Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990
STRÍÐSÁSTAND VIÐ PERSAFLÓA
OPEC leyfír aukna olíuframleiðslu:
Vilja tryggja fram-
boð og stöðugleika
Vín, Dubai, París. Reuter.
MIKILL meirihlúti aðildarríkja OPEC, samtaka olíusöluríkja, sam-
þykkti í gær á fundi í Vín að leyfa aukna framleiðslu til að mæta
aukinni eftirspurn. Viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna hefur nú stöðv-
að allan olíuútflutning frá Irak og hernumdu Kúvæt. Hvorki Irakar
né Líbýumenn, helstu stuðningsmenn þeirra í OPEC, sendu fulltrúa
til Vínarfundarins sem upphaflega átti aðeins að meta markaðshorf-
ur. íranir vildu að beðið yrði með ákvörðunina þar til iðnvædd ríki
hefðu notað varabirgðir sínar en fengu ekki kröfum sínum fram-
gengt. Lítils háttar verðlækkun varð á Norðursjávarolíu, fatið fór úr
26,05 Bandaríkjadollurum í 24,85, eftir yfirlýsingu OPEC sem ekki
kom verulega á óvart. Vitað var að flest ríkin vildu koma í veg fyrir
hættu á kreppu á Vesturlöndum vegna verðsprengingar og olíuskorts
þar sem slík þróun yrði OPEC-ríkjum ekki til framdráttar er upp
væri staðið.
Meirihluti ríkjanna 13 í OPEC
sendi frá yfiriýsingu þar sem sagði
að samtökin vildu stuðla að því að
stöðugleiki ríkti á olíumörkuðum
og nægilegt framboð yrði tryggt.
„Við höfum axlað okkar hluta af
ábyrgðinni," sagði forseti samtak-
anna, Alsírmaðurinn Sadek Bouss-
ena, við fréttamenn eftir fundinn.
Olíumálaráðherra Indónesíu sagði
að margir hefðu óttast að Saudi-
Arabar og fleiri þjóðir myndu ein-
faldlega auka framleiðslu sína án
tillits til ákvarðana OPEC. Þar með
hefði eining samtakanna, er stofnuð
voru 1960, verið í hættu. „Okkur
tókst að afstýra þessari hættu í
Vín,“ sagði ráðherrann.
mun koma frá Saudi-Arabíu og
Sameinuðu furstadæmunum, yrði
einkum seld ríkjum í þriðja heimin-
um sem verða fyrir mestum skakka-
föllum vegna viðskiptabanns SÞ.
Framleiðsla íraks og Kúvæts var
samanlagt um fjórar milljónir olíu-
fata á dag og munu Saudi-Arabar
geta aukið sína framleiðslu um
milljón tunnur á tveim sólarhring-
um og aðra milljón á tveim vikum.
Furstadæmin geta bætt við a.m.k.
hálfri milljón á dag með skömmum
fyrirvara og nokkur ríki í Rómönsku
Ameríku geta einnig aukið olíu-
framleiðslu sína verulega.
Reuter
Yasser Arafat (t.v.), leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO),
fær hlýjar móttökur hjá aldavini sínum, Saddam Hussein, í Bagdad
í vikunni. Arafat, er stutt hefur Iraka í einu og öllu frá því Saddam
Hussein lagði undir sig Kúvæt, hefur sett fram tillögur um að herlið
á vegum Sameinuðu þjóðanna leysi af hólmi lið Vesturveldanna við
Persaflóa en honum hefur gengið illa að afla þeim fylgis. Olíuríkin
við Persaflóa hafa styrkt PLO óspart með fé undanfarna áratugi
en nú telja margir að þarlend sljórnvöld muni framvegis hundsa
óskir Arafats í þeim efnum.
Norðmenn
senda birgða-
skip til Persa-
flóasvæðisins
Ósló. Frá Helge Sörensen, fréttaritara
Morgunblaðsins.
NORÐMENN koma að líkindum
til með að senda herskip á næst-
unni til Persaflóa. Meirihluti
þingmanna styður ákvörðun af
því tagi og verður birgðaskip
sent til fylgdar dönsku korvet-
tunni sem verið er að ferðbúa
fyrir siglingu til Persaflóasvæð-
isins.
í fyrstu er aðeins gert ráð fyrir
að Norðmenn sendi birgðir og mun
þar á meðal vera átt við skotfæri.
Kjell Magne Bondevik utanríkisráð-
herra segir að Norðmenn muni ein-
vörðungu gegna varnarhlutverki á
Persaflóasvæðinu.
Stjórnmálaflokkarnir að Fram-
faraflokknum undanteknum styðja
allir áætlanir stjórnarinnar um þátt-
töku Norðmanna í hinum alþjóðlega
flota sem stefnt hefur verið til Pers-
aflóasvæðisins vegna innrásar Ir-
aka í Kúvæt. Hafa framfaraflokks-
menn hvatt til þess að Stórþingið
verði kallað saman til fundar um
málið. Þykir Framfaraflokknum
áformin alltof lítilmannleg og vilja
að Norðmenn taki mun öflugri þátt
í aðgerðunum á Persaflóa.
Embættismenn 1 Bagdad segja baráttuþrekið óskert:
Treysta því að Vesturlanda-
þjóðir missi að lokiun móðinn
Bagdad. Daily Telegraph, Reuter.
íranir vildu að beðið yrði með
að auka olíuframleiðslu þar til
stjóm Alþjóðaorkumálastofnunar-
innar (IEÁ) í París, sem 21 þjóð á
aðild að, hefði fundað á föstudag.
Talsmaður IEA sagði að viðræður
OPEC og orkumálastofnunarinnar
um olíusölumál væru „ekki á döf-
inni.“ IEA hefur vald til að skipa
aðildarríkjum sínum að grípa til
varabirgða, takmarka ökuhraða tii
að minnka bensínnotkun og gera
fleiri ráðstafanir, jafnvel Iáta ríkin
deila með sér birgðum, telji stofnun-
in að hætta sé á olíuskorti. Allar
þjóðir Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar (OECD) eiga aðild að
orkumálastofnuninni, að undan-
skildum Frökkum, Finnum og ís-
lendingum.
Ákveðið var á OPEC-fundinum
að aukin framleiðsla, sem aðallega
JAVIER Perez de Cuellar,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hyggst á fundi sínum
með íraska utanríkisráðherran-
um, Tariq Aziz, í Jórdaníu á
morgun reyna að fá íraksstjórn
til að hverfa með her sinn frá
Kúvæt. Að sögn fréttamanns
breska blaðsins Daily Te-
legraph í Bagdad bendir fátt til
þess að írakar séu að digna.
Embættismenn segja að ekki
komi til mála að Kúvæt verði
framvegis annað en íraskt hér-
að. Þeir segjast treysta því að
Bandaríkjamenn og fleiri Vest-
urlandaþjóðir muni smám sam-
an missa móðinn þegar deilan
dragist á langinn.
Fjölmiðlar í írak, sem allir eru
að sjálfsögðu undir yfirstjóm ríkis-
stjómar Saddams Husseins, lýsa
Persaflóadeilunni sem varnarbar-
áttu friðelskandi íraka sem ógnað
sé af andstyggilegum, banda-
rískum risa. Það hjálpi samt upp
á sakimar að risinn standi á leirfót-
um. Mikið er gert úr öllum stuðn-
ingi, einkum útifundum, í ara-
barikjunum við málstað Husseins.
Fámennar mótmælagöngur friðar-
sinna við Hvíta húsið í Washington
og í Bretlandi eru tíundaðar vand-
lega og eitt dagblaðið rakti ítarlega
fréttaskýringu í breska útvarpinu
BBC þar sem sagt var að staða
George Bush Bandaríkjaforseta
hlyti að versna mjög ef deilan við
írak drægist á langinn. Stjórnvöld
í Bagdad hafa jafnframt reynt að
trafla sendingar BBC á arabísku
svo að ánægjan með þjónustu
stöðvarinnar er ekki ávallt óbland-
in þar á bæ.
Upplýsingamálaráðherra Sadd-
ams Husseins , Latis Nsayyif Jas-
sim, ítrekaði að framtíð Kúvæts
yrði ekki til umræðu. „Kúvæt er
hluti íraks og Sabah-ættin [furst-
ans sem nú er landflótta] er búin
að vera,“ sagði Jassim. Hann sagði
stjóbnina bíða þess að sjá hvað de
Cuellar hefði í pokahorninu en
bætti við að þegar væri til ágætur
grundvöllur að lausn; tilboð íraka
um viðræður við Bandaríkjamenn
án nokkurra fyrirfram skilyrða.
Hann virtist ekki telja að áður-
nefndar yfirlýsingar um Kúvæt
mætti flokka undir skilyrði.
Segjast ekki óttast skyndiárás
írakar tala háðslega um þá hug-
mynd að Bandaríkjamenn geti gert
skyndilega og afmarkaða árás á
mikilvægustu staði til að lama írak
pólitískt og hernaðarlega. „Þeir
voru átta daga að klófesta Noriega
[einræðisherra í Panama], í landi
þar sem þeir vora með herbækistöð
fyrir,“ sagði einn embættismann-
anna. „Hvernig gengi þeim að fást
við milljón manna her í Irak“
Hvað sem öllum digurbarkalegu
yfirlýsingum líður er ljóst að
stjórnvöldum líst ekki á að lenda
í hernaðarátökum við Vesturveld-
in. Fólk hefur á hinn bóginn verið
hvatt til að spara mat og klæði;
Saddam reynir að vinna tíma með
öllum ráðum og virðist álíta að
hann geti þolað langt viðskipta-
bann. Mjög erfitt er að meta hve
lengi írakar geta þraukað. Sumir
vestrænir sérfræðingar telja að
matarbirgðir verði að mestu upp-
urnar eftir mánuð, aðrir að með
skömmtunum geti liðið allt að hálft
ár þar til veralega fari að sverfa
að. Þótt Saddam hafi nú heitið að
leyfa vestrænum konum og börn-
um að yfirgefa landið heldur hann
mörg þúsund körlum eftir og gæti,
þegar á líður reynt að sundra sam-
stöðu Vesturlanda með því að
bjóða gísla fyrir mat. Mörg
Áustur-Evrópuríki eiga nú í vök
að veijast vegna þess að þau verða
á næstu áram að kaupa olíu, er
áður fékkst í vöraskiptum við Sov-
étmenn, dýram dómum á heims-
markaðsverði. Heimildarmenn í
Bagdad segja að íraskir sendimenn
hafi verið í löndunum til þreifa
fyrir sér um ólöglega olíusölu í
blóra við viðskiptabann SÞ. Hvern-
ig írakar hyggjast koma olíunni
úr landi er þó ekki ljóst; meðan
floti Vesturveldanna gætir sigl-
ingaleiðanna er það vart fram-
kvæmanlegt.
Reuter
13 fórust við Ramstein-herflugvöllinn
Stór bandarísk flutningavél af gerðinni C-5A Galaxy hrapaði rétt eftir flugtak á akur við flugbækistöðina
Ramstéin í V-Þýskalandi í gær og fórust 13 manns. Fjórir komust lífs af. Vélin er ein margra sem notaðar eru
f sambandi við hernaðaruppbygginguna á Persaflóa og var á leið til annarrar bandarískrar flugbækistöðvar
í V-Þýskalandi með matvæli, lyf og varahluti. í nokkurra km fjarlægð frá slysstaðnum eru geymdar birgðir
af efnavopnum sem senn verða fluttar frá landinu. Græningjar kröfðust þess í gær að allt hernaðarflug
yfír landinu yrði bannað, þ.á m. millilendingar bandarísku vélanna en þær nota oft Ramstein-völlinn.