann stundaði sjómennsku frá 13 ára aldri og var háseti og stýrimað- ur á stríðsárunum á ýmsum skipum í fiskflutningum. Árin 1942-1963 var hann skip- stjóri, lengst af á skipum SÍS og eftiriitsmaður við smíði þeirra. Sverrir réðst til Samvinnutrygg- inga í ársbyijun 1964 er hann lét af skipstjóm. Hann gegndi stöðu. deildarstjóra í sjótryggingadeild allt til dauðadags. Hann var formaður Sverrir Þór Styrktarfélags Skipstjórafélags ís- lands frá stofnun 1967. Fyrri kona Sverris var Ingibjörg Jónsdóttir frá Stokkseyri. Aðalfundur Stéttarsambands bænda: Aukin hagkvæmni ef höml- ur á viðskiptum með full- virðisrétt verða aflagðar - segir Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambandsins Reykjum í Hrútafirði. Frá Ilelga Bjarnasyni blaðamanni Morgunblaðsins. HAUKUR Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda sagði í setningarræðu sinni við upphaf aðalfundar Stéttarsambands bænda á Reykjum í Hrútafirði í gær að rætt hefði verið um endurskoðun á framleiðslustýringunni í þeim tilgangi áð auka hagræðingu i fram- leiðslu búvara. Lýsti hann þeirri skoðun sinni að ein virkasta leiðin til þess sé að losa um þær hömlur sem verið hafa á tilfærslu full- virðisréttar milli jarða í hálft annað ár. í ræðu Steingríms J. Sigfús- sonar landbúnaðarráðherra kom fram að bann hans við sölu fullvirð- isréttar yrði ekki varanlegt. Tilkynnti hann að á næstunni yrði tek- in ákvörðun um breytingar á þessu fyrirkomulagi. í drögum að nýjum búvörusamningi er gert ráð fyrir að tilfærsla fullvirðisréttar á milli einstakra bænda verði möguleg. Aðalfundinum lýkur annað kvöld. Undirbúningur nýs búvörusamnings er aðalmál fundarins og í þvi felst að tekin er afstaða tl hugmynda um landbúnaðarstefnuna næstu árin. í þessu sambandi ber hæst mikill vandi sauðfjárræktar- innar. í ræðu Hauks Halldórssonar kom fram að á síðasta verðlagsári var gott jafnvægi í framleiðslu og eftirspurn eftir mjólkurvörum og voru birgðir mjólkurvara 1. sept- ember 1989 þær minnstu sem ver- ið hefur um langt skeið. Á síðustu tólf mánuðum hafa selst 99,8 millj- ón lítrar af mjólk á innlendum markaði en það er 2,42% samdrátt- ur miðað við sama tíma í fyrra. Rakti Haukur það til aukinnar sam- keppni við aðrar vörur. Sala kinda- kjöts hefur haldið áfram að minnka og eru horfur á að salan verði 8.000 tonn á þessu verðlagsári. Fram- leiðslan í haust er áætluð 9.500 tonn. Hins vegar er sá fullvirðis- réttur sem bændur hafa tekjur af í einu eða öðru formi um 12.100 tonn. Haukur sagði: Samtals er því um að ræða hátt í 3.000 tonna framleiðslurétt sem getur orðið virkur á ný á næstu 2-3 árum. Þessar tölur skýra ef til vill betur en flest annað þann uppsafnaða vanda sem við er að fást í sauðfjár- ræktinni. Haukur vék að þátttöku Stéttar- sambandsins í kjarasamningunum í febrúar, svokallaðri þjóðarsátt. Taldi hann þá marka tímamót í starfssögu Stéttarsambandsins. Hann ræddi einnig um starfsskil- yrði landbúnaðarins, einkum breyt- ingar á landbúnaðinum í kjölfar hugsanlegra breytinga á GATT- samkomulaginu og samningum EB og EFTA um sameiginlegan Evr- ópumarkað. „Við höfum fram til þessa ekki gefið mikinn gaum að þróun þessara mála, en ég tel hins vegar að aðstæður séu nú svo breyttar að það væri ábyrgðarleysi að fylgjast ekki náið með þessari framvindu. Það væri óraunsæi að horfa fram hjá mögulegum áhrifum þessarar þróunar á starfsumhverfi íslensks landbúnaðar á næstu árum. Það er þó trú mín að framtíð íslensks landbúnaðar ráðist ekki fyrst og fremst af niðurstöðum al- þjóðasamninga heldur sé okkur meiri hætta búin af skammsýnum íslenskum stjórnmálamönnum sem einungis taki mið af stundarhags- munum en skynja ekki mikilvægi landbúnaðarins til lengri tíma lit- ið,“ sagði Haukur meðal annars. Haukur sagði að búvörusamn- ingar hafi hingað til nær einvörð- ungu fjallað um verðábyrgð ríkisins á tilteknu magni mjólkur og kinda- kjöts. í yfirstandandi viðræðum væri hins vegar verið að fjalla um heildarramma fyrir þróun landbún- aðarins til lengri tíma. Hann sagði að viðræðurnar hefðu fram til þessa fjallað einkum um stefnuna í land- búnaðarmálum en útfærsla ein- stakra atriða væri enn sem komið er skemmra á veg komin. Hann sagði að í stórum dráttum væri verið að ræða um þrjú grundvallar- markmið. í fyrsta lagi áframhald- andi aðlögun framleiðslunnar að innlendri markaðsþörf og hvernig hún getið orðið með viðráðanlegum hætti. í öðru lagi sagði hann að spurningin væri um það hvers kon- ar starfsumhverfi landbúnaðinum verði tryggt á komandi árum. í þriðja lagi væri það hvemig auka megi hagkvæmni í framleiðslunni og styrkja stöðu búvaranna á markaðnum, jafnframt því að gera landbúnaðinn samkeppnisfærari en nú er um vinnuafl og flármagn. Varðandi aðlögun framleiðsl- unnar sagði Haukur að/ viðhalda þurfi því jafnvægi sem náðst hefði í mjólkurframleiðslunni. Staðan væri allt önnur og erfíðari í sauðfj- árræktinni. Á þeim fimm árum sem iiðin væru frá setningu búvörulag- anna hefði innanlandsneysla á kindakjöti minnkað úr 39 kg á mann í 33 kg og samsvaraði það I. 500 tonnum á ári. Jafnframt hefði útflutningurinn sífellt orðið erfiðari og umsamdar útflutnings- bætur dygðu fyrir sífellt minna kjötmagni. „Hve hratt treystum við okkur til að framkvæma þá aðlög- un sem virðist óumflýjanleg í sauð- fjárræktinni? í þessu sambandi þurfa stjórnvöld að átta sig á því að fyrir bændastéttina er hér um gífurlega viðkvæmt mál að ræða og sá tími sem gefinn verður til þessarar aðlögunar kann að ráða úrslitum um það hvort Stéttarsam- bandið, sem hagsmunasamtök bænda, treystir sér til samstarfs um þetta verkefni,“ sagði Haukur. í drögum að nýjum búvörusamn- ingi er gert ráð fyrir að samningur- inn verði markaðstengdur, það er að umsamið framleiðslumagn fari eftir sölunni. Haukur sagði að í ljósi þess hve sala kindakjöts hefði dreg- ist mikið saman á undanförnum árum þurfi menn að spyija sig þeirrar spurningar hvort núverandi fyrirkomulag hafí orðið til þess að slæva tilfinningu bænda fyrir markaðnum og hvort það hafi orð- ið til þess að draga úr frumkvæði vinnslukerfisins til vöruþróunar og sölustarfsemi. „Vantar ekki ein- hvers staðar söluhvatann í kerfið?“ sagði Haukur. Undir Iok ræðu sinnar sagði for- maður Stéttarsambandsins að bú- vörusamningur væri einungis verk- færi til að ná þeim markmiðum sem menn hafa sett sér við framkvæmd landbúnaðarstefnunnar. „Nauð- synlegt er að sú landbúnaðarstefna sem fylgt er njóti meirihlutafylgis með þjóðinni. Sé ekki svo er hún dæmd til að mistakast. Við verðum' því að starfa í sátt við þjóðina og við verðum að starfa í sátt við umhverfið. Það er von mín að þær hugmyndir sem nú eru reifaðar í nýjum búvörusamningi geti orðið grundvöllur að slíkri „þjóðarsátt" um Iandbúnaðinn,“ sagði Haukur. „Ríkið eitt getur ekki leyst vandamálin" í ávarpi sínu sagði Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra meðal annars frá afstöðu íslands í viðræðum innan almenna tolla- bandalagsins, GATT. Hún hefði mótast af nánu sambandi stjórn- valda á öllum Norðurlöndunum. Þau vildu standa vörð um innlenda matvælaframleiðslu, höfuðlínur í byggðastefnu og sjálfsákvörðunar- Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda. vald í málefnum landbúnaðarins. Hann íjallaði um stöðu einstakra búgreina og fleira. Ráðherra sagði frá viðræðum um nýjan búvörusamning bænda og ríkisvaldsins. Meðal meginatriða nýs grundvallar búvöruframleiðsl- unnar er eftirfarandi að sögn ráð- herra: Verðábyrgð ríkisins byggist á innanlandsmarkaði með ákveðnu öryggisálagi. Aðlögun fullvirðis- réttar verði á tiltölulega skömmum tíma, og hafa þrjú fyrstu ár nýs samnings verið nefnd í því sam- bandi að viðbættum þeim tíma sem eftir er af núgildandi samningi. Stefnt verði að lágmarksbirgða- haldi. Samningurinn verði ótíma- settur og í honum endurskoðunar- og uppsagnarákvæði. Steingrímur sagði að niðurstaða viðræðnanna varðaði miklu fyrir alla þróun landbúnaðarmála. „Það væri mikilvægur árangur ef tækist að skapa viðunanlega sátt um málefni landbúnaðarins, þannig að sá jákvæði andi sem að ýmsu leyti hefur skapast á þessu ári milli bænda og neytenda komi til með að vara og verði um leið upphafið að framfarasókn landbúnaðarins til átaka og viðfangsefni framtíðar- innar. Nauðsynlegt er að fá sem fyrst niðurstöðu, þannig að eitt- hvað liggi fyrir um framtíðina. Það er að mörgu leyti gott að ný ríkis- stjórn geti haft áhrif á þróun mála ef henni sýnist, og miðað við allar pólitískar aðstæður og þann tíma sem viðræður nú ber upp á held ég að þetta sé öllum málsaðilum hagstætt," sagði landbúnaðarráð- herra. Ilann sagði einnig: „Nú er meiri þörf en oft áður að bijóta hlutina til mergjar og huga að öllum mögu- leikum til að vinna sig út úr þeirri stöðu sem nú er. Það mun ekki gerast eingöngu með nýjum bú- vörusamningi. Ríkið eitt getur ekki leyst þau vandamál. Þau eru í eðli sínu óleysanleg nema frumkvæði og kraftur bænda sjálfra, samtaka þeirra og fyrirtækja verði virkjuð. Ég er sérstaklega að tala um sölu- málin. Við verðum að horfast í augu við staðreyndirnar. Það fyrir- komulag sem við höfum búið við er ekki gott. Það dugar okkur ekki vel. Við lifum í breyttum heimi og verðum að laga okkur að breyting- unum,“ sagði Steingrímur J. Sigf- ússon landbúnaðarráðherra. Eftir ræðu foimanns og land- búnaðarráðherra voru lagðir fram reikningar Stéttarsambandsins, Jóhannes Torfason gerði grein fyr- ir Framleiðnisjóði landbúnaðarins, Guðmundur Lárusson Iagði fram tillögur að breytingum á samþykkt- ur sambandsins og Haukur Hall- dórsson skýrði drög að nýjum bú- vörusamningi sem eru til umfjöll- unar í samninganefnd ríkisins og bænda. Á eftir voru umræður sem stóðu fram á kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.