Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990 * * SIGURÐUR Hróarsson nýráðinn leikhússtjóri Borgarleikhússins er einn af þessum mönnum sem kann best við sig baksviðs. Hann er maður málamiðlana og líta má á ráðningu hans í starfið sem málamiðlun innan leikhúsráðsins. Sigurður var sá maður sem enginn hafði neitt á móti en aðrir umsækjendur áttu sterka and- stöðuhópa gegn sér. Þeir sem gagnrýnt hafa ráðninguna gera það einkum á þeim forsendum að ekki sé að búast við miklu frum- kvæði af hans hálfu í starfinu, engri rækilegri endurskoðun eða uppstokkun heldur að haldið verði óbreyttu ástandi. Hinsvegar á Sigurður gott með að vinna með fólki, hlustar fremur en talar og þó hann sé ekki beint menntaður til starfans hefur hann verið viðloðandi leiklist frá því á menntaskólaárum sínum norður á Akureyri. Sigurður er fæddur 14. maí 1956 í Hafnarfirði þar sem fæðingar- heimilið í Reykjavík var lokað á þessum tíma. Foreldrar hans, Hróar Björnsson og Ingibjörg Sigurðar- dóttir, bjuggu hinsvegar að Bif- röst í Borgarfirði á þessum tíma þar sem Hróar var kennari við Samvinnuskólann. Þau voru í heimsókn hér fyrir sunnan er fæðingu hans bar að. Á Bifröst ólst Sigurður upp fyrstu fjögur æviár sín. Hann var næstelstur í hópi fjögurra systkina. Frá Bifröst flutti fjölskyldan síð- an að Héraðs- skólanum á Laugum í Þingeyjar- sýslum og þar bjó Sigurður fram að tvítugu. Strax á unglingsárun- um á Laugum blunduðu með Sig- urði ákveðnir stjórnunarhæfileik- ar sem hann hefur búið að síðan. Aðrir krakkar á staðnum sóttu mjög í félagsskap hans og hann stjórnaði hópnum að mestu án þess að eftir væri tekið. Áhuga- mál hans á þessum tíma voru íþróttir og útivist. Hann átti drengjamet í 50 metra bringu- sundi, sett á Siglufirði 1969 og fjallgöngur hafa alltaf verið hans helsta áhugamál. Raunar tók hann námskeið í þeim er hann dvaldi um ársskeið við háskólann í Oregon í Bandaríkjunum síðar á ævinni. Annað áhugamál var teikning, sem hann ku dútla við enn. Allt frá því um fermingu hefur Sigurður unnið á sumrin í bygg- ingarvinnu með föður sínum. Hró- ar segir að strákurinn sé laghent- ur vel og þó nokkuð góður vegg- hleðslumaður. Hvað persónulega hagi Sigurðar varðar í dag er hann í sambúð með Láru Stefáns- dóttur listdansara en hann á eina dóttur af fyrra hjónabandi. Dóttir- in býr í Svíþjóð hjá móður sinni sem leggur stund á háskólanám þar. Sigurður gekk í Menntaskólann á Akureyri og lauk þar stúdents- prófí 1976. Hann þótti nokkuð upp á kvenhöndina í skólanum og það var sagt í spaugi að draumur hans væri að ná í kærustu sem ætti stóran áttagata jeppa, vænt- anlega svo hún væri tiltæk í fjall- göngur. Hann mun víst hafa gert einhverjar tilraunir í þá átt en án árangurs. Ein af vinkonum hans í MA, Elfa Ágústsdóttir, nú dýra- læknir á Akureyri, segir að hann hafi verið mjög líflegur og skemmtilegur strákur á þessum tíma. „Hann tók virkan þátt í fé- lagslífi skólans, þar á meðal leik- listarfélagi MA,“ segir Elfa. „Hann lék hinsvegar ekki en vann mikið baksviðs.“ Á þessum árum stundaði hann einnig mikið fjall- göngur og þar mun komin sagan um að kærastan þyrfti helst að eiga öflugan jeppa. Að loknu námi í MA dvaldi Sig- urður um eins árs skeið við háskól- ann i Oregon. Þar lagði hann stund á ensku og leikbókmenntir en tók einnig námskeið í fjall- göngu sem skólinn bauð upp á. Árið 1978 hóf hann svo nám í bók- menntum við Háskóla íslands og lauk þar magisterprófi sjö árum síðar. Einn af samstúdent- um Sigurðar í Háskólanum var Páll Valsson. Páll segir að Sigurð- ur hafi verið áberandi í félagslífi íslenskudeildarinnar í Háskólan- um, var m.a. um skeið formaður Mímis, félags íslenskunema. „Það sem ég man til hans úr skólanum var að hann var harður námsmað- ur og mikill vinnuþjarkur,“ segir Páll. „Raunar má segja að hann hafí verið berserkur til vinnu og hafði meira úthald til hennar en almennt gerist.“ Hvað persónu- leika Sigurðar varðar segir Páll að hann hafi komið sér fyrir sjón- ir sem mildur drengur og geð- þekkur. Að loknu náminu í Háskólanum vann Sigurður um eins árs skeið á auglýsingastofunni Gott fólk. Ólafur Stephensen eigandi stof- unnar man vel eftir Sigurði og þeir halda enn vinskap sín í mill- um. Ólafur segir að vinna Sigurð- ar á stofunni hafi verið millibils- ástand hjá honum en honum hafí fundist þetta spennandi starf. Sig- urður vann í hugmyndasmíð og textagerð og skilaði sínu starfí prýðilega að sögn Ólafs.„Allt sem hann gerði gerði hann vel enda er Sigurður bráðgreindur og skýr piltur,“ segir Ólafur. Árið 1986 var auglýst laus til umsóknar staða ritara hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur. Sigurður sótti um. Stefán Baldursson var þá leikhússtjóri og mun umsókn Sig- urðar hafa vakið athygli hans sem skemmtilega upp sett og orðuð og hefur Sigurður eflaust stuðst þar við reynslu sína af auglýsinga- vinnunni. Stefán réð hann til starfans ekki hvað síst fyrir áeggj- an konu sinnar Þórunnar Sigurð- ardóttur leikstjóra. Þórunn hafði hitt Sigurð nokkru áður eða er hún starfaði um tíma sem ritstjóri MflNNSMYNP eftir Fridrik Indridason VH> $ig baksviðs Páll Valsson bók- menntafræðingur: Harður námsmaður og mikill vinnu- þjarkur helgarblaðs Þjóðviljans. „Er ég vann á Þjóðviljanum kom hann til mín með grein um Fjölnismenn og vakti þá athygli mína enda greinin mjög skemmtilega skrif- uð,“ segir Þórunn. Seinna kynnt- ist Þórunn Sigurði persónulega því hún leikstýrði fyrsta stykkinu sem sett var upp hjá LA eftir að Sigurður hóf störf þar. Það var leikritið Hús Bernhörðu Alba. „Sigurður kemur mér fyrir sjónir sem mikill gáfu- og myndarmaður og hann hefur til að bera lista- mannseðli þótt menntun hans sé fyrst og femst á bókmenntasvið- inu.“ Sigurður þótti standa sig vei í starfí sem Ieikhúsritari hjá LR, sem slíkur sá hann um leikskrár og samskipti við fjölmiðla og kom fyrrnefnd reynsla hans í auglýs- ingum honum að góðum notum. Og víst er að hans gamli yfírmað- ur hjá LR Stefán Baldursson sem taka mun við stöðu Þjóðleikhús- stjóra er ánægður með að Sigurð- ur hlaut starfið. Stefán er nú í Noregi en Þórunn kona hans Elva Ágústsdóttir dýralæknir: Lífleg- ur og skemmtilegur strákur I mennta- skóla flutti honum tíðindin. „Það sem skiptir máli í samskiptum leikhú sstjóranna tveggja er að þeir verða að geta treyst hvor öðrum enda eru leikhúsin í raun ekki aðskilin heldur samtvinnuð," segir Þóninn. Á síðasta ári sótti Sigurður um stöðu leikhússtjóra norður á Ak- ureyri. Hann hlaut góð meðmæli frá LR með umsókn sinni og var valinn til starfans. Þórey Aðal- steinsdóttir framkvæmdastjóri Leikfélag Akureyrar segir að Sig- urður sé einstaklega heillandi maður og forréttindi að fá að vinna með honum. „Sigurður er mjög skipulagður í störfum sínum og hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig framkvæma á hlutina. Hann á líka gott með að hlusta á skoðanir annarra en fær síðan vilja sínum framgengt með róleg- heitunum. Þetta er afar mikilvægt á vinnustað eins og leikhúsi þar sem tilfinningaríkir einstaklingar starfa," segir Þórey. Sigurður mun almennt mjög vel liðinn innan Þórunn Sigurðar- dóttir leikstjóri: Hefurtil að bera listamannseðli þó menntun hans sé á bókmenntasviðinu LA og fólk þar leitt yfir því að missa hann suður til Reykjavíkur. Það er óalgengt að leikhússtjórar hjá LA hafi verið almennt vel liðn- ir þar í seinni tíð og bent hefur verið á að Sigurði hafí tekist vel að sigla milli skers og báru í starfi sínu hjá LA. Þær málamiðl- anir sem hann hafi gert í starfi sínu hafi hinsvegar bitnað nokkuð á starfi leikfélagsins þar sem list- rænt frumkvæði hafí nánast ekki verið til staðar þann tíma' sem Sigurður starfaði á Akureyri. Allir sem rætt var við í sam- bandi við þessa grein voru sam- mála um að Sigurður væri hörku- duglegur og drengur góður. Það sem hann segir standi og honum megi treysta fullkomnlega. Gagn- rýnisraddir ganga einkum í þá átt að hann skorti frumkvæði, að starf hans sem leikhússtjóra verði málamiðlun eins og ráðning hans var. En það á eftir að koma í ljós hvernig Sigurður stendur sig í stykkinu í þessu vandmeðfarna starfi. SIGURDUR llKO VRSSO\ UEIKHUS- STJÓRI líORGVRUEIKHtSSIfVS Kann best

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.