Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990
25
Breyting-ar á leiðakerfi
S VR taka gildi á mánudag
NOKKRAR breytingar á leiða-
kerfi Strætisvagna Reykjavíkur
taka gildi mánudaginn 22. októ-
ber næstkomandi. Bætt verður
inn nýrri leið, leið 111 Hlemmur
- Sel, hraðferð og er henni ætlað
að tengjast tímatöflu leiðar 11.
Nýja hraðferðin 111, Hlemmur
- Sel, ekur á klukkustundar fresti,
frá kl. 7 til 19, mánud. til föstud.
Bein tengsl verða við Borgarspítál-
ann að og frá Breiðholti en ekki
reyndist unnt vegna plássleysis að
koma við endastöð í miðbænum.
Sjá nánar á korti.
Leið 1, Hlíðar - Eiðsgrandi, mun
taka á sig lykkju við Stakkahlíð
um Háteigsveg og Bólstaðarhlíð,
með viðkomu við Bólstaðarhlíð 41.
Eins og áður verður ekið á 30 mín.
fresti frá mánudögum til föstu-
dags. Sjá nánar á korti.
A leið 3, Nes - Háaleiti, breytist
tímataflan á kvöldin og um helgar
þannig, að farið er á 30 mín. fresti
frá Lækjartorgi, 14 mín. og 44
mín. yfir heila tímann.
Vegna samræmingar á brottför
leiðar 12 í Mjódd á leið að Hlemmi
verður brottför leiðar 4, Hagar -
Mjódd, seinkuð um 4 mín. Brottför
verður þá 10 - 25 - 40 - 55 mín
yfir heila tímann.
A leið 11, Hlemmur - Sel, verða
þær breytingar að í stað þess að
aka um Stöng á leið frá Arnar-
bakka að Seljabraut, verður ekið
um Stekkjarbakka.
Leið 14, Lækjartorg - Sel, hrað-
ferð mun leggja niður ferðir um-
hverfis Arnarbakka að degi til.
Kemur leið 111 að hluta til í stað-
inn. Verður nú alltaf ekið um
Sekkjarbakka milli Mjóddar og
Seljahverfis. Kvöld- og helgarakst-
ur verður óbreyttur frá því sem
verið hefur, að öðru leyti en því,
að að og frá Seljahverfi verður
ekið um Stekkjabakka en ekki
Stöng.
í samræmi við ósk farþega verð-
ur brottför á leiðum 15A og 15B
flýtt frá Hlemmi um 5 mín. Verður
framvegis farið 05 og 35 mín. yfir
heila tímann.
Þá verður endastöð leiðar 17,
Lækjartorg - Öskjuhlíð flutt úr
Lækjargötu á Hverfisgötu.
Allar leiðir með viðkomu í Mjódd,
munu eftirleiðis hafa þar tímajöfn-
un. Upplýsingar um breytingarnar
er að finna í nýrri leiðabók SVR,
sem komin er út og verður til sölu
á skiptistöðvum SVR.
Rétt er að taka fram að vegna
lokunar við Skúlatorg munu leiðir
2, 3, 4, og 5 ekki aka um Lækjar-
götu á leið í vesturbæinn, heldur
um Fríkirkjuveg og Vonarstræti
eftir kl. 13 alla daga. Eru farþegar
því vinsamlega beðnir að taka sér
far á næsta viðkomustað í Vonar-
stræti.
Leið 1:
Hlíöar-Eiðsgrandi
gervihnattasjónvarp
EchoStar SR1 mono mótttakari m/þrábl. fjarst.
ásamt 1.2 m diski kostar 76.980,- kr.
25% útborgun: 19.245,- Eftirstöövar: 57.535,-
Lántökugjald, vátrygging og stimpilgjald: 2.736,-
Upphæð skuldabrefs: 60.471,-*
Creiðsla: 3.214,- í 21 mán.
Ath. Ekkert afnotagjald af gervihnattasjónvarpi!
p ta$tmlSlfKfcffe
| Meira en þú geturímyndað þér!
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Ekki ástæða að breyta
félagsforminu miðað
við óbreytta starfsemi
Á FÉLAGSFUNDI hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna á miðvikudag
var gerð grein fyrir niðurstöðum nefndar, sem stjórn SH kaus á
síðastliðnum vetri til að meta stöðu félagsins í nútíð og framtíð.
„Nefndin átti að meðal annars skoða hvort það félagsform, sem
Sölumiðstöðin býr nú við, þjóni hagsmunum félagsmanna best og
hún skilaði því áliti að miðað við að óbreytta starfsemi og hlutverk
Sölumiðstöðvarinnar væri ekki ástæða til að breyta félagsforminu,"
segir Jón Ingvarsson stjórnarformaður SH.
„Við teljuin okkur nú njóta bestu
kosta hlutafélagsformsins og ann-
arra félagsforma," segir Jón Ing-
varsson. „Við, sem i' nefndinni vor-
um, teljum að Sölumiðstöðin sé í
raun og veru mjög nálægt því að
vera hlutafélag, sérstaklega eftir
þær breytingar, sem gerðar voru á
samþykktum félagsins, einkum
varðandi atkvæðavægið.
Upphaflega var það þannig að
eitt atkvæði fylgdi hverju frystihúsi
en nú er atkvæðavæginu skipt nið-
ur þannig að 20% atkvæðanna
skiptast að jöfnu, 40% miðað við
eignarhluta félagsmanna í félaginu
og 40% miðað við útflutningsverð-
mæti næstliðins árs. Sölumiðstöðin
hefur því færst mjög í átt til hlutafé-
lags. Einnig má nefna að ábyrgð
félagsmanna á skuldbindingum er
takmörkuð, eins og í hlutafélagi.“
Á fundinum var einnig farið yfir
markaðsmálin og stöðu Sölumið-
stöðvarinnar og erlendra dótturfé-
laga hennar fyrstu 9 mánuði þessa
árs. Á því tímabili var hagnaður
Coldwater Seafood Corp., dóttur-
fyrirtækis SH í Bandaríkjunum, 1,6
milljónir dollara, eða tæplega 100
milljónir króna, fyrir skatta, að sögn
Jóns Ingvarssonar.
Icelandic Freezing Plants, dótt-
urfyrirtæki SH í Bretlandi, var rek-
ið án taps fyrstu 9 mánuði þessa
árs en tap fyrirtækisins var 1,2
milljónir sterlingspunda, eða um
130 milljónir króna, á sama tíma í
fyrra. Fyrstu 9 mánuðina í ár hefur
IFPL selt um 26% meira magn af
verksmiðjuframleiddri vöru en á
sama tíma í fyrra og verðið er 42,3%
hærra fyrstu 9 mánuðina í ár en á
sama tíma á síðastliðnu ári.
„Hjá Icelandic Freezing Plants
hefur átt sér stað mikil söluaukning
í verksmiðjuframleiddri vöru frá því
í september í fyrra og við teljum
að það sé árangur af söluátaki og
markvissri vöruþróun. Á sama tíma
hefur orðið samdráttur í sölu hjá
okkar helstu keppinautum, þannig
að þessi söluaukning bendir til að
við höfum náð aukinni hlutdeild í
markaðnum og við vonumst auðvit-
að til að hún haldist," segir Jón.
Hann segir að Bandaríkjamark-
aður eigi nú í vök að verjast. „Evr-
ópumarkaðurinn hefur tekið til sín
miklu meiri hlut en áður og skilar
hærra verði en Bandaríkjamarkað-
ur. Það er okkur mikið áhyggjuefni
hversu erfitt hefur reynst að fá flök,
sérstaklega þorskflök, fyrir Banda-
ríkjamarkað. Þar hefur flakasalan
dregist verulega saman frá því í
fyrra og ef þessi þróun heldur áfram
er auðvitað hætt við því að við
missum þennan markað. Það er
erfitt að koma aftur inn á markað-
inn og það gera menn yfirleitt ekki
nema með því að lækka verðið.“
Ódýrara en að eyða vetrinum í skammdegiskulda, snjó og hálku.
Nú býðst vetrardvöl á Mallorka á viðráðanlegu verði. Aðalgististaður okkar er hið glæsilega
íbúðahótel Oasis, rétt við höfuðborgina Palma. Tveggja herbergja íbúðir. Glæsilegir salir,
setustofur, sjónvarps og spilastofur, barir, veitingasalir og verslanir. 900 fermetra garður með
pálmatrjám og risasundlaugum. Stór upphituð sundlaug.
Islcnsk fararstjóm og fjölbreitt skemmtidagskrá, kvöldvökur, spilakvöld, stórt íslenskt bókasafn,
fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir á Mallorka, til Madrid, Barcelona, og Rómar.
Þama er veðrið, skemmtanalífið og sólskinið eins og best vcrður á kosið. Enda hefur Mallorka
verið ein vinsælasta vetrarparadís Evrópubúa í mcira en 150 ár. Tónskáldið Chopin lýsti
veRardvöl á Mallorka í einni setningu: " Paradís á jörð". Appelsínuuppskcran byrjar í janúarlok,
og því er slegið föstu að enginn staður á Spáni býður upp á bctra vetrarvcður.
Hægt er að fá 2ja, 3ja og 5 mánaða vctrardvöl í þessari sólarnaradís. Einnig styttri ferðir og 16
daga jólaferð. Næsta brottför í beinu lciguflugi 30. október.
^ FIUGFERÐIR
= SGLRRFLUG
Vesturgötu 12 - Sími 620066 og 15331