Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 23 m ■ri ■ H 5% *p*g**** s* «1 W Sí5 C* ^ s«8ajlB Bretland: PowerGen verður selt með hluta fj árútb o ði St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. JOHN Wakeham, orkumálaráðherra Breta, hefur ákveðið að PowerGen-raforkufyrirtækið verði selt með hlutaQárútboði, en ekki selt stórfyrirtækjum beint eða starfsmönnum. Reuter Tvær efstu hæðirnar af þessari þriggja hæða blokkaröð eyðilögðust í óveðrinu og fórust nokkrir íbúar hússins er vindurinn hreif þá með sér út á nærliggjandi akur. Hvirfílvindar í Chicago: 24 menn biðu bana og byggingar eyðilögðust Plainfield, Ulinois. Reuter. AÐ minnsta kosti 24 létu lífið er hvirfilvindar gengu yfir úthverfi Chicago-borgar í Bandaríkjunum síðdegis á þriðjudag, þ.á m. nokkr- ir — aðallega börn — sem vindurinn hreif með sér úr íbúðum og kastaði út á akur. Meira en 280 manns slösuðust, sumir nyög alvar- lega. Björgunarmenn grófu í rústum fram á nótt í leit að fórnarlömb- um en tugir bygginga eyðilögðust í óveðrinu. þess að hann- skellti sér á gólfið Embættismenn í Will-sýslu sögðu að a.m.k. 24 hefðu farist, þar af 10 í Crest Hill-þorpi þar sem tvær efstu hæðirnar fuku af þriggja hæða blokkgfijð. Fisstir ibuaf þorpsins eru láglaunafólk. Sumir þeirra sem bjuggu í blokkinni fundust á kom- akri skammt frá og sveimuðu þyrl- ur með leitarljós yfir akrinum fram á nótt. Einn íbúa hússins,, Dale Moffett, sagðist hafa lifað af vegna þegar hann heyrði í hvirfílbylnum, Hann vissi ekki hvað var í vændum pn hph utsfd ll^.v jjiov kx\j ii HÍMlI VSGxu dö gera loftárás. í menntaskóla í bæn- um Plainfield leituðu nemendur skjóls á skólaganginum. Byggingin hrundi öll nema gangurinn og nem- endurnir gengu ómeiddir út. Fylkisstjóri Illinois skipaði heimavarnaliði fylkisins að fara á svæðið, þar sem tjónið varð, til að koma í veg fyrir að fólk léti greipar sópa um íbúðir og verslanir. Bráða- birgðaskýlum var komið upp til að hægt væri að skjóta skjólshúsi yfir hundruðir heimilislauss fólks. Hvirfilbylurinn átti upptök sín þar sem 30 gráða heitt loft mætti kaldari laftstraMml. Hanson Trust-fyrirtækið hafði fengið aðgang að öllum lykilupp- lýsingum um fjárhag PowerGen í því skyni að gera tilboð í það. Síðan var ætlunin, að öðrum fyrir- tækjum yrði heimilt að gera tilboð í PowerGen innan tiltekins tíma og Hanson síðan að hækka upp- haflegt tilboð sitt, ef það vildi. Tilgangur ráðherrans með þessu var sá, að auðvelda sölu raforkuframleiðslufyrirtækjanna ' tveggja, National Power og Pow- erGen, en þau framleiða alla ra- forku í Englandi og Wales. Það síðarnefnda framleiðir ríflega 30% allrar raforku í Englandi og Wa- les, og talið var, að það gæti reynst erfitt að fá gott verð fyrir bæði fyrirtækin, yrðu þau bæði seld með hlutafjárútboði. Vonast hefur verið eftir, að breski ríkis- sjóðurinn fengi allt að 500 mill- jörðum ísl. kr. fyrir bæði raforku- fyrirtækin. Hanson Trust hefur verið með tilboð í undirbúningi í PowerGen frá því í vor. Vitað var, að orku- málaráðherrann vildi fá a.m.k. 150 milljarða ísl. kr. fyrir það. Hanson Trust varð að bjóða nokkru hærra verð fyrir það vegna skattahag- ræðis, sem fylgja mundi kaupun- um, til að það væri ásættanlegt fvrir ráðherrann; Eftir fund ffieð Hanson lávarði, framkvæmda- stjóra Hanson Trust, sl. fimmtu- dag, var ljóst að Hanson var ekki reiðubúinn að gera hærra tilboð en, sem nam 150 milljörðum ísl. kr. Ráðherrann vildi ekki sætta sig við það sem upphafstilboð, sem önnur fyrirtæki gætu miðað við, og hann var viss um að það verð myndi sæta gagnrýni í þinginu. Hann lýsti þvi þess vegna yfir, að staðið yrði við upphaflegu áætlun- ina um, að hlutabréf í báðum ra- forkufyrirtækjunum yrðu boðin út í febrúar á næsta ári. Það er ekki talið útilokað, að starfsmenn PowerGen geri tilboð í fyrirtækið með stuðningi sterkra fjármálafyrirtækja áður en mjög langt um líður. Það er ekki ljóst, hvort orkumálaráðherrann verður reiðubúinn að taka slíkt tilboð til athugunar. Hagur fyrirtækisins hefur vænkast nokkuð, vegna þess að starfsmenn hafa getað lækkað kostnað við að koma upp hreinsi- búnaði við tvær raforkustöðvar, sem brenna kolum, úr 70 milljörð- um ísl. kr. í um 45 milljarða. Frank Dobson, talsmaður Verkamannaflokksins í orkumál- um, sagði yfirlýsingu orkumála- ráðherrans sl. fimmtudag pólitískt heijarstökk. Sy0na málatlibunaðu? geröi ekkert annað en skaða ra- forkufyrirtækin. Reuter Lenín-styttan í Tíflis í Georgíu fjarlægð f stalli sínum. Tíflis: Síðasta Lenín-stytt- an felld af stalli Moskvu. Daily Telegraph. RISASTÓR stytta af Vladímír Lenin var felld af stalli í Tíflis, höfuðborg Sovétlýðveldisins Georgíu, á þriðjudag. Styttan var ein hin stærsta í Sovétríkjunum og svo rammföst við stall sinn, að sveit verkamanna vopnuð logsuðutækjum og loftpressum var nær sólarhring að losa hana. Um 30.000 manns voru við- staddir og brutust út fagnaðarlæti er hin 20 metra háa stytta var felld af stallinum. Hafa þá allar Lenín- styttur og brjóstmyndir verið rifnar niður í borginni en þjóðernisvakn- ing hefur átt sér stað meðal Ge- orgíumanna. Á undanförnum mánuðum hafa hundruð Lenínstytta og -mynda verið fjarlægðar í Úkraínu og Eystrasaltsríkjunum þremur. Hafa verið uppi kröfur um að jarðneskar leifar Leníns verði fjarlægðar úr grafhýsi á Rauða torginu í Moskvu. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Kynnir hönnuðinn Sandro Magli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.