Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 VERKALÝÐSFÉLAGIÐ DAGSBRÚN Á { Félagar í trúnaðarráði Dagsb'rún- ar skipuleggja kosningar gegrf núverandi stjórn félagsins Stjórn Dagsbrúnar berst með kjafti og klóm gegn framboðinu Skipuleggjendum framboðsins í tvígang meinaður aðgangur að félagaskrá Ekki hefur verið kosið í Dagsbrún 1 1 8 ár. eftir Friðrik Indriðason grafík Andrés Magnússon AÐALFUNDUR verka- lýðsfélagsins Dagsbrúnar á næsta ári verður sögu- legur því þá munu fara fram kosningar í stjórn og trúnaðaráð félagsins. Eru þetta fyrstu kosningarnar í félaginu á síðustu 18 árum. Það var árið 1972 er kosið var síðast í Dags- brún en stjórn félagsins lítur mun alvarlegar á þessar kosningar nú en þá sökum þess að aðstandend- ur mótframboðsins eru meðlimir í trúnaðarráði DagsbrúnáSrfem er ein aðalvaldastýfniin félags- ins. Árið 1972 vbru það menn úr ýmsum flokka- brotum flestum yst á vinstri væng stgórnmál- anna ásamt „bóhem-ele- mentum“ úr 68-kynslóð- inni sem stóðu að mót- frafnboði gegn stjórn og náðu litlum árangri. Kunn- ugir segja að nú sé á ferð- inni alvarlegasta tilraunin sem gerð hefur verið til að velta veldi Alþýðuband- alagsins í Dagsbrún en undirrótin að mótframboð- inu er megn óánægja með tvo síðustu kjarasamninga sem núverandi stjórn Dagsbrúnar hefur gert fyrir félagsmenn sína. Dagsbrún er eitt stærsta verkalýðsfélag landsins með tæplega 5.000 félags- menn. Mótframboð það sem hér um ræðir er ekki á neinum flokkspóli- tískum línum. Af fjórum . aðalskipu- leggjendum þess eru tveir óflokksbundnir, einn ségist vera fyrr um alþýðubandalagsmaður og einn er í Alþýðuflokknum. Þessir fjórir eru Þórir Karl Jónasson sem vinnur hjá Pósti og síma, Jóhannes Guðna- son sem vinnur hjá Fóðursölu Sam- bandsins og hafnarverkamennirnir Friðrik Ragnarsson og Guðmundur Guðbjamarson sem báðir vinna hjá Skipadeild Sambandsins. Þeir eru allir meðlimir í trúnaðarráði Dags- brúnar og hafa verið það um nok- kurra ára skeið. Þórir er þeirra yngstur, 21 árs, og hefur lengst reynt að afla hugmyndinni um mótframboð fylgis. „Það var eftir hina svokölluðu febrúarsamninga fyrir tveimur árum sem mér fannst kominn tími til að skipta um for- ystu,“ segir Þórir. „Ég fór þá að viðra hugmyndina við ýmsa menn en skriður komst ekki á málið fyrr en í vetur, að loknum þjóðarsáttar- samningunum. Það er greinijegt að stór hluti félagsmanna Dagsbrúnar er búinn að fá sig fullsaddan á núverandi forystu félagsins." Fjórmenningamir hafa efnt til tveggja funda á síðustu vikum, þann síðari laugardaginn 1. septem- ber. Þann fund sóttu 19 menn, nær allt meðlimir í trúnaðarráðinu. A þeim fundi var ákveðið að boða til almenns fundar til að kynna fram- boðið og á hann að verða í lok mánaðarins. Ennfremur hefur lög- fræðingur verið fenginn til að skrifa álitsgerð um núverandi lög Dagsbrúnar en þeim lögum hafa þeir fullan hug á að breyta. Ákveð- ið var að efna til vinnustaðafunda, athuga með hentugt húsnæði undir skrifstofu fyrir framboðið og stofn- aður hefur verið reikningur í Is- landsbanka. Við kosningarnar til trúnaðar- ráðs og stjórnar Dagsbrúnar á næsta aðalfundi verður rrtótfram- boðið að stilla upp lista með nöfnum 120 manna sem það vill að skipi trúnaðarráð og 10 manna í stjórn félagsins. Ef einn maður er á lista bæði mótframboðsins og núverandi stjómar nægir það til að listi mót- framboðsins teljist ólöglegur. Til að komast hjá slíku hafa fjórmenning- arnir beðið um að fá félagaskrá Dagsbrúnar afhenta en þeirri beiðni hefur í tvígang verið neitað. Þeir hafa sk'rifað stjórn Dagsbrúnar bréf sökum þessa og hafa vilyrði fyrir því að bejðni þeirra verði tekin fyr- ir á næsta stjórnarfundi. Fái þeir ekki skrána afhenta em uppi hug- myndir um að kæra það til félags- málaráðherra. Það er vitað mál að Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dags- brúnar nýtur mikils persónufylgis meðal verkamanna í félaginu, eink- um hinna eldri. Þótt hinir eldri séu kannski sammála um að endumýj- unar sé þörf í stjóm félagsins vilja þeir ekki að Guðmundi J. sé ýtt út í kuldann. Fjórmenningarnir gera sér grein fyrir þessum sjónarmiðum og segir Friðrik Ragnarsson að fari svo að þeir vinni kosningarnar séu uppi hugmyndir um að nýta starfs- krafta og reynslu Guðmundar J. áfram hjá félaginu vilji hann það, til dæmis í stöðu framkvæmda- stjóra. En hvernig ætli Guðmundur sjálfur líti á þetta mótframboð gegn stjórn sinni? „Við hér í stjórn Dagsbrúnar tök- um þetta framboð alvarlega, eins og raunar við gerðum með framboð- ið 1972,“ segir Guðmundur J. Guð- mundsson. Aðspurður um hvort hann telji eðlilegt eða óeðlilegt að ekki hafi verið kosið um stjóm Dagsbrúnar í 18 ár segir Guðmund- ur að slíkt þurfi ekki að vera óeðli- legt. Hann bendir á að lengra sé síðan kosið var í Verslunarmanna- félagi Reykjavíkur og yfirleitt hafi kosningar sjaldan verið í verkalýðs- félögum almennt á síðustu árum. „Á síðustu 10 árum hefur það að vísu komið tvisvar fyrir að smáhóp- ar hafa reynt að bjóða fram gegn stjórn Dagsbrúnar en í hvorugu til- fellinu náðu þeir að setja saman lista,“ segir Guðmundur. „Áður fyrr var kosið í stjórn Dagsbrúnar á hveiju ári, það er frá 1946 til 1964 og síðan af og til milli 1964 og 1972. Á þessum tímabilum, og þó sérstaklega hinu fyrra fór mikill hluti félagsstarfsins í þessar kosn- ingar. Hvað varðar skýringar á því af hverju ekki hefur verið kosið svo lengi nú hjá Dagsbrún er kannski nærtækast að líta á að pólitísk spenna hefur ekki verið eins mikil og áður meðal félagsmanna.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.