Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 44

Morgunblaðið - 30.08.1990, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA 5. flokkur: FH-ingar meistarar FH-ingar urðu íslandsmeistar- ar f 5. flokki er þeir unnu ÍK 3:1 í úrslitaleik á Víkingsvellinum í Fossvogi á sunnudag. Mikil en prúðmannleg barátta ein- kenndi leik beggja lið. FH-ingarnir náðu góðum sam- leik í úrslitaleiknum og reið það baggamuninn. Varnarmennirnir brutu flestar sóknir IK-manna á bak aftur og léku Ágúst síðan sjálfir fram Ásgeirsson völlinn og aðst.oðuðu skrifar þannig í sóknarað- gerðunum. Með þessu móti var sóknarleikur FH- ingar beittari en hjá ÍK og marg- sinnis skapaðist hætta við mark Kópavogsmanna. Hjá ÍK skorti nokkuð á slíka samvinnu en sóknarmenn þeirra ^ voru liprir í leik sínum og skópu sér nokkur hættuleg sóknarfæri en tókst aðeins einu sinni að reka smiðshöggið og senda knöttinn í mark FH. FH-ingar höfðu forystu í hálfleik með marki Ólafs Más Sigurðssonar sem hann skoraði um miðjan fyrri hálfleikinn. Skot hans breytti um stefnu er knötturinn fór í varnar- mann ÍK. ÍK-menn sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik' og jöfnuðu fljótlega með góðu marki Olafs Valdimars Júlíus- sonar. En FH-ingar náðu undirtök- um og drógu kjarkinn úr ÍK þegar þeir komust yfir um miðjan seinni hálfleik með marki Friðbjörns Odd- sonar. Óli Már innsiglaði svo sigur FH er hann skoraði öðru sinni skömmu fyrir leikslok. Morgunblaðiö/BAR Islandsmeistarar FH í 5. flokki. Aftari röð frá vinstri: Árni Ágústsson, formaður fulltrúaráðs FH, Bergþór Jónsson, formaður FH, Egill Siguijónsson, Þröstur Ríkharðsson, Ró- bert Magnússon, aðstoðarþjálfari, Heimir Hafliðason, Lárus Jónsson, Amar Þór Gilsson, Trausti Guðmundsson, Freyr G. Gunnarsson, Hafþór Sigmundsson, Páll ólafsson, Einar Thorberg Guð- * mundsson, Arnar Þór Gíslason, Birgir Már Þorgeirsson, Ámundi Pétursson, Viðar Halldórsson, varaf. knattspyrnudeildar FH, Magnús Pálsson, þjálfari, Þórir Jónsson, formaður knattspyrnudeildar FH. Fremri röð: Kjartan Helgason, ívar Bragason, Ólafur Már Sigurðsson, Sverrir Örn Þórðarson, Jóhann Pálsson, Arnar Þór Viðarsson, Snorri Ámason, ólafur Stefánsson, Guðmundur Sævars- son, Friðbjöm Oddsson, Kristinn Ágústsson, Ingvar Guðjónsson og Magnús Þór Magnússon. „Okkur sárnar ekki tapið“ Þetta var góður leikur en það þýðir ekkert að vera sár þótt maður tapi,“ sagði Þórður Guðmundsson, fyrirliði 5. flokks ÍK. Við töpuðum fyrst og fremst vegna þess að sóknarmennirnir fengu litla sem enga hjálp þegar þeir reyndu að sækja gegn marki FH- inga. Við verðum bara að taka þessu og reyna betur næst,“ sagði Þórður. Hann er sonur Guð- mundar Þórðarsonar, fyrrum landsliðsmanns í knattspyrnu og leikmanns með Breiðabliki til margra ára. „Erfiður leikur“ Þetta var erfítt en ánægjulegt að vinna ís- landsmeistaratitilinn,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, fyrirliði 5. flokks FH, eftir sigurleik- inn gegn IK. Við vorum svolítið smeykir fyrir úrslitaleikinn en vorum staðráðnir í láta knöttinn ganga vel á milli manna og reyna að sækja sem harðast. Það gekk upp og nú stefnum við bara á góðan árangur á næsta ári,“ sagði Arnar Þór. Hann er margfaldur meistari í knattspymu og handknattleikbolta. Hann er sonur Viðars Halldórssonar fyrrum landsliðsmanns í knatt- spymu og leikreyndasta leikmanns FH-inga. Arnar Þ6r. Þórður. • % J Rr rss&r-tQS > 3. flokkur: KR meistari KR-INGAR urðu íslandsmeist- arar í 3. flokki í knattspyrnu, en úrslitakeppnin fór fram á Akranesi um síðustu helgi. KR-ingar voru vel að sigrinum komnir, unnu alla leiki sína í úrslitakeppninni. Það voru alls átta lið, sem tóku þátt í úrslitunum á Akranesi. Þau voru KR, Týr úr Vestmannaeyj- um, Akranes, Þór frá Akureyri, Fram, Víkingur, Sigþór K.A og F.H. KR Eiriksson sigraði Tý frá Vest- mannaeyjum í úr- slitum 3:0, og Akur- nesingar urðu í þriðja sæti, sigruðu Þór 2:1. Úrslitaleikurinn á milli KR og skrifarfrá Akranesi Týs var nokkuð kaflaskiptur, Týrs- arar voru betri aðilinn í fyrri hálf- leik og voru óheppnir að hafa ekki forystu í hálfleik, höfðu meðal ann- ars átt þmmuskot í þverslá. KR- ingar komu síoðan meira inn í leik- inn í síðari hálfleik, en það voru Týrsarar sem áttu fyrsta hættulega tækifærið eftir hlé. Þá komst Tryggvi Guðmundsson í gegnum vörn KR en Jón Indriðason mark- vörður varði glæsilega. Eftir að hafa náð betri tökum á leiknum náðu KR-ingar forystu með marki Ásmundar Haraldssonar, sem kom eftir slæm varnarmistök hjá Tý. Skömmu síðar var einum varnarmanni Týs vikið af leikvelli fyrir gróft brot. Eftir það varð eftir- leikurinn auðveldur KR-ingum. Magnús A. Magnússon bætti öðru markinu við með glæsilegu þrumu- skoti og Magnús var síðan aftur á ferðinni skömmu síðar er hann skoraði þriðja mark KR og annað sitt í leiknum með því að vippa knettinum yfir markvörðinn og gulltryggja sigurinn. í leiknum um þriðja sætið sigruðu Akurnesingar Þór 2:1. Öll mörkin voru gerð í fyrri hálfleik. Borgar Þór Einarsson og Hjörtur Hjartar- INNRITUN STENDUR YFIR hjá fimleikadeild Gerplu. Upplýsingar í símum 74925 og 74907 milli kl. 10.00 og 1 2.00 og 17.00 og 19,00 virka daga. íþróttafélagið Gerpla Morgunblaðið/Sigþór íslandsmeistarar KR í 3. flokki: Fremri röð frá vinstri: Jón Halldórsson, Gestur Pálsson, Jóhann Sigurðsson, Þorsteinn Jóhannsson, Magnús Agnar Magnússon, Þórir Steinþórsson, Eiríkur Valdimarsson, Brynjar Gunnarsson, Har- aldur Haraldsson, þjálfari, Gunnar Þjóðólfsson, liðsstjóri. Fremri röð: Sigurður Óli Hákonarson, Andri Sveinsson, Ás- mundur Haraldsson, Atli Knútsson, Mikael Nikulásson, fyrirliði, Jón Indriðason, Ottó Karl Ottósson og Örvar Ólafsson. son komu Skagamönnum í 2:0, en Guðmundur Benediktsson náði að minnka muninn rétt fyrir hálfleik og þar við sat. Úrslit einstakra leikja í keppninni urðu sem hér segir: Fram-Þór............................2:3 Týr-Fram............................2:0 KA-Týr..............................1:2 Fram-KA........................... 4:1 Þór-Týr.............................3:2 KA-Þór..............................4:2 ÍA-KK...............................2:3 KR-Víkingur.........................4:2 ÍA-V[kingur.........................2:1 KR-FH...............................2:1 ÍA-FH...............................4:0 Víkingur-f’H........................1:0 Leikir um sæti: 7.-8. KA-FH.........................3:1 5.-6. Fram-Víkingur.................5:2 3.-4. ÍA-Þór........................2:1 1.-2. KR-Týr........................3:0 Mikael Nikulásson, fyrirliði KR: „Vorum með sterk- asta liðið“ MT Eg tel að þetta hafí verið réttlát úrslit á mótinu. Við vorum með sterkasta liðið, og mér líður stórkostlega,“ sagði Mikael Nikulás- son, fyrirliði KR, að vonum kátur eftir sigur liðs síns gegn Tý í úrslita- leiknum um íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki. „Þetta var fyrst og fremst sigur liðsheildarinnar, við lékum alla leiírina í úrslitakeppninni mjög vel og það börðust allir sem einn mað- ur auk þess sem þáttur þjálfarans Haraldar Haraldssonar er mikill. Hann undirbjóð okkur mjög vel fyrir þessa úrslitakeppni.“ Mikael sagðist hafa unnið til verðlauna þegar hann var í 6. flokki, en þetta væri fyrsti íslandsmeistaratitilinn sinn, og því kærkominn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.