Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 22 Minning: Hörður Bjarnason fyrrv. húsameistari ríkisins Fæddur 3. nóvember 1910 Dáinn 2. september 1990 Látinn er einn af frumherjum í hópi arkitekta á íslandi, Hörður Bjarnason fv. húsameistari ríkisins. Hörður á að baki litríkan feril sem arkitekt og embættismaður, en á starfsferli sínum hefur hann átt drjúgan þátt í að móta það um- hverfi, sem við nú lifum í. Að öðrum starfsbræðrum okkar ólöstuðum, þá má telja hann einn frernsta og mikilvirkasta kirkjuarkitekt íslend- inga á þessari öld. Hann kom víða við sögu, en hápunkti ferils síns náði hann vafalaust með hönnun dómkirkjunnar í Skálholti, enda var það verkefni honum mjög hugfólg- ið. Hörður Bjamason fæddist í Reykjavík 3. nóvember 1910 og hefði því náð áttræðisaldri eftir tvo mánuði. Hann var sonur hjónanna Bjarna Jónssonar frá Galtafelli og konu hans, Sesselju Ingibjargar Guðmundsdóttur. Hörður lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1931, en það var á menntaskólaárunum, sem hann tók þá ákvörðun, að leggja stund á byggingarlist. Hann lauk fyrri- hlutaprófi í byggingarlist frá há- skólanum í Darmstadt í Þýska- landi, en fullnaðarprófi árið 1937 frá háskólanum í Dresden í Þýska- landi. Þegar heim var komið, að námi loknu, hóf hann störf í félagi við arkitektana Sigurð Guðmunds- son og Eirík Einarsson. Ári síðar varð hann fulltrúi skipulagsnefndar ríkisins og síðar skrifstofustjóri. Skipulagsstjóri ríkisins var hann í 10 ár, eða frá því að það embætti var stofnað árið 1944, og til ársins 1954. Það ár var hann skipaður húsameistari ríkisins og gegndi þvi embætti til ársloka 1978, eða í tæp 25 ár. Á. farsælum starfsferli hefur Hörður með sinni næmu smekkvísi, víða lagt hug við hönd. Af mörgu er því að taka, þegar minnst er þeirra bygginga, sem Hörður hefur lagt grunn að og mótað á teikni- borðinu. Svo sem áður er vikið að skipa kirkjur tvímælalaust heiðurs- sess meðal þeirra verka. Þekktastar þeirra eru Skálholtskirkja, Kópa- vogskirkja og Langholtskirkja. Þesíar þijár kirkjur, sem eru hver annarri ólíkar, enda hannaðar fyrir ólíka staðhætti og út frá mismun- andi forsendum, hafa allar brotið blað í kirkjulegri byggingarlist hér- lendis á þessari öld. Þáttur Harðar við hönnun Hallgrímskirkju er einnig mjög mik- ilvægur, enda kom það í hans hlut að taka við hönnun þeirrar kirkju, að Guðjóni Samúelssyni látnum. Á því stigi var mótun Hallgrímskirkju að utan lokið, en það kom í hlut Harðar að forma það innra útlit sem við blasir í dag. Af öðrum byggingum, sem Hörð- ur hefur unnið að, er hér aðeins rúm að nefna fáar. Nefna má Hafnar- hvol og Borgartún 7 sem einskonar frumraun Harðar að loknu námi. í þessum byggingum eru glögg ein- kenni frá námsárum Harðar, þegar funksionalisminn var að springa út og Bauhaus-stefnan var einskonar áttaviti ungra arkitekta. Af fyrri verkum sem Hörður fékkst við má einnig nefna Nýja bíó og Austur- bæjarbíó í Reykjavík. Af síðari verkum sem alþjóð þekkir, og Hörð- ur leiddi hönnun á, má nefna bygg- ingar og viðbyggingar á Landspít- alalóð, sjúkrahús á Akureyri, Akra- nesi, Selfossi og í Vestmannaeyjum, Árnagarð á lóð Háskóla íslands, aðalbyggingu Kennaraháskóla Is- lands og ýmsa aðra skóla, meðal annars á Laugarvatni. Hörður teiknaði einnig ýmis glæsileg ein- býlishús í Reykjavík, nokkra reisu- lega sumarbústaði við Þingvalla- vatn, svo og viðbyggingu við Þing- vallabæ og við gistihúsið Valhöll. Auk starfa að skipulags- og hönnunarmálum hafa hlaðist á Hörð fjölmörg trúnaðarstörf, sem beint eða óbeint hafa samtvinnast hans aðalstarfí. Má þar meðal ann- ars geta stjómarstarfa í skipulags- stjórn ríkisins, framkvæmdastjóra- starfa fyrir Þingvallanefnd og störf við undirbúning að ráðstefnum og móttöku erlendra gesta. Hann hafði um árabil með höndum umsjón með byggingarframkvæmdum á Kefla- víkurflugvelli í umboði utanríkis- ráðuneytisins og sat um skeið i vamarmálanefnd. Hann gegndi for- mennsku í byggingamefnd Þjóð- leikhússins þau árin, sem unnið var að lokahönnun og fullnaðarfrágangi þess. Síðar átti hann sæti í Þjóðleik- húsráði í tæp þijátíu ár. Hann var lengi formaður Islandsdeildar nor- ræns byggingardags (NBD). Einnig hefur hann var verið formaður Arki- tektafélag íslands og Stúdentafé- lags Reykjavfkur, forseti Rótarý- klúbbs Reykjavíkur og setið í safn- stjóm Listasafns Einars Jónssonar. En eru ótaldar byggingamefndir ýmissa opinbera bygginga svo sem Stjórnarráðshúss, Menntaskólans í Reykjavík, Læknadeildar Háskóla íslands, Lögreglustöðvar í Reykjavík, Náttúmgripasafns, Þjóðarbókhlöðu, Ríkisútvarps og Tollstöðvarhúss í Reykjavík. Hörður hefur verið • sæmdur stórriddara- krossi Fálkaorðunnar auk ýmissa erlendra heiðursmerkja. Undirritaður kynntist Herði fyrst í starfí fyrir rúmum tuttugu ámm, þá er ég, nýútskrifaður arkitekt, hóf störf hjá húsameistara ríkisins. Upphófst fljótt hjá okkur náið sam- starf og góð vinátta. Hörður hafði einstakt lag á að ná til ungra sam- starfsmanna, sýndi þeim traust og lét þá fínna til ábyrgðar. Samstarfs- árin undir Herði sem húsameistara urðu tæplega ellefu. Það var hvort tveggja í senn ánægjulegur og gagnlegur reynslutími. Hörður var smekkmaður, list- rænn, nákvæmur og samviskusam- ur, svo sem verk hans bera glöggt vitni um. Sem yfirmaður var hann mikils metinn af samstarfsmönn- um, ekki síst vegna léttrar lundar og vinsemdar. Óhætt er að fullyrða, að alla tíð hefur góður samstarfs- andi fylgt Herði. I fasi hans var sá eiginleiki áberandi, að hann vildi allra vanda leysa. Hvort sem gott málefni var smátt eða stórt, þá var Hörður ávallt reiðubúinn til að veita liðsinni sitt. Á ferðum erlendis naut Hörður sín vel, enda heimsmaður. Hann ávann sér traust og vináttu ýmissa erlendra kollega og annarra sam- starfsmanna, m.a. í gegnum mikil samskipti við Norðurlönd og Banda- rikin. Það er þó fleira en starfíð eitt, sem gefur lífínu gildi. Já, það er öll framganga manna, meðal sinna nánustu og annarra samferða- manna, sem ber vitni um mann- kosti og lífsviðhorf. Á hinum persónulega vettvangi hefur Hörður verið gæfumaður. Hörður kvæntist 1939 eftirlifandi eiginkonu sinni, Kötlu Pálsdóttur, sem ættuð er úr Reykjavík. Foreldr- ar hennar voru Páll Steingrímsson ritstjóri og Guðrún Indriðadóttir leikkona, dóttir Indriða Einarssonar skálds. Böm þeirra eru Áslaug Guðrún Harðardóttir, gift Jóni Há- koni Magnússyni framkvæmda- stjóra, og Hörður H. Bjamason protokollstjóri_ utanríkisráðuneytis- ins, kvæntur Áróm Sigurgeirsdótt- ur. Barnabörnin em orðin fimm. Katla hefur verið Herði góður lífsfömnautur, glæsileg eiginkona, sem hefur staðið honum við hlið á íjölskrúðugum lífsferli. Böm þeirra og heimili á Laufásvegi bera glöggt vitni um einstaka alúð þeirra hjóna, svo og virðuleika samfara eðlislægu látleysi. Ekki verður við þessar línur skil- ið án þess að getið sé þeirrar ánægju, sem í því fólst að sækja Kötlu og Hörð heim. Á heimili þeirra var gestrisni og létt lund í fyrirrúmi og hafði Hörður einstakt lag á að örva hláturtaugarnar, m.a. með skoplegum frásögnum af liðn- um atburðum. Við geymum minn- inguna um góðan vin og margar ógleymanlegar stundir, bæði hér heima og á ferðum erlendis. Fyrir hönd fýrrverandi sam- starfsmanna Harðar flyt ég Kötlu og fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur um leið og við Birna þökk- um sérstaklega góðar samveru- stundir og biðjum Kötlu, bömum þeirra og barnabörnum guðs bless- unar. Garðar Halldórsson Hörður vinur okkar er látinn tæplega áttræður. Hann var lengst- um heilsugóður, en smáhrakaði líkamlega síðustu árin. Um ætt hans verða aðrir mér fróðari að skrifa, en eg veit að hann var stórr- ar ættar og bæði ættfróður vel og mjög frændrækinn. Hörður var hamingjumaður. Hann ólst upp á miklu menningar- heimili, þar sem listir, gestrisni, góðvild og fornar dyggðir voru í heiðri hafðar. Rækti hann þær sjálf- ur alla ævi. Enginn var einlægari né trúrri vinur en hann. Hann var líka vel kvæntur og átti góð börn. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Menntaskólanum á Akureyri. Það voru mótandi ár undir handleiðslu Sigurðar skólameistara. Að loknu stúdentsprófí 1931 hélt Hörður til Þýskalands og nam byggingarlist, og kom heim rétt fyrir aðra heims- styijöld. Leiðir okkar skildu því um sinn, því eg fór til Danmerkur að loknu háskólanámi hér og dvaldi þar fram yfír stríð. Það var svo 1945 að leiðir okkar lágu saman aftur. Við hjónin komum þá heim til að gera upp hug okkar, hvort við vildum heldur búa í Danmörku eða á íslandi. Móttökumar sem við fengum hjá Herði og Kötlu og öðr- um gömlum skólabræðrum voru þannig, að við ákváðum að setjast að hér. Það var því ekki síst þeim hjónum að þakka að við völdum þann kostinn. Hörður var mikill gleðimaður. Hann hafði ánægju af að hitta aðra, og þar sem margt fólk kom saman í heimahúsum eða við opinber tæki- færi, gat maður verið viss um að heyra smitandi hlátur hans í miðjum hópnum. Hörður var líka mikill listamaður og tók verkefni sín alvarlega. Mörg falleg einbýlishús hans prýða bæinn og bera smekkvísi og hagkvæmni glöggt vitni. Hann hafði þann góða eiginleika, sem því miður er ekki algengur, að hugsa fyrst og fremst um óskir og þarfír þeirra sem hann reisti hús fyrir, en gera þau ekki að minnisvarða fyrir sjálfan sig. Um það erum við öll, sem hann teiknaði hús fyrir, sammála. Hörður hefír samt reist sér marga minnisvarða, sem halda hróðri hans uppi um ókomin ár. Verða þá efst í huga kirkjubygging- ar, og nefni eg aðeins Kópavogs- kirkju, Langholtskirkju og Skál- holtskirkju. Endurreisn Skálholts- staðar og bygging kirkjunnar þar voru tvímælalaust kærustu verkefni hans. Þar lagði hann sig allan fram og hætti ekki fyrr en hann vissi að hann gat ekki gert betur. Eg fylgd- ist vel með þessu og sá daglega nýjar og nýjar teikningar og hug- myndir. Fullyrði eg að teikningar skiptu tugum. Herði var það óbland- in gleði að hljómburður sumra bygginga hans er með því besta sem þekkist. Eg ber ekki skynbragð á þetta, en hefí eftir öðrum. En eg er að kveðja vin minn, besta vin minn í meira en sextíu ár. Vissulega fyllist maður söknuði og trega. En líka gleði, því eg ann vini mínum þessara endaloka. Þeg- ar heilsan er farin og engin von um líkamlegan bata, er það góð forsjón sem leyfði honum að halda and- legri reisn, og fá að skipta um líkama þegar þessi var orðinn ónýt- ur. Og óðum styttist í endurfundi, sem eg hlakka til. Við hjónin sendum Kötlu, börn- um þeirra og öðrum ástvinum sam- úðarkveðjur og þökk fyrir allt sem þau hafa verið honum — og okkur. Ingeborg og Friðrik Einarsson. Annan dag þessa mánaðar and- aðist vinur minn, Hörður Bjarnason. Með fáum línum vil ég kveðja höfð- ingjann, ættaðan úr Hreppum, hinstu kveðju. Á hraðfleygri stund reynist mér erfítt að gera langri starfsævi Harð- ar nein skil. Til þess brestur mig þekking á umfangsmiklum störfum hans, sem skipulagsstjóra ríkisins og síðar húsameistara ríkisins. En ég kynntist Herði takmarkað þar til fyrir um tíu árum er embættis- ferli hans lauk. Frá þeim tíma hafa ég og mínir átt góðhug hans og ræktarsemi. Fyrir rúmum þremur áratugum er ég kom heim frá námi voru flest- ar opinberar byggingar hannaðar hjá húsameistara ríkisins. Mér virt- ist þá vera veggur á milli embættis- ins og_ sjálfstætt starfandi arki- tekta. Ég fann að Hörður galt þess á stundum hjá starfsbræðrum að vera öfugu megin veggjar. Ég hygg að þetta hafí sært hans hjarta. Það best ég veit átti Hörður drýgstan þátt í að breyta þessari skipan og færa verkefni ríkisins út á almenn- an markað. Augljóst er að störf Harðar í stöðu húsameistara ríkisins kölluðu á umfjöllun. Sagan kennir okkur að oft revnist erfítt að meta verk samferðamanna. Verk Harðar eru þar engin undantekning, en framlag hans til byggingarlistar í landinu hygg ég að rísi hæst með Skálholts- kirkju og Kópavogskirkju. Þessi verk munu halda nafni hans á lofti um_ ókomin ár. Ég kynntist Herði fyrst 1968 er Norrænn byggingardagur var hald- inn hér á landi, en Hörður gegndi þá formennsku í þeim samtökum. Hann átti auðvelt með að tjá sig í ræðu og riti og að umgangast fólki. Síðar kynntist ég honum er Skál- holtsskóli var í burðarliðnum, en þá fann ég að Skálholtskirkja átti hug hans og hjarta. Enn lágu leiðir okkar saman er hann hóf störf við Þjóðarbókhlöðu, en Hörður sat þar í byggingarnefnd, og eru aðeins ljú- far minningar frá því samstarfí. Okkar nánari kynni hófust er við gerðumst nágrannar og síðar vinir eins og fram hefur komið. Má vera að hér hafi ráðið einhverju frænd- semi okkar úr Hreppum, austur. Áttum við saman góðar spjallstund- ir og er best lét sólarstundir í Bene- ventum í Öskjuhlíð, ásamt nokkrum vinum. Hann var ljúfur maður og spaugsamur. Maður gekk ávallt léttur í spori af hans fundi. Þau hjón Katla og Hörður voru höfðingjar heim að sækja, þar sem elskusemi og gestrisni réð ríkjum. Þessum fáu línum vil ég ljúka með að færa Kötlu og bömum þeirra og öðmm ástvinum innilegar samúðarkveðjur mínar og fjöl- skyldu minnar. Manfreð Vilhjálmsson Ég var svo lánsöm, krakki, að verða heimagangur á Laufásvegi 68, heimili Harðar Bjamasonar og Kötlu Pálsdóttur, bama þeirra Lau- lau (Áslaugar Guðrúnar) og Bóbós (Harðar yngra) og móður Kötlu, Guðrúnar Indriðadóttur. Dóttirin Laulau varð besta vin- kona mín. Á þeim tíma átti maður eina „bestu vinkonu" og við vomm bestu vinkonur allmörg ár, og emm það áreiðanlega enn innst bakvið allar umbúðimar, sem lífíð og sam- félagið hefur lagt okkur báðum. Á Laufásvegi 68 var ég heima- gangur í orðsins fyllstu merkingu frá 11 ára aldri og öll mín við- kvæmustu unglingsár. Oftar en ekki gisti ég þar, þá var eins og enn er hjá krökkum oft spurt: má hún sofa hjá mér í nótt? Og ég man aldrei eftir að því væri neitað hjá Herði og Kötlu. Þetta heimili, fólk þess og gestir, v varð mér nýr heimur, fagur og stór. Heimili Harðar og Kötlu var hið ríkmannlegasta sem ég hafði komið á og seinna skildi ég, að það er næsta sjaldgæft að á slíku heimili rfki jafn listrænn og hlýr blær og þama gerði. Hörður var bróðursonur Einars Jónssonar myndhöggvara, sonur Bjama frá Galtafelli, bíó-Bjama, sem átti Nýja bíó með Guðmundi Jenssyni. Bjuggu foreldrar Harðar, Bjami og Sesselja, í því fagra húsi Galtafelli við Laufásveg og þar bjó einnig Bíbí (Laufey) systir Harðar og bóndi hennar Ámi Snævarr verkfræðingur. Þau áttu mörg böm og minnisstæðast þeirra er Lillý Svava, sem var á þeim árum nokkru eldri og gátum við Laulau setið tímunum saman í tumherbergi hennar á Galtó og horft á hana með aðdáun og fengið að skoða kjólana hennar aftur og aftur. Þau bíó-Bjami og Sesselja vom mild og elskuleg hjón. Til dæmis var Bjami svo yndislegur, að hann ók eitt sinn alsæll upp eftir Lauga- veginum á móti umferðinni, af því hann var í djúpum þönkum um annað og merkilegra en umferðar- reglurnar. Tvær systur Harðar, Áslaug og Svava, dóu á ungum aldri og em mér minnisstæðar myndir af þeim, bæði á Laufásvegi 68 og á Galta- felli, svo sviphreinar vom þær og slíkur rómantískur blær yfír þeim, sem snemmdánum. Bróður sinn, Stefán, missti Hörður líka á ungum aldri, en sonur hans, Bjami, býr nú að Galtafelli og í hús gegnt því fluttust svo Hörður og Katla, þegar þau minnkuðu við sig fyrir allnokkr- um árum. Guðrún Indriðadóttir, leikkona og móðir Kötlu, bjó á þessum ámm hjá Herði og Kötlu. Hún hafði stofu og svefnhýsi á annarri hæð húss- ins. Mikil rólyndis-, festu- og menn- ingarblær ríkti í þessum herbergj- um eins og yfir Guðrúnu sjálfri. Það var sem hún gæti bmgðið yfír sig hulu, þegar hún sjálf vildi, og ég man, að oft var hún sem sveipuð þessari hulu. Þetta var þvíumlíkt eins og maður vissi, að álfadrottn- ingar gátu yfír sig bmgðið. Eitt sinn man ég að hún kom að okkur Laulau í miklum fíflaskap. Það var sem hún sæi þetta ekki, þótt hún stæði kyrr og biði þess að linnti. Og því linnti fljótt. Katla Pálsdóttir, kona Harðar var ákaflega tignarleg kona og kvenna fegurst, klæddist vel og fallega, og var hrein list hvemig hún bjó sér og sínum umhverfí því eins og ég nefndi fyrr hef ég ekki vitað fólk fara eins fallega og vel með sitt og þarna var gert. Miklar sælustundir áttum við Laulau 13 og 14 ára, þegar við fengum að vísa til sætis í Nýja bíói. Með græna báta á höfðum gerðum við þá all misheppnaðar tilraunir til að líkja eftir göngulagi Marilyn Monroe. Hörður Bjarnason var gæddur sannri höfðingslund, gjafmildur og örlátur á sjálfan sig. Hann veitti mér sanna föðurást og þótt ég

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.