Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 23 Skalholtskirkja. Langholtskir kj' a. Kópavogskirkja. væri alls ekki á neinn hátt umkomu- laus, varð ást hans mér mjög mikils- verð. Skap mitt og tiltæki á þessum árum voru oft all sérkennileg og ýmis uppátæki okkar Laulauar voru skringileg og jafnvel háskaleg. Þetta skildu þau Hörður og Katla, oftast nær. Eitt sinn man ég þó að við gengum svo fram af þeim, að Hörður varð reiður og rétti okkur báðum kinnhest. Mér sárnaði þetta ógnarlega, en viðbrögð vinkonu minnar voru gríðarleg reiði, ekki síst af því að ég fór að skæla. Við fórum svo báðar með snúð upp til herbergis Laulauar. Þetta var snemma nætur og Katla sat hjá okkur og huggaði mig. Þegar liðið var nokkuð á nóttina, og Katla far- in, kom hún aftur inn til okkar, og sagði, að Hörður gæti ekki sofnað nema ég kæmi og kyssti sig góða nótt. Sem ég gerði og sofnaði svo afar vært. Ég spilaði mikið á gítar um þær mundir og söng. Var feimin að leyfa Herði og Kötlu að heyra mig syngja, ætlaði að gera það seinna, þegar ég væri farin að syngja betur. Mér er það mjög minnisstætt, að Hörður sagði einu sinni við mig útúr sínu hlýja brosi: Einhvern tíma átt þú eftir að syngja og syngja ... Eitt er það atvik, sem hefur greipzt fast inní mig frá þesum árum: Dag einn, 13 ára gömul, varð ég fyrir mjög sárri reynslu og þótti ég ekki getað leitað til neins í vanda mínum. Ég sat lengi þenn- an dag alein á túni sem þá var fyr- ir ofan Snorrabraut, nærri gamla skátaheimilinu. Ég ranglaði svo síðla dagsins inní sjoppu við Leifs- götu og hringdi heim á Laufásveg 68. Þá höfðu fósturforeldrar mínir haft samband þangað og voru hrædd um mig. Ég talaði slitrótt í símann, en Laulau lét mig lofa sér því að koma strax niður á Laufás- veg. Ég var þar hjá þeim langt fram á kvöld og ekkert var talað um þennan atburð. En þau öll voru svo alveg hjá mér. Og ég svo alveg hjá þeim. Mér hjartkærum Kötlu, Áslaugu Guðrúnu, Herði yngri, bömum og barnabörnum sendi ég mína hlýjustu samúð. Nína Björk Árnadóttir Kirkjan þakkar Herði Bjarna- syni. Hann var ekki aðeins góður sonur hennar og mat hana mikils, kenningar hennar og framlag til velfamaðar þjóðarinnar, heldur sýndi hann í hugviti sínu og fram- lagi, í hvaða átt ber að stefna. Hörður er höfundur Skálholts- kirkju sjálfrar og margra annarra kirkna víða um land. Það var annað yfirbragð yfir síðustu Skálholts- hátíð, af því að Hörð vantaði. Spurðu kunnugir hver annan, hvað ylli fjai-vistum. Fyrr á slíkum há- tíðum hafði hann lagt sitt fram. Á hinum síðustu fór hann hægar yfir og var frekar þiggjandi en veit- andi. Þannig sagði aldurinn til sín og síðan sjúkdómar. Aldrei mun ég gleyma honum á Skálholtshátíðinni 1983.. Þá rann saman í styrkum farvegi hugur hans og áhugi á Skálholtsstað og hlýjan mót frænda sínum, sem þá þáði biskupsvígslu. Þótti honum sá dagur ekki síðri en mér sjálfum og þeim, sem næst eru taldir standa. Og hann túlkaði þetta af slíkum innileik, að hlýja sólarhitans magn- aðist og birta fagurs dags ljómaði enn tignarlegar. Og nú er að þakka Herði fyrir framlag hans allt og ævina góðu. Njóta arkitektar þess umfram marga, að framlag þeirra hverfur ekki með þeim sjálfum. Verkin standa og lofa meistarann, þegar vel hefur til tekist. Þannig mun Hörður lifa í þakklátri minningu. Verkin hans gleymast ekki, maður- inn sjálfur er þar nærri, af því ekki kunni hann annað en leggja sig allan fram í list sinni og leita ætíð bestu leiða til túlkunar því sem margir skyldu njóta. Hörður leit upp og hvatti aðra til hins sama. Kirkjur hans beina sjónum í átt til himins. Guði er þakkað fyrir góðan og mætan dreng, sem lét kirkju lands síns njóta framlags síns og dró aldrei úr. Ástvinum vottum við samúð, en fögnum því að mega enn um ókom- in ár njóta framlags Harðar Bjarna- sonar. Svo mun verða á næstu Skál- holtshátíð, já, í hvert skipti, sem kirkjugestur þiggur framlag hönn- uðar til að gangan fram fyrir Guð beri þann árangur, sem trúin boðar. Ólafur Skúlason Þegar Hörður Bjarnason er kvaddur verða þar margir, sem ekki geta orða bundist, svo vinsæll var maðurinn og vel látinn, svo mörg verka hans eru þegar orðin alþjóðaeign. Mig langar því hér aðeins að geta eins þáttar á æviferli Harðar, sem fæstum er jafn kunnur, eðlis síns vegna; afskipta Harðar Bjarna- sonar af leikhúsmálum og þá eink- um málefnum Þjóðleikhússins. Hörður Bjarnason sat í Þjóðleik- húsráði frá upphafi og til 1978, þegar ný lög voru sett fyrir leikhús- ið, samtals ekki færri en 28 ár og þó reyndar gott betur því að ráðið tók auðvitað til starfa áður en leik- húsið var opnað. Ég hafði því þá ánægju að vinna sex ár með Herði að málefnum leik- hússins. Á þeim tíma kynntumst við vel og urðum vinir. Mér er tjáð, að val Harðar í ráðið hafi m.a. helg- ast af því að hann var kvæntur Kötlu Pálsdóttur dóttur Guðrúnar Indriðadóttur, einnar fremstu leik- konu, sem þessi þjóð hefur alið; frú Katla er þannig dótturdóttir Indriða Einarssonar, sem að öllum ólöstuð- um á mestan heiður skilið fyrir að við eignuðumst Þjóðleikhús fyrr en -sumar aðrar menningarþjóðir. Hörður varð þannig óopinber full- trúi þess fólks, sem þjóðin stóð í þakkarskuld við öðrum fremur í þessu máli. Auðvitað var Hörður þó valinn í þetta trúnaðarsæti fyrst og fremst vegna sinna mannkosta. En ekki spillti þó, að hann gegndi embætti húsameistara, en bygging Þjóðleikhússins, breytingar og lag- færingar heyra undir embaattið. Ég minnist þess að skömmu eftir að ég kom til starfa við leikhússið, kom upp mál, sem gat orðið við- kvæmt. Notkun ljósa hafði breyst frá því að leikhúsið var smíðað og leikur færst fram og nær áhorfend- um. Það hafði í för með sér nokkr- ar breytingar á salnum. Hörður leysti það mál af þeirri smekkvísi og hugkvæmi sem honum var lag- ið. Ljósin komu upp, salurinn var áfram eins og höfundur hússins, Guðjón Samúelsson, hafði óskað eftir, að hann yrði — og áhorfendur tóku ekki eftir neinni breytingu, nema ef þeim fannst leikurinn ganga nær sér. Annað mál ræddum við Hörður oft, enda var honum það mjög hug- leikið, og mér er orðið það líka. Þegar staðsetning Þjóðleikhúss- byggingarinnar var ákveðin upp- hófust sem kunnugt er miklar deil- ur; mönnum fannst of þröngt um þetta glæsilega hús — og virðist þetta vera árátta á okkur íslending- um, þá sjaldan við reisum leikhús. Þá sagði Hörður mér, að heitið hefði verið, að spildunni fyrir fram- an húsið, frá Hverfísgötu að Lauga- vegi, skyldi gera torg — Indriðat- org. Þetta skyldi ekki verða allt í einu, en engar nýjar stórbygginar leyfist að setja upp á þessu svæði. Ég vona ég hafí mislesið það einhvers staðar nýlega, að ráðgert sé að reisa stórhýsi í steinsteypu á bílastæðinu andspænis leikhúsinu. Ef mönnum er alvara að halda lífí í miðbænum, þá mætti kannski byija á því að standa við gömul fyrirheit. Þegar ég kom til starfa bar ég eðlilegan kvíðboga fyrir því, hvemig okkur mundi koma saman, Þjóðleik- húsráði og mér. Þetta kom m.a. af þeirri grundvallarskoðun minni, að menn sem valdir eru af stjórnmála- skoðun þurfí ekki endilega að verða hæfari til að stýra leikhúsum en þeir sem eru valdir af einhverri ánnan-i skoðun. Sá kvíði reyndist ástæðulaus og samvinna okkar var með ágætum. Það helgaðist fyrst og fremst af því, að þetta ráð gerði sér grein fyrir því, að samkv. þá- gildandi lögum bar leikhússtjórinn höfuðábyrgð á rekstri hússins og bar því að ráða ferðinni meira og minna af þeim sökum í krafti fag- legrar þekkingar sínnar. Þetta gamla ráð hafði mikinn og gamal- reyndan hæfíleika til að gera greir.- armun á aðalatriðum og aukaatrið- um ,hvað til þess friðar heyrði og hvað ekki. Þar með er ekki sagt það hafí setið aðgerðalaust eða lát- ið sig málefni leikhússins litlu skipta, þvert á móti. í leikhúsráðinu var Hörður t.d. mjög tillögugóður. Hann hafði yndi af leikhúsi og sá mikið af sýningum, þegar hann var á ferðalögum erlendis. Þannig átti hann t.d. uppástungu að gamanleik, sem ég hafði vissar efasemdir um í fyrstu, en reyndist þó þegar upp var staðið einn sá vinsælasti í sögu leikhússins. Þetta var Á sama tíma að ári. Mér er einnig tjáð, að’ hann hafi fyrstur hreyft því að sýna hér „My Fair Lady“. Hörður var sjentil- maður, ekki ráðagjarn en ráðagóður og laginn að leysa vanda, þegar þurfti. Hann gekk ekki erinda ann- arra, nema honum þætti réttlætis- mál' vera. Það er eðlileg regla í leikhúsinu, að hinn daglegi rekstur heyri meira og minna undir leikhússtjórann, en málefni hússins undir leikhúsráðið. Það lætur að líkum, að á áratuga ferli hefur leikhúsinu áskotnast mikið af góðum gripum, ýmist eru þetta gjafir eða munir með leiklist- ai-sögulegt gildi. Nokkru eftir að Guðlaugur Rósinkranz var allur og ekki lengur hægt að leita upplýs- inga hjá honum, tókum við Hörður Bjarnason okkur til og settum sam- an lista um þessar myndir og muni, uppruna þeirra og komutíma, gef- endur og ástæður. En þannig var Hörður, kunni vel að tengja saman söguna og nútímann, svo sem hans kannski fremsta verk, Skálholts- dómkirkjan, ber vitni. Þar er hvergi gengið á rétt fortíðarinnar, þótt horft sé fram á við. Þjóðleikshúsið á Herði Bjarna- syni mikið að þakka. Nú, þegar hans hlýja og þétta handtak er ekki lengur á meðal okkar, skulu þær þakkir fluttar honum, en frú Kötlu og ijölskyldunni innilega samúð. Sveinn Einarsson Hann færði þjóð sinni fagrar kirkjur. Á sjötta áratugnum störfuðum við nokkrir ungir arkitektar saman hjá Húsameistara ríkisins. Jafnaldr- ar menntaðir í mismunandi löndum, sem urðum að samrýndum hópi, „drengjunum hans Harðar“ æ síðan. Hörður fylgdist með ungum arki- tektum við nám og kallaði þá til sín. Þannig var með okkur. Þessi ár voru eins og framhalds- skóli í húsagerðarlist með manni sem var næmur listamaður. En þetta voru líka ár þar sem við feng- um að kynnast umhyggju, virðingu og hlýju þessa sanna heiðursmanns. Kynni okkar Harðar héldust æ síðan og ég var svo heppinn að ná að líta til hans áður en hann kvaddi, sjá glampann í augunum þegar ég glettist við hann og fínna hlýja handtakið. Mörg hús, stór og smá, standa hér í Reykjavík og vítt um landið sem eru verk Harðar eða unnin undir handleiðslu hans sem húsa- meistara ríkisins. Lang hæst í huga hans sjálfs bar Skálholtskirkju, tig- ið og agað verk á helgistað. Á árunum frá 1943 til 1962 rit- aði Hörður með nokkrum hléum dálkana „Bærinn okkar“ í dagblað- ið Vísi. Skrifaði hann þá sjálfur að miklu leyti og fjallaði um skipu- lags- og byggingarmál í borginni. Leitaði hann einnig umsagnar og ályktana fagmanna um viðhorf til dægurmála í byggingu og útliti bæjarins, ásamt verklegum fram- kvæmdum og fleira. Er í þessum þáttum að fínna ómetanlegan fróð- leik frá þessu tímabili, skínandi skarpa framtíðarsýn um þróun borgarinnar og skemmtilegar at- hugasemdir í anda höfundar og tíðar. Hörður var fjölfróður, kíminn og glaðvær og því var einstaklega gott andrými í kringum hann og heimili þeirra Kötlu. Þau hjón voru skemmtilega samrýnd í að skapa þetta andrými. Þegar drengur góður er nefndur minnist ég Harðar Bjarnasonar. Við „drengimir hans Harðar" sendum Kötlu og börnunum bestu samúðarkveðjur og þökkum góðar stundir. Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt. Kveðja frá Listasafni Einars Jónssonar Hörður Bjarnason fv. húsameist- ari ríkisins og formaður stjórnar- nefndar Listasafns Einars Jónsson- ar er látinn. Hörður var bróðurson- ur Einars Jónssonar og tók sæti í stjórn safnsins árið 1976 og frá árinu 1981 var hann formaður stjómarinnar. í sambandi við þær margháttuðu endurbætur, sem gerðar hafa verið í safninu og um- hverfí þess í formannstíð Harðar, þar sem hæst ber opnun högg- myndagarðs safnsins, naut sín vel reynsla hans og smekkvísi og jafn- framt sá mikli metnaður, sem hann hafði fyrir hönd safnsins. í marg- víslegu samstarfí okkar á liðnum ámm er margs að minnast, en á þessari stundu er mér efst í huga hlýleiki hans, hjálpsemi og örlæti, þeir mannkostir sem voru svo ríkir í öllu fari hans og athöfnum. Fyrir hönd starfsfólks og stjómar Listasafns Einars Jónssonar sendi ég eiginkonu hans, Kötlu Pálsdótt- ur, og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Ólafur Kvaran

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.