Morgunblaðið - 30.08.1990, Síða 32

Morgunblaðið - 30.08.1990, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 Aukln þjónusta vlö helmili og stofnanlr. Ef hreinsa þarf gluggatjöld kemur Fönn til hjálpar. Við komum og tökum gluggatjöldin niður, hreinsum þau og setjum þau upp aftur - slétt, falleg og í jafnri sídd. > Skeifunni 11, sími 82220 Minning: Guðmundur Atla- son, Hafnarfírði Fæddur 5. september 1917 Dáinn 18. ágúst 1990 Það hefur verið fastur liður hjá fjölskyldunni á hverju hausti að taka upp kartöflur úr spildunni fyr- ir neðan Ásfjall. Þarna er garðurinn hans tengdapabba og fjölskyldunn- ar allrar. Guðmundur sá alltaf um að hóa liðinu saman og þarna unnu margar hendur létt verk. Gullaugun fóru í sérstakan poka, Helgurnar í annan og Eyvindarnir í þann þriðja, allt flokkað eftir leiðbeiningum sér- fræðings í kartöflurækt. í haust stöndum við einum færri í moldinni og ekki er útséð með það, hver safnar hópnum saman. Fyrirliðinn er fallinn. Það haustaði snemma hjá fjölskyldunni í ár. Guðmundur Atlason var Hafn- firðingur í húð og hár, fæddur á Jófríðarstöðum 5. september 1917. Hann var elsta barn hjónanna Atla Guðmundssonar verkamanns frá Tjöm á Miðnesi og Guðlaugar Hin- riksdóttur frá Mýrarhúsum á Vatnsleysuströnd. Þeim varð þriggja barna auðið. Yngri eru bræðurnir Steingrímur fv. yfirlög- regluþjónn (f. 1919) og Guðlaugur bókbindari (f. 1932); Á æskuheimilinu var fátækt umtalsverð þótt yfirleitt hafi verið nóg til hnífs og skeiðar. Það hefði hins vegar þótt fremur einhæft á okkar dögum að fá fisk fimm daga vikunnar og kjötmeti einu sinni eða tvisvar. Þegar barnaskóla lauk stóð hugurinn til frekara náms. Flens- borg heillaði, en aðstæður leyfðu ekki frekari skólagöngu að sinni. Tekjur heimilisföðurins voru af skornum skammti og dugðu ekki til að framfleyta fjölskyldunni. Elsti sonurinn þurfti að fara að vinna til að leggja sitt af mörkum til heimil- isins. Ekki er laust við að þessi lífsreynsla setti sín spor á drenginn því margsinnis varð maður þess áskynja í umræðunni að tækifæri og möguleikar gamla tímans hefðu hvergi verið nærri því sem býðst nú á dögum. Sumarvinna til sveita, fisk- breiðsla á reitunum fyrir ofan bæin og sauðfjárgæsla gerðu strákpjakk að stæltum unglingi. Síðast nefnda starfið varð til þess að sauðljáreig- andinn og bæjarfulltrúinn Þorleifur Jónsson greiddi skólagjald fyrir drenginn í Iðnskólanum, sem þá var kvöldskóli. Guðmundur sótti námið vel enda bráðskarpur og töluglögg- ur með afbrigðum. Hann tók m.a. tvo bekki sama árið og var með þeim hæstu. Þarna lærði hann m.a. bókfærslu sem lá fyrir honum eins og opin bók og átti eftir að koma að góðum notum seinna melr. Jón Mathiesen kaupmaður naut starfs- krafta Guðmundar í nokkur ár, þegar heimsendingarþjónusta blómstraði og sendlar hjóluðu um bæinn. Þá tóku við nokkur ár í fiski hjá Lofti Bjarnasyni og á árunum fyrir seinna stríð var hann á síld í Ingólfsfirði. Enn voru erfiðir fram- færslutímar og heimilið í skuld með húsaleigu og matarúttekt. Síldin gaf vel og eitt árið borgaði Guð- mundur upp allar skuldir heimilis- ins. Þannig var hann, ósérhlífinn og fórnfús og hugsaði vel um sína. Svo kom stríðið og alvara lífsins var með breyttum áherzlum. Hugs- að var til framtíðar. Guðmundur hóf störf í Einarsbúð, hjá Einari Þorgilssyni. Árið 1941 keyptu þeir bræður Guðmundur og Steingrímur húsið á Vesturbraut 2 í Hafnarfirði og fluttu inn ásamt foreldrum sínum. Þetta var táknrænt fyrir góða samvinnu þeirra bræðranna næstu áratugina. I stríðslok stofnuðu Guðmundur og Jóhann Björnsson hænsnabú og reistu í hrauninu fyrir vestan Víði- staði í Hafnarfirði. Ári síðar kom Steingrímur inn í félagsskapinn og þarna var rekið hænsnabú í um 25 ár. Auk eggjaframleiðslu voru seld- ir ungar, allt með viðurkenningu frá yfirdýralækni og landbúnaðarráðu- neyti. Yfir þessu hænsnabúi vöktu þeir félagarnir ár út og ár inn. Starfsemin hafði einnig þau áhrif inn á heimili bræðranna, að lítið þótti spennandi að leggja sér til munns egg og hænsnakjöt á þessum árum. Eftir tvo áratugi í Einarsbúð gerði Guðmundur stuttan stanz sem gjaldkeri Vikunnar, en svo tóku við þijú ár hjá eggjasölusamlaginu í húsi Sölufélags garðyrkjumanna. Síðan varð hann gjaldkeri Bæjarút- gerðar Hafnarijarðar og gegndi því starfi í um tuttugu ár eða þar til hún hætti árið 1985. Það var ekki stíll Guðmundar að sitja auðum höndum. Eftir 40 ára verzlunar- og skrifstofustörf venti hann sínu kvæði í kross og fór að verka fisk hjá Geir Siguijónssyni í Sjávarfiski í Hafnarfirði. Þar undi hann hag sínum vel, naut mikils skilnings vinnuveitanda síns og starfaði eins og kraftarnir leyfðu fram á fyrri hluta síðasta árs. Það sem einkennt hefur starfs- feril Guðmundar Atlasonar öðru fremur er vinnusemi, samvizku- semi, ósérhlífni og kappsemi. Hann kom sér alls staðar vel í vinnu. Óneitanlega læðist að manni sú til- gáta, að hæfileikar hans hafi ekki nýtzt _sem skildi í starfi á lífsleið- inni. í samtölum okkar hin síðari ár mátti stöku sinnum skynja von- brigði yfir því að hafa ekki fengið fleiri tækifæri til mennta en raun varð 4. Guðmundur var með auðugustu mönnum, þótt hvorki sé þar átt við peninga né fasteignir. Auður hans var ijölskyldan. Kvonfang sitt sótti Guðmundur til Sigluijarðar og 19. júní 1943 kvæntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Ólöfu S. Kristjáns- dóttur, hárgreiðslumeistara (fædd 21. júlí 1921) frá Kambi á Siglu- firði, dóttur sæmdarhjónanna Kristjáns Ásgrímssonar, útgerðar- manns, og Guðrúnar Sigurðardótt- ur. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau á Vesturbraut 2, en stækkandi ijölskylda þurfti aukið svigrúm. Neðarlega á Hringbrautinni í Hafn- arfirði var laus byggingarlóð sem þótti ekki árennileg, stóð hátt og á klöpp. Klappir voru Guðmundi aldr- ei hindrun og 1953 var reist einbýl- ishús á Hringbraut 3 með feikna- góðu útsýni. Þarna bjuggu hjónin æ síðan með barnaskarann. Barnalán Guðmundar og Ólafar er mikið, sjö dætur og einn sonur. Börnin eru: Guðrún Signý hús- mæðrakennari (fædd 1943), gift Ásgeiri Gunnarssyni prentara; Bára íþróttakennari (fædd 1944), gift Óttari Eggertssyni framhaldsskóla- kennara; Anna Sigfríð meinatæknir (fædd 1949), gift Bjarna Jónassyni lækni; Þórunnn Halla húsmæðra- kennari (fædd 1952), gift Jóni B. Stefánssyni forstöðumanni; Brynja verkfræðingur (fædd 1955), gift Óskari Valdimarssyni verkfræðingi; Ólöf meinatæknir (fædd 1957); Hrefna læknir (fædd 1961), sam- býiismaður hennar er Ólafur Thor- arensen læknir, og Atli blikksmiður og hestamaður (fæddur 1965), sambýliskona hans er Eva Mandal sjúkraliði og hestakona. Barnabörn- in eru 14 talsins og eitt barnabarna- barn. Guðmundur hugsaði ávallt vel um heimilið og sá til þess, að aldr- ei vantaði neitt. Ólöf og hann voru börn síns tíma, þar sem lífið var brauðstrit og brauðstrit var lífið. Tíminn fór í vinnu, barneignir og barnauppeldi. Verkaskiptingin á bænum var í anda þeirrar kynslóðar þar sem hann var fyrirvinna heimil- isins, sá um Ijármálin, sinnti bílnum og húsinu að utan. Hún sá um allt hitt og gerði það með glæsibrag. Síðustu árin gekk Guðmundur ekki heill til skógar. Fyrir tveimur ' árum kom í ljós sjúkdómur sá, sem eyddi kröftum hans jafnt og þétt og dró hann loks til dauða. Honum var ljóst að hverju stefndi. Hann lét aldrei bilbug á sér finna og barðist hetjulega. Hann virtist vera sáttur við Guð og menn, þegar yfir lauk. Við tengdasynirnir stöndum í mikilli þakkarskuld við Guðmund Atlason. Það var hveijum og einum okkar ijarska auðvelt að stíga spor- in inn í fjölskyldu þeirra hjóna. Kynjaskiptingin á heimilinu var ærið ójöfn í fyrstu með yfirgnæf- andi kvennafans. Eftir því sem tengdasonunum fjölgaði jafnaðist hlutfallið og ekki bar á öðru en að það væri Guðmundi vel að skapi. Hann var mikill vinur okkar allra, hjálpfús með eindæmum og varð vel við hverri bón. Hann verður okkur ávallt minnisstæður fyrir hlýtt viðmót, ljúfmennsku, dugnað, skarpar gáfur, greiðasemi, stað- festu, íhaldssemi, glettni, gráa hár- ið og pípuna. Við þökkum honum af heilum hug samfylgdina og megi hann friðar njóta. Blessuð sé minn- ing Guðmundar Atlasonar. Tengdasynir R AÐ AUGL YSINGAR TILKYNNINGAR Kripalu jóga Vetrarstarfið er að hefjast. Grunnnámskeið í Kripalu jóga (Hatha jóga) byrjar 3. septem- ber. Leiðbeinandi Helga Mogensen. Upplýsingar og skráning í síma 676056. ATVINNUHÚSNÆÐI Iðnaðarhúsnæði óskast 75-100 fm iðnaðarhúsnæði með vörudyrum óskast til leigu á svæðinu Skipholt-Ármúli. Sími 22880 eftir kl. 19. KVÓTI Kvóti Viljum kaupa botnfiskkvóta. Seljendur, sem hafa áhuga, vinsamlegast hafið samband í símum 95-13209 og 95-13203. Hólmadrangur hf. BÁTAR-SKIP Fiskverkendur Til sölu ersprautusöltunarkerfi frá Traust hf. Upplýsingar í síma 97-81885 eða 97-81330. SJÁLFSTIEDISFLOKKURINN F F I. A (i S S T A R F Sjálfstæðisfélag Suður-Þingeyinga heldur aðalfund sinn í félagsheimilinu Heið- arbæ mánudaginn 3. september kl. 21.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Halldór Blöndal, alþingismaður, ræðir und- irbúning alþingiskosninganna og stjórn- málaviðhorfið. Stjórnin. Utanríkismálafundur í kvöld F • U • S Utanríkismálanefnd Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, heldur fund í Valhöll, Háaleitisbraut 1, fimmtudaginn 30. ágúst kl. 20.30. Gestur fundarins veröur mr. Richard P. Rodgers, sendiráðsritari bandaríska sendiráðsins í Reykjavík. Á fundinum verð- ur m.a. rætt um samskipti íslendinga og Bandaríkjamanna, nýjar forsendur í alþjóðastjórnmálum og ástandið fyrir þotni Persaflóa. Allir áhugasamir velkomnir. Stjórnarfundur SAMOAND UNGRA 0>| |C SIÁL FSTÆÐISMA NNA Q JJ Q Haust- og vetrarstarf SUS hefst með stjórn- arfundi föstudaginn 31. ágúst. Fundurinn verður haldinn í Valhöll og hefst kl. 18.00 stundvíslega. Dagskrá fundarins verður sem hér segir: 1. Albert Guðmundsson, sendiherra íslands í París, situr fyrir svörum. 2. Undirbúningur alþingiskosninga. 3. Prófkjörsmál, fréttir úr kjördæmunum. 4. Annað vetrarstarf. 5. Önnur mál. Stjórnarmenn vinsamlegast tilkynni forföll. Það er sérstaklega óskað eftir því að varamenn og trúnaðarmenn tilkynni þátttöku. Fundurinn er einungis opinn stjórnar- og varastjórnarmönnum SUS, svo og trúnaðarmönnum hreyfingarinnar. sus.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.