Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 30.08.1990, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 Minning: Sigurður Tómasson loftskeytamaður Fæddur 10. júní 1933 Dáinn 22. ágúst 1990 Það eru ekki liðin tvö ár síðan Sigurður Tómasson gekk í Karla- kórinn Stefni. Samt verður hans sárt saknað. Kórar eru ekki bara hópur fólks sem kemur saman til að æfa söng og syngja. Kórar ei-u félagsstarf. Slíkt starf byggist á því að þeir sem taka þátt í því séu tilbúnir til að leggja eitthvað fram, gefa eitthvað af sjálfum sér, vera góðir félagar. Sigurður var góður félagi. Þegar hann var nýkominn í kórinn hófst undirbúningur fyrir söngferð til Norðurlanda og í tilefni af því hélt kórinn nokkrar skemmtanir tii fjár- öflunar. Sigurður bauðst strax tii að taka virkan þátt í því starfi og dró ekki af sér. Þó gat hann ekki komið því við að fara í söngferðina. Síðastliðinn vetur sá Stefnir um söngmót Kötlu, sambands sunn- lenskra karlakóra. Þá vann Sigurð- ur líka vel og drengilega að öllum undirbúningi og naut þess að taka þátt í starfinu. En hann gekk ekki heill til skógar og leitaði til læknis eftir að mótinu lauk. Þá greindist sá sjúkdómur sem nú hefur borið hann ofurliði. Okkur félögunum brá vð tíðindin af veikindum Sigurðar í vetur. En hann var bara fjarverandi í örfáar vikur. Svo fór hann aftur að sækja æfingar. Hann var í erfiðri lyfja- meðferð, hafði látið nokkuð á sjá og þrekið var ekki mikið fyrstu vik- urnar. Hann kom samt, söng þegar hann gat eða fylgdist með úti í sal. Okkur til mikillar gleði efldist hann smám saman og gat sungið með okkur á tónleikum síðastliðið vor. Undir lok starfsársins hélt Stefnir tónleika á Selfossi og síðan var haldið upp á starfslok með því að borða saman á Hótel Örk í Hveragerði og skemmta sér. Sig- urður og Valdís kona hans tóku þátt í þeirri skemmtun. Þá spjallaði ég við þau og fór að tala um það við Sigurð hvað við dáðumst mikið að honum fyrir að halda áfram að syngja með okkur og taka þátt í starfínu þrátt fyrir veikindin. „Hös- kuldur minn,“ sagði hann, „það er auðvitað sjálfsagt mál. Það er líka ekkert um annað að ræða.“ Við söngfélagar Sigurðar viljum þakka samstarfíð og góða viðkynn- ingu. Við söknum góðs drengs og góðs félaga og sendum Valdísi inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Karlakórsins Stefnis, Höskuldur Þráinsson í dag verður samverustund í Foss- vogskirkju, þar sem Sigurður Tóm- asson loftskeytamaður verður kvaddur hinstu kveðju eftir aðeins 57 ára dvöl í jarðneskri vist. Það voru hjónin Magnea Dagmar Sigurðardóttir og Tómas Sigvalda- son sem eignuðust son í júní árið 1933, annað barn þeirra hjóna af fjórum. Var sonurinn skírður Sig- urður eftir afa sínum í móðurætt. Ólst Sigurður upp í Reykjavík og gekk m.a. í Loftskeytaskólann og lauk þaðan prófí árið 1954. Hann stundaði síðan sjómennsku og var loftskeytamaður einkum á togurum en hóf síðan störf hjá Pósti og síma á sjöunda áratugnum þar sem hann starfaði til dauðadags, lengst af í Gufunesradíó við fjarskipti f milli- landaflugi. Tuttugu og fjögurra ára gamall gekk Sigurður að eiga Valdísi Ölafsdóttur og eignuðust þau fjögur börn, þau Ólaf rafeindavirkja, Dag- mar Elínu féhirði, Sigríði Unni hús- móður og Sigvalda Tómas skrif- stofumann. Þijú elstu bamanna hafa stofnað heimili og eru barna- börn Sigurðar og Valdísar orðin 6 alls. Sigurður sinnti heimili sínu af trúmennsku og skyldurækni. Hann byggði fjölskyldu sinni íbúðarhús í Mosfellssveit þar sem hann og Valdís hafa unað hag sínum vel. Þegar mesta stritið var um garð gengið tóku hugðarefnin við, Sig- urður gerðist virkur félagi í Odd- fellowreglunni og þau hjón nutu félagsskapar reglubræðra með fjöl- breyttum hætti. Við húsið í Ásholti bjuggu þau sér sérlega fallegan garð, og garðræktin og gróðurinn átti huga Sigurðar. Þegar styttast fór f eftirlauna- réttinn, var Sigurður farinn að sjá fram á þægileg efri ár. Hann var við ágæta heilsu og virtist engu þurfa að kvíða. En veikindin gera ekki boð á undan sér og á vordögum fékk Sigurður þær fréttir að mein hefði búið um sig. Það væri að vísu lítið og batahorfur voru sagðar mjög góðar. En eigi má sköpum renna. Heilsu Sigurðar fór hægt hrakandi þegar leið á sumar það sem nú er senn á enda. Sumarið 1990 hefur verið fallegt sumar að margra mati, sumar sól- skins og birtu með hlýrri rigningu af og til og gróðurinn fallegri en nokkru sinni fyrr. Sigurður Tómas- son naut hins vegar ekki þessa sum- ars nema að litlu leyti. Fyrir hann var þetta sumar vonarinnar, vonar- innar um að fá að lifa lengur, vonar- innar um að fá að endurheimta heilsu, vonarinnar um að fá að njóta lengri tíma með fjölskyldu sinni. Þegar dró að hausti hvarf vonin snöggt, kalt og óvænt. Það sem talin var læknanleg meinsemd reyndist á örstuttum tíma vera orð- inn óviðráðanlegur sjúkdómur. Vonir Sigurðar um lengra líf rættust ekki og við tók sorgin hjá eiginkonu hans, móður, börnum og öðrum vandamönnum. Hann andað- ist í Landspítalanum þ. 22. ágúst sl. eftir aðeins tæprar sólarhrings legu. Sigurður Tómasson var vel látinn maður, hann var í hjarta sínu lítillátur, hógvær og prúðmenni hið mesta. Hann var hrekklaus maður sem setti hjálpsemi, greiðvikni og umhyggju fyrir náunganum ofar flestu öðru, enda slíkt honum í blóð borið. Umfram allt var hann þægi- legur í umgengni, glaðvær og gam- ansamur. Hann var natinn við það sem hann tók sér fyrir hendur hvort sem það varðaði mannleg samskipti eða önnur svið. Bamabömum sínum var hann einstakur félagi og vinur. Það er söknuður í huga ættingja og vina Sigurðar einkum þar sem andlát hans varð óvænt þrátt fyrir veikindi. Sum okkar líta þetta sem tímabundinn aðskilnað en öll þökk- um við honum gefandi samfylgd og styrkjum hvert annað í sárri sorg. Skúli Eggert Þórðarson Eitt sinn skal sérhver maður deyja. Þetta vitum við öll, en stönd- um þó berskjölduð þegar höggvið er nærri og ástvinur fellur frá. Okkur hættir til að líta á lífíð sem sjálfsagðan hlut og að samferða- fólkið muni alltaf verða til staðar. Tengdafaðir minn, Sigurður Tóm- asson, var einn af þessum klettum í lífínu sem maður setur allt sitt traust á og finnst þess vegna að hljóti að standa af sér öll veður. Hann gat alltaf veitt ómældan styrk og stuðning þegar á móti blés, jafn- vel þótt helsjúkur væri orðinn. Hann var okkar bakhjarl í stóm og smáu og er erfítt að hugsa sér framtíðina án hans. Lengst af höfum við búið í nágrenni við tengdaforeldra mína og nú síðustu árin hafa aðeins nokkrar húslengdir verið milli heim- ilanna. Það hefur alltaf verið nota- legt að vita af nálægð þeirra og gott að leita þangað ef eitthvað vantaði eða þjátaði á. í mars síðastliðnum dró ský fyrir sólu er Siggi veiktist af sjúkdómi þeim sem nú tæpum sex mánuðum síðar dró hann til dauða. Hann sýndi einstakt baráttuþrek, kjark og lífsvilja í veikindum sínum. Hann átti svo mörgu ólokið, áhugamálin voru svo mörg. Hann var mikill grúskari og mjög víða vel heima. Hann var virkur félagi í Oddfellow- reglunni og starfaði þar af áhuga og krafti. Á síðkvöldum sat hann oft löngum við fjarskiptatækin sín í sambandi við aðra radíóamatöra víðs vegar um heiminn. Hann söng með Karlakórnum Stefni síðastlið- inn vetur og hafði af því mikla ánægju. Á sumrin átti garðurinn hug hans allan. Hafa þau hjón rækt- að mikinn og fallegan garð við heimili sitt af mikilli alúð og natni, og veit ég að Sigga fannst sárt að geta ekki tekið til hendinni þar í sumar eins og hann var vanur. Bamabömin sjá á eftir félaga og vini þar sem afí þeirra var. Afí og amma hafa verið samofín tilveru þeirra svo lengi sem þau muna og hjá þeim hafa þau átt sitt annað heimili. Þau minnast meðal annars jólatrésskemmtananna hjá Odd- fellow þar sem afí tók þátt í skemmtuninni með þeim af lífí og sál og dansaði með þeim kringum jólatréð stoltur af litla hópnum sínum. Ég kveð tengdaföður minn með virðingu og kærri þökk. Minningin um hann mun búa í hjörtum okkar og ylja okkur um ókomin ár. Tengdamóður minni bið ég blessun- ar Guðs, svo og aldinni móður hans og öðrum ástvinum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Blessuð sé minning Sigurðar Tómassonar. Sólrún Vinarkveðja Ég vil með þessum fátæklegu orðum kveðja vin minn og Odd- fellowbróður Sigurð Tómasson, sem lést í Landspítalanum að kvöldi 22. ágúst sl. eftir hetjulega baráttu við sjúkdóm sinn. Leiðir okkar Sigurðar lágu fyrst saman árið 1979 í gegnum sameig- inlegan félagsskap okkar. Við, sem áttum þess kost að kynnast Sig- urði, teljum okkur ríkari menn en ella. Sigurður var prýddur óvenju miklum mannkostum, sem nutu sín vel í félagsskap okkar. Vegnaþeirra voru honum falin margvísleg og erfíð trúnaðarstörf, sem hann leysti einstaklega vel af hendi. Hann hafði stórt hjarta og var óspar á að miðla af manngæsku sinni til allra, er hann taldi þurfa þess með. Við Sigurður kynntumst enn nánar síðustu mánúðina, en við vorum báðir á sama skipinu og háðum sameiginlega baráttu við vágest þann er að okkur steðjaði. Ég fæ seint fullþakkað Sigurði fyr- ir þau uppörvandi áhrif og smitandi lífskraft, sem hann miðlaði bæði mér og öðrum. Hann átti sinn stóra þátt í því að létta róðurinn í þessum ólgusjó. Kæra Valdís, ég votta þér og allri fjölskyldunni mína dýpstu sam- úð. Megi góður guð styrkja ykkur á erfíðri stundu. Megi minningin lifá um góðan dreng, Rögnvaldur Óiafsson í dag verður kvaddur hinstu kveðju góður vinur minn, Sigurður Tómasson, loftskeytamaður, Ás- holti 5, Mosfellsbæ. Hann lést langt um aldur fram þann 22. ágúst síðastliðinn í blóma lífsins. Sigurður Tómasson fæddist þann 10. júní 1933 að Brekkustíg 8, Reykjavík, og ólst upp í foreldra- húsum. Móðir Sigurðar, Magnea Dagmar Sigurðardóttir, ættuð frá Skammbeinsstöðum í Holtum Rangárvallasýslu, sem enn heldur heimili á Brekkustíg 8, á áttugasta og Qórða aldursári, sér nú á bak einkasyni sínum. Faðir Sigurðar var Tómas Sigvaldason, loftskeytamað- ur og síðar vörubifreiðastjóri í Reykjavík, borinn og bamfæddur Reykvíkingur. Hann lézt fýrir 1C árum. Þijár systur átti Sigurður. Að loknu Gagnfræðaskólanámi hóf Sigurður nám við Loftskeyta- skólann og útskrifaðist þaðan árið 1954, tuttugu og eins árs að aldri. Að námi loknu fór Sigurður sem loftskeytamaður á togarann Keflvíking, sem gerður var út frá Keflavík. Um veturinn fór hann til Englands og tók þar námskeið í radíó-viðgerðum, sérstaklega RADAR-viðgerðum. Eftir heim- komuna hóf Sigurður störf hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur og starf- aði þar næstu níu ár. Lengst af sem loftskeytamaður á togaranum Skúla Magnússyni RE 202. Skömmu eftir að Sigurður hætti störfum hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur hóf hann störf hjá Pósti og síma og starfaði við fjar- skiptastöðina í Gufunesi frá árinu 1963 þar til 1986 er hann gerðist yfirskoðunarmaður í radíóeftirliti Landsímans og starfaði hann við radíóeftirlitið meðan þrek entist. Sigurður hafði mikla ánægju af fjarskiptum yfírhöfuð, og var það hans áhugamál að undanskyldum skrúðgarðinum við heimili þeirra Valdísar. Hvað er auður og hvað er hús, ef engin urt vex í þinni krús. Fjarskiptin voru hans áhugamál og þar var hugur hans allur, nótt sem dag og eru þau ótalin radio- amatörsamböndin sem Sigurður hafði um heim allan og hvað fjar- skiptin varðar þá var Sigurður mik- ið meira en radio-amatör. Hann var „professional" loftskeytamaður. Sigurður var vinátturækinn og virkur félagi í Oddfellowreglunni. Sigurður giftist 24. ágúst 1957 Valdísi Ólafsdóttur og eignuðust þau fjögur böm. Þau. eru Ólafur símvirkjameistari, fæddur 23. mars 1957, Dagmar Élín, fædd 9. júlí 1958, Sigríður Unnur, fædd 17. september 1961, og Sigvaldi Tóm- as, fæddur 3. september 1966. Mér er nær að ætla að hjónaband þeirra Valdísar og Sigurðar hafi verið meira en gott hjónaband, þau voru félagar í orðsins fyllstu merk- t Móðir okkar, UNA HELGADÓTTIR, andaðist í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þriðjudaginn 28. ágúst. Sigurlaug Ólafsdóttir, Þorsteinn B. Sigurðsson. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG PÁLSDÓTTIR, Sólvallagötu 43, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 31. ágúst nk. kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Slysavarnafélag ís- lands. Pétur Ingimundarson, Áslaug Pétursdóttir, Ingimundur Pétursson, Magna Sigfúsdóttir, Jón Haukur Jóelsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Fósturmóðir mín, BERGRÓS JÓNSDÓTTIR, Hvassaleiti 10, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 31. ágúst kl. 13.30. Þorgrímur Þórðarson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG G. WESTLUND, sem andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 22. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 31. ágúst kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlega bent á líknarstofnanir. Ester G. Westlund, Steingrfmur Westlund, Katherine L. Westlund, barnabörn og barnabarnabörn. ingu. Ég hefði gjaman kosið að minn- ingargrein þessi hefði verið ýtar- legri og ég hefði dregið upp mynd af góðum vini og margra ára sam- starfí er við báðir störfuðum sem loftskeytamenn hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur og þær mörgu stundir sem við áttum saman með fjarskipt- um á höfum úti langt frá ættingjum og vinum, en best er að geyma góðar minningar um látinn vin í eigin hugarfylgsni. Síðustu samverustundir okkar Sigurðar voru sunnudagskvöldið 19. ágúst er við spjölluðum yfir kaffíbolla. Hann var að vísu þungt haldinn en ekki óraði mig fyrir því að kveðja okkar þá um kvöldið væri okkar síðasta handtak. Með söknuð í huga kveð ég Sig- urð Tómasson því hann var dreng- skaparmaður og mannvinur. Ég bið góðan Guð um styrk aldraðri móð- ur, eiginkonu, börnum, barnaböm- um og öðrum ástvinum. Útför hans verður gerð í dag kl. 15 frá Fossvogskirkju. Valdimar Tryggvaspn sectmáa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.